Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Fimmtudagur 1. október 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Í nýjasta hlaðvarpi Gímaldsins skyggnumst við inn í heim ólígarka og áhrifavalda sem ratað hafa á svarta lista Evrópusambandsins. Hvaða fólk er þetta, hvernig virka efnahagsþvinganir ESB og hvaða áhrif hafa þeir brestir sem komnir eru í samstöðuna gegn Rússum? Hægt er að hlusta á vef Gímaldsins og á helstu hlaðvarpsveitum.

⚠️ 🌧️💨 Gul viðvörun á Norðurlandi eystra, Austurlandi að glettingi og Miðhálendi. Austlæg átt 15-23 m/s, en 10-18 vestantil. Víða rigning.Snýst í sunnan og suðaustan 10-15 í dag, en 15-23 norðaustantil fram að hádegi. Rigning eða skúrir, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast norðanlands.

Sex ár sé langur tími fyrir tilraun

Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að bjóða út sorphirðu við heimili í Breiðholti í tilraunaskyni. Samningurinn á að gilda frá 1. maí 2027 til sex ára, með möguleika á framlengingu í átta. Tillagan var samþykkt með 15 atkvæðum meirihlutans og Miðflokks gegn 3 atkvæðum Vinstrisins og Sósíalista. Samfylkingin sat hjá. Samfylkingin kvaðst ekki á móti því að önnur rekstrarform væru skoðuð en gagnrýndi lengd verkefnisins. Bentu borgarfulltrúar Samfylkingar á að sex ár, með möguleika á framlengingu í átta ár, væru langur tími fyrir tilraun. Þá liggi ekki fyrir hvernig borgin geti losnað undan samningi, hver núverandi kostnaður sé eða hvaða kröfur verði gerðar um kjör starfsfólks. Vinstrið varar við hærri gjöldum og glataðri þekkingu. Fulltrúi Sósíalista leggst alfarið gegn útboðinu og telur það fyrsta skrefið í átt að einkavæðingu. Sorphirða sé ekki venjuleg vara sem borgarbúar geti neitað sér um ef verð fyrir þjónustuna hækkar.

Gímaldið

Biðlund ESA á þrotum

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins í Lúxemborg vegna bókunar 35 við EES-samninginn. Bókunin skuldbindur Ísland til að tryggja að innleiddar EES-reglur gangi framar öðrum íslenskum lögum ef þær rekast á. ESA hreyfði fyrst við málinu árið 2012, opnaði samningsbrotamál 2017 og gaf út rökstutt álit í september 2020. Árni Páll Árnason, varaforseti ESA og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir stofnunina hafa fengið fyrirheit frá Íslandi um lagasetningu allt frá 2022 sem ekki hafi verið efnd. Nýlegur dómur Hæstaréttar um skaðabótaskyldu íslenska ríkisins gagnvart móður sem fékk ekki fæðingarorlof sem hún átti rétt á, sýni mikilvægi þess að bókunin verði innleidd. Frumvarp um bókunina var lagt fram á Alþingi í síðustu viku, í fjórða sinn frá 2023. Þótt öruggur meirihluti sé fyrir samþykkt málsins á þingi, eru skiptar skoðanir um það í stjórnarandstöðunni. Formenn Framsóknarflokks og Miðflokks telja farsælast að bíða eftir dómi um málið áður en frumvarpið verði samþykkt.

RÚV, VÍSIR, MBL

Heimilin þoli sársaukann

Fjármálaráðherra hefði viljað sjá betri árangur í baráttunni við verðbólguna. Hann segir krónuna helsta sökudólginn. Lausnin sé agi í ríkisfjármálum, en trúverðugleiki verði ekki til á einni nóttu. Daði Már Kristófersson, ræddi stöðu efnahagsmála í viðtali við Vísi í gær. Hann varði 5,2 prósenta hækkun krónutölugjalda í fjárlagafrumvarpinu: gjöldin fylgi verðbólgu síðasta árs, annars rýrni þau að raunvirði. Hann sagði rangt hjá Örnu Láru Jónsdóttur, þingmanni Samfylkingarinnar og formanni efnahags- og viðskiptanefndar, að hækkunin hefði verið hugsuð sem samningatæki og til hefði staðið að lækka hana síðar. Hann útilokar þó ekki að hækkunin verði lækkuð, liðki það fyrir kjarasamningum. Hann segir heimilin standa vel að hans mati og eigi að þola sársaukann.

Vísir

Íraskar öryggissveitir fögnuðu brotthvarfi Bandaríkjahers í Bagdad á miðvikudag. MYND/AP

Bandaríkin yfirgefa Írak

Síðustu hermenn Bandaríkjanna yfirgáfu Írak í gær, rúmum 23 árum eftir innrásina 2003, sem kostaði hundruð þúsunda óbreyttra borgara lífið. Íbúar í Írak fagna brotthvarfinu en sérfræðingar vara við að það skilji eftir valdatóm sem andstæðingar Bandaríkjanna muni líklega nýta sér. Mohammed al Jubouri, fyrrverandi hershöfðingi í íraska hernum, segir brýnustu spurninguna nú hvort íraskar öryggisstofnanir hafi undirbúið viðbragðsáætlun fyrir það sem koma skal.

Foreign Policy, New York Times

Rússar hóta kjarnavopnum

Rússland hefur varað Atlantshafsbandalagið við því að Rússar kunni að beita kjarnorkuvopnum verði gerð tilraun til að einangra Kaliningrad frá öðrum hlutum Rússlands. Þetta kemur fram í óformlegu skjali sem Rússar sendu bandalaginu í vikunni. Talsmaður NATO hefur staðfest að skjalið hafi borist en vill ekki greina frá efni þess. Bandalagið vísar hótunum Rússa á bug. Samhliða ágerist deila Rússlands og Danmerkur. Tilefnið er atvik 14. september, þegar blysum var skotið frá rússnesku herskipi að danskri herþyrlu á alþjóðlegu hafsvæði í Eystrasalti. Danir kölluðu rússneska sendiherrann á sinn fund í kjölfarið og nú hafa Rússar svarað með því að kalla danska sendiherrann á fund í Moskvu.

Reuters, Copenhagen Post

Lykilríki fá ekki boð á NATO-fund

Nokkrum helstu bandalagsríkjum Bandaríkjanna í NATO er ekki boðið á fund NATO-ríkja sem haldinn verður í Póllandi í næsta mánuði. Á meðal ríkjanna sem ekki fengu boð eru Bretland, Frakkland og Eystrasaltsríkin, sem öll verja miklu til varnarmála og gegna lykilhlutverki innan bandalagsins. Um er að ræða vinnufund um framtíð NATO og að honum stendur Elbridge Colby, sem fer með stefnumótun í bandaríska varnarmálaráðuneytinu. Hvaða viðmið ráða gestalistanum liggur ekki fyrir. „Við gerum allt sem af okkur er krafist,“ segir embættismaður frá einu ríkjanna sem ekki var boðið. Embættismenn óttast að mismunun af þessu tagi geti klofið bandalag sem glímir nú þegar við vaxandi ágengni Rússa og rýrar vopnabirgðir. Hvíta húsið svaraði ekki fyrirspurn Politico og varnarmálaráðuneytið vildi ekki tjá sig.

Politico

Árás rannsökuð sem hryðjuverk

Farþegaflugvél FlyDubai á leið frá Dúbaí til Tel Avív með yfir 170 manns innanborðs þurfti að nauðlenda í Sádi Arabíu í gær eftir að annar flugmannanna stakk hinn. Vélin steyptist niður 14.000 fet á innan við 30 sekúndum áður en farþegar og áhöfn náðu að yfirbuga flugmanninn og stýra vélinni til lendingar. Ísraelsk yfirvöld rannsaka málið sem hugsanlega hryðjuverkaárás og hafa hert öryggiseftirlit með öllum flugmönnum sem fljúga til landsins.

Economist, Foreign Policy, BBC

Jöklar Sviss bráðna

Aletsch-jökull, stærsti jökull Sviss, missti meiri ís í ár en nokkru sinni fyrr frá því mælingar hófust, að sögn svissneskra vísindamanna. Lítil snjókoma síðasta vetur og hitabylgjur í sumar urðu til þess að ísbreiður landsins minnkuðu um 5 prósent á árinu. Frá júlí til september bráðnuðu um 2,2 milljarðar lítra af vatni, sem jafngildir um fjórfaldri árlegri notkun svissneskra heimila.

Economist

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
Karl Wernersson: The Movie

Karl Wernersson: The Movie

Karl Wernersson bauð vinum, vandamönnum og fjölmiðlum í bíósal til að segja sögu sína af sautján ára málaferlum. Á tjaldinu birtust dómsniðurstöður, fjölskyldumyndir og vondi karlinn úr Austin Powers. Í lokin myndaðist röð fólks sem vildi faðma hann.

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email