Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Föstudagur 25. september 2026

Eyrún Magnúsdóttir
Góðan dag. Það vakti athygli fyrr í vikunni þegar Zohran Mamdani, borgarstjóri í New York, kom fram við hlið Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Mamdani er andstæða Trumps í pólitík og hefur kallað hann fasista en virðist þó vilja rækta samband við forsetann. Mamdani segist vilja tala við alla sem geta stutt við markmið hans um að bæta hag New York búa. Trump, sem hefur kallað Mamdani brjálæðing, fór hlýjum orðum um borgarstjórann á fundi þeirra. Í ræðu sinni á allsherjarþingi SÞ í gær fór Benjamin Netanyahu, forsætisráherra Ísraels, hörðum orðum um Mamdani en mærði Trump. Bandaríkjaforseti hefur ekki hitt Netanyahu í tengslum við þingið og þykir það til marks um vinaleysi Netanyahu þegar Trump tekur Mamdani fram yfir hann.

🌧️💨 Hvöss norðanátt á Vestfjarðakjálkanum í dag og rigning, en slydda eða rigning nærri sjávarmáli seinnipartinn og snjókoma til fjalla. Talsverð eða mikil úrkoma á þessu svæði. Vestan og suðvestan 5-13 um landið sunnan- og austanvert og væta með köflum. Hiti víða 6 til 13 stig, hlýjast á Austurlandi.

Ísland sat undir ræðu Netanyahu

Fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum sat undir ræðu Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær, þegar fulltrúar 77 ríkja ýmist gengu út eða mættu ekki. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er sæti Íslands ávallt mannað í umræðum í ráðherraviku þingsins, líkt og sæti annarra norrænna ríkja. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var þó ekki í salnum, heldur á viðburði um stuðning við UNRWA (Palestínu-flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna) sem fram fór á sama tíma. Þorgerður hafði sömuleiðis tekið þátt í ráðherraviðburði um tveggja ríkja lausnina fyrr um daginn. Ísland hefur sýnt andstöðu við framferði Ísraels gegn Palestínu með ýmsum hætti og er í hópi þeirra ríkja sem taka þátt í málsókn gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag vegna brota á alþjóðasamningi um þjóðarmorð. Þá vakti heimsathygli þegar Ísland dró sig úr Eurovision í fyrra ásamt fjórum öðrum ríkjum í mótmælaskyni við þátttöku Ísrael í keppninni.

Gímaldið

Inga ein á vaktinni

Inga Sæland hefur staðið vaktina í þinginu í vikunni, ein valkyrja, á meðan forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa setið allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Vikan hefur að mestu leyti farið friðsamlega fram en upp úr sauð í óundirbúnum fyrirspurnartíma í gær þegar Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, átti orðastað við Ingu um afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi menntamálamálaráðherra. Í ljós hefur komið að Guðmundur mun hafa verið beittur þrýstingi til að segja af sér, sem af viðbrögðum að dæma virðist nýmæli í íslenskum stjórnmálum. Þurfti forseti Alþingis að veita formönnunum tveimur tiltal af forsetastóli fyrir að gleyma ítrekað háttsemisreglum sem virða ber í ræðustól Alþingis. Hlé hefur nú verið gert á þingstörfum vegna kjördæmadaga í næstu viku. Þing kemur saman á ný mánudaginn 5. október.

Gímaldið, Rúv

Ógn frá Rússum endurmetin

Áhættumat íslenska ríkisins er í endurskoðun með hliðsjón af nýju mati danska hersins um auknar líkur á fjölþáttaárásum frá Rússlandi gegn NATO ríkjum á næstu mánuðum. „Við metum ógnina alvarlega,“ segir Jónas Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, í samtali við RÚV. Hann segir að unnið sé þétt með dönskum, þýskum og pólskum yfirvöldum sem hafi sjálf fundið fyrir ógninni, meðal annars þegar neyðarblysi var skotið frá rússneskri freigátu að danskri eftirlitsflugvél í vikunni. Jónas segir Rússa reyna að rjúfa samstöðu bandalagsríkja vegna erfiðrar stöðu sinnar í Úkraínustríðinu.

RÚV

Bílamengun eykst

Losun frá vegasamgöngum jókst um 1,3 prósent milli ára þrátt fyrir aukna rafbílavæðingu, samkvæmt nýrri skýrslu Umhverfis- og orkustofnunar um losun gróðurhúsalofttegunda. Heildarlosun Íslands var 10,6 milljónir tonna CO2-ígilda í fyrra, sem er 3,9 prósentum minna en 2024 en tveimur prósentum meira en 1990. Ólíklegt þykir að Ísland nái skuldbindingum sínum gagnvart ESB um 29 til 41 prósenta samdrátt samfélagslosunar fyrir 2030 og gæti þurft að kaupa losunarheimildir erlendis frá. Brýnasta aðgerðin til að ná árangri, að mati stofnunarinnar, er endurheimt votlendis.

RÚV

Meistarinn og lærlingurinn  Donald Trump forseti Bandaríkjanna lagði út rauða dregilinn fyrir Xi Jinping, formann kínverska kommúnistaflokksins, í Washington í gær. Kínverskir ríkismiðlar fönguðu augnablikið í fjarveru bandarískra kollega sinna, sem voru í banni. Eftir móttöku á Andrews-flugvelli skipti Trump um bindi til að líkja eftir formanninum og þeir stilltu sér svo upp fyrir myndatöku við Hvíta húsið eins og tvíburar til fara.

Meistarinn og lærlingurinn

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lagði út rauða dregilinn fyrir Xi Jinping, formann kínverska kommúnistaflokksins, í Washington í vikunni. Kínverskir ríkismiðlar fönguðu augnablikið í fjarveru bandarískra kollega sinna, sem voru í banni. Eftir móttöku á Andrews-flugvelli skipti Trump um bindi til að líkja eftir formanninum og þeir stilltu sér svo upp fyrir myndatöku við Hvíta húsið, eins og tvíburar til fara. Þrátt fyrir rauða dregla, fagurgala og tvær risapöndur sem Xi færði dýragarði í Atlanta að gjöf, hafa tveggja daga viðræður litlu skilað. Xi þrýsti opinskátt á Trump að standa gegn sjálfstæði Taívans og Trump ítrekaði að hann vildi skilja gervigreindina eftir nákvæmlega þar sem hún er, og hafnaði ákalli um alþjóðlegt regluverk.

AP, Foreign Policy, New York Times

Íran leggur til vopnahlé

Íran hefur lagt fram tillögu um sjö daga áætlun til að binda enda á stríðið við Bandaríkin, þar sem Hormússund yrði opnað á ný og viðræður um kjarnorkumál teknar upp. Reuters hefur eftir írönskum embættismanni að framkvæma þurfi friðaráætlun í skrefum enda sé hvorugur aðili reiðubúinn að gefa vígstöðu sína eftir. Massoud Pezeshkian forseti Írans segir ákvörðun um frið liggja hjá Bandaríkjunum.

Reuters, Semafor

Kosið um hlutleysi í Sviss

Svisslendingar greiða atkvæði á sunnudag um tillögu um að festa strangara hlutleysi landsins í stjórnarskrá. Hlutleysi hefur verið bundið í stjórnarskrá Sviss frá 1848. Ríkið stendur utan NATO en getur átt öryggissamstarf við önnur ríki og hefur frá 2022 tekið þátt í refsiaðgerðum ESB gegn Rússlandi. Það voru samtökin Pro Schweiz sem knúðu atkvæðagreiðsluna fram. Verði hún samþykkt má Sviss hvorki ganga í hernaðarbandalag né starfa með slíku bandalagi nema árás sé gerð á landið eða slík árás sé yfirvofandi. Óheimilt yrði að beita stríðandi ríki refsiaðgerðum nema með bindandi ákvörðun Sameinuðu þjóðanna. Að mati svissneska utanríkisráðuneytisins yrði þá að aflétta refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Rússnesk stjórnvöld hafa fagnað tillögunni en allir helstu flokkar landsins, nema Svissneski þjóðarflokkurinn (SVP), leggjast gegn henni. Nýjustu kannanir í Sviss benda til þess að yfir 60 prósent kjósenda muni hafna tillögunni.

Euronews

Ósmekklega fagnað

Ísraelski miðherjinn Sayed Abu Farkhi var rekinn af velli í 3-1 tapi Ísraela fyrir Austurríkismönnum í Þjóðadeildinni í knattspyrnu karla í gær. Farkhi skoraði eina mark Ísraela á 56. mínútu, hljóp að hornfánanum, þreif hann upp og mundaði eins og riffil. Þetta leyniskyttugrín vakti litla lukku hjá búlgörskum dómara leiksins, sem sýndi Farkhi sitt seinna gula spjald og sendi hann þar með í sturtu. Austurríkismenn voru mun sterkari aðilinn í leiknum en tókst þó ekki að gera út um hann fyrr en með tveimur mörkum eftir lok venjulegs leiktíma. Ísrael mætir Írum undir stjórn Heimis Hallgrímssonar á sunnudag.

Fabrizio Romano

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.

Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.

Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
facebook instagram custom spotify email