Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Fimmtudagur 10. september 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Nú er helstu serímóníum sem fylgja upphafi þingvetrar lokið og alvaran tekur við. Í dag mælir Daði Már Kristófersson fyrir fjárlögum, mögulega þeim fyrstu hallalausu í tæpan áratug, haldi efnahagsástandið niðri í sér andanum fram að jólum. Mest verður líklega deilt um nýjar álögur á ferðaþjónustuna, gjaldskrárhækkanir og áhrif þeirra á verðbólgu, og bankaskatt sem aukið gæti kostnað fyrir viðskiptavini banka.

🌧️ Sunnan 3-10 og fremur vætusamt, einkum um landið sunnan- og vestanvert. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast fyrir norðan og austan.

Stefnuræðan ástarbréf til Ingu

Evrópumálin og ástand og horfur í efnahagsmálum voru mest áberandi í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í gær. Sjálf dvaldi forsætisráðherra lengst við þann árangur sem ríkisstjórnin hefur þegar náð en stutt við verkefnin framundan. Ræðan var eins og ástarbréf til Ingu Sæland, enda var hún að mestu upptalning á aðgerðum formanns Flokks fólksins í þágu öryrkja og aldraðra og átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila. Ræðumenn stjórnarandstöðunnar dvöldu lengst við stöðu efnahagsmála en viku einnig að Evrópumálum. Ræðumenn Framsóknar og Miðflokks mæltu gegn Bókun 35 og lögðu áherslu á að umsókn Íslands að ESB yrði dregin til baka en formaður Sjálfstæðisflokksins var á öðru máli og lagði áherslu á að rækta EES samninginn.

Hvalveiðibann til skoðunar

Ríkisstjórnin birti þingmálaskrá sína í gær. Auk fjölda mála sem kynnt voru í fyrra og verða flutt í annað sinn, er nokkur fjöldi nýrra mála. Gímaldið mun fjalla nánar um helstu mál stjórnarinnar á næstu dögum en hér eru nokkur dæmi:
  • Bandormur um einföldun ferla og minnkað flækjustig í stjórnsýslu
  • Einföldun og stytting skipulagsferla hjá sveitarfélögum
  • Sameining Samkeppniseftirlits og annarra stofnana á sviði neytendamála og viðskiptalífs.
  • Frumvarp sem draga á úr vægi verðtryggingar
  • Endurskoðun laga um hvalveiðar
  • 15 ára aldurstakmark á samfélagsmiðla
  • Innleiðing nýrra námsloka í framhaldsskólum
  • Víðtækari heimildir til lögreglu í baráttu við skipulagða brotastarfsemi
  • Endurskoðun laga um dvalarleyfi, endursendingar og frávísun útlendinga frá landinu.

Stjórnarráðið

Dróni ógnaði Selenskí

Litlu munaði að dróni hæfði flugvél Volodomírs Selenskí forseta Úkraínu á leið hans frá Moldóvu til Osló í gær. Flugi hans hafði þá þegar seinkað umtalsvert vegna mikillar drónaumferðar í lofthelginni. Í Noregi var Selenskí viðstaddur útför Haralds Noregskonungs en þaðan var förinni heitið til Kanada með millilendingu í Keflavík. Þar tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra á móti forsetanum „Við áttum upplýsandi og einlægt samtal um stöðu mála,“ sagði Þorgerður Katrín. Rætt var um undirbúning vetrar í Úkraínu, varnir orkumannvirkja og eflingu loftvarna. Ítrekaði Þorgerður stuðning Íslands við varnir Úkraínu.

RÚV, Euronews

Laun hækka um 6,2 prósent

Vísitala heildarlauna hækkaði um 6,2 prósent milli annars ársfjórðungs 2025 og sama fjórðungs í ár. Vísitala launakostnaðar, sem tekur einnig til launatengdra gjalda, hækkaði á sama tíma um 5,9 prósent. Til samanburðar mældist verðbólga 5,6 prósent í gær, svo launahækkunin er í takti við þróun verðlags.

Hagstofa Íslands

Lítið eftirlit með fákeppni

Frumkvæðisathuganir sitja á hakanum hjá Samkeppniseftirlitinu en stofnunin getur aðeins varið 20 prósentum vinnutíma starfsmanna í slík mál. Samrunamál taka tæplega þriðjung vinnutímans en þau njóta forgangs vegna lögbundinna fresta. Kvartanir og tilkynningar sem berast utan frá taka drjúgan hluta þess sem eftir stendur. Það þýðir að rannsóknir á meintri fákeppni eða óeðlilegri álagningu, sem stofnunin ræðst sjálf í án ábendinga, sitja iðulega á hakanum.

Samkeppniseftirlitið

Stærsta árás Írans til þessa

Íran segist hafa gert sína umfangsmestu árás á skipaflutninga frá upphafi stríðsins við Bandaríkin, á tíu skip auk herstöðvar í Jórdaníu, eftir að Bandaríkjaher eyðilagði fimm írönsk olíuflutningaskip á þriðjudag. Hráolíuverð er komið yfir 100 dollara á tunnuna, í fyrsta sinn síðan í júlí. Harðnandi stríð Sádi Arabíu og Húta í Jemen hefur þar líka áhrif en olíuflutningar Sáda eru nú í þrettán ára lágmarki. Forseti Bandaríkjanna tengir nú saman þingkosningar í Bandaríkjunum og lokin á stríði sínu við Íran og hefur heitið því að stríðinu ljúki að kosningum loknum í nóvember.

Foreign Policy, Semafor, Al Jazeera

Lofar kjósendum „arði“ úr ríkissjóði

Donald Trump Bandaríkjaforseti lofaði á flokksþingi Repúblikanaflokksins í Dallas að greiða öllum fullorðnum Bandaríkjamönnum 5.000 dollara „arð“ nái flokkurinn meirihluta í þingkosningunum í nóvember. Loforðið var ekki útlistað nánar og efasemdum hefur verið lýst um lögmæti þess, enda ólöglegt að lofa kjósendum peningagjöfum og ráðstafa fé úr ríkissjóði með þessum hætti. Vinsældir forsetans eru í sögulegu lágmarki. Óvinsældirnar virðast ná djúpt inn í flokk Repúblikana en innan við helmingur aðspurðra frambjóðenda flokksins kvaðst ætla að mæta til flokksþingsinsins.

BBC, Semafor

Ísrael vísar Bretum á dyr

Ísrael hefur skipað breskri ræðisskrifstofu í Jerúsalem að loka innan 30 daga í hefndarskyni fyrir ákvörðun Breta um innflutningsbann á vörum frá landtökubyggðum gyðinga á Vesturbakkanum. Ísrael bannaði jafnframt tólf breskum þingmönnum landgöngu og vísaði breskum eftirlitsmönnum úr landi. Sambærilegum refsiaðgerðum hefur þó hvorki verið beint að skrifstofum né starfsliði frá Kanada eða Frakklandi, sem einnig boða innflutningsbann.

Foreign Policy, BBC

Netanyahu á í vök að verjast heima

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur hótað að lögsækja ísraelska dagblaðið Haaretz vegna fullyrðinga um að Netanyahu hafi hunsað skýra viðvörun forseta Sameinuðu arabísku furstadæmanna um yfirvofandi árás Hamas 7. október. Málið hefur breikkað gjá milli Netanyahus og Abú Dabí og eflt innlenda andstæðinga hans fyrir kosningar í næsta mánuði, þar sem hann sækist eftir endurkjöri í sjötta sinn.

Semafor

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email