Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Föstudagur 9. október 2026

Eyrún Magnúsdóttir
Góðan dag. Kjaraviðræður og Nóbelsverðlaun hafa sett mark sitt á vikuna. Fjölmiðlar hafa keppst við að segja fréttir af viðræðunum og greina atburðarásina. Í nýjum þætti í hlaðvarpi Gímaldsins er sjónum beint að fjölmiðlum og hlaðvörpum. Hlaðvörp vilja ekki vera fjölmiðlar en virðast vera það samkvæmt lögum. Þátturinn er aðgengilegur á hlaðvarpsveitum og á vefnum okkar.

🌨️ Fremur hæg breytileg átt, en sums staðar strekkingur úti við norður- og vesturströndina. Rigning á Vestfjörðum, annars skúrir á víð og dreif. Fer að rigna austanlands í kvöld.

Samningar tókust

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda, eftir að VR og fagfélögin náðu samkomulagi við Samtök atvinnulífsins á síðustu stundu í gær. Ríkisstjórnin heitir því að krónutölugjöld sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs á árinu 2027 muni ekki hækka um meira en 2,5 prósent. Þá hét ríkisstjórnin því að ráðast í eftirtaldar þrettán aðgerðir.
  1. Íbúðum innan almenna íbúðakerfisins verði fjölgað til að tryggja betri leigumarkað
  2. Barnabætur þróist með sama hætti milli ára og gildir um þrepamörk í tekjuskattskerfinu.
  3. Mánaðarleg vísitölutenging leigufjárhæðar verði óheimil og að 12 mánuðir líði milli hækkana á leigufjárhæð.
  4. Breytingar á fyrirkomulagi húsaleigutrygginga.
  5. Greiningu á þróun húsnæðisstuðningskerfa fyrir eigendur húsnæðis.
  6. Átak í einföldun regluverks til að létta byrðar í atvinnurekstri og draga úr kostnaðarþrýstingi.
  7. Viðurlög efld við brotum á lágmarkskjörum launafólks.
  8. Greining og útfærsla hugmyndar um stofnun nýs örorkubótasjóðs vinnumarkaðarins.
  9. Innleiðing keðjuábyrgðar í stærri verklegum framkvæmdum.
  10. Viðbragðsáætlun gegn vaxandi atvinnuleysi með áherslu á aukinn stuðning og virkar vinnumarkaðsaðgerðir.
  11. Endurskoðun laga um Ábyrgðarsjóð launa.
  12. Einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028 mælist verðbólga yfir tilteknum markmiðum.
  13. Lágmarkskjör launafólks falli ekki niður vegna tómlætis.

Gímaldið, Stjórnarráðið

Navi Pillay /Mynd SÞ

Navi Pillay fær friðarverðlaunin

Hin Suður-Afríska Navanethem 'Navi' Pillay vinnur friðarverðlaun Nóbels í ár. Viðurkenninguna hlýtur hún fyrir baráttu fyrir friði og virðingu fyrir alþjóðalögum. Hún hefur gegnt dómarastörfum við yfirrétt Suður-Afríku, Alþjóðlega sakamáladómstólinn fyrir Rúanda og Alþjóðlega sakamáladómstólinn í Haag. Hún var mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna og fór þar til nýlega fyrir óháðri alþjóðlegri rannsóknarnefnd SÞ um hernumdu palestínsku svæðin. Í dag er Navi Pillay dómari við Alþjóðadómstólinn í máli um þjóðarmorð í Mjanmar.

Gímaldið

Vilja fækka varaforsetum

Ársþing ASÍ fer fram í næstu viku. Nýr forseti verður kjörinn á þinginu. Finnbjörn A. Hermannsson greindi frá því í sumar að hann sæktist ekki eftir endurkjöri. Tveir hafa gefið kost á sér: Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur sem starfaði um árabil hjá ASÍ, og Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU.

Fyrir þinginu liggur einnig tillaga miðstjórnar um að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur í einn, en fyrsti og annar varaforseti sambandsins eru einmitt líklegar til að soga að sér athyglina á þinginu. Það sýður reglulega upp úr milli þeirra Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, og Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar. Í gær sakaði Sólveig Anna Höllu um leikaraskap og sagði þá samninga sem tókust í gær ekki skila launafólki neinu umfram það sem Breiðfylkingin hefði þegar náð fram í samningum á þriðjudag. Þá hefur Sólveig lýst efasemdum um veru Eflingar innan ASÍ enda eigi félagsmenn hennar í Eflingu lítið sameiginlegt með félagsmönnum Höllu Gunnarsdóttur í VR.

Gímaldið

Margrét erfir föður sinn

Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms um sextán ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf fyrir að ráða öldruðum föður sínum bana og ráðast með ofbeldi á móður sína á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesi í Garðabæ í apríl í fyrra. Kröfu hálfbróður hennar um að hún yrði gerð arflaus var vísað frá dómi en Margrét var dæmd til að greiða honum 2,8 milljónir í miskabætur. Ekki var fallist á kröfu ríkissaksóknara um að refsing Margrétar yrði þyngd í 17 ár en krafan var gerð með vísan til þess að hún hafi beitt aldraða foreldra sína ofbeldi í langan tíma.

RÚV

Okkar kona vann

Kanadíska ljóðskáldið Anne Carson hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í gær. Hún var stödd á Íslandi þegar hún fékk fréttirnar. Íslendingar hafa að sjálfsögðu eignað sér þennan heiður en Carson er með íslenskan ríkisborgararétt. Fleiri eigna sér heiðurinn því Princeton-háskóli, þar sem Carson kenndi um árabil, fagnaði verðlaununum sem sínum eigin, þrátt fyrir að hafa synjað henni um fasta stöðu þegar hún óskaði eftir henni.

Semafor, Foreign Policy, BBC

Sagal Abdi-Wali sigraði í aukakosningum í Camden. Mynd/Breska þingið

Abdi-Wali sigraði Polanski

Zack Polanski, leiðtogi Græningja, náði ekki þingsæti í aukakosningum í Holborn og St Pancras, kjördæmi Keirs Starmer, þar sem frambjóðandi Verkamannaflokksins, Sagal Abdi-Wali, fékk um 45 prósent atkvæða en Polanski 33 prósent. Úrslitin þykja styrkja stöðu Burnhams, forsætisráðherra og vera nokkuð áfall fyrir Græningja og leiðtoga þeirra, þótt flokkurinn hafi bætt við sig verulegu fylgi.

Guardian, BBC

Hegseth kynnir aftökur fyrir almenning

Bandaríkjaher áformar að sýna beint frá aftöku Nidals Malik Hasan, fyrrverandi geðlæknis í hernum sem myrti 13 manns í Fort Hood árið 2009. Þetta tilkynnti Pete Hegseth, stríðsmálaráðherra í gær. Aftakan yrði sú fyrsta á vegum hersins í meira en 60 ár og sú fyrsta með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Síðasta aftaka í Bandaríkjunum sem var opin almenningi var framkvæmd í Kentucky árið 1936 og einungis 2 ríki heims, Íran og Afganistan, leyfa aftökur sem eru opnar almenningi.

Guardian, BBC

Mannfall í Úkraínu eykst

Að minnsta kosti 30 létust í Úkraínu í gær þegar rússneskar sprengjur hæfðu tvær rútur í Kramatorsk í gær. Í fyrradag létust 22 í árás á fjölbýlishús í Pryluky. Sameinuðu þjóðirnar segja fleiri óbreytta borgara hafa fallið í Úkraínu á þessu ári en allt árið 2025. Sendinefndir Úkraínu, Bandaríkjanna og Evrópuríkja funda nú í Miami.

RÚV, BBC

Boða verkföll á Spáni

Spænsk verkalýðsfélög hafa boðað allsherjarverkfall 11. nóvember í kjölfar dauða Maricarmen Abascal, 87 ára konu sem varð tákn mótmælaöldu á Spáni vegna húsnæðiskreppu sem þar ríkir. Þúsundir hafa mótmælt á Puerta del Sol í Madríd undanfarnar vikur.

Foreign Policy, Politico

Rússar myndu fylla skarðið

Framlög til þróunarsamvinnu í heiminum drógust saman um rúm 23 prósent á síðasta ári, að sögn Neale Richmond, ráðherra þróunarmála á Írlandi. Samdrátturinn skrifast ekki aðeins á niðurskurð Bandaríkjanna heldur einnig fjölmargra aðildarríkja ESB, en Írland og Spánn voru einu aðildarríkin sem juku framlög sín á síðasta ári. Ráðherrar þróunarmála ESB ríkja funda nú á Írlandi um fjárlög ESB til næstu ára en Global Europe, helsti sjóður ESB til stuðnings ríkjum utan sambandsins, er meðal þeirra sviða sem þrengt er að í samningsdrögum fjárlaganna. Richmond telur að Rússar fylli jafnan tómarúmið þar sem Bandaríkin og ESB dragi sig í hlé og varar við frekari niðurskurði.

Politico

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Af hverju eru hlaðvörp fjölmiðlar en umsjónarmenn þeirra ekki endilega blaðamenn?

Hlaðvarpssenan hefur aldrei verið sterkari á Íslandi og hugtakaruglingur fylgir. Hlaðvörp teljast fjölmiðlar í skilningi laganna, en umsjónarmenn þeirra eru ekki endilega blaðamenn og vilja ekki sætta sig við að hlaðvörp þeirra séu skilgreind sem fjölmiðlar. Fráfarandi framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar telur lögin þó ekki úrelt heldur nútímalegri en víða, þar sem þau séu tæknióháð. Ráðuneytið boðar samt heildarendurskoðun á næsta ári, þar á meðal á skráningarskyldu hlaðvarpa.
Af hverju eru hlaðvörp fjölmiðlar en umsjónarmenn þeirra ekki endilega blaðamenn?
Kristrún: Samfylkingin hafði fjarlægst hinn venjulega Íslending

Kristrún: Samfylkingin hafði fjarlægst hinn venjulega Íslending

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, ræðir endurreisn Samfylkingarinnar, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvar hún stendur sjálf í pólitík. Kristrún hefur lengi verið með stöðu jafnaðarmannaflokka á heilanum og telur almenna velferð hafa gleymst í umræðu um réttindi stakra hópa. Hún segir Flokk fólksins oft misskilinn og samstarfið við Ingu Sæland fylli hana auðmýkt á hverjum degi.

„Ef enginn hækkar hjá sér verð á vöru eða þjónustu þá hættir vísitalan að hækka“

Vísitala neysluverðs, sem er eins konar hitamælir á verðbólguna í landinu, hefur hækkað síðustu ár og samhliða því hækka verðtryggð lán landsmanna. Lánþegar verðtryggðra lána taka á sig skell með höfuðstólshækkunum um leið og eldsneyti, flugfargjöld, opinber gjöld eða annað sem reiknað er inn í vísitöluna hækkar. Til þess að verðtryggðu lánin lækki þurfa margir liðir sem reiknaðir eru í vísitöluna að lækka verulega.
Askell ferdamenn tingvellir 6708

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.

Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.

Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email