Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Mánudagur 19. október 2026

Eyrún Magnúsdóttir
Góðan dag. Gímaldið birtir í dag kafla úr nýrri bók Guðna Th. Jóhannessonar fyrrverandi forseta Íslands. Við erum ánægð með að fá að birta brot úr völdum bókum undir merkjum Bókapressunnar. Á vef Gímaldsins er einnig að finna reifun á au pair-máli dómsmálaráðherra, en Gímaldið fjallaði um forsögu þess máls fyrir nokkru. Við höldum áfram að senda út fréttabréf virka morgna. Von okkar er sú að það dragi úr þörf fyrir skroll og smelli. Miklu betra að fá nokkra valda fréttamola í einum pakka, beint í innhólfið.

🌨️💨Suðvestan 10-18 m/s og skúrir í dag, en að mestu þurrt norðaustan- og austanlands. Lægir smám saman, sunnan og suðvestan 5-13 síðdegis. Bætir í úrkomu, rigningu eða skúrir í kvöld, þó síst á Norðausturlandi. Hiti 4 til 10 stig.

Gjaldtaka hefst í borginni 2030

Áætlað er að hefja gjaldtöku af nýjum umferðarmannvirkjum á höfuðborgarsvæðinu árið 2030. Stefnt er að upptöku svokallaðra flýti- og umferðargjalda sem talin eru heppilegri en hefðbundin veggjöld til að dreifa álagi og stýra umferð. Þetta kemur fram í svari Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um gjaldtöku á grundvelli samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Gjaldtökunni er ætlað að fjármagna um helming sáttmálans. Í svarinu segir að við innheimtu gjaldsins verði notast við sjálfvirka myndgreiningu. Í upphaflegum áætlunum frá árinu 2021 var miðað við að gjaldið næmi 200 til 300 krónum á háannatíma og 50 til 100 krónum utan hans, en sitjandi ríkisstjórn hefur ekki tekið afstöðu til þeirra fjárhæða. Ráðherra segir að sambærileg gjöld hafi gefist vel í borgum í Noregi og Svíþjóð en ekki liggur fyrir við hvaða götur gjaldið verður innheimt.

ngi

Vald hinna veiku

Í Bókapressu Gímaldsins er komið að Valdi hinna veiku eftir Guðna Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseta Íslands. Í bókinni segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru að veði. Einnig er komið við á vettvangi íslenskra stjórnmála, þar sem baktjaldamakk var síst minna en nú.
Í þeim kafla sem birtur er á vef Gímaldsins segir frá atburðum 24. maí 1973, nokkrum dögum eftir að breskir valdhafar ákváðu að senda herskip til að vernda togara að veiðum innan 50 mílna lögsögu Íslands. Fram að þessum tíma höfðu Bretar forðast að grípa til þessa örþrifaráðs en íslenskir varðskipsmenn trufluðu stöðugt veiðar, ekki síst með því að beita nýju leynivopni, klippum til að skera á togvíra landhelgisbrjótanna. Nú var þolinmæði Breta þrotin og herskip streymdu inn á Íslandsmið við lítinn fögnuð Íslendinga.

Gímaldið, Sögufélag

Reiðhjólabændur hætta

Reiðhjólabændur leggja upp laupana um næstu mánaðamót eftir 20 ára starf. Samtökin hafa safnað og standsett hjól fyrir efnaminna fólk og aðstoðað við hjólaviðgerðir án endurgjalds. Samtökin eru í hópi grasrótarsamtaka og listamanna sem misst hafa húsnæði sitt í kjölfar athugasemda Brunavarna Reykjavíkur í upphafi sumars. Birgir Birgisson, formaður Hjólabænda, segir að brugðist hafi verið við athugasemdum Brunavarna, einungis hefði átt eftir að uppfæra teikningar en það þyrfti borgin að gera. „Það er mjög miður að nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur hafi ekki boðið félaginu og öðrum í svipaðri stöðu neitt samtal um aðra valkosti eða mögulegt framhald. Engin tilraun hefur verið gerð af hálfu þeirra sem stýra borginni til að kynna sér þessa grasrótarstarfsemi eða mikilvægi hennar fyrir samfélagið áður en henni var gert ómögulegt að lifa af,“ segir í aðsendri grein Birgis Birgissonar formanns Reiðhjólabænda á Vísi í gær.

Vísir

Hafnar því að vera Rússagæla

Ólafur Ragnar Grímsson segist hvergi hafa lýst stuðningi við sjónarmið utanríkisráðherra Rússlands, ummæli utanríkisráðherra í þá veru séu óheiðarleg og fjarstæðukennd. Þetta sagði Ólafur Ragnar í viðtali við Morgunblaðið í gær um ummæli sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir lét falla í Sprengisandi á Bylgjunni. „Það eru komnar Rússagælur víða í samfélaginu. Mér finnst það bara ferlegt,“ segir Þorgerður Katrín meðal annars í viðtalinu og vísaði sérstaklega til þess að forsetinn fyrrverandi væri að taka undir með gagnrýni Rússa á varnaraðgerðir NATO á Norður-Atlantshafi. Ólafur segist ekki taka undir slíka gagnrýni heldur hafi hann einungis verið að deila grein Sergei Lavrovs um málið, enda „mikilvægt að taka eftir lykilskjölum sem birtast á alþjóðlegum vettvangi, hvort sem það er ný öryggisstefna Bandaríkjaforseta, hin ítarlega greinargerð Lavrovs eða mótun nýrrar norðurslóðastefnu Evrópusambandsins,“ sagði Ólafur.

MBL, Vísir

Tónleikar með Kaleo sem rök

Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis. Gímaldið hefur fjallað ítarlega um au pair-kerfið og breytingar dómsmálaráðherra á dvalarleyfum sem fela það í sér að ekki verði lengur veitt dvalarleyfi til au pair utan EES. Erla Hlynsdóttir skrifar um málið og þau rök sem komið hafa fram í umræðu um málið.

Gímaldið

Óeirðir skyggja á mótmæli

Emmanuel Macron Frakklandsforseti hvatti til stillingar og reglu í ávarpi til þjóðarinnar í gær eftir að fjöldamótmæli á laugardag breyttust í óeirðir og gripdeildir. Um 550 þúsund manns mótmæltu með framhaldsskólanemum á laugardag. Kröfur mótmælenda varða ekki aðeins aðstæður í skólum landsins heldur einnig hækkandi eldsneytisverð, dýrtíð og hnignandi opinbera þjónustu. Þótt mótmælin hafi að mestu farið friðsamlega fram vörpuðu grímuklæddir hópar á þau skugga með því að kveikja í í bílum og byggingum í París, Marseille og víðar. Í Limoges brann 19. aldar ráðhús borgarinnar að innan og klukkuturninn hrundi. Þá hefur verið brotist inn í verslanir víða og verðmætum stolið. Franskir miðlar lýsa óeirðunum sem einhverjum þeim verstu í nútímasögu Frakklands. Macron sagði í ávarpi sínu að greina verði á milli lögmætra krafna mótmælenda og þeirra sem eyðileggja og ræna. Hann lofaði einnig fullu gagnsæi um viðbrögð lögreglu, sem beitt hefur táragasi, vatnsbyssum og kylfum. Boðað hefur verið til neyðarfundar í ríkisstjórn landsins í dag.

BBC

Georg og Halla kjörin til forystu

Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, var kosinn forseti Alþýðusambands Íslands um helgina. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, var kjörin 1. varaforseti. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sem einnig sóttist eftir embætti fyrsta varaforseta, sagði í kjölfarið að líkur á úrsögn Eflingar úr ASÍ hefðu aukist. Hún tók þó fram að um stóra og erfiða ákvörðun væri að ræða sem krefðist yfirlegu og skoðunar.

RÚV

Alberta kýs um sjálfstæði

Íbúar kanadíska olíufylkisins Alberta greiða atkvæði um tillögu um aðskilnað frá Kanada í ráðgefandi atkvæðagreiðslu í dag. Verði tillagan samþykkt hefst ferill við lögformlegan aðskilnað sem ljúka myndi með bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Samkvæmt könnunum vilja þó um 70 prósent íbúa áfram tilheyra Kanada. Mark Carney forsætisráðherra varaði á fimmtudag við „sumum utan landamæranna“ sem vilji kljúfa Kanada og vísaði þar væntanlega til forseta Bandaríkjanna sem hefur hótað að gera Kanada að 51. ríki Bandaríkjanna.

Foreign Policy

Viðsnúningur um olíuvinnslu

Evrópusambandið hyggst falla frá fyrri kröfu um alþjóðlegt bann við olíu- og gasvinnslu á norðurslóðum, samkvæmt drögum að nýrri Norðurslóðastefnu sambandsins sem lögð verður fram á morgun. Í stefnunni frá 2021 beitti ESB sér fyrir alþjóðlegu banni, bæði við vinnslu og kaupum á olíu og gasi af svæðinu, en í drögum að nýrri stefnu er horfið frá þessu.

Politico

Krúnudjásn enn ófundin

Ár er liðið frá því þjófar, dulbúnir sem iðnaðarmenn, stálu þjóðargersemum úr Louvre-safninu í París, þar á meðal skartgripum Eugenie keisaraynju, eiginkonu Napóleons þriðja, að verðmæti um 100 milljóna dala. Fjórir eru í haldi og bíða réttarhalda, en skartgripirnir sjálfir hafa ekki fundist.

AFP, Reuters

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku

Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi.

Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.

Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.
Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku
Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu

Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu

Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis.

Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“

Feður í fangelsum lýsa kuldalegum og óbarnvænum aðstæðum til heimsókna. Í meistaraverkefni sínu í afbrotafræði tók Árni Sveinsson viðtöl við fimm feður, sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni, um upplifun þeirra af því að takast á við foreldrahlutverk sitt að nýju. Einn þeirra lýsti því þegar börnin hans komu í heimsókn á Kvíabryggju þar sem dæmdir barnaníðingar lögðust ofan á dótið þeirra. 
Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.

Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.

Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email