|
|
|
|
Föstudagur 2. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Nú spretta fram viðbrögð við tillögum starfshóps um breytingar á kosningalögum, eins og gera mátti ráð fyrir. Hópurinn hefur lagt til að kerfið verði gert þannig úr garði að álíka mörg atkvæði séu á bak við hvern kjörinn þingmann hvar sem hann er á landinu. Nú hefur Þóroddur Bjarnason prófessor við HÍ lagt til að þingmönnum verði fjölgað úr 63 í 85 og færir hann rök fyrir því að horfa eigi til ferkílómetra ekki síður en atkvæðafjölda. Fari svo að þingmönnum verði fjölgað vakna spurningar um hvaða áhrif það hefur á þá fermetra sem í boði eru innan veggja Alþingis. Breytingar á kosningakerfinu eru eitt af stóru málunum sem þarf að ræða vandlega í vetur, frá öllum hliðum. Í fréttabréfi dagsins er þó ekkert um málið, en af ýmsu öðru að taka.
|
|
|
|
🌨️Sunnan 5-13 m/s og skúrir, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast norðaustanlands.
|
|
|
|
|
Ekki eins vinstri sinnuð og sumir hefðu óskað
|
|
„Flokkur fólksins er það besta sem komið hefur fyrir íslensk stjórnmál,“ segir Kristrún Frostadóttir í viðtali við Gímaldið sem birt verður um helgina. Hún segir stefnumál Flokks fólksins og Samfylkingarinnar fara vel saman og samstarfið við Ingu hafi kennt henni margt. Í viðtalinu svarar Kristrún spurningum um áherslubreytingar Samfylkingarinnar undir hennar stjórn, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvort hún sjálf sé hægri eða vinstri sinnuð. Kristrún ræðir einnig um vinstri og hægri stjórnmál í þinginu, þátttöku almennings í stjórnmálastarfi, EES-samninginn, samband Íslands og Bandaríkjanna og verkefni ríkisstjórnarinnar.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Engin leyfi fyrir Au-pair utan EES
|
Hætt verður að veita dvalarleyfi til au-pair sem koma utan Evrópska efnahagssvæðisins, verði frumvarp dómsmálaráðherra, sem er til kynningar í samráðsgátt, að lögum. Um 78 prósent slíkra leyfa, 764 talsins frá 2017 til 2024, fóru til filippseyskra ríkisborgara. Í frumvarpinu eru líka lagðar til breytingar sem ætlað er að veita þolendum mansals, misneytingar og alvarlegra vinnumarkaðsbrota betri kost á því að leita réttar síns án þess að glata dvalarrétti sínum eða áunnum rétti til ótímabundins dvalarleyfis. Erlendir ríkisborgarar munu almennt þurfa að dvelja á Íslandi í sex ár áður en þeir öðlast rétt á ótímabundnu dvalarleyfi, í stað fjögurra áður.
|
|
Einnig er lagt til að skilyrði fjölskyldusameininga verði þrengd þannig að sambúðartími lengist úr einu ári í tvö og lágmarksaldur hjóna hækki úr 18 árum í 24. Um er að ræða heildarendurskoðun þess hluta útlendingalaga sem snýr að dvalarleyfum og mun umgjörð þeirra færast nær framkvæmdinni á öðrum Norðurlöndum.
|
Stjórnarráðið, Vísir
|
|
|
|
|
Gjaldskrár ríkisins lækki minna
|
|
Ríkisstjórnin er reiðubúin að takmarka hækkanir á almennum krónutölugjöldum og gjaldskrám ríkisstofnana við 2,5 prósent á næsta ári „ef allir gera sitt og samningar halda“. Þetta sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í ræðu á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í gær. Hún kynnir áformin á ríkisstjórnarfundi í dag. Fjárlagafrumvarp ársins 2027 gerir ráð fyrir 5,2 prósenta hækkun, í takt við verðbólgu. Stéttarfélög hafa gagnrýnt þau áform og sagt þau geta viðhaldið verðbólgu og háum stýrivöxtum. Kristrún sagði að slík takmörkun hefði þegar verið rædd í þríhliða samtali stjórnvalda, ASÍ og SA í sumar, en þá hefði ekki náðst samstaða um aðgerðir af þessu tagi.
|
Vísir, RÚV
|
|
|
|
|
Ástæða starfsloka enn á huldu
|
|
Hörður Arnarson fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar fundaði með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í hádeginu í gær, stuttu áður en tilkynnt var að hann muni láta af störfum í lok mánaðarins eftir sautján ár í embætti. Ástæða brotthvarfs Harðar er sögð ágreiningur um stjórnarhætti í fyrirtækinu. Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri tekur tímabundið við 1. nóvember. Forsætisráðherra segir í samtali við RÚV að arðgreiðslur frá fyrirtækinu til ríkisins hafi ekki verið til umræðu á fundi þeirra Harðar og til hans hafi ekki verið boðað vegna starfsloka hans. Þá segir hún að mögulegar hækkanir á arðgreiðslum til ríkisins hafi ekki komið til tals innan ríkisstjórnarinnar.
|
RÚV, mbl.is, Vísir
|
|
|
|
|
|
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur til Íslands í næstu viku eftir að hafa þekkst boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Heimsóknin kemur á sama tíma og spennustig hefur hækkað milli Washington og evrópskra bandalagsríkja vegna þrýstings um dísilbirgðir og varnarmál. „Það hefur verið sérstakt áherslumál mitt í embætti utanríkisráðherra að styrkja tengsl Íslands við okkar nánustu vina- og bandalagsríki beggja vegna Atlantshafsins. Við eigum í virku samtali við Bandaríkin um sameiginleg hagsmunamál þar sem samstarf í varnarmálum, öryggi á norðurslóðum og viðskipti milli ríkjanna vega hvað þyngst. Það er tilhlökkunarefni að taka á móti utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem mun styrkja okkar góða samband enn frekar,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.
|
Stjórnarráðið
|
|
|
|
|
|
Ríkisstjórn Donalds Trump þrýstir á Evrópuríki að losa um neyðarbirgðir af dísilolíu, að öðrum kosti verði útflutningur þeirra til álfunnar takmarkaður, sem gæti hækkað verð á öllu frá flugvélaeldsneyti til matvöru. Aðildarríki Evrópusambandsins funda í dag um samræmd viðbrögð.
|
Politico, Semafor
|
|
|
|
|
Lula líklegri en Bolsonaro
|
|
Luiz Inácio Lula da Silva, sitjandi forseta Brasilíu, er spáð flestum atkvæðum í forsetakosningunum á sunnudag. Frambjóðendur eru þrettán en kannanir benda til þess að valið standi milli Lula, sem gefur kost á sér í fjórða sinn, og Flávios Bolsonaro, sonar Jairs Bolsonaro fyrrverandi forseta, sem var í fyrra dæmdur í 27 ára fangelsi fyrir að leggja á ráðin um valdarán. Ólíklegt þykir að Lula nái hreinum meirihluta á sunnudaginn og því stefnir í aðra umferð 25. október, þar sem frambjóðendurnir mælast hnífjafnir: Lula með 47,6 prósent og Flávio með 47,7 samkvæmt könnun Atlas. Lula hefur varað við afskiptum Bandaríkjanna, sem hafa beitt landið tollum. Samkvæmt Guardian vill stjórn Trumps nú styrkja hópa sem beita sér gegn Hæstarétti Brasilíu en hann er mikill bandamaður Bolsonaro og kallaði dóminn yfir honum nornaveiðar.
|
Reuters, Guardian
|
|
|
|
|
|
Lettar kjósa til þings á laugardag. Talið er líklegt að stjórn Andris Kulbergs forsætisráðherra haldi velli en kannanir benda til að stjórnarflokkarnir fái 58 af 100 þingsætum. Tveir stjórnarflokkanna, Ný eining og Bændaflokkurinn, mælast þó ekki langt yfir fimm prósenta þröskuldinum og þriðjungur kjósenda er óákveðinn eða ætlar ekki að kjósa. Haldi meirihlutinn verður Lettland áfram í hópi dyggustu bandamanna Úkraínu. Fullveldisflokkurinn, eini stóri flokkurinn sem vill hætta þeim stuðningi, mælist næststærstur.
|
LSM, FPRI
|
|
|
|
|
Mál Pike orðið kosningamál
|
|
Christa Pike liggur enn þungt haldin á sjúkrahúsi eftir að Tennessee mistókst að taka hana af lífi á miðvikudag. Lögmenn hennar segja hana hafa þolað meiri refsingu en nokkur annar í sögu bandarískrar dauðarefsingar. Málið er orðið kosningamál, enda kjósa íbúar Tennessee sér nýjan ríkisstjóra í nóvember. Marsha Blackburn, öldungadeildarþingmaður og frambjóðandi Repúblikana, vill taka rafmagnsstólinn upp aftur. Mótframbjóðandi hennar, demókratinn Jerri Green, lofar að stöðva aftökur nái hún kjöri. Cameron Sexton, forseti fulltrúadeildar ríkisþingsins, segir þingmenn ætla að skoða hvernig bæta megi aftökuleiðir ríkisins. Samtök gegn dauðarefsingu krefjast þess að aftökur verði stöðvaðar í öllum 27 ríkjunum sem enn beita henni. Fimm ríki leyfa nú aftökusveit til framkvæmdar dauðarefsinga og Idaho gerði hana að aðalaðferð sinni í júlí.
|
CNN
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|
|