|
|
|
|
Mánudagur 28. september 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Gímaldið er afar stolt af sínu daglega fréttabréfi sem nýlega tók á sig breytta mynd. Viðbrögð lesenda hafa verið jákvæð og við vonumst til að geta bætt við helgarpakka á næstunni. Sem stendur kemur fréttabréfið út virka morgna. Við reynum að hafa samantekina í fréttabréfinu passlega langa og hvern mola snarpan en skýrandi svo lesandi sitji eftir með eitthvað, verði einhvers vísari og fái ákveðið yfirlit. Í dag birtum við veglega umfjöllun um verðtryggð lán á vef okkar og í hlaðvarpinu og skoðum hvaða áhrif það hefur á fólk að vera fast í afborgunum sem aldrei virðast klárast.
|
|
|
|
☁️🌨️Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en norðaustan 8-13 norðvestantil. Rigning eða súld með köflum norðantil, en styttir upp austanlands. Bjart með köflum á sunnanverðu landinu, en stöku skúrir þar síðdegis. Hiti 3 til 12 stig, svalast á Vestfjörðum.
|
|
|
|
|
|
Helga Björg Helgadóttir hefur búið í sömu íbúðinni frá árinu 2005 en á undanförnum árum hefur höfuðstóll lánanna hækkað í þrálátri verðbólgu og afborganir hennar tvöfaldast. „Nú er ég 68 ára gömul og þegar ég hætti að vinna þá eðlilega lækka hjá manni tekjurnar. Og það sem mér finnst kvíðvænlegast í því er akkúrat þetta að standa undir skuldbindingum og lánum. Það að vera að fara út af vinnumarkaðnum og ég er ennþá að borga og ég sé ekki einu sinni lánin mín lækka,“ segir Helga Björg í ítarlegri umfjöllun sem birt er í Gímaldinu í dag.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Írska karlalandsliðið í fótbolta vann sannfærandi 3-0 sigur á því ísraelska í gær. Mikið hafði mætt á leikmönnum og þjálfaranum Heimi Hallgrímssyni í aðdraganda leiksins. Þrýstingur var á að sniðganga leikinn og ljóst að þungt var yfir þjálfara og leikmönnum. Svo fór að leikurinn var spilaður en markvörðurinn Gavin Bazunu dró sig úr hópnum. Ringulreið hafði ríkt fyrir leikinn, blaðamannafundi var frestað og liðið sleppti æfingu. Leikmenn Írlands tóku ekki í hendur þeirra ísraelsku, báru svört sorgarbönd og horfðu niður undir þjóðsöng Ísraels. Heimir sagðist stoltur af liðinu en kallaði dagana þá erfiðustu á ferlinum. Seinni leikur þjóðanna fer fram fyrir luktum dyrum í Serbíu 4. október.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Drög að frumvarpi um þak á auglýsingatekjur RÚV er komið til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda. Í frumvarpinu er lagt til að allar tekjur sem Ríkisútvarpið hefur af auglýsingasölu umfram 2,8 milljarða verði dregnar frá útvarpsgjaldi. Er miðað við að tekjur ríkissjóðs af útvarpsgjaldi sem ekki rennur til RÚV fari til stuðnings við einkarekna fjölmiðla. RÚV verður hins vegar bætt tekjutapið með því að „færa skuldir vegna eldri lífeyrisskuldbindinga RÚV frá félaginu, eins og gert hefur verið hjá nær öllum opinberum aðilum og fyrirtækjum sem sinna opinberum rekstri“ samkvæmt drögunum.
|
Gímaldið, Samráðsgátt
|
|
|
|
|
Foreldrar fylgi eftir banni
|
|
Drög að frumvarpi um að börn yngri en 15 ára hafi ekki sjálfstæðan aðgang að samfélagsmiðlum eru einnig komin til kynningar í samráðsgátt. Samkvæmt drögunum mega börn fá eigin aðgang á því ári sem þau verða 15 ára. Framfylgd bannsins verður á ábyrgð foreldra og forráðamanna en ekki samfélagsmiðlanna sjálfra.
|
Gímaldið, Samráðsgátt
|
|
|
|
|
Þingmenn fara heim í hérað
|
|
Hlé hefur verið gert á fundum Alþingis í þessari viku vegna kjördæmadaga. Vikuna munu þingmenn nýta til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri. Alþingi kemur saman á ný mánudaginn 5. október.
|
Alþingi
|
|
|
|
|
Þorgerður lofuð fyrir ræðuna
|
|
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra hefur hlotið lof fyrir ræðu sína á allsherjarþingi Sameinðu þjóðanna um helgina og fjallað hefur verið um hana í erlendum fjölmiðlum. Þorgerður fór um víðan völl í ræðunni og gerði réttindabaráttu hinsegin fólks, stríðið í Úkraínu og takmarkanir Sameinuðu þjóðanna meðal annars að umtalsefni. Hún gagnrýndi að ríki heims fylgi alþjóðalögum af sífellt meiri hentisemi og að neitunarvald nokkurra ríkja í Öryggisráði SÞ standi aðgerðum í þágu friðar fyrir þrifum. Hún skaut einnig föstum skotum að forsætisráðherra Ísraels með því að vísa beint í hans eigin orð um siðferðislegan heigulshátt. Þorgerður sagði það siðferðislegan heigulshátt að vilja ekki semja um varanlegan og réttlátan frið á Gaza og neita bágstöddum íbúum þar um aðstoð.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Viðræður vinstri flokka í Svíþjóð eru í uppnámi eftir að Vinstriflokkurinn hafnaði tillögu Jafnaðarmanna að þingforseta og studdi tillögu hægri flokkanna um forsetaefni. Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins segir viðræður við vinstriflokkana síðustu tíu daga ekki hafa skilað neinu. Flokkurinn líti svo á að Vinstriflokkurinn vilji styðja ríkisstjórnarmyndun til hægri.
|
SVT
|
|
|
|
|
|
Svisslendingar höfnuðu því að herða á ákvæði um hlutleysi í stjórnarskrá landsins í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær. Hefði tillaga um hert hlutleysi verið samþykkt hefði Sviss ekki getað tekið þátt í refsiaðgerðum ESB gegn Rússlandi. Tillagan naut opinbers stuðnings stjórnvalda í Kreml en allir stjórnmálaflokkar í Sviss nema svissneski þjóðarflokkurinn voru andvígir tillögunni. Henni var hafnað af tæplega 70 prósentum þátttakenda.
|
The Economist, Semafor
|
|
|
|
|
|
Aleksandar Vučić sagði af sér sem forseti Serbíu í gærkvöldi, sjö mánuðum áður en síðara kjörtímabili hans átti að ljúka. Hver forseti má aðeins gegna embætti í tvö kjörtímabil og er afsögn Vučić talin liður í áformum hans um að leiða Serbneska framfaraflokkinn í þingkosningum sem boðaðar hafa verið 25. október. Vučić hefur sætt ásökunum um spillingu í fjölmennum mótmælum sem staðið hafa yfir mánuðum saman í landinu. Ana Brnabić forsætisráðherra tekur við sem starfandi forseti þar til nýr forseti hefur verið kosinn. Fyrri umferð forsetakosninga fer fram í lok desember.
|
BBC, The New York Times
|
|
|
|
|
|
Breska hryðjuverkalögreglan rannsakar hvort Íran hafi tengst meintum áformum um hryðjuverk í námunda við bandarísku RAF Fairford flugherstöðina á Englandi um helgina. Fimm hafa verið handteknir vegna málsins. Í júlí varaði Íran við því að herstöðvar sem notaðar væru til árása á landið teldust lögmæt skotmörk. Þrátt fyrir að Donald Trump forseti Bandaríkjanna hafi hafnað tilboði Írans um sjö daga vopnahlé gegn opnun Hormússunds er búist við frekari viðræðum milli ríkjanna í næstu viku.
|
The Economist, Politico, Al Jazeera
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|