|
|
|
|
Mánudagur 21. september 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Bakgarðshlaupið í Heiðmörk fór fram um helgina. Ólíkt öðrum hlaupum sem hafa upphafsreit, endamark og fyrirfram ákveðna vegalengd fara hlauparar hring eftir hring. Sá eða sú sem hleypur flesta hringi sigrar. Nú líður að því að Alþingi hefji fjórða hringinn með Bókun 35 en í þrígang hefur mistekist að koma málinu í gegnum þingið. Það verður áhugavert að fylgjast með því hvort Bókun 35 kemst í mark eða hvort stjórnarandstaðan breytir málinu í Bakgarðshlaup. Lagaprófessor skýrði út Bókun 35 í viðtali í hlaðvarpi Gímaldsins á dögunum og þar er einnig að finna nýjan þátt um breytingar á kosningalögum. Munið að merkja við Gímaldið á hlaðvarpsveitum svo þið fáið nýjustu þættina.
|
|
|
|
🌧️ 💨 Austan og suðaustan 13-20 m/s og rigning, en snýst í sunnan 8-13 með skúrum í kringum hádegi. Heldur hægari í kvöld. Sunnan og suðvestan 8-13 og skúrir á morgun. Hiti 7 til 12 stig.
|
|
|
|
|
Meistarar í misvægi atkvæða
|
Hagsmunir landsbyggðarinnar yrðu ekki fyrir borð bornir þótt þingmönnum hennar fækkaði, að mati Ólafs Þ. Harðarsonar, prófessors og formanns starfshóps sem skilað hefur tillögum um breytingar á kosningakerfinu til ríkisstjórnarinnar. Verði tillögur hópsins samþykktar mun misvægi atkvæða hverfa nær alveg og útdeiling jöfnunarsæta verða fyrirsjáanlegri. Rætt er við Ólaf um tillögurnar í hlaðvarpi Gímaldsins. Hann segir misvægi atkvæða mest á Íslandi í allri Vestur-Evrópu og skýrir hver áhrif þess hafa verið í íslenskum stjórnmálum.
|
|
Dómsmálaráðherra hefur afhent forseta Alþingis tillögur hópsins með ósk um að skipuð verði þingnefnd til að fara yfir þær og leggja fram frumvarp, náist um þær sátt.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Ekkert bendir til lausnar í kjaradeilu Icelandair og flugvirkja, en vekfall hefst á miðvikudag verði ekki samið fyrir þann tíma. Samtöl eru í gangi milli deiluaðila, að sögn Ástráðs Haraldssonar ríkissáttasemjara, en engar tillögur liggja á borðinu og hann hefur ekki boðað deiluaðila á sinn fund.
|
MBL
|
|
|
|
|
|
Norska dagblaðið VG birti um helgina ítarlega úttekt um stöðu mála í Grindavík. Lagt er út af þögninni sem nú ríkir í bænum sem stendur tómur eftir gosin sem hófust árið 2023. Rætt er við nokkra Grindvíkinga sem margir lýsa gremju í garð stjórnvalda. Bæjarbúar séu þreyttir á að hafa búið í bráðabirgðahúsnæði í á þriðja ár, en bærinn þeirra sé orðinn áfangastaður fyrir ferðamenn sem vilji virða eyðilegginguna fyrir sér. Í úttekt VG segir að aðeins sé hægt að líkja hamförunum við einn atburð í sögu þjóðarinnar: Heimaeyjargosið árið 1973. Þar hafi uppbygging hafist að goslokum og Vestmannaeyingar smátt og smátt getað flutt heim.
|
VG
|
|
|
|
|
|
Kristilegir demókratar, flokkur Friedrichs Merz kanslara, náðu ekki 5 prósenta lágmarkskjöri í kosningum í sambandslandinu Mecklenburg-Vorpommern um helgina. Þetta er í annað sinn á nokkrum vikum sem flokkur kanslarans tapar fylkiskosningum fyrir hægri öfgaflokknum AfD, sem hlaut flest atkvæði. AfD skaut einnig Jafnaðarmönnum, sem áður réðu ríkjum í fylkinu, ref fyrir rass. Í Berlín fékk sósíalistaflokkurinn Die Linke flest atkvæði, mun fleiri en bæði Kristilegir demókratar og AfD. Óvinsældir Merz hafa vaxið mjög í Þýskalandi að undanförnu og hefur flokkur hans aldrei verið jafn óvinsæll og nú. Greinendur í Þýskalandi telja kanslaranum ekki lengur sætt á formannsstóli en sjálfur segist Merz ekki á förum heldur ætli hann nú að láta hendur standa fram úr ermum.
|
Die Deutsche Welle
|
|
|
|
|
Rússar eru taldir líklegir til að láta reyna á þolrif NATO og jafnvel gera árás á aðildarríki í Evrópu á næstu mánuðum. Þetta hefur breska dagblaðið The Guardian eftir fulltrúum leyniþjónusta nokkurra ríkja. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, hefur tilkynnt pólska þinginu að leyniþjónustur telji líklegt að Rússar muni gera árás með drónum eða flugskeytum á NATO ríki til að ganga úr skugga um að 5. gr. NATO sáttmálans sé meira táknræn en virk. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir viðvaranirnar studdar traustum gögnum.
|
|
Úkraínski herinn lét drónum rigna yfir Moskvu um helgina á meðan Rússar gengu að kjörborðinu og kusu nýtt þing. Sameinað Rússland, flokkur Vladimírs Pútíns forseta, vann öruggan meirihluta í kosningunum en eini flokkurinn sem lýst hafði andstöðu við innrásarstríðið í Úkraínu, fékk ekki að bjóða fram. Þá var engum alþjóðlegum eftirlitsaðilum gefinn kostur á kosningaeftirliti. Rússar hafa heitið því að herða árásir á Kyiv í hefndarskyni fyrir árásirnar á Moskvu.
|
Guardian, Semafor
|
|
|
|
|
|
Refsiaðgerðir ESB gegn um þrjú þúsund einstaklingum og fyrirtækjum tengdum Rússlandi falla niður á miðnætti verði þær ekki framlengdar í dag. Sendiherrar aðildarríkjanna funda um málið í Brussel í dag en mest er talið velta á Frökkum sem lagt hafa til að rússnesk-úsbeski auðjöfurinn Alisher Usmanov verði tekinn af listanum vegna áhyggna af frönskum ríkisborgara í haldi í Aserbaísjan og tilraunir til málamiðlunar í síðustu viku báru ekki árangur.
|
Politico
|
|
|
|
|
|
Austurríki leiðir hóp ellefu ESB-ríkja, þar á meðal Þýskalands, Ítalíu og Póllands, sem vilja að sambandið setji engin ný lög í heilt ár en einbeiti sér í stað þess að einföldun regluverks, sem margir telja ekki ganga nógu hratt. Unnið er að lokafrágangi fjárhagsáætlunar sambandsins fyrir næstu sjö ár. Þótt ekkert ríki vilji skera niður í varnarmálum, samkeppnishæfni eða landbúnaði vilja þau heldur ekki hækka framlögin. Ein leið væri að hækka skatta, til dæmis á nikótínvörur, að sögn Antoni Costa, forseta leiðtogaráðs ESB.
|
Politico
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
Karl Wernersson: The Movie
|
|
Karl Wernersson bauð vinum, vandamönnum og fjölmiðlum í bíósal til að segja sögu sína af sautján ára málaferlum. Á tjaldinu birtust dómsniðurstöður, fjölskyldumyndir og vondi karlinn úr Austin Powers. Í lokin myndaðist röð fólks sem vildi faðma hann.
|
|
|
|
|
|
|
|
Ólafur Ragnar Grímsson: Vegferð um veröldina
|
Frá námsárum til forsetakjörs fór höfundur víða og vann með áhrifamönnum í ýmsum álfum. Hér segir af ungum manni sem heldur út í heim, berst á öldufaldi breytinga og myndar bandalög við leiðtoga þar sem barist er fyrir afvopnun, friði og farsæld fátækra ríkja. Samfelldur þráður liggur frá námsárum í Bretlandi til baráttunnar um Bessastaði.
|
|
Vegferð um veröldina segir frá starfi innan alþjóðlegu þingmannasamtakanna Parliamentarians for World Order, sem síðar nefndust Parliamentarians for Global Actions. Samtökin voru skipuð þingmönnum frá ýmsum löndum sem innblásnir af friðarhreyfingum tímans freistuðu þess að að virkja þjóðarleiðtoga til að rjúfa vítahring sívaxandi vígbúnaðar.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|