|
|
|
|
Fimmtudgur 15. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Bókapressan, bókaklúbbur Gímaldsins hefur göngu sína. Birt verða sýnishorn úr glænýjum og væntanlegum bókum í samstarfi við útgefendur og höfunda. Lesendur okkar fá forsmekk af því besta úr flóði jólabóka: nýjar skáldsögur, fræðirit og ljóð. Fyrsta brotið er upphaf Maríuklefans, bréfaskáldsögu Eiríks Guðmundssonar, sem var landsþekktur samfélagsrýnir á RÚV og höfundur fjölda skáldsagna, ljóða og greina í tímaritum. Eiríkur lést aðeins 52 ára að aldri árið 2022 en skildi eftir sig fullbúið handrit að Maríuklefanum, sem Benedikt bókaútgáfa gefur út.
|
|
|
|
⚠️🌧️💨 Norðvestan 13-20 m/s og snjókoma eða slydda, en úrkomuminna sunnan heiða. Dregur úr vindi og ofankomu í dag, suðvestlæg eða breytileg átt 5-13 eftir hádegi og skúrir eða él á víð og dreif, en hvassir vindstrengir suðaustan- og austantil fram undir kvöld. Hiti kringum frostmark, en 2 til 8 stig við suður- og vesturströndina. Gul viðvörun er í gildi á Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Ströndum og Norðurlandi vestra.
|
|
|
|
|
Styðja þurfi feður í fangelsum
|
|
Feður í fangelsum lýsa heimsóknaraðstæðum sem kuldalegum og óbarnvænum, og viðmót starfsfólks getur breytt tilhlökkun í kvíða. Í meistararannsókn Árna Sveinssonar í afbrotafræði með yfirskriftinni, „Ég var góður pabbi og er góður pabbi“ er rætt við feður sem voru að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni. Árni starfaði í átján ár sem ráðgjafi foreldra hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar og hitti þar feður sem skorti stuðning í foreldrahlutverkinu. Eftir afplánun tekur stimplunin við, og einn faðirinn óttaðist að gera mistök þegar hann tæki einn við uppeldi dóttur sinnar. Stuðning vantar, innan kerfisins og utan. Á Íslandi eru ekki til upplýsingar um hversu mörg börn eiga foreldri í fangelsi, þótt slíkar tölur séu til í nágrannalöndunum. Erla Hlynsdóttir fjallar um málið og ræðir við Árna.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Engar reglur um lobbíista
|
|
Engin heildstæð stefna gegn spillingu er til á Íslandi heldur dreifist ábyrgð um slíkar varnir á fjölda stofnana. Þetta kemur fram í skýrslu OECD um spillingarvarnir (Anti-Corruption and Integrity Outlook 2026). Samkvæmt skýrslunni uppfyllir Ísland aðeins 44 prósent af viðmiðunarreglum OECD gegn hagsmunaárekstrum en meðaltal aðildarríkjanna er 80 prósent. Þá gilda hér engar reglur um hvernig sannreyna skuli hagsmunaskráningar, dómarar þurfa ekki að skila þeim með reglulegu millibili og skil alþingismanna hafa verið undir 90 prósentum síðustu sex ár. Reglur um hagsmunagæslu gagnvart hinu opinbera (lobbying) standa líka höllum fæti hér á landi en aðeins 20 prósent viðmiða OECD gilda hér á landi. Þótt til sé skilgreining á hagsmunagæslu í lögum eru hagsmunaverðir eða lobbíistar ekki skilgreindir í lögum og engin viðurlög við brotum. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur beint fyrirspurn um niðurstöður OECD til forsætisráðherra, meðal annars um hvort ráðuneytið hafi tekið mat OECD til skoðunar og hvaða umbóta ráðherra telji þörf.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Takmarkanir leysi ekki vandann
|
|
Alma Möller heilbrigðisráðherra vill grípa inn í markaðssetningu nikótínvara sem höfðar til barna og ungmenna og færa nikótínvörur undir lög um tóbak. Þetta kom fram í sérstakri umræðu á Alþingi á þriðjudag, sem Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, hóf. Kolbrún benti á litríkar umbúðir og sælgætis- og ávaxtabragð sem gæti höfðað til barna. Ráðherra boðaði einnig ungmennastefnu og þjóðarátak um heilsu og velferð barna og ungmenna en útfærði ekki nánar. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hvernig ætti að draga úr aðgengi barna að nikótínvörum og hvernig árangur yrði mældur. Jón Pétur tók undir áhyggjur ráðherra af óheillaþróun og sagði að við ættum aldrei að sætta okkur við að börn og ungmenni ánetjist nikótíni áður en þau hafi náð fullum þroska og helst aldrei. Tveir þingmenn Viðreisnar, Eiríkur Björn Björgvinsson og Sandra Sigurðardóttir, tóku til máls og lýstu því að þeirra flokkur teldi frekari takmarkanir á sölu ekki leysa neinn vanda.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Volodymyr Zelensky, Úkraínuforseti segir Donald Trump hafa svikið sig. Starlink-gervihnattasamband úkraínska hersins var takmarkað fyrirvaralaust um miðja nótt, sem gerir flesta dróna sem Úkraína beitir handan víglínunnar óvirka og veikir varnir gegn þotuknúnum Shahed-drónum Rússa. Zelensky lýsti því í samtali við fjölmiðla í Bretlandi í gær hve sárt væri að missa jafn öflugan bandamann og Bandaríkin hafi verið. Elon Musk, eigandi Starlink, segir herútgáfu kerfisins, Starshield, ekki stýrt af Starlink heldur frá Pentagon.
|
|
Önnur svik Bandaríkjastjórnar við Úkraínu varða rof á upplýsingamiðlun frá leyniþjónustu Bandaríkjanna sem hefur þau áhrif að Úkraínumenn hafa ekki verið varaðir við yfirvofandi árásum Rússa. Bandaríkjaforseti þrætir fyrir að skrúfað hafi verið fyrir upplýsingamiðlun, en Zelensky segir úkraínska ráðgjafa hafa fengið hótanir frá Bandaríkjunum um að hún kynni að verða skert. Zelensky fékk höfðinglegar móttökur í London í gær og hitti bæði kónginn og forsætisráðherra landsins, Andy Burnham, sem hét áframhaldandi stuðningi.
|
Guardian
|
|
|
|
|
Enn skýtur Meloni á Trump
|
|
Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, skaut föstum skotum að Donald Trump í ítalska þinginu í gær. Hún sagði olíusamning hans við Rússa mjög áhættusaman. Hann veitti Moskvu lögmæti og færi þeim nýjar tekjur til að fjármagna stríðið. Þá vinni samningurinn gegn hagsmunum Evrópu og dragi úr virkni efnahagsþvingana gegn Rússum. Meloni hafnaði einnig skýringum Trumps á háu eldsneytisverði. Hækkunin stafi fyrst og fremst af stríðinu í Íran, ekki átökunum í Úkraínu. Ummæli Meloni leggja línur hennar fyrir leiðtogafund ESB í dag, þar sem rætt verður um hertar refsiaðgerðir gegn Rússlandi og olíutekjur Kreml. Friedrich Merz Þýskalandskanslari segir að svarið við útspili Trumps hljóti að vera frekari refsiaðgerðir Evrópu.
|
Politico
|
|
|
|
|
|
Fornleifafræðingar telja sig hafa fundið elsta skipsflak sem fundist hefur, undan Miðjarðarhafsströnd Tyrklands. Skipið sjálft er horfið en eftir liggja þrjú steinker og yfir 30 leirkrukkur, svonefndar amfórur, á um 30 metra dýpi. Kerin benda til þess að skipið hafi siglt á fyrri hluta bronsaldar, fyrir 4.700 til 4.400 árum. Í sumum kerjanna má enn greina leifar af farminum og talið að um ólífuolíu, vín eða trjákvoðu sé að ræða.
|
Nature, BBC
|
|
|
|
|
|
Frumvarp sem ríkisstjórn Ástralíu leggur fram í dag skyldar samfélagsmiðla til að leyfa notendum að slökkva á algóriþmanum sem velur efni ofan í þá. Samkvæmt drögum sem kynnt voru í september eiga miðlar á borð við TikTok, Instagram og Facebook að senda notendum tilkynningu og bjóða þeim að velja milli sérsniðins straums og straums með efni frá þeim einum sem þeir fylgja. Verði frumvarpið samþykkt geta brot gegn lögunum varðað yfir 100 milljóna ástralskra dala sekt.
|
ABC
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku
|
Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi.
|
Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.
|
|
Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.
|
|
|
|
|
|
|
|
Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu
|
|
Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis.
|
|
|
|
|
|
|
|
Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“
|
|
Feður í fangelsum lýsa kuldalegum og óbarnvænum aðstæðum til heimsókna. Í meistaraverkefni sínu í afbrotafræði tók Árni Sveinsson viðtöl við fimm feður, sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni, um upplifun þeirra af því að takast á við foreldrahlutverk sitt að nýju. Einn þeirra lýsti því þegar börnin hans komu í heimsókn á Kvíabryggju þar sem dæmdir barnaníðingar lögðust ofan á dótið þeirra.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|