Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Þriðjudagur 20. október 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Tveir fyrrverandi borgarstjórar eiga sæti á Alþingi. Þeir eiga það sameiginlegt að hafa tilheyrt stjórnarmeirihlutanum en ekki fengið neitt ábyrgðarhlutverk, hvorki í stjórninni sjálfri né í þingflokkum sínum. Eftir því var tekið þegar gengið var framhjá Degi B. Eggertssyni þegar skipað var í stjórn þingflokks Samfylkingarinnar í upphafi kjörtímabilsins. Hann virðist hins vegar líta á áhrifaleysi sitt sem pólitískt tækifæri og frelsi til að gera það sem honum sjálfum sýnist á þingi án þess að þurfa að yfirgefa þingflokkinn. Jón Gnarr virðist meta sína stöðu öðruvísi. Það eru forréttindi að vera á góðu kaupi við að sinna hugsjónum sínum og engir hafa meira frelsi til þess en óbreyttir þingmenn, hvort heldur er innan eða utan þingflokka. Um þetta og fleira er rætt í nýjasta hlaðvarpi Gímaldsins.

🌨️❄️ Sunnan 8-13 m/s austast, en annars hægari vindur. Rigning eða slydda austantil og snjókoma til fjalla, en annars dálitlar skúrir eða slydduél. Styttir víða upp um tíma í kvöld.

Íhuga útvistun á rekstri Húsdýragarðsins

Meirihlutinn í Reykjavík hyggst kortleggja rekstur Fjölskyldu- og húsdýragarðsins með það fyrir augum að kanna hvort fýsilegt sé að úthýsa rekstrinum að hluta eða í heild. Tekin verður afstaða til þessarar tillögu meirihlutans á fundi borgarstjórnar í dag. Tillagan felur í sér kortlagningu á rekstrinum, raunkostnaði borgarinnar og fjárfestingarþörf næstu ára. Þá verði áhugi markaðsaðila einnig kannaður. Í greinargerð segir að einkaaðilar gætu lagt til þekkingu, rekstrarreynslu og fjármagn, meðal annars í veitinga- og verslunarrekstri, afþreyingu og viðburðahaldi. Þá er áréttað að velferð dýranna verði að vera í forgrunni og að garðurinn haldi fræðsluhlutverki sínu gagnvart leik- og grunnskólabörnum. Meirihlutinn tekur að lokum fram að tillagan feli ekki í sér fyrirframgefna niðurstöðu um útvistun.

Gímaldið, Reykjavíkurborg

Hæstiréttur fjalli um sýknudóm

Ríkissaksóknari íhugar að óska eftir að fá að áfrýja til Hæstaréttar umdeildum sýknudómi Landsréttar sem féll í vikunni. Með dómi Landsréttar var sakfellingardómi Héraðsdóms í nauðgunarmáli snúið við og talið að kona sem varð fyrir alvarlegum líkamsáverkum, þar á meðal rifbeinsbroti, heyrnartapi og tognun á hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind, hefði samþykkt harkalegt kynlíf. Dómur Landsréttar hefur verið harðlega gagnrýndur meðal fræðimanna. María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segist telja líklegt að Hæstiréttur myndi samþykkja að taka málið til meðferðar enda hafi það víðtækt lögfræðilegt gildi að fá úr því skorið hvernig túlka beri samþykki og telur niðurstöðuna á skjön við réttarvitund almennings.

RÚV

Íbúðum til sölu fjölgar

Íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu eru 26 prósent fleiri en í október á síðasta ári. Þær eru nú 4.050 og nemur fjölgunin 828 íbúðum. Íbúðum til sölu fjölgar einnig í öðrum landshlutum. Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins hefur íbúðum til sölu fjölgað um 31 prósent miðað við október í fyrra og á landsbyggðinni nemur fjölgunin tæpum 38 prósentum. Þetta kemur fram í frétt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Frá október 2024 hefur framboðið aukist um meira en 70 prósent á höfuðborgarsvæðinu. Á leigumarkaði fækkaði nýskráðum samningum á þriðja ársfjórðungi miðað við fyrra ár. Mánaðarskýrsla HMS verður kynnt fimmtudaginn 22. október.

HMS

Gagnrýna stytt bótatímabil

Alþýðusamband Íslands ítrekar andstöðu sína við nýlegar breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar í umsögn sinni við frumvarp til fjárlaga. Með breytingunum var bótatímabilið stytt úr 30 mánuðum í 18 og ávinnslutími réttinda lengdur úr þremur mánuðum í tólf. Að sögn ASÍ hugðust stjórnvöld spara þannig sex milljarða króna á ári. Tímasetningin er að mati sambandsins afleit. Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar var árstíðarleiðrétt atvinnuleysi 6,8 prósent í ágúst, um prósentustigi hærra en ári fyrr. Skráð atvinnuleysi hjá Vinnumálastofnun var 3,9 prósent og atvinnulausir á skrá um 8.700, fleiri en í nokkrum ágústmánuði frá 2021. Þá segir ASÍ að þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda hafi hvorki verið sett fjármagn í vinnumarkaðsaðgerðir né slíkar aðgerðir boðaðar. Þvert á móti færist atvinnuleitendur fjær Vinnumálastofnun, sem eigi að stuðla að virkni og ráðningum, og það geti aukið líkur á jaðarsetningu.

Gímaldið, Alþingi

Opinn fundur um aflaheimildir

Atvinnuveganefnd Alþingis heldur opinn fund í dag til að fjalla um ráðstöfun 5,3% aflaheimilda sem tekin eru til hliðar til að efla atvinnu og byggð í landinu. Gestur fundarins verður Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Fundurinn hefst kl. 11:45 í Smiðju og verður opinn. Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis.

Alþingi

Rekaviður en ekki flugvél

Eins og Gímaldið fjallaði um fór vísindafólk til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi fyrr í þessum mánuði til að rannsaka Taraia-fyrirbærið, hlut sem talið var að gæti verið flak flugvélar Ameliu Earhart, sem hvarf árið 1937. Niðurstaðan liggur fyrir, í bili að minnsta kosti: Fyrirbærið var að öllum líkindum rekaviður. Í tilkynningu frá Purdue-háskóla, sem fer fyrir rannsókninni, segir líklegast að stór tré hafi safnast saman á sandeyri Taraia-skagans. Þegar leiðangurinn kom á staðinn hafði stór hluti þeirra brotnað og skolast burt. Eftir stóð aðeins einn Y-laga bútur. BBC greinir frá. Hluturinn sást fyrst á gervihnattamyndum árið 2020 en er að sögn háskólans sýnilegur á ljósmyndum allt aftur til ársins 1938, ári eftir að Earhart hvarf. Rick Pettigrew, stjórnandi verkefnisins, segir gátuna því enn óleysta. „Eyjan hefur haldið fast í leyndarmál sín og gerir það enn,“ segir hann.

BBC

Flamingóbylting vex

Mótmæli gegn ríkisstjórn Albaníu héldu áfram í gær, sjöunda daginn í röð. Krafist er afsagnar forsætisráðherrans Edi Rama, sem hefur gegnt embættinu frá 2013 en hann hlustar ekki á mótmælendur og situr sem fastast. Rætur mótmælanna liggja í borgarahreyfingu sem hófst 31. maí gegn lúxusuppbyggingu í Zvërnec og Sazan, sem tengist Jared Kushner, tengdasyni Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Hreyfingin, kennd við Flamingóa, mótmælti friðsamlega í rúma fjóra mánuði og kröfurnar færðust frá náttúruvernd yfir í afsögn Rama. Þann 13. október bættust háskólanemar í hópinn auk á annað hundrað háskólakennara sem mótmæla stöðu menntamála í landinu og krefjast líka afsagnar Rama. Rama sakar stjórnarandstöðuna, öfgahópa, Rússland og Íran um að kynda undir óeirðunum, án þess að leggja fram gögn því til stuðnings. Mótmælendur virðast þó ekki ganga erinda stjórnarandstöðunnar: þeir hrópa „Rama í fangelsi, Berisha í fangelsi“ og eiga þar við Sali Berisha, leiðtoga stærsta stjórnarandstöðuflokksins.

Tirana Times

Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu er áhrifakona meðal leiðtoga ESB.

Allir vegir liggja til Rómar

Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, gæti fengið alla leiðtoga Evrópusambandsins til fundar í Róm í mars, að því er Euractiv greinir frá. Tilefnið væri 70 ára afmæli Rómarsáttmálans, sem lagði grunninn að Efnahagsbandalagi Evrópu og þar með ESB. Það er ekki á hverjum degi sem leiðtogafundir eru haldnir utan Brussel. Það gerðist síðast árið 2003 í Grikklandi. Öll 27 aðildarríkin þurfa að samþykkja að brugðið sé út af vananum. Tímasetningin næsta vor hentar Meloni vel. Kjörtímabili hennar lýkur haustið 2027 en Meloni er sögð íhuga að flýta þingkosningum til vors. Leiðtogafundur á heimavelli væri kjörið tækifæri fyrir Meloni til að sýna kjósendum hvaða vigt hún hefur í Brussel. Sú vigt sást á leiðtogafundinum í síðustu viku. Meloni sýndi hörku í orkumálum með stuðningi ríkja í austurhluta sambandsins og þrýsti, ásamt Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur, á harðari línu í útlendingamálum. Euractiv segir Meloni orðna eins konar viðmið fyrir þá sem velta fyrir sér hvernig Frakkland gæti litið út undir stjórn Marine Le Pen: Meloni sem var alltaf tortryggin á ESB en uppgötvaði í embætti hvernig hún getur nýtt sér sambandið til heimabrúks.

Euractiv

Í stuttu máli:

  • Alberta velur Kanada, sagði Mark Carney forsætisráðherra Kanada eftir að ljóst varð snemma í morgun að kjósendur fylkisins höfðu hafnað því í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu að hefja feril aðskilnaðar frá Kanada.
  • Grænland: Evrópusambandið vill taka þátt í að fjármagna nýjan sæstreng sem á að tengja Grænland við meginland Evrópu. Þetta kemur fram í drögum að norðurslóðastefnu sambandsins. Verkefnið var þegar hluti af áætlunum Dana um varnir á norðurslóðum en nú vill ESB taka þátt.
  • ESB hf.: Aðildarríki Evrópusambandsins gætu náð niðurstöðu á föstudaginn um svokallað „EU Inc“, tillögu um eitt regluverk fyrir stofnun og rekstur fyrirtækja um allt sambandið í stað 27 ólíkra landskerfa.
  • Franska ríkisstjórnin ákvað í gær að útgöngubann gildi að kvöldlagi í hlutum Parísar, Nice, Lyon og Lille. Um er að ræða viðbrögð við óeirðum og gripdeildum sem breiðst hafa út samhliða fjölmennum mótmælum í landinu.
  • Ítalska ríkisstjórnin mun senda 500 hermenn til Mílanó til að „verja borgina“ eftir að óeirðir brutust út samhliða mótmælum gegn háum framfærslukostnaði.
  • Finnar framleiða nú jarðsprengjur í stórum stíl til að styrkja varnir sínar við landamærin að Rússlandi. Finnland sagði sig frá alþjóðasamningi um bann við jarðsprengjum í janúar vegna breyttrar öryggisstöðu.
  • Ástralska þingkonan Helen Haines missti annan fótlegginn eftir að jeppa var ekið vísvitandi á hana utan skrifstofu hennar í gær. Lögregla segir bílstjórann hafa tekið U-beygju og ekið á hana í annað sinn.

CBC, Euractiv, Al Jazeera, Foreign Policy, Guardian, Reuters

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Frelsi óbreytta þingmannsins: Jón Gnarr og Dagur B. Eggertsson fóru ólíkar leiðir

Jón Gnarr hefði getað nýtt sér frelsi óbreytts stjórnarþingmanns innan þingflokks Viðreisnar, á svipaðan hátt og Dagur B. Eggertsson hefur gert innan Samfylkingarinnar. Þetta segir Aðalheiður Ámundadóttir, stjórnmálaskýrandi Gímaldsins, um úrsögn Jóns úr þingflokknum í nýjum hlaðvarpsþætti. Fjallað er um brotthvarf Jóns, áhrifin á Viðreisn og einnig rætt um skref sem verið er að stíga í því að minnka áhrif verðtryggingar á fasteignalánamarkaði.
Frelsi óbreytta þingmannsins: Jón Gnarr og Dagur B. Eggertsson fóru ólíkar leiðir
Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku

Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku

Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi.

Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.

Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.

Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu

Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis.
Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu
Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“

Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“

Feður í fangelsum lýsa kuldalegum og óbarnvænum aðstæðum til heimsókna. Í meistaraverkefni sínu í afbrotafræði tók Árni Sveinsson viðtöl við fimm feður, sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni, um upplifun þeirra af því að takast á við foreldrahlutverk sitt að nýju. Einn þeirra lýsti því þegar börnin hans komu í heimsókn á Kvíabryggju þar sem dæmdir barnaníðingar lögðust ofan á dótið þeirra. 

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email