Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Fimmtudagur 5. nóvember 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Framvinda Landsvirkjunarmálsins heldur áfram að vekja fleiri spurningar en svarað er. Í umræðum um málið á Alþingi í gær var breyting á reglum um skipun í stjórn fyrirtækisins gerð tortryggileg. Meðal gagnrýnenda var Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi fjármálaráðherra, sem sjálfur kom umræddum breytingum til leiðar í ráðherratíð sinni rétt fyrir síðustu kosningar. Full ástæða er til að skoða þessa hlið málsins, en breytingin var lögfest í flýti eftir að boðað hafði verið til kosninga. Engin umræða fór fram um breytinguna í þinginu og engin umsögn barst þinginu um hana, enda voru engar umsagnabeiðnir sendar út. Ólíklegt er að þingmenn sem afgreiddu málið hafi vitað að þeir væru að lögfesta breytingu á aðferð við skipun stjórnar Landsvirkjunar og annarra stærstu fyrirtækja landsmanna.

🌧️💨 Sunnan 8-15 m/s í dag, hvassast á norðvestanverðu landinu. Víða rigning, en þurrt að kalla norðaustan- og austanlands. Styttir upp vestast í kvöld. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast norðan heiða.

Stærstu stjörnurnar og framtíð MAGA

Repúblikanar eru í sárum eftir afhroð í bandarísku þingkosningunum á þriðjudag. Hvað þýða úrslitin fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti og munu áhrifin finnast Íslandsmegin við Atlantshafið? Rætt er um niðurstöður kosninganna í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins.

Gestur Eyrúnar Magnúsdóttur er Karen Kjartansdóttir og ræða þær meðal annars stærstu stjörnur demókrata, framtíð MAGA-hreyfingarinnar og hverjum Repúblikanar kenna helst um ósigur sinn.

Gímaldið

Karl Wernersson: The movie

Karl Wernersson bauð vinum, vandamönnum og fjölmiðlum til fundar í Smárabíó í gær til að segja sögu sína af sautján ára málaferlum. „Ég var orðinn vondi kallinn,“ sagði Karl um fjölmiðlaumfjöllunina og bað fólk að kynna sér sögu hans áður en það dæmdi. Á sýningartjaldi birtust dómsniðurstöður, fjölskyldumyndir og vondi karlinn úr Austin Powers. Að fundi loknum biðu fundargestir í röð til að fá að faðma fundarhaldarann. Erla Hlynsdóttir sótti fundinn og lýsir upplifuninni í pistli á vef Gímaldsins.

Gímaldið

Landsvirkjun ekki til sölu

Það er ekki stefna ríkisstjórnarinnar að selja Landsvirkjun eða skipta henni upp, sagði Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra á Alþingi í gær, þar sem hann svaraði fyrir samskipti ráðuneytisins við fyrirtækið og starfslok Harðar Arnarsonar, fráfarandi forstjóra. Breytingar á aðferðum við skipun stjórnar fyrirtækisins voru gerðar að umræðuefni og áfram spurt um pólitísk afskipti ráðherrans af stjórn fyrirtækisins, sem einn skipar bæði stjórnina og valnefndina sem tilnefnir fulltrúa í hana. Daði Már sagðist hvetja stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins til að taka öll samskipti vegna uppsagnar forstjóra Landsvirkjunar til ítarlegrar skoðunar.

Gímaldið

Vinnukonur setja allt á annan endann

„Er ég las bréf yðar þótti mér það fastna lófa okkar á órannsakanlega vegu. Jafnvel þótt þér fíflið mig og skrumskælið í sömu reku og þér lofsyngið. Ég hef aldrei orðið fyrir öðru eins. Hvorki frá stúlku né húsbónda. Ég reiddist en stillti mig. Óþekkt taug vaknaði. Ég verð aldrei samur.“

Fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum er komin út. Móðurást: Lausnargjaldið gerist á sólskinssumrinu 1878 þegar galskapur hleypur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Kafli úr bókinni er birtur í Bókapressu Gímaldsins.

Gímaldið

Í stuttu máli:

  • Sérstök umræða um stöðuna á Gaza og Vesturbakkanum verður á Alþingi klukkan 14 í dag. Frummælandi er Dagur B. Eggertsson. Utanríkisráðherra verður til andsvara.
  • Umbra, þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, og netöryggissveitin CERT IS hafa fengið aðgang að sérhæfðu netöryggislíkani OpenAI sem nýtt verður til uppbyggingar þekkingar og styrkingar á netvörnum landsins.
  • Aðeins 17 af 45 plássum eru nú í notkun á sjúkrahúsinu Vogi vegna manneklu. Læknir varar við því að fólk í fráhvörfum viti ekki hvert það eigi að leita.
  • Rafskútuslysum fer fækkandi þrátt fyrir aukna notkun. Einn af hverjum sex þúsund sem leigir skútu leitar á bráðamóttöku. Þriðjungur fullorðinna sem slasast er undir áhrifum áfengis, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem birt er í Læknablaðinu.
  • Íbúum hjólhýsabyggðarinnar við Sævarhöfða er kalt á nóttunni eftir að vatn og rafmagn var tekið af byggðinni á mánudag. Talskona þeirra skorar á borgina að koma þjónustunni aftur á. Íbúar séu flestir öryrkjar og eldri borgarar sem hafi ekki í önnur hús að venda.
  • Hagnaður íslensks sjávarútvegs nam 51 milljarði króna í fyrra og tekjur jukust um 12 prósent. Fjárfesting dróst þó verulega saman og arðgreiðslur, 16,8 milljarðar, hafa ekki verið lægri í fimm ár.
  • Verðbólga á evrusvæðinu fór í 4 prósent í október og hefur ekki verið hærri í rúm þrjú ár.
  • Franski blóðbankinn EFS hefur staðfest að hakkarar hafi komist í stýrikerfi þriggja kæligeymslna og hækkað hitamörk upp í mjög há gildi. Viðvörunarkerfi gerðu tæknimönnum kleift að grípa inn í áður en blóð skemmdist.
  • Rússneski gervihnötturinn Kosmos 2612 nálgaðist finnskan gervihnött, sem veitir Úkraínu ratsjárgögn, hættulega mikið í október. Sérfræðingur í bandaríska utanríkisráðuneytinu segir atvikið líkjast æfingu fyrir árás.
  • Pólsk stjórnvöld hafa aukið viðbúnað við norðurlandamærin að Rússlandi vegna hreyfinga sem gætu sem verið undanfari vopnaðrar innrásar.

Alþingi, Stjórnarráðið, RÚV, Læknablaðið, NRK, Reuters, NYT, Just Security

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.

Karl Wernersson: The Movie

Karl Wernersson bauð vinum, vandamönnum og fjölmiðlum í bíósal til að segja sögu sína af sautján ára málaferlum. Á tjaldinu birtust dómsniðurstöður, fjölskyldumyndir og vondi karlinn úr Austin Powers. Í lokin myndaðist röð fólks sem vildi faðma hann.
Karl Wernersson: The Movie

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email