|
|
|
|
Mánudagur 5. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
☕️ Góðan dag. Nú þegar gangstéttar eru teppalagðar af litríkum haustlaufum hrúgast þingmál inn í samráðsgátt stjórnvalda. Lögum þarf víst að breyta og þau þarf að uppfæra reglulega til að halda í við ýmsa þróun. Við sem samfélag ráðum til starfa 63 þingmenn á fjögurra ára fresti til að sinna þessum verkum fyrir okkar hönd. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra var kjörin á þing 2021 og hefur verið forsætisráðherra í tæp tvö ár. Hún er í viðtali við Gímaldið, ekki endilega um tiltekin fréttamál heldur ræðir hún um hugmyndir sínar um pólitík, samstarfið við hina flokkana í ríkisstjórn og hvað það þýðir að vera til vinstri eða hægri.
|
|
|
|
🌤️🌨️❄️Norðan 3-8 m/s á vestanverðu landinu í dag og bjartviðri. Norðvestan 8-13 í norðausturfjórðungi landsins og rigning nærri sjávarmáli, en slydda eða snjókoma til fjalla. Rigning suðaustanlands framan af degi, síðan úrkomulítið. Hiti frá 1 stigi í innsveitum á Norðausturlandi, upp í 8 stig syðst. Hægari vindur í kvöld og kólnar, víða frost í nótt.
|
|
|
|
|
Feimnismál að vera vinstrimaður
|
|
Samfylkingin er ekki að færast til hægri, að mati formannsins, Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra en hún er í viðtali í nýjasta þætti Hálftímans hér í Gímaldinu. „Mér fannst flokkurinn hafa fjarlægst hinn almenna Íslending,“ segir Kristrún um stöðu Samfylkingarinnar þegar hún tók við formennsku haustið 2022. Þá segir hún aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafa varpað ljósi á að það sé í mörgum kreðsum í íslensku samfélagi talið jákvætt að vera hægrimaður en feimnismál að vera vinstrimaður. Hlekkur er á viðtalið neðar í fréttabréfinu en það er líka að finna á helstu hlaðvarpsveitum.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Rubio heimsækir Ísland í dag
|
|
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur til Íslands í dag til fundar með íslenskum ráðamönnum um öryggis- og efnahagsmál. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir varnarmál, öryggi á norðurslóðum og viðskipti verða efst á baugi.
|
RÚV
|
|
|
|
|
Forystukonur til þings á ný
|
|
Félags- og húsnæðismálaráðherra mælir í dag fyrir frumvarpi um svokallaða leigubremsu. Samkvæmt frumvarpinu skal tilgreina breytingar á leiguverði í leigusamningi en einungis veruleg hækkun á rekstrarkostnaði réttlæti hækkun húsaleigu. Slíka hækkun þurfi að kynna leigjanda með þriggja mánaða fyrirvara. Markmið frumvarpsins að auka húsnæðisöryggi, minnka vægi verðtryggingar og styrkja stöðu leigjenda. Þá er frumvarpið liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir því að kjarasamningar haldi. Þingfundur hefst klukkan 13.30, eftir vikuhlé á þingstörfum vegna kjördæmadaga. Forsætisráðherra og utanríkisráðherra eru meðal ráðherra sem verða til svara í óundirbúnum fyrirspurnatíma við upphaf þingfundar en hvorug þeirra hefur sótt þingfund síðan upp úr miðjum september.
|
Gímaldið, Alþingi
|
|
|
|
|
|
Íslenskur athafnamaður á sextugsaldri var handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi, grunaður um tengsl við umfangsmikið peningaþvættis- og fíkniefnamál. Maðurinn hefur stundað veitinga-, fasteigna- og verktakarekstur um árabil. Lögregla ætlaði að handtaka hann 22. september, þegar sautján voru handteknir vegna málsins en maðurinn var þá staddur erlendis.
|
RÚV
|
|
|
|
|
Ekkert skólahald vegna mótmæla
|
|
Allt að 500 framhaldsskólar verður lokaðir í Frakklandi í dag vegna mótmæla nemenda sem hófust í París um miðjan september og hafa magnast dag frá degi. Nemendur mótmæla óviðunandi námsaðstæðum í skólum landsins. Til átaka kom milli óeirðalögreglu og ungmenna í borgum víða um landið á föstudag og í kjölfarið hvöttu stéttarfélög kennara til verkfalla. Mannréttindasamtök saka lögreglu um harðræði gegn ungmennum en táragasi og gúmmíkúlubyssum hefur verið beitt í aðgerðum gegn mótmælendum.
|
France 24
|
|
|
|
|
Rússar óttast lungnaplágu
|
|
Nærri 200 manns eru í sóttkví í Irkutsk-héraði í Síberíu eftir að starfskona rannsóknastofu í héraðinu lést á gjörgæslu á föstudag. Fregnir herma að hún hafi brotið tilraunaglas með lungnaplágusýkli viku áður en hún lést af óræðri lungnapest. Í yfirlýsingu sóttvarnarstofnunar landsins í gær segir að konan hafi látist úr lungnabólgu af óþekktum uppruna og sýni hefðu ekki leitt í ljós að veikindin tengdust starfi hennar. Viðbrögð stjórnvalda þykja þó benda til annars því spítalar hafa verið settir í sóttkví og grímuskylda verið tekin upp á stórum vinnustöðum í nágrenni rannsóknarstofnunarinnar. Lungnaplága þróast hratt og er nær alltaf banvæn sé ekki brugðist hratt við með sýklalyfjameðferð.
|
Euronews, Al Jazeera, RFE/RL
|
|
|
|
|
Sánchez boðar til kosninga
|
|
Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, hefur boðað til þingkosninga. Hann tilkynnti þetta í morgun, en tæpt ár er eftir af kjörtímabilinu. Minnihlutastjórn hans hefur ekki náð meirihluta í þinginu fyrir aðgerðapakka gegn húsnæðiskreppunni. Fjölmenn mótmæli hafa verið um allan Spán undanfarnar vikur vegna húsnæðismála. Sánchez segir að til að koma umbótum í gegn þurfi hann stuðning þjóðarinnar og breiðari framsækinn meirihluta.
|
BBC
|
|
|
|
|
Bolsonaro líklegri til sigurs
|
|
Kosið verður milli Flávio Bolsonaro og Luiz Inácio Lula da Silva, sitjandi forseta Brasilíu, í annarri umferð þann 25. október eftir að hvorugum tókst að tryggja sér meirihluta í fyrri hluta forsetakosninga í Brasilíu í gær. Bolsonaro, sonur hins fangelsaða fyrrum forseta, hlaut rúm 47 prósent atkvæða gegn rúmum 45 prósentum Lula. Niðurstaðan er mikið áfall fyrir Lula en tveir aðrir fjarhægri frambjóðendur hlutu um fimm prósent atkvæða og líklegt þykir að kjósendur þeirra færi sig til Bolsonaro í síðari umferðinni og tryggi honum sigur. Rannsókn á fjármálamisferli Bolsonaros og afskipti Bandaríkjastjórnar virðast lítil áhrif hafa haft á kjósendur.
|
New York Times
|
|
|
|
|
|
Olíuflutningar frá Miðausturlöndum jukust á ný í september eftir mikinn samdrátt frá því Íran lokaði Hormuz-sundi í upphafi stríðsins í mars. Samkvæmt greiningarfyrirtækinu Kpler fóru að meðaltali 16 milljónir tunna á dag frá heimshlutanum en voru 19 milljónir fyrir stríð. Meirihlutinn, eða um 10 milljónir tunna, fer daglega um sjálft Hormuz-sund þrátt fyrir að Íran geri enn reglulega árásir á olíuflutningaskip. Skipin taka hins vegar áhættuna gegn allt að tífalt hærri greiðslum en áður. Auknir flutningar um sundið hafa þó lítil áhrif á olíuverð enda er framboð enn langt frá því að anna eftirspurn.
|
New York Times
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|