|
|
|
|
Mánudagur 12. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Þótt tekist hafi að afstýra því að kjarasamningum yrði sagt upp er enn deilt um hvernig niðurstaðan náðist, hvort sett var á svið leikrit eða ekki. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar segir í færslu á samfélagsmiðlum nú í morgun að Bjarni Benediktsson hafi strokað út það traust sem byggst hafi upp milli SA og Eflingar í tíð Sigríðar Margrétar Oddsdóttur. Hún hafi komið fram af virðingu en Bjarni komi hins vegar úr „blekkingar- og speglasal atvinnustjórnmálanna“ og þvælan sem þar viðgangist eigi ekki heima við samningaborð vinnumarkaðarins.
|
|
|
|
🌨️ Sunnan 5-13 m/s og skúrir sunnan- og vestantil. Suðaustan og austan 10-18 og rigning á Norður- og Austurlandi fram undir hádegi, en lægir síðan og léttir til þar.
|
|
|
|
|
|
Íslenskir grunnskólanemar hafa aldrei komið verr út úr PISA könnuninni. Hæfni þeirra heldur áfram að hraka frá ári til árs ef marka má niðurstöðurnar. En hvað segja þessar tölur í raun? Í nýjasta þætti Sirkabát rýna Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson í tölfræðina að baki prófinu og ræða hvernig könnunin er í raun og veru lögð fyrir nemendur, því ekki er um próf að ræða í hefðbundnum skilningi. Í þættinum líkja þeir prófinu við stórt skákmót. Þá ræða þeir mögulegar ástæður þess að frammistaðan í prófinu fer versnandi, bæði á Íslandi og víða annars staðar. Hægt er að nálgast þáttinn og umfjöllunina á vef Gímaldsins. Sirkabát er þáttur um tölur í fréttum og fréttir í tölum, gefinn út af Gímaldinu.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Samfylkingin hefur náð samkomulagi við Framsóknarflokkinn um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Þreifingar milli flokkanna hófust fyrir viku síðan eftir að Samfylkingin sleit samstarfi Sjálfstæðisflokkinn vegna trúnaðarbrests. Trúnaðarbresturinn mun hafa tengst uppbyggingu gervigrasvallar og staðsetningu hans en sveitarfélagið samanstendur af tveimur íbúakjörnum, Garði og Sandgerði. Sama deiluefni sprengdi líka meirihluta sveitarstjórnar árið 2024.
|
RÚV, MBL
|
|
|
|
|
Umsækjendur njóta nafnleydar
|
|
Starf forstjóra Landsvirkjunar hefur verið auglýst. Hagvangur sér um ráðningarferlið og segir að farið verði með umsóknir sem trúnaðarmál og nöfn umsækjenda verði ekki birt opinberlega. Í auglýsingunni segir að Landsvirkjun standi á tímamótum. Ný stefna til ársins 2040 hafi verið mótuð og fram undan séu krefjandi og spennandi verkefni, meðal annars starfsemi fyrirtækisins utan Íslands. Ýmsir hafa verið orðaðir við forstjórastólinn síðan Hörður Arnarsson tilkynnti um síðustu mánaðamót að hann hyggðist láta af störfum. Þeirra á meðal eru Dagur B. Eggertsson, þingmaður og fyrrverandi borgarstjóri, Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun, Árni Oddur Þórðarson, fyrrverandi forstjóri Marels, og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku.
|
MBL, DV
|
|
|
|
|
Hefð að þingið auki útgjöld
|
|
Þótt flestir umsagnaraðilar um fjárlög styðji markmið um hallalaus fjárlög hafa fæstir trú á að það náist. Áætlaður afgangur stendur núna í 3,1 milljarði og hefur þegar dregist saman um einn og hálfan milljarð vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar í þágu kjarasamninga. Samtök atvinnulífsins benda á að afgangur af opinberum rekstri sé fátíður þegar slaki sé í hagkerfinu. Þá sé „svo gott sem hefð“ að afkoman versni í meðförum Alþingis. Reynsla þessa árs sýnir hve lítið þarf til að afgangurinn gufi upp. Fjárlög yfirstandandi árs gerðu ráð fyrir 28 milljarða halla en hann stefnir í 67,5 milljarða, segja Vinstri græn í umsögn um frumvarpið. Samtök launafólks vara við miklu aðhaldi í ríkjandi árferði. „Stefna ríkisstjórnarinnar grefur undan velferðarsamfélaginu,“ segir BSRB. Rýnt er í umsagnir um fjárlagafrumvarpið á vef Gímaldsins í dag.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Laxeldi mótmælt á Seyðisfirði
|
|
Um 200 íbúar á Seyðisfirði mótmæltu laxeldi í firðinum í gær þar sem fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi. Mótmælendur lokuðu einu landleiðinni inn fjörðinn til tákns um að fiskeldi væri ekki velkomið þangað. Á sama tíma var mótmælt á Austurvelli en það voru félögin Vá, félag um vernd fjarðar, Landvernd og Verndarsjóður villtra laxastofna, sem stóðu fyrir mótmælunum. Leyfisveitingin til Kaldvíkur hefur sætt mikilli gagnrýni, ekki síst í ljósi andstöðu heimamanna og landeigenda á svæðinu. Á föstudaginn felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála öðru sinni úr gildi ákvörðun HMS um að synja landeigendum á svæðinu um aðild að byggingarleyfismálinu.
|
RÚV, Vísir
|
|
|
|
|
|
Bandaríkjastjórn hótar nú að stöðva vopnasölu til Evrópuríkja í því skyni að þrýsta á að Úkraína láti af árásum á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi. Þetta kemur fram í The Financial Times. „Þeir eru að hringja í Úkraínu og í alla Evrópu,“ er haft eftir einum heimildarmanna miðilsins sem fengið hafði símtal frá bandarískum embættismanni um málið. Leiðtogar Evrópuríkja hafa lýst stuðningi við forseta Úkraínu eftir ótrúlega hegðun Bandaríkjaforseta í garð úkraínskra yfirvalda um helgina, sem hófst á tilkynningu hans um nýjan samning við Rússa um kaup á átján hundruð þúsund tonnum af dísilolíu. Síðdegis í gær fullyrti Trump ranglega að Rússland og Úkraína hefðu gert samkomulag um að láta af árásum á orkuinnviði hvort annars. Þessi yfirlýsing kom aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann sakaði Volodymyr Zelensky um að standa friði fyrir þrifum og hvatti til stjórnarskipta í Úkraínu. Zelensky sagðist ekki kannast við samkomulag við Rússa um hlé á árásum og Rússar svöruðu yfirlýsingunni með árás á orkuver í Kiev sem olli rafmagnsleysi víða í borginni.
|
The Financial Times, The Guardian
|
|
|
|
|
|
Hútar í Jemen gerðu fjórar árásir á Sádi-Arabíu um helgina: þrjár á alþjóðaflugvöllinn í Ríad og eina á olíuvinnslu Aramco í Shedgum. Fyrsta árásin varð að minnsta kosti tólf að bana og særði yfir 300. Sádar hafa svarað með 124 loftárásum á Sanaa, Taiz og fleiri svæði í Jemen. Þetta er mannskæðasta árásarhrina í Sádi-Arabíu frá 2015 en ljóst þykir að Sádar muni ekki geta varist öllum árásum Húta vegna þess hversu víðfeðmt landið er.
|
Al Jazeera
|
|
|
|
|
Hitler Mussolini náði kjöri í Perú
|
|
Hitler Mussolini Simeón Flores, 45 ára framkvæmdastjóri, náði kjöri sem sveitarstjóri í Queropalca, afskekktu héraði í perúsku Andesfjöllunum fyrr í mánuðinum. Hitler var í framboði fyrir miðvinstriflokkinn Ahora Nación og hlaut 229 atkvæði, 34,5 prósent gildra atkvæða, en um 700 manns greiddu atkvæði í kosningunum. Hinn nýkjörni sveitarstjóri hefur hlotið heimsathygli vegna nafnsins en hann er þó ekki eini Hitlerinn til að ná kjöri í Perú því Hitler Alba, sveitarstjóri í Yúngar, kallaði sig „góða Hitler“ í aðdraganda kosninga árið 2018. Hann barðist undir slagorðunum „Hitler snýr aftur“ og „Hitler með fólkinu“ og sigraði sinn helsta keppinaut, Lenin Vladimir Rodríguez Valverde.
|
BBC
|
|
|
|
|
- Maður hefur verið handtekinn í Póllandi fyrir ráðagerð um að ráða Donald Tusk forsætisráðherra landsins og varnarmálaráðherrann Władysław Kosiniak-Kamysz af dögum.
- Raphael Glucksmann verður frambjóðandi sósíalista í frönsku forsetakosningunum á næsta ári eftir sigur í prófkjöri flokksins um helgina. Gluckmann situr á Evrópuþinginu þar sem hann hefur stutt Úkraínu og lagt áherslu á mannréttindamál.
- Norður-Kórea skaut mörgum skammdrægum eldflaugum í Japanshaf í morgun, í fjórða sinn í október. Neyðarfundur var boðaður í suðurkóreska þjóðaröryggisráðinu vegna málsins.
- Að minnsta kosti 139 fórust, þar af fimmtán börn, og 84 er saknað eftir að bátur með 305 flóttamönnum innanborðs sökk á leið frá Djíbútí til Jemen í síðustu viku.
- Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur í annað sinn frestað þing- og forsetakosningum, nú til 11. september 2027.
- Vísindafólk er væntanlegt til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi í dag í von um að varpa ljósi á örlög flugkonunnar Ameliu Earhart, sem hvarf sporlaust árið 1937. Leita á að hlut sem kallaður hefur verið Taraia-fyrirbærið.
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku
|
Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi.
|
Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.
|
|
Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.
|
|
|
|
|
|
|
|
Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu
|
|
Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis.
|
|
|
|
|
|
|
|
Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“
|
|
Feður í fangelsum lýsa kuldalegum og óbarnvænum aðstæðum til heimsókna. Í meistaraverkefni sínu í afbrotafræði tók Árni Sveinsson viðtöl við fimm feður, sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni, um upplifun þeirra af því að takast á við foreldrahlutverk sitt að nýju. Einn þeirra lýsti því þegar börnin hans komu í heimsókn á Kvíabryggju þar sem dæmdir barnaníðingar lögðust ofan á dótið þeirra.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|