|
|
|
|
Þriðjudagur 4. nóvember 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Það var Íransstríðið og áhrif þess á olíuverð sem gerði útslagið fyrir kjósendur í Bandaríkjunum, sem refsuðu forsetanum og Repúblikönum í þingkosningum í gær. Jafnvel forsetinn sjálfur kennir Íran um tap Repúblikana. Nú velta álitsgjafar helst fyrir sér hvernig Trump muni bregðast við og hver áhrif úrslitanna verða fyrir síðari hluta kjörtímabils forsetans, ekki aðeins fyrir stríðið í Íran og önnur óvinsæl uppátæki Trumps, heldur ekki síður fyrir MAGA-hreyfinguna og framtíð Repúblikanaflokksins.
|
|
|
|
⛅️🌨️ Sunnan og suðvestan 5-13 m/s og dálitlar skúrir, en víða léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 2 til 9 stig. Gengur í suðaustan 10-15 með rigningu seint í kvöld sunnan- og vestanlands.
|
|
|
|
|
Demókratar unnu stórsigur
|
|
Demókratar unnu stórsigur í bandarísku þingkosningunum í gær og hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings. Ekki er komið í ljós hve stór sigur flokksins verður því talningu er ekki lokið en þeim er nú spáð allt að 258 sætum í fulltrúadeildinni gegn 177 sætum Repúblikana. Í öldungadeildinni fá Demókratar á bilinu 53 til 55 af 100 sætum. Einn merkasti sigurinn vannst í kosningu um öldungadeildarsæti í Kansas þar sem presturinn Adam Hamilto vann fyrsta sigur flokksins síðan 1932. Enn ríkir mikil spenna um niðurstöðu í nokkrum fylkjum þar sem talningu er ólokið. Í Missisippi, þar sem enginn þorði að spá Demókrötum sigri vegna þess hve rautt fylkið er, munar aðeins örfáum atkvæðum milli frambjóðenda flokkanna tveggja um sæti í öldungadeildinni.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Sigri vinstri sinnaða demókratans Abdul El-Sayed var lýst yfir í Michigan nú undir morgun en mikið hefur gengið á í kosningabaráttunni í því fylki. Hinn nýkjörni þingmaður hefur orðið fyrir barðinu á rasisma af hendi bæði mótframbjóðanda síns og forseta Bandaríkjanna og um nýliðna helgi lýsti sitjandi þingmaður Demókrata í fulltrúadeild flokksins, sem tapaði fyrir El-Sayed í forkosningum í fylkinu, stuðningi við frambjóðanda Repúblikana. Það dugði þó ekki til að hafa sigurinn af El-Sayed og Demókrötum.
|
|
|
|
|
|
Daði ræðir Landsvirkjun í þinginu
|
|
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra flytur Alþingi munnlega skýrslu um málefni Landsvirkjunar á þingfundi síðdegis í dag. Stjórnarandstaðan sakaði ráðherra um að hafa sagt þinginu ósatt í október þegar þar var rætt um starfslok Harðar Arnarsonar, forstjóra fyrirtækisins. Þar sagði hann meðal annars að engir stjórnarfundir hefðu haldnir án Harðar. Í gögnum sem RÚV aflaði hefur komið í ljós að stjórnin átti fund með fjármálaráðherra í ráðuneytinu í janúar, án Harðar, þar sem rætt var um hlutverk stjórnar, stjórnarhætti og upplýsingamiðlun milli Landsvirkjunar og ráðuneytis. Hörður hafi svo óskað eftir fundi með fjármálaráðherra til að ræða samskipti Landsvirkjunar og fjármálaráðuneytisins. Ekki var orðið við þeirri beiðni. Þingfundur hefst klukkan 13.30 og búast má við að hin munnlega skýrsla verði veitt síðdegis.
|
RÚV, MBL, Vísir, Alþingi
|
|
|
|
|
Heilagar kýr á vegi Ólafs Ragnars
|
|
„Þegar ég svo lenti í Delhi var þar enn gömul flugstöð frá tímum Breta. Stoppað úti á brautinni og ryðguð rúta nálgaðist hægt. Vélardyrnar opnaðar. Vitin fylltust af stækri lykt, blöndu af kryddi, olíu og kúaskít. Beljurnar þá lausgangandi í öllum hverfum; taldar heilagar. Næstu árin sagði ég oft: Þótt bundið væri fyrir augun myndi ég þekkja Indland á lyktinni.“ Frá námsárum til forsetakjörs fór Ólafur Ragnar Grímsson víða og vann með áhrifamönnum í ýmsum álfum. Hér segir af ungum manni sem heldur út í heim, berst á öldufaldi breytinga og myndar bandalög við leiðtoga þar sem barist er fyrir afvopnun, friði og farsæld fátækra ríkja. Samfelldur þráður liggur frá námsárum í Bretlandi til baráttunnar um Bessastaði.
|
|
Bókapressa Gímaldsins birtir kafla úr nýrri bók forsetans fyrrverandi, Vegferð um veröldina, en Bókapressan birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur stefnir að 9,4 milljarða króna viðsnúningi í rekstri á næsta ári. Þetta kemur fram í fyrstu fjárhagsáætlun nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks, sem kynnt var í gær. Í áætluninni er gert ráð fyrir 2,8 milljarða afgangi 2027 í stað 6,6 milljarða halla á þessu ári. Þá er gert ráð fyrir 16 milljarða afgangi á næstu fimm árum, samkvæmt langtímaáætlun borgarinnar. Byrja á að greiða niður skuldir eftir tvö ár og fjárfesta fyrir 23,6 milljarða á næsta ári. Selja á Ljósleiðarann, Carbfix og malbikunarstöðina Höfða en Orkuveitan verður ekki seld. Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, segir meirihlutann fara offari í niðurskurði.
|
RÚV, Heimildin, MBL
|
|
|
|
|
Ríkið greiðir háa húsaleigu
|
|
Í samningi sem undirritaður var í september 2024 skuldbatt íslenska ríkið sig til að leigja húsnæði hjúkrunarheimilis í Urðarhvarfi 16 í Kópavogi fyrir tæpar 39 milljónir á mánuði næstu tuttugu ár. Ekkert uppsagnarákvæði er í samningnum. Samningurinn nemur rúmum níu milljörðum á verðlagi dagsins en hann var gerður að undirlagi heilbrigðisráðuneytis Willums Þórs Þórssonar. Leigusalinn er Súlur Reykjavík ehf. sem keypti húsið mánuði eftir að samningurinn var gerður á tæpa 3,5 milljarða. Samningur um rekstur hjúkrunarheimilisins sem var gerður í mars á þessu ári við Heilsuvernd og tekur til 100 hjúkrunarrýma, gildir aðeins til fimm ára. Eigendur Súlna Reykjavík ehf. eru að hluta þeir sömu og eiga Heilsuvernd. Teitur Guðmundsson, læknir og framkvæmdastjóri Heilsuverndar, er kvæntur einum eigandanum.
|
RÚV
|
|
|
|
|
|
Miðflokkurinn bætir við sig rúmum tveimur prósentustigum og mælist með rúm 17 prósent í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups, en fylgi annarra flokka breytist lítið. Samfylkingin er stærst með rúm 29 prósent og tapar um einu og hálfu prósenti en Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25 prósent. Viðreisn mælist í 10 prósentum og missir 0,7 prósent frá síðasta Þjóðarpúlsi. Brotthvarf Jóns Gnarr er því ekki að hafa teljandi áhrif á fylgið í þessari könnun. Fylgi annarra flokka er óbreytt frá síðustu könnun.
|
RÚV
|
|
|
|
|
Rússar sprengdu hjálparmiðstöð
|
|
Minnst 38 hafa látist í árásum Rússa á Úkraínu það sem af er vikunni. Minnst 31 lést og tuga er saknað eftir að Rússar vörpuðu sprengjum á skóla sem nýttur var sem hjálparmiðstöð í þorpinu Komyshuvakha í Saporísja á mánudag. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti lýsti áhyggjum af því í upphafi vikunnar að auk vandræða með loftvarnir og skortstöðu í Patrot-flaugum væri Úkraína í sérstakri hættu þessa dagana vegna þess að Rússar kynnu að nýta sér að heimsbyggðin hafi augun á kosningunum í Bandaríkjunum og gera stórar árásir án þess að nokkur gefi því gaum.
|
BBC, New York Times
|
|
|
Hótanir raska flugi í Evrópu
|
|
Sjö flugvélar á flugleið yfir Evrópu fengu sprengjuhótanir í gær, þar á meðal tvær vélar á leið til Varsjár, Ryanair-vél frá London og tvær vélar á leið til Rómar. Engin sprengiefni fundust í vélunum við leit. Skemmtiferðaskipi á leið til Ísrael bárust einnig hótanir í gær. Sprengjuhótanir hafa nú raskað flugi í Evrópu fjóra daga í röð.
|
Deutsche Welle, Al Jazeera
|
|
|
|
|
- Eyjan Kolbeinsey, 74 kílómetra norður af Grímsey, stendur enn upp úr sjó, þótt óttast hafi verið fyrir um 15 árum að hún yrði horfin árið 2020. Nýjar myndir áhafnar TF SIF benda til þess að hægt hafi á niðurbroti hennar.
- Almannavarnir beina því til íslenskra heimila að eiga birgðir til að komast af í að minnsta kosti þrjá daga án aðstoðar. Dómsmálaráðherra segir mikilvægt að búa sig undir hamfarir af mannavöldum ekki síður en náttúruhamfarir.
-
|
Öllum verktökum við byggingu hótelturnsins í Skúlagötu var vísað af byggingarstað í gær. Framkvæmdir hafa verið stöðvaðar og alls óvíst er um framhaldið.
|
-
|
Stjórnvöld í Ungverjalandi birtu í gær gagnasöfn öryggislögreglunnar frá tímum kalda stríðsins í tilefni 70 ára afmælis uppreisnarinnar árið 1956.
|
-
|
Kosovo verður af ESB-styrkjum að verðmæti 43,8 milljóna evra vegna þess að umbótum í dómskerfinu var ekki lokið á réttum tíma.
|
- Lokun Hormússunds hefur kostað Evrópu 127 milljarða evra í hærra jarðefnaeldsneytisverði. Þetta sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, á mánudag.
- Ulf Kristersson, starfandi forsætisráðherra Svíþjóðar og formaður Hægri flokksins, hefur fengið umboð til stjórnarmyndunar. Ekkert hefur gengið hjá Rauðgrænu blokkinni að mynda stjórn þrátt fyrir að hún hafi náð meirihluta í þingkosningum fyrir sjö vikum.
-
|
Óscar Puente, samgönguráðherra Spánar, hefur sagt af sér embætti. Hann tilkynnti þetta í spænska þinginu í gær þar sem hann gaf skýrslu um tildrög lestarslyssins í síðustu viku.
|
- Dánartíðni var 19,2 prósentum hærri árið 2024 í þeim fylkjum Bandaríkjanna sem kusu Trump en í ríkjum sem kusu Harris, og bilið breikkar. Þetta skrifa þrír lýðheilsufræðingar í STAT. Nature Briefing 3. nóvember 2026
- Gervigreindarfyrirtæki mega nota höfundarvarin gögn til að þjálfa líkön, en takmörk eru á nýtingu efnis fjölmiðla í svörum gervigreindar, samkvæmt nýju ráðgefandi áliti aðallögsögumanns Evrópudómstólsins.
Foreign Policy, Politico
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Ólafur Ragnar Grímsson: Vegferð um veröldina
|
Frá námsárum til forsetakjörs fór höfundur víða og vann með áhrifamönnum í ýmsum álfum. Hér segir af ungum manni sem heldur út í heim, berst á öldufaldi breytinga og myndar bandalög við leiðtoga þar sem barist er fyrir afvopnun, friði og farsæld fátækra ríkja. Samfelldur þráður liggur frá námsárum í Bretlandi til baráttunnar um Bessastaði.
|
|
Vegferð um veröldina segir frá starfi innan alþjóðlegu þingmannasamtakanna Parliamentarians for World Order, sem síðar nefndust Parliamentarians for Global Actions. Samtökin voru skipuð þingmönnum frá ýmsum löndum sem innblásnir af friðarhreyfingum tímans freistuðu þess að að virkja þjóðarleiðtoga til að rjúfa vítahring sívaxandi vígbúnaðar.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Mest spenna um hvort Repúblikanar snúist gegn forseta sínum
|
|
Fjöldi skrautlegra frambjóðenda og rísandi stjarna takast á um völdin á Bandaríkjaþingi í komandi kosningum. Mest spenna ríkir um hvort óvinsældir forsetans muni kosta Repúblikana meirihlutann í báðum deildum. Farið yfir allt það helsta í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins.
|
|
|
|
|
|
|
|
Steinunn Sigurðardóttir: Veisla þrjú
|
Veisla þrjú er óður til lífsins, funandi ástarsaga um rómantískt æði og hamslausan fögnuð konu sem tókst ekki að deyja, frásögnin barmafull af húmor og visku.
|
Fyrir gráglettni örlaganna bjargast LínLín úr bráðum háska og er þar með komin á nýjan byrjunarreit. Hefur hún eitthvað að lifa fyrir þegar næstum allt sem hún hefur elskað um dagana er gengið henni úr greipum? Vini á hún þó enn sem styðja hana og styrkja, og sjálfri sér til furðu finnur hún ofsafengnar tilfinningar ólga innra með sér: lífsþorsta, tilhlökkun og ásthrifningu á ókunnugri manneskju sem hún kallar Veislu þrjú.
|
|
Steinunn Sigurðardóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2023 fyrir skáldsöguna Ból sem er dimmtóna og dramatísk – en aðalpersónan LínLín stígur hér fram á ný bæði breytt og söm, tilbúin í næsta dans.
|
|
|
|
|
|
|
|
Björtustu vonir Demókrata
|
|
Talið er víst að demókratar í Bandaríkjunum vinni fulltrúadeildina í þingkosningum á þriðjudag, en til að vinna öldungadeildina líka þarf flokkurinn að leggja allt sitt traust á nokkra frambjóðendur í fylkjum djúpt inn í MAGA landi.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|