Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Fimmtudagur 24. september 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Að fylgjast með allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna er svolítið eins og að horfa á heimsmeistaramótið í fótbolta. Æfing í víðsýni og umburðarlyndi. Maður þekkir suma betur en aðra og bíður eftir stórstjörnunum. En stundum slá óvæntir leikmenn í gegn, eins og forseti Austur-Tímor í gær. Svo eigast erkifjendur við. Bandaríkin og Íran hafa lokið leik og í dag mætast Ísrael og Palestína. Og þótt salurinn sé almennt prúðari en áhorfendur á fótboltaleik, sýnir hann líka tilþrif þegar við á og rýkur á dyr með leikrænum tilburðum.

🌧️💨Vaxandi austanátt, víða 13-20 m/s í dag, en 18-25 sunnanlands fram að hádegi. Rigning um land allt og talsverð eða mikil úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum til kvölds. Dregur víða úr vindi seinnipartinn, en gengur þá í norðaustan 15-23 á Vestfjörðum. Hiti 5 til 11 stig.

Hagkerfið kólnar

Umrót á alþjóðamörkuðum og vaxandi vanskil í byggingariðnaði valda fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mestum áhyggjum, samkvæmt yfirlýsingu nefndarinnar í gær. Skýr merki eru um kólnandi hagkerfi. Atvinnuleysi fer enn vaxandi, framboð íbúða hefur sjaldan verið meira en nýjar íbúðir seljast hægt, sem kemur niður á byggingaverktökum. Staðan á alþjóðavettvangi er einnig óhagstæð vegna langdreginnar olíukrísu, þrálátrar alþjóðlegrar verðbólgu og hækkunar vaxta hjá helstu seðlabönkum heims. Hins vegar telur Seðlabankinn íslenskt fjármálakerfi traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum.

Seðlabanki Íslands.

Tímamótadómur um Bókun 35

Tímamótadómur var kveðinn upp í Hæstarétti í gær þegar íslenska ríkið var dæmt skaðabótaskylt vegna rangrar innleiðingar á EES löggjöf í íslenskan rétt. Málið varðar greiðslur í fæðingarorlofi og reglur um réttindi sem flytjast eiga með fólki milli landa á evrópska efnahagssvæðinu. Með vanrækslu sinni þótti ríkið hafa brugðist alvarlega skuldbindingum sínum samkvæmt EES-samningnum. Dómurinn er vitnisburður um mikilvægi Bókunar 35 en frumvarp um hana hefur verið lagt fram á Alþingi og kemur til umræðu þar í næsta mánuði.

Gímaldið

Gullfoss og Geysir á 4500 krónur

Frá 1. maí á næsta ári þurfa ferðamenn að greiða 4500 krónur til að skoða Gullfoss, Geysi og Þingvelli, verði ný frumvarpsdrög atvinnuvegaráðherra að lögum. Íbúar með skattalega heimilisfesti á Íslandi og börn undir átján ára aldri verða undanþegin gjaldinu. Samkvæmt frumvarpsdrögunum sem komin eru til umsagnar í samráðsgátt telja stjórnvöld að gjaldið muni skila sex til sjö milljörðum í ríkissjóð. Gjaldið á að innheimta með sölu á skírteinum sem framvísa þarf á umræddum ferðamannastöðum. Skírteinin munu gilda í eitt ár en hægt verður að kaupa ódýrara vetrarskírteini fyrir 3000 krónur sem gildir frá 1. nóvember til 1. maí.

Samráðsgátt

Verkfalli aflýst

Verkfalli flugvirkja var aflýst í gær eftir að ljóst varð að ríkisstjórnin hygðist setja lög á verkfallið. Deiluaðilar hafa komið sér saman um að verja fjórum vikum til viðræðna samkvæmt áætlun og undir verkstjórn ríkissáttasemjara með það að markmiði að ljúka samningagerð um nýjan kjarasamning. Boðað hefur verið til fyrsta fundar hjá ríkissáttasemjara í fyrramálið.

RÚV

Vilja nýja auðjöfra á listann

Gagnrýni á að tveir ólígarkar hafi verið losaðir undan refsiaðgerðum ESB gegn Rússum fer vaxandi í Brussel vegna ótta við hættulegt fordæmi. Úkraínsk stjórnvöld þrýsta á að auðjöfrarnir Vladimír Lisin og Vladímír Potanín, sem eiga stórfyrirtæki í stál- og nikkeliðnaði, verði teknir á listann í staðinn. Umsvif þeirra í Evrópu, meðal annars í stáliðnaði í Belgíu, hafa haldið þeim utan hans.

Politico

Xi mætir sterkari en Trump

Xi Jinping, forseti Kína, mætir sterkari til leiks í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna en gestgjafi hans, Donald Trump, að mati flestra greinenda. Xi undirbýr sitt fjórða kjörtímabil sem flokksleiðtogi en verulegar líkur eru á að flokkur Bandaríkjaforseta missi meirihluta sinn í þinginu í haust, auk þess sem fylgi forsetans í könnunum hefur aldrei mælst jafn lágt. Tollastríð ríkjanna og málefni Taívan eru meðal málefna sem rædd verða meðan á heimsókninni stendur.

New York Times, Reuters, BBC

Sam Altman, forstjóri OpenAI á fundi Öryggsráðsins í gær.

Frá allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna


Gervigreind rædd í öryggisráðinu: Forstjórar OpenAI, Anthropic og Hugging Face funduðu með öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og kölluðu eftir alþjóðlegu regluverki og hægari þróun vegna ógnar sem mannkyninu kunni að stafa af tækninni. Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, greindi frá því að gervigreindarfulltrúi frá OpenAI hefði brotist inn á vefsvæði áströlsku heilbrigðistryggingastofnunarinnar í júní og komist í trúnaðargögn. OpenAI hefði ekki tilkynnt innbrotið fyrr en þremur mánuðum síðar.

Masoud Pezeshkian, forseti Írans, flutti þrumuræðu um öll þau brot gegn stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna sem Donald Trump hótaði að fremja í ræðu sinni á þriðjudag. Hann sagðist reiðubúinn til samninga en Íran léti ekki kúga sig.

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu flutti einhvers konar ársskýrslu um stríðið í Úkraínu. Mikilvægasta verkefnið nú sé að þrengja að Rússum efnahagslega. Úkraínska þjóðin sé að búa sig undir erfiðan vetur en Rússar hafa einbeitt sér að skemmdarverkum á orkuinnviðum og hitaveitu landsins. „Eina svarið sem við höfum við því er að gera veturinn jafn erfiðan í Rússlandi.“

Fulltrúar Ísraels og Palístínu taka sviðið í dag. Forvitnilegt verður að fylgjast með því hvort forseti Ísraels flytur ávarp sitt fyrir tómum sal líkt og í fyrra.

Gímaldið

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email