Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Mánudagur 14. september 2026

Eyrún Magnúsdóttir
Góðan dag. Svíar kusu í gær en fá þó ekki að vita hver sigraði fyrr en um næstu helgi. Danir fengu Gullna ljónið í Feneyjum, fyrir mynd um danska konu sem reynir að fela ástarsamband sitt við nasista. Á sömu hátíð fékk heimildarmyndin Naza sérstök verðlaun og uppskar 25 mínútna lófatak. Myndin byggir á viðtölum við 24 hermenn úr ísraelsku leyniþjónustunni. Ísraelskir leikstjórar myndarinnar eiga nú á hættu að verða svipt ríkisborgararétti sínum.

☁️ Norðanátt, 5-13 m/s vestantil en annars hægari fram eftir degi. Þokusúld eða dálítil rigning norðanlands og smá væta á Austurlandi síðdegis. Þurrt að mestu í öðrum landshlutum, en stöku skúrir suðaustanlands. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast syðra.

Ekkert óveðursský yfir Alþingi

Forseti Alþingis segist ekki finna vísbendingar um að ófriðarsamara verði í þinginu en venjulega nú á fyrstu dögum haustþings. Hún segir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafa verið skýra og ríkisstjórnin muni virða hana. Þórunn Sveinbjarnardóttir ræðir þingstörfin og umræðuna bæði innan þings og utan í fyrsta þætti Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál. Hún ræðir meðal annars samskipti sín við þingflokksformenn og hvernig hún býr sig undir erfiða daga í þinginu. Þórunn dvelur sérstaklega við vaxandi hörku í garð kjörinna fulltrúa og segir kælingaráhrif af ofstopa og hótunum raunveruleg. Hótanir í garð stjórnmálafólks séu ógn við lýðræðið. Hægt er að hlusta á fyrsta þátt Hálftímans á vef Gímaldsins og öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Gímaldið

Brýnt að afgreiða Bókun 35

Margrét Einarsdóttir lagaprófessor við HR og sérfræðingur í Evrópurétti segir íslenska stjórnarskrá alltaf hafa forgang umfram EES-reglur. Það breytist ekki þótt Bókun 35 verði samþykkt. Brýnt sé að Alþingi klári að samþykkja Bókun 35 enda geti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir Ísland verði það ekki gert. Þá stefni í að málið verði tekið fyrir í EFTA dómstólnum og hún segir nánast gefið að íslenska ríkið myndi tapa því máli. Málið verður lagt fyrir Alþingi í fjórða sinn á næstunni. Rætt er við Margréti í hlaðvarpi Gímaldsins.

Gímaldið

Ráðherrar sitja fyrir svörum

Fyrstu óundirbúnu fyrirspurnir nýs haustþings verða bornar upp á Alþingi klukkan 13.30 í dag. Til svara verða forsætisráðherra, félags og húsnæðismálaráðherra, fjármálaráðherra, heilbrigðisráðherra, innviðaráðherra og menningar, nýsköpunar og háskólaráðherra. Að loknum fyrirspurnum mælir fjármálaráðherra fyrir bandorminum svonefnda, sem hefur að geyma ýmsar forsendur fjárlaga. Fjölmörg ný þingmál hafa verið lögð fram á Alþingi á fyrstu dögum haustþings, bæði frá stjórn og stjórnarandstöðu. Bókun 35 er þó ekki komin fram og ekki heldur boðað þingmál stjórnarandstöðunnar um afturköllun umsóknar Íslands um aðild að ESB.

Gímaldið

Mjótt á munum í Svíþjóð

Óvissa ríkir enn um úrslit sænsku þingkosninganna sem fóru fram í gær. Yfir 90 prósent atkvæða hafa verið talin en aðeins eitt þingsæti skilur milli fylkinga. Rauð blokk Magdalenu Andersson, formanns Sósíaldemókrata, leiðir með 175 sætum gegn 174 sætum bláu blokkar Ulfs Kristersson, forsætisráðherra og formanns Kristilegra demókrata, og bandamanna hans í öfgahægri flokknum Svíþjóðardemókrötum sem varið hafa stjórn hans á yfirstandandi kjörtímabili. Endanleg úrslit gætu dregist fram á miðvikudag, en sigri blokk forsætisráðherra kynnu Svíþjóðardemókratar, flokkur með rætur í nýnasisma, að fá ráðherrastóla í sænskri ríkisstjórn í fyrsta sinn.

RÚV, Svenska Dagbladet, BBC

Dróni hæfir farþegalest

Rússneskur dróni hæfði úkraínska farþegalest við landamærin að Póllandi í gærmorgun, skömmu eftir að fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Boris Johnson, og fyrrverandi yfirmaður CIA, David Petraeus, höfðu farið um borð í aðra lest á sömu stöð og haldið yfir til Póllands. Lestin var kyrrstæð þegar dróninn hæfði hana og enginn slasaðist. Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, sagði árásina sýna að hryðjuverk Pútíns séu að banka á dyr ESB og NATO. Selenskí, forseti Úkraínu, segir árásina hluta af umfangsmikilli sókn Rússa gegn innviðum í Úkraínu, en í síðustu viku hafi meira en tvö þúsund drónum og tæplega áttatíu eldflaugum verið beint að landinu.

Economist, BBC, RÚV

Mótmæli gegn AfD harðna

Tugþúsundir manna mótmæltu öfgahægri flokknum AfD í um tuttugu þýskum borgum um helgina, þar á meðal Berlín, Hamborg og München. Mótmælendur kröfðust þess meðal annars að flokkurinn verði bannaður. Í Düsseldorf einni söfnuðust um tuttugu þúsund manns saman undir slagorðinu „Ekki skref til baka“. Mótmælin koma í kjölfar afgerandi sigurs flokksins í nýlegum þingkosningum í Saxlandi Anhalt.

Deutsche Welle

Leiðtogar ræða norðurslóðir

Leiðtogafundur ESB um norðurslóðir hófst í dag í Rovaniemi í Finnlandi, þar sem forseti leiðtogaráðs ESB, António Costa, og æðsti talsmaður utanríkismála sambandsins, Kaja Kallas, funda með fjölda evrópskra þjóðarleiðtoga um stefnu sambandsins í málefnum svæðisins. Kallas segir norðurslóðir vera á fremstu víglínu alþjóðlegrar valdabaráttu og kallar eftir auknu fjármagni og áherslu á svæðið. Ný stefna, sem kynnt verður síðar í haust, er sögð endurspegla áherslu á nánara samstarf við Grænland, Ísland, Noreg og Kanada. Þótt aðeins hálf milljón íbúa ESB búi formlega á hinum skilgreindu norðurslóðum ná málefni þess æ oftar inn á dagskrána í Brussel.

Politico

Trump blæs á áhyggjur

Forseti Bandaríkjanna vísar á bug viðvörunum stjórnenda fremstu fyrirtækja heims á sviði gervigreindar og segir þá ýkja áhættu sem aldrei muni raungerast. Mestu máli skipti að bandarísku fyrirtækin haldi forskoti sínu á þróunina í Kína. Ummæli forsetans eru viðbrögð við yfirlýsingu Dario Amodei, forstjóra Anthropic, sem kallaði eftir hægari þróun og óháðu eftirliti með leiðandi líkönum gervigreindar. Forsvarsmenn annarra leiðandi fyrirtækja hafa lýst stuðningi við tillögur Amodei, þeirra á meðal Sam Altman hjá OpenAI og Elon Musk. Unnið er að þverpólitískri löggjöf um gervigreind í bandaríska þinginu en vegna ágreinings um efni hennar er óvíst að hún nái fram að ganga fyrir kosningar í nóvember.

Semafor, Economist

Noregur biðlar til Meta

Norska ríkisstjórnin hefur óskað eftir því við Meta að takmarkanir sem samið var um í dómsátt fyrirtækisins við fjölda bandarískra ríkja fyrr í haust nái einnig til Noregs. Meðal þess sem Norðmenn hafa sérstakan áhuga á er að slökkt verði sjálfkrafa á Facebook og Instagram fyrir börn á kvöldin. Erindi norsku stjórnarinnar til Meta er hluti af aðgerðaáætlun norskra stjórnvalda um skjánotkun og stafrænt líf barna.

NRK

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.

Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.

Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email