Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Föstudagur 6. nóvember 2026

Eyrún Magnúsdóttir
Góðan dag. Reykjavíkurborg varði minna í fjárhagsaðstoð á árinu 2025 en síðustu fimm ár þar á undan. Útgjöld borgarinnar vegna fjárhagsaðstoðar voru hærri en í fyrra árin 2020, 2021, 2022, 2023 og 2024. Hópurinn sem þarf á fjárhagsaðstoð vegna framfærslu að halda dregst saman á milli ára, bæði hjá þeim sem hafa íslenskt ríkisfang og erlent ríkisfang. Á síðastliðnum áratug hefur notendum fjárhagsaðstoðar fjölgað minna en íbúum.

🌨️ Suðvestan 3-8 m/s í dag, en 8-13 norðvestantil og við suðausturströndina. Smá rigning öðru hverju sunnanlands, annars þurrt að mestu. Hiti 3 til 10 stig.

Þeim fækkar sem fá fjárhagsaðstoð í lengri tíma

Fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar er oftar skammtímaúrræði en áður. Árið 2016 fengu 44,2% notenda aðstoð í 1–3 mánuði á árinu en árið 2025 var hlutfallið komið í 52,6%. Á sama tíma fækkaði þeim sem fengu aðstoð nær allt árið, í 10–12 mánuði, úr 23,6% í 16,3%. Þetta kemur fram í greiningu Velferðarsviðs sem var kynnt endurskoðunarnefnd borgarinnar 4. nóvember. Nefndin metur nú hvort ráðast þurfi í úttekt á málaflokknum. Notendur fjárhagsaðstoðar voru alls 3.320 árið 2025 og nam aðstoðin alls 3,45 milljörðum króna. Þar af endurgreiddi ríkið sveitarfélaginu 1,1 milljarð króna. Kostnaður Reykjavíkurborgar vegna fjárhagsaðstoðar dróst saman um 15% á milli ára.

Gímaldið

Þingnefnd skoðar samskipti Daða

Samskipti fjármálaráðherra við stjórn og forstjóra Landsvirkjunar verða rannsökuð af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, sem samþykkti í gær að hefja frumkvæðisrannsókn á málinu. Deilt er um hvort Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafi sagt þinginu ósatt um samskiptin. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar lýsti í gær yfir fullum stuðningi við ráðherrann á Alþingi og sagði hann hafa svarað fyrirspurnum af einlægni.

Gímaldið

Úkraínumönnum fækkar

Mikil fólksfækkun er í Úkraínu, en fólki þar hefur fækkað úr um 37 milljónum í 27-28 milljónir frá innrás Rússa árið 2022. Fæðingartíðni er komin niður í 0,8-0,9 börn á hverja konu og fyrri hluta þessa árs voru dauðsföll meira en þrefalt fleiri en fæðingar. Flóttinn vegur þyngst. Rúmar fimm milljónir Úkraínumanna búa erlendis, að stærstum hluta börn og konur undir 44 ára aldri.

Samkvæmt hugveitunni Centre for Economic Strategy segjast aðeins 43 prósent flóttafólks ætla aftur heim, en hlutfallið var 74 prósent undir lok árs 2022. „Við erum líka að missa framtíðina,“ segir Ella Libanova, forstöðumaður lýðfræðistofnunar í Kyiv. Í Moskvu er fækkuninni fagnað: Dmitrí Medvedev, varaformaður öryggisráðs Rússlands, talaði í maí um „líffræðilegan dauða þjóðar“. The Economist telur slík ummæli benda til þess að Rússar séu farnir að líta á fólksfækkun sem stríðsmarkmið.

Economist

Margbrotna systir mín

„Margrét varð þrettán ára í vistinni og pabbi færði henni afmælisgjöf sem gladdi hana meira en nokkuð annað hefði getað gert á þessum tíma: brjóstahaldara. Hún var búin að ræða þessa löngun sína við pabba í nokkra mánuði því hún vissi fátt flottara en bak ungra kvenna þar sem mótaði fyrir hlýrum og streng. Sjálf var hún alveg brjóstalaus en það skipti engu máli.“
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó og rak veitingahús í Kaupmannahöfn. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar. Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur og birtir nú brot úr bók Sæunnar um Margréti.

Gímaldið

Skoða nýja byggð í Örfirisey

Meirihlutinn í Reykjavík vill endurskoða vaxtarmörk borgarinnar og ákvæði um hve lengi flugstarfsemi verði heimil í Vatnsmýri. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti á miðvikudag tillögu meirihlutans um að hafinn verði undirbúningur að endurskoðun aðalskipulags. Henni hefur nú verið vísað til borgarráðs. Samkvæmt gildandi skipulagi er flugstarfsemi heimil á Reykjavíkurflugvelli til 2032 og olíustarfsemi í Örfirisey á að leggjast af fyrir lok árs 2040, en Faxaflóahafnir hafa óskað eftir því að hún verði heimiluð til 2050. Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar styðja tillögu um endurskoðun aðalskipulags en vara við því að útþensla byggðar auki kostnað borgarbúa, lengi ferðatíma og auki losun.

RÚV, Vísir

Wall Street hafnar bláu bylgjunni

Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum tóku snarpa dýfu í gær eftir að hafa hækkað lítillega daginn eftir þingkosningar í Bandaríkjunum. S&P 500-vísitalan féll um 4,4 prósent og Nasdaq um 5,5 prósent. Að mati The Economist virðast fjárfestar hafa ályktað að stórsigur demókrata muni koma sér illa fyrir gervigreind og uppbyggingu gagnavera. Verst urðu framleiðendur örgjörva og rekstraraðilar gagnavera úti, en tæknirisarnir Alphabet, Amazon, Meta og Microsoft eru í svipaðri stöðu og fyrir kosningar. Fjárfestar leituðu margir skjóls í ríkisskuldabréfum og bréf í Costco hækkuðu um tæp tvö prósent.

Reuters, Economist

Arabar styðja Eisenkot

Stærsti flokkur arabískra Ísraela styður að Gadi Eisenkot verði veitt umboð til að mynda næstu ríkisstjórn Ísraels. Flokkar araba unnu 19 sæti í kosningunum í síðustu viku og eru í oddastöðu milli tveggja blokka sem takast á um völdin í landinu. Blokk sitjandi forseta, Benjamíns Netanjahú, hefur minnkað eftir að Netanjahú missti stuðning flokks heittrúaðra gyðinga. Isak Herzog, forseti Ísraels, hyggst funda með forystumönnum flokkanna næstu daga og ákveða hverjum verði veitt stjórnarmyndunarumboð.

Al Jazeera

Cristiano Ronaldo hefur kvatt portúgalska landsliðið eftir 23 ára feril. Mynd: Tasnim News Agency

Ronaldo kveður landsliðið

Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hefur leikið sinn síðasta leik með portúgalska landsliðinu. Hann tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í gær. Hann hefur verið í liðinu í 23 ár og varð Evrópumeistari með því árið 2016. Ronaldo spilaði 234 landsleiki með Portúgal, sem er heimsmet því enginn fótboltamaður hefur spilað svo marga landsliðsleiki. Enginn hefur heldur skorað fleiri mörk með landsliði sínu en Ronaldo sem skorað hefur 146 mörk fyrir Portúgal á ferlinum.

The Guardian

Þung refsing blasir við Brand

Þungur fangelsisdómur blasir við grínistanum Russell Brand eftir sakfellingu fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot í Bretlandi í gær. Við dómsuppkvaðningu sagði dómarinn að Brand myndi hljóta verulega fangelsisrefsingu og synjaði honum um lausn gegn tryggingu. Brot Brands áttu sér stað á árunum 1999 til 2009 en sex konur báru vitni gegn Brand við meðferð málsins.

The Guardian

Í stuttu máli:

  • Bob Dylan heimsótti Leó XIV páfa í Vatíkanið í hléi á tónleikaferð um Ítalíu á dögunum, klæddur svörtu frá toppi til táar.
  • NATO hefur fengið leyfi Náttúruverndarstofnunar til rannsókna og tækniprófana við Jökulsárlón. Unnið verður með neðansjávarbúnað, skynjara og drónatækni við krefjandi aðstæður til undirbúnings rannsóknum á norðurslóðum. Morgunblaðið greinir frá.
  • Atvinnuleysi mældist 5,5 prósent á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 3,9 prósent ári fyrr. Atvinnuleysi meðal ungs fólks var 9,1 prósent.
  • Meta hefur lokað á bók Ólafs Ragnars Grímssonar á Facebook með þeim skýringum að hún sé of pólitísk. Þetta segir markaðsstjóri Forlagsins. Hægt er að lesa kafla úr bókinni í Bókapressu Gímaldsins.
  • Alþjóðabankinn spáir allt að 17 prósenta hækkun matvælaverðs á heimsmarkaði á næstu tveimur árum vegna áhrifa El Niño á landbúnaðarframleiðslu.
  • Sprengjuhótanir trufluðu um tvo tugi flugferða í Evrópu á fimmtudag og hótanir bárust líka Keflavíkurflugvelli og Hörpu. Engar sprengjur fundust.
  • Volodomír Selenskí Úkraínuforseti fagnar úrslitum þingkosninga í Bandaríkjunum og segist vongóður um aukinn stuðning þingsins við Úkraínu.
  • Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, breytti í gær dauðadómum rúmlega 500 fanga í fylkinu í lífstíðarfangelsi.
  • Dómstóll í Helsinki hefur dæmt rússneskan skipstjóra og áhafnarmeðlim frá Aserbaísjan í fangelsi fyrir skemmdir á sæstrengjum í Finnlandsflóa.

RÚV,, MBL, Hagstofan, Politico, Reuters, Guardian, Deutsche Welle

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.

Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.

Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email