Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Þriðjudagur 22. september 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Þegar forseti Bandaríkjanna flutti Sameinuðu þjóðunum ávarp fyrir ári sakaði sakaði hann þær um að standa ekki undir nafni. Hann hefur ekki setið með hendur í skauti síðan, heldur ráðist á vini jafn sem óvini í flestum heimsálfum með hótunum, vopnavaldi eða efnahagslegum árásum. Í ávarpi sínu til allsherjarþingsins í dag fær Trump tækifæri til að standa fyrir máli sínu. Óvíst er að hans eigin borgarar heyri boðskapinn þar sem allar helstu sjónvarpsstöðvar landsins hafa snúið baki við forsetanum í mótmælaskyni eftir að hann úthýsti CNN og fleirum úr Hvíta húsinu fyrir að spyrja óþægilegra spurninga og flytja „neikvæðar falsfréttir.“

🌧️💨 Gengur í suðvestan 10-15 m/s í dag, en suðvestan 5-13 í kvöld og á morgun. Þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast austanlands.

Leiðtogar streyma til New York

Þjóðarleiðtogar heims streyma nú til allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra eru báðar mættar til borgarinnar. Fjöldi formlegra og óformlegra funda er fyrirhugaður á hliðarlínunni á meðan þjóðhöfðingjar flytja ávörp í aðalsal höfuðstöðva SÞ. Donald Trump fundar með leiðtogum Arabaríkja við Persaflóa í dag og mun einnig eiga fundi með Volodimír Zelenskíj forseta Úkraínu og Delcy Rodríguez starfandi forseta Venesúela. Á morgun verður „nýtt“ samkomulag um viðveru Bandaríkjahers á Grænlandi undirritað. Utanríkisráðherrar Rússlands og Bandaríkjanna, Sergei Lavrov og Marco Rubio, hittast á fundi og Emmanuel Macron stendur fyrir fundi um tveggja ríkja lausn í deilum Ísraels og Palestínu. Svonefnt friðarráð (Board of Peace) minnir einnig á sig í vikunni en það var sett á laggirnar af Bandaríkjaforseta fyrr á árinu í andstöðu við meginþorra alþjóðasamfélagsins, enda litið á það sem atlögu að hlutverki Sameinuðu þjóðanna.

Gímaldið.

Helstu ávörp þingsins

Búist er við að um 130 þjóðarleiðtogar taki til máls í New York í vikunni en ekki eiga allir heimangengt.
  • Kristrún Frostadóttir flytur ávarp fyrir Íslands hönd. Tímasetning liggur ekki fyrir.
  • Donald Trump forseti Bandaríkjanna stígur í ræðustól í dag, þriðjudag.
  • Masoud Pezeshkian, forseti Írans lendir í New York í dag og flytur sitt ávarp á morgun, miðvikudag. Afar sjaldgæft er að leiðtogi ríkis sem á í stríði við Bandaríkin mæti til allsherjarþings.
  • Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, flytur ávarp á fimmtudag.
  • Mahmoud Abbas, forseti heimastjórnar Palestínu, er líka á mælendaskrá á fimmtudag. Abbas talar væntanlega gegnum fjarfundabúnað en Bandaríkjastjórn synjaði honum um vegabréfsáritun.
  • Delcy Rodríguez, starfandi forseti Venesúela, flytur sína fyrstu ræðu í þinginu. Fyrirrennari hennar, Nicolás Maduro, verður ekki langt undan en hann situr í fangelsi í Brooklyn.
  • Ræðu Volodimírs Zelenskíj er ávallt beðið með eftirvæntingu en ekki liggur fyrir hvaða dag hans ávarp er á dagskrá.
  • Xi Jinping, forseti Kína, mætir ekki til þings en hann verður í opinberri heimsókn í Washington síðar í vikunni. Hann talaði síðast á þinginu árið 2021.
  • Vladimir Pútín forseti Rússlands mætir ekki til þings en utanríkisráðherra hans, Sergei Lavrov, flytur ávarp fyrir hönd Rússlands.

New York Times, Guardian, NPR o.fl

Þungt yfir á vinnumarkaði

Ótímabundið verkfall flugvirkja hjá Icelandair hefst að óbreyttu á miðnætti í kvöld. Enginn fundur hafði verið boðaður hjá ríkissáttasemjara í vinnudeilunni í gærkvöldi. Staðan er einnig þung í yfirstandandi samtali aðila vinnumarkaðarins eftir að forsendur kjarasamninga brustu í síðasta mánuði. Verkalýðsfélög hafa frest til 8. október til að segja samningum upp. Talsmenn launafólks segja ljóst að bjóða þurfi einhverjar leiðréttingar til að bjarga samningum fyrir horn. Kannanir sýni mikla launarýrnun.

Vísir, MBL

Nýjar losunartölur kynntar

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnir nýjar losunartölur Íslands og stöðu loftslagsaðgerða í beinu streymi á vef stjórnarráðsins klukkan 11 í dag. Samkvæmt auglýsingu mun ráðherrann fara yfir stöðu og aðgerðir í loftslagsmálum, kynna umbætur í stjórnsýslu málaflokksins og skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða auk forgangsverkefna. Sérfræðingur á sviði losunarbókhalds hjá Umhverfis- og orkustofnun gerir einnig grein fyrir heildarlosun gróðurhúsalofttegunda og stöðu Íslands gagnvart loftslagsskuldbindingum.

Stjórnarráðið

Refsiaðgerðir í uppnámi

Reynt er nú til þrautar að framlengja efnahagsþvinganir Evrópusambandsins gegn um þrjú þúsund einstaklingum og fyrirtækjum tengdum Rússlandi sem féllu úr gildi á miðnætti. Fólkið og fyrirtækin sem um ræðir sæta frystingu eigna og takmörkunum á ferðafrelsi. Fulltrúar aðildarríkja ESB funduðu um málið langt fram á mánudagskvöld og tóku aftur upp þráðinn snemma í morgun. Ágreiningurinn snýst einkum um hvort rússnesku ólígörkunum Alisher Usmanov og Mikhail Friedman verði sleppt af listanum en Frakkar hafa beitt sér fyrir því að fá Usmanov tekinn af listanum og yfirvöld í Lúxemborg þrýstu á að nafn Friedman hyrfi þaðan líka.

Politico

Vilja fela leyniskjöl fyrir AfD

Stjórnvöld í Þýskalandi leita nú leiða til að takmarka aðgang nýkjörinna fulltrúa öfgaflokksins AfD á ríkisþingum að þúsund síðna viðbragðsáætlun ríkisins, svokölluðu „O-plani“ sem þýski herinn setti saman árið 2024. Um er að ræða áætlun um hvernig bregðast skuli við hugsanlegri árás Rússa í Austur-Evrópu. Aðeins fáir embættismenn hafa aðgang að skjalinu, þar á meðal leiðtogar allra sextán sambandsfylkja landsins. Óttast er að leiðtogar AfD kynnu að deila skjalinu með Rússum, takist þeim að mynda stjórn í Saxland-Anhalt, en flokkurinn er hliðhollur Moskvu.

New York Times.

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email