|
|
|
|
Fimmtudagur 8. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Undarleg staða er komin upp meðal samtaka launafólks í landinu. Hinn herskái vængur hreyfingarinnar er orðinn ljúfur sem lamb á meðan virðulegt skrifstofufólk hefur allt hornum sér. Heimildir innan hreyfingarinnar herma að almenna viðhorfið sé að rugga ekki bátum í ríkjandi árferði en forysta VR virðist ekki sammála og býr sig undir að fara í hart með kröfur sínar. Hvort félagið verður eitt í þeirri baráttu á eftir að koma í ljós.
|
|
|
|
🌧️💨 Suðaustan og austan 10-15, en heldur hvassara um landið suðvestanvert. Víða rigning, sums staðar talsverð úrkoma suðaustantil, en væta með köflum á Norðurlandi. Lægir suðvestanlands seinnipartinn og dregur úr vætu.
|
|
|
|
|
Stjórn VR samþykkir uppsögn
|
|
Stjórn VR hefur ákveðið að segja kjarasamningi sínum upp vegna forsendubrests. Formaðurinn segir að þetta geti haft í för með sér að opinberu stéttarfélögin megi einnig segja upp sínum samningum. VR hefur ásamt LÍV og fagfélögunum átt í viðræðum við Samtök atvinnulífsis undanfarna daga vegna forsendubrests kjarasamninga. Ekkert var fundað síðdegis í gær eða gærkvöldi en Halla Gunnarsdóttir formaður VR segist þó hafa rætt við Bjarna Benediktsson framkvæmdastjóra SA í síma. Þau samtöl hafi verið góð og hreinskilin en að niðurstaða hafi ekki náðst. „Upp úr stendur að Samtök atvinnulífsins hafa ekki komið með neinar lausnir á borðið sem við getum fellt okkur við og við erum ekki tilbúin til þess að læsa okkar fólk áfram inni í launalækkunum,“ sagði Halla í samtali við Vísi í gærkvöldi. Breiðfylking Eflingar, Starfsgreinasambandsins, Samiðnar og Byggiðnar náði samkomulagi í fyrradag um áframhaldandi gildi samninga til eins árs. Ekki liggur fyrir hvað fagfélögin sem hafa verið í samfloti með VR hyggjast fyrir en frestur til að segja samningum upp rennur út klukkan 16 í dag.
|
RÚV, Vísir
|
|
|
|
|
|
Ásgeir Jónsson telur ummæli sín um að leigubremsa ríkisstjórnarinnar sé „augljóslega mjög heimskuleg“ hafa verið tekin úr samhengi. Seðlabankinn hafi ekki fengið frumvarpið til umsagnar og hann því ekki verið að gefa umsögn um það. Þetta sagði Ásgeir í Kastljósi á RÚV í gær. Hann stendur þó við meiningu sína og telur boð og bönn ekki réttu leiðina gegn verðbólgu. Ragnar Þór Ingólfsson húsnæðis- og félagsmálaráðherra sagði á Alþingi í gær að ummæli Ásgeirs í gærmorgun væru fullkomlega óábyrg og spurði hvort stýrivextir væru ekki líka verðstýring. Samkvæmt frumvarpinu má leiga aðeins hækka á tólf mánaða fresti og ekki umfram vísitölu neysluverðs. Stjórnarandstaðan gagnrýndi í gær að frumvarpið hafi ekki verið kynnt í samráðsgátt en í greinargerð þess segir að slík birting hefði getað ýtt undir hækkanir áður en lögin tækju gildi.
|
Gímaldið, RÚV
|
|
|
|
|
Hringborð norðurslóða opnar
|
|
Hringborð norðurslóða hefst í Hörpu í dag og stendur til laugardags. Aðalþemað er breytt pólitískt vægi norðurslóða frá sjónarhóli Bandaríkjanna, Grænlands, Kanada, Kína og Evrópusambandsins. Yfir 2.000 manns frá 70 ríkjum sækja viðburðinn. Meðal helstu ræðumanna í dag eru Anita Anand utanríkisráðherra Kanada, Múte B. Egede utanríkisráðherra Grænlands og Jozef Síkela, sem situr í framkvæmdastjórn ESB. Mike Dunleavy ríkisstjóri Alaska leiðir umræðu um áform Bandaríkjanna á norðurslóðum og Giuseppe Cavo Dragone, formaður hermálanefndar NATO, tekur þátt í umræðum um varnarmál. Þá á að ræða hættuna af hruni veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC), vísindasamstarf á spennutímum og fjárfestingartækifæri á norðurslóðum, einkum á Grænlandi, í Norður-Kanada og á Íslandi.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Brottfararstöð frestast enn
|
|
Opnun brottfararstöðvar frestast um að minnsta kosti nokkra mánuði, þótt lög um stöðina taki gildi 1. desember. Ríkiseignir hafa ekki enn gengið frá leigu á húsnæði við Klettatröð 8 á Ásbrú, sem tilkynnt var um miðjan september að væri fýsilegasti kosturinn. Húsnæðið stendur á athafnasvæði þar sem hvorki íbúðir né gisting eru heimilar. Náist samningar þurfi því að breyta aðalskipulagi. Að sögn Reykjanesbæjar hefur engin beiðni um breytingu borist frá stjórnvöldum. Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri segir skipulagsbreytingar aldrei taka skemmri tíma en hálft ár. Hvort bærinn samþykki slíka beiðni getur hann ekki sagt til um, en „eins og dæmið lítur út í dag er stemningin ekki mikil til þess,“ sagði Vilhjálmur í samtali við RÚV í gær.
|
RÚV
|
|
|
|
|
|
Mótmælin á Spáni hófust þegar Abascal var borin út úr íbúð sinni.
|
Maricarmen Abascal er látin
|
Maricarmen Abascal, 87 ára kona sem varð andlit mikilla mótmæla á Spáni eftir að henni var borin út úr leiguíbúð sinni í september, lést á miðvikudag eftir tveggja vikna sjúkrahúsvist. Brottvísunin hratt af stað mikilli ólgu í spænskum stjórnmálum og Pedro Sánchez hefur boðað til kosninga en mótmæli vegna húsnæðisskorts í Madríd halda áfram.
|
The Guardian
|
|
|
|
|
|
Frönsk yfirvöld hafa stöðvað beitingu táragass gegn mótmælendum eftir að fimmtán ára piltur missti hönd í sprengingu táragashylkis á mánudag. Mótmæli nemenda í framhaldsskólum vegna manneklu, yfirfullra bekkja og niðurníddra skólabygginga hafa breiðst út til yfir fjörutíu borga landsins. Um 260 þúsund manns mótmæltu á þriðjudag í einhverjum stærstu mótmælum vikunnar. Um 6.500 hafa verið handtekin frá því mótmælin hófust, langflest ungmenni, og yfir 700 lögreglumenn hafa slasast. Sébastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, ávarpaði þjóðina í gærkvöldi og fyrirskipaði ráðherrum að skoða betur kröfur mótmælenda um styttri skóladag.
|
Deutsche Welle, Rapporteur, Semafor.
|
|
|
|
|
Flokksfélagar Merz studdu AfD
|
|
Þing Saxlands Anhalt hefur kosið Tobias Rausch, þingmann Alternative für Deutschland, sem þingforseta, fyrsta öfgahægrimanninn í því embætti frá valdatíð nasista. Rausch fékk fjórum atkvæðum meira en AfD og vinstriflokkurinn BSW hafa samanlagt á þingi, sem bendir til að þingmenn úr flokki Friedrich Merz kanslara hafi stutt hann í leynilegri atkvæðagreiðslu. Jafnaðarmenn brugðust við kjörinu með mótmælagöngu að Brandenborgarhliðinu á þriðjudagskvöld. Þingið mun kjósa forsætisráðherra fylkisins í desember og leiðtogi AfD hefur fullyrt að samningar um stuðning við stjórn hans séu þegar í höfn.
|
Deutsche Welle, Politico, Rapporteur
|
|
|
|
|
Varar við fjárfestingu í gervigreind
|
|
Árið 2027 verður erfitt fyrir heimsbúskapinn að mati Kristalinu Georgievu, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Í ræðu í aðdraganda ársfundar AGS og Alþjóðabankans í Bangkok í næstu viku hvatti Georgieva stjórnvöld til að hætta að fresta nauðsynlegum aðgerðum. Í stað þess að treysta á hagvöxt til að létta skuldabyrðina ættu þau að búa sig undir „mjög erfiðar pólitískar ákvarðanir.“ Hún fagnar nýlegum vaxtahækkunum seðlabanka Japans, evrusvæðisins og Bandaríkjanna en hvetur til aðhalds í ríkisfjármálum og varar við áhættu sem fylgir fjárfestingum í gervigreind. Í frétt Foreign Policy segir að stríðin í Íran og Úkraínu þrýsti orkuverði upp og að Brent-olía hafi farið yfir 100 dali á tunnu í gær. Langtímavextir ríkisskuldabréfa séu víða þeir hæstu í áratugi.
|
Foreign Policy
|
|
|
|
|
Fá Nóbel fyrir spegilmyndir
|
|
Henri Kagan og Kenso Soai hljóta Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að leysa aldagamla ráðgátu um hvers vegna lífið notar aðeins eina af tveimur spegilmyndum sameinda, líkt og hægri og vinstri hönd. Kagan sýndi á níunda áratugnum hvernig hvatar magna upp lítinn ójöfnuð milli útgáfnanna, og Soai sýndi áratug síðar að sameind getur orðið eigin hvati. Sænska vísindaakademían segir uppgötvunina ráða úrslitum fyrir lyfjaframleiðslu, þar sem ein spegilmynd sameindar getur verið læknandi en önnur skaðleg.
|
Nature Briefing, The Economist
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristrún: Samfylkingin hafði fjarlægst hinn venjulega Íslending
|
|
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, ræðir endurreisn Samfylkingarinnar, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvar hún stendur sjálf í pólitík. Kristrún hefur lengi verið með stöðu jafnaðarmannaflokka á heilanum og telur almenna velferð hafa gleymst í umræðu um réttindi stakra hópa. Hún segir Flokk fólksins oft misskilinn og samstarfið við Ingu Sæland fylli hana auðmýkt á hverjum degi.
|
|
|
|
|
|
|
|
„Ef enginn hækkar hjá sér verð á vöru eða þjónustu þá hættir vísitalan að hækka“
|
|
Vísitala neysluverðs, sem er eins konar hitamælir á verðbólguna í landinu, hefur hækkað síðustu ár og samhliða því hækka verðtryggð lán landsmanna. Lánþegar verðtryggðra lána taka á sig skell með höfuðstólshækkunum um leið og eldsneyti, flugfargjöld, opinber gjöld eða annað sem reiknað er inn í vísitöluna hækkar. Til þess að verðtryggðu lánin lækki þurfa margir liðir sem reiknaðir eru í vísitöluna að lækka verulega.
|
|
|
|
|
|
|
|
Svörtu listarnir í Brussel og skuggastríðið gegn Rússum
|
|
Segja má að Evrópa sé komin í nokkurs konar skuggastríð við Rússa. Ógnir á borð við áróður, kosningaafskipti, net- og drónaárásir hafa gert vart við sig í meiri mæli en áður. Yfir 3000 Rússar eru á svörtum listum Evrópusambandsins og fá ekki að stunda viðskipti, eiga eignir eða ferðast til Evrópulanda.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|