Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Þriðjudagur 3. nóvember 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Kosningar eru stöðugt í hugum þeirra Bandaríkjamanna sem hafa á annað borð áhuga á stjórnmálum. Um leið og einum kosningum er lokið hefst undirbúningur fyrir þær næstu. Engin undantekning verður á þessu nú. Eftir þingkosningar sem fara fram í Bandaríkjunum í dag verður sjónum nær samstundis beint að forsetakosningunum 2028. Næstu tvö ár eru kvíðvænleg, óháð því hvaða flokkur vinnur meirihluta á Bandaríkjaþingi, því forseti Bandaríkjanna er ekki líklegur til að sitja á friðarstóli það sem eftir lifir kjörtímabils hans.

🌧️ Sunnan 10-18 m/s og rigning víða um land, en þurrt að kalla norðaustantil. Hiti 5 til 13 stig. Snýst í suðvestan 8-15 með lítilsháttar skúrum eftir hádegi, fyrst vestast á landinu og kólnar smám saman.

Varaði við pólitískum afskiptum

Á síðustu tólf mánuðum gerði Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, ítrekaðar athugasemdir við samskipti stjórnar fyrirtækisins og fjármálaráðuneytisins, áður en hann tilkynnti um afsögn í síðasta mánuði. Í minnisblaði til stjórnar dagsettu í júní síðastliðnum varaði hann við því að Eftirlitsstofnun EFTA kynni að túlka tíð samskipti stjórnar og ráðuneytis sem pólitísk afskipti, með þeim afleiðingum að fyrirtækið yrði óstarfhæft. Hann sagði ráðuneytið hafa boðað fundi án þess að forstjóri væri kallaður til og stjórnarmenn hafi haft bein afskipti af daglegum rekstri. Stjórn Landsvirkjunar vísar gagnrýni Harðar á bug og segir ekkert benda til að stjórnin hafi farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt.

RÚV, MBL

Fjárhagsáætlun rædd í borgarstjórn

Fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir næsta ár verður rædd á fundi borgarstjórnar í dag. Fundurinn hefst klukkan 12 og er í beinni útsendingu á vef borgarinnar. Langtímafjárhagsáætlun til næstu fimm ára er einnig á dagskrá fundarins. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta borgarinnar var neikvæð um 5,5 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins og borgarsjóður var rekinn með 3,2 milljarða króna halla á því tímabili. Borgin sagði 50 starfsmönnum upp fyrir mánaðamótin og alls hefur verið dregið saman um 130 stöðugildi frá því í júní.

Reykjavíkurborg, Gímaldið

177 sagt upp hjá ríkinu

Fimm hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í október og náðu til 281 starfsmanns, þar af eru 50 starfsmenn Reykjavíkurborgar og 177 ríkisstarfsmenn. Stærsti hluti þeirra er tilkominn vegna sameiningar Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs í Stofnun atvinnuveganna um áramótin, en margir þeirra verða endurráðnir. Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar segir fjöldann í október ekki umfram það sem vænta mátti. Flestar uppsagnirnar taka gildi í febrúar og stofnunin spáir að atvinnuleysi fari þá yfir fimm prósent.

RÚV

Veisla þrjú í Bókapressunni

„En þegar þagnaröldin rann sitt skeið á enda og uppljóstrunaröldin tók við þá var mér illa brugðið. Hvað alltof margar konur, og það meira að segja í „okkar“ heimshluta, máttu þola, og það frá sínum eigin eiginmönnum líka. Lamdar í spað, ofsóttar, nauðgað, í svefni þess vegna. Ef ekki hreinlega drepnar.“
Gímaldið birtir á vef sínum í dag, kafla úr nýútkominni skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur, en Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.

Gímaldið

Bólusett í apótekum

Nú er hægt að fá bólusetningu við inflúensu í apótekum á grundvelli nýs samnings Sjúkratrygginga við fjölda apóteka. Markmið þjónustunnar er að auka aðgengi að bóluefnum og létta álagi af heilsugæslunni. Ekkert komugjald verður innheimt og gjaldtaka breytist ekki. Skilgreindir forgangshópar greiða ekkert en aðrir greiða kostnaðar- eða innkaupsverð. Á vef Stjórnarráðsins segir að flensusprautan sé aðeins fyrsta skrefið og stefnt sé að því að fleiri tegundir bólusetninga bætist við síðar.

Stjórnarráðið

Rafmagn tekið af hjólhýsum

Reykjavíkurborg tók rafmagn og vatn af hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða í gær, nokkrum mánuðum eftir að íbúum var tilkynnt að búsetu þar yrði sjálfhætt í byrjun nóvember. Bergþóra Pálsdóttir talskona íbúa segir þá hafa greitt rafmagnsreikninga fyrirfram, suma langt fram í desember, og að þeim hafi ekki verið boðnir aðrir búsetukostir. Nokkrir þingmenn Flokks fólksins hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að ríkisstjórninni verði falið að skapa lagagrundvöll fyrir varanlega búsetu í færanlegum húsum á svæðum sem sveitarfélög skipuleggja sérstaklega til þess.

Gímaldið, RÚV, Vísir

Barátta vinstri sinnaða demókratans Abdul El-Sayed í Michigan hefur vakið mikla athygli.

Kosið um stefnu Donalds Trump

Það er kjördagur í Bandaríkjunum. Þótt nafn forsetans sé ekki á kjörseðlinum að þessu sinni eru stefna hans og áhrif hennar á efnahag landsins ofarlega í hugum flestra. Nái Demókratar meirihluta í annarri eða báðum þingdeildum takmarkar það vald forsetans innanlands verulega og gæti leitt til þess að hann beini sjónum sínum enn frekar að utanríkismálum. Stríðsrekstur Trumps og tollastefna hefur komið harkalega niður í fylkjum sem venjulega styðja Repúblikana og í mörgum þeirra ríkir nú mikil spenna. Í gær lýsti demókratinn Hailey Stevens sem tapaði fyrir Abdul El-Sayed í forkosningum Demókrata, stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í fylkinu. Í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins er farið yfir þýðingu kosninganna, hvað brennur helst á kjósendum og í hvaða fylkjum baráttan um öldungadeildina gæti ráðist.

Gímaldið

Stjórn Belgíu fer frá

Bart De Wever, forsætisráðherra Belgíu, baðst lausnar hjá Filippusi konungi í gær eftir að fimm flokka stjórnarsamstarf hans náði ekki saman um tíu milljarða evra niðurskurð og skattahækkanir til að rétta af fjárlagahalla. sem nam 5,2 prósentum af landsframleiðslu í fyrra. Stjórnarflokkarnir eru ósammála um hvort skera eigi meira niður eða hækka skatta á eignafólk. Konungurinn hefur ekki gefið Wever svar en fundar með leiðtogum samstarfsflokkanna í vikunni og tekur aftur á móti De Wever á föstudag. Maxime Prévot utanríkisráðherra segir helmingslíkur á aukakosningum takist samningar ekki.

Politico, Rapporteur

Pólskir dómarar funda í dag

Átta dómarar sem njóta stuðnings meirihluta Donalds Tusk í pólska þinginu munu funda um málefni dómsins í dag, samþykkja fjárhagsáætlun réttarins og kjósa um agaviðurlög gegn forseta dómstólsins, Bogdan Święczkowski. Þeir þurfa tíu af fimmtán dómurum til að ná tilskildum fjölda og því að fá að minnsta kosti tvo PiS-skipaða dómara til liðs við sig. Forseti Póllands, Karol Nawrocki, sem er flokksmaður PiS, kallar aðgerðir Tusks valdarán. Á síðasta kjörtímabili sat ríkisstjórn flokksins Laga og réttlætis (PiS) og undir stjórn hennar voru gerðar umfangsmiklar og ólögmætar breytingar á skipun réttarins, sem fordæmdar voru af dómurum um alla Evrópu. Aðgerðir pólskra stjórnvalda nú eru liður í að endurreisa dómsvaldið í landinu og koma því til leiðar að löglega skipaðir dómarar geti tekið til starfa.

Politico

Tilraun tvö í sænska þinginu

Sænska þingið greiðir í dag atkvæði um Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtoga Miðflokksins, sem forsætisráðherraefni en hún hefur haft umboð til stjórnarmyndunar í viku. Miðflokkurinn og flokkur Jafnaðarmanna mynda hryggjarstykki hinnar rauðgrænu miðju-vinstri blokkar sem náði meirihluta í sænsku þingkosningunum sem fóru fram í september. Þeim hefur hins vegar ekki tekist að ná saman um myndun stjórnar og búist er fastlega við að tillaga þingforseta verði felld í þinginu í dag. Þá kemur að sitjandi forsætisráðherra og formanns Hægri flokksins, Ulf Kristersson, að reyna stjórnarmyndun. Hann mun væntanlega fá til þess eina viku áður en boðað verður til atkvæðagreiðslu um hann í þinginu. Verði honum hafnað af þinginu, sem þykja verður líklegt, hefur þingið greitt atkvæði um forsetaefni þrisvar sinnum. Þá á þingforseti aðeins eina tilraun eftir áður en boða þarf til aukakosninga. Undirbúningur slíkra kosninga er þegar hafinn hjá yfirkjörstjórn landsins.

SR, Gímaldið

Í stuttu máli:

  • Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri verður gestur á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar í dag þar sem fjallað verður um skýrslu fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands fyrir árið 2025. Fundurinn stendur frá 9-10.15 og er í beinni útsendingu á sjónvarpsrás og vef Alþingis.
  • Frumvarp dómsmálaráðherra um þyngri refsingar fyrir vændiskaup verður rætt á fundi Alþingis í dag. Þingfundur hefst kl. 13.30 og getur staðið til miðnættis.
  • Tölvuárásir á kælikerfi í evrópskum matvöruverslunum verða ræddar á fundi öryggisráðs ESB. Þetta var ákveðið eftir að kæli- og frystikerfi féllu út í verslunum í að minnsta kosti átta Evrópuríkjum í gær.
  • Bandaríkin gerðu loftárás á eyjuna Qeshm í Íran í nótt. Forseti Bandaríkjanna hefur slegið úr og í um hvort stríðið muni stigmagnast eftir kosningar eða hvort samningar um frið séu í kortunum. Tilboði Íran um opnun Hormússunds að uppfylltum sjö skilgreindum skilyrðum var hafnað af Trump í september.
  • Boðað hefur verið til friðarviðræðna milli Rússlands og Úkraínu, með milligöngu Bandaríkjanna, í Abú Dabí á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku. Fulltrúar Bandaríkjanna funda í Brussel í þessari viku með fjölda Evrópuríkja um öryggistryggingar og uppbyggingu Úkraínu.
  • Sameiginlegt evrópskt herlið mun halda sína fyrstu heræfingu í Póllandi dagana 9. til 22. nóvember. Um 2.800 hermenn frá ellefu ríkjum taka þátt í æfingunni.
  • Stefnt er að því að ljúka viðræðum um aðild Svartfjallalands að ESB fyrir áramót. Landið gæti orðið fyrsta nýja aðildarríki sambandsins í meira en áratug.
  • Starfsfólk tékkneska ríkisútvarpsins efnir til verkfalls í dag til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði á framlögum til stofnunarinnar.
  • Norður-Kórea vísar á bug ásökunum um að tölvuhakkarar á þeirra vegum hafi stolið rafmyntum að verðmæti 6,3 milljarða dollara frá rafmyntakauphöllinni Binance. Stjórnvöld í Pyongyang segja ásökunina aðferð Washington til að sverta ímynd landsins og geti haft neikvæð áhrif á samskipti ríkjanna.
  • Breski sjóherinn stöðvaði rússneskt njósnaskip við strendur Skotlands í vikunni, að sögn breskra stjórnvalda.

Rapporteur, New York Times, Guardian, Alþingi

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Hlaðvarp: Mest spenna um hvort Repúblikanar snúist gegn forseta sínum

Fjöldi skrautlegra frambjóðenda og rísandi stjarna takast á um völdin á Bandaríkjaþingi í komandi kosningum. Mest spenna ríkir um hvort óvinsældir forsetans muni kosta Repúblikana meirihlutann í báðum deildum. Farið yfir allt það helsta í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins.
Hlaðvarp: Mest spenna um hvort Repúblikanar snúist gegn forseta sínum
Steinunn Sigurðardóttir: Veisla þrjú

Steinunn Sigurðardóttir: Veisla þrjú

Veisla þrjú er óður til lífsins, funandi ástarsaga um rómantískt æði og hamslausan fögnuð konu sem tókst ekki að deyja, frásögnin barmafull af húmor og visku.

Fyrir gráglettni örlaganna bjargast LínLín úr bráðum háska og er þar með komin á nýjan byrjunarreit. Hefur hún eitthvað að lifa fyrir þegar næstum allt sem hún hefur elskað um dagana er gengið henni úr greipum? Vini á hún þó enn sem styðja hana og styrkja, og sjálfri sér til furðu finnur hún ofsafengnar tilfinningar ólga innra með sér: lífsþorsta, tilhlökkun og ásthrifningu á ókunnugri manneskju sem hún kallar Veislu þrjú.

Steinunn Sigurðardóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2023 fyrir skáldsöguna Ból sem er dimmtóna og dramatísk – en aðalpersónan LínLín stígur hér fram á ný bæði breytt og söm, tilbúin í næsta dans.

Björtustu vonir Demókrata

Talið er víst að demókratar í Bandaríkjunum vinni fulltrúadeildina í þingkosningum á þriðjudag, en til að vinna öldungadeildina líka þarf flokkurinn að leggja allt sitt traust á nokkra frambjóðendur í fylkjum djúpt inn í MAGA landi.
Björtustu vonir Demókrata

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email