|
|
|
|
Þriðjudagur 15. september 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Umræður um efnahagsmál halda áfram á Alþingi í dag. Að loknum umræðum um Bandorminn svokallaða, frumvarp um ýmsar forsendur fjárlaga, mælir fjármálaráðherra fyrir staðfestingu ríkisreiknings fyrir árið 2025 en þá tekur Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, við og mælir fyrir frumvarpi að nýjum barnaverndarlögum. Líkt og alla þriðjudaga er gert ráð fyrir að þingfundur geti staðið fram á kvöld.
|
|
|
|
☁️ Fremur hæg breytileg átt, en norðvestan 8-13 m/s fram yfir hádegi austast. Bjartviðri, en súld með köflum norðan- og austanlands í fyrstu og skúrir á Suðausturlandi. Hiti 5 til 13 stig, svalast norðaustantil.
|
|
|
|
|
Kerfið stuðli að fákeppni
|
|
Samkeppnishindranir í íslensku regluverki eru talsvert meiri en að meðaltali í ríkjum OECD og Ísland er verulega frábrugðið hinum Norðurlöndunum að þessu leyti, en regluverk þeirra er samkeppnishvetjandi umfram OECD meðaltalið. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu Samkeppniseftirlitsins. Samkvæmt efnahagsskýrslu OECD um Ísland frá 2025 gæti landsframleiðsla hækkað um 6,5 prósent á tíu árum ef dregið yrði úr íþyngjandi reglu- og stjórnsýslubyrði sem hamlar samkeppni. OECD hvetur íslensk stjórnvöld til að opna markaði með minni reglubyrði, greiða fyrir erlendri fjárfestingu og styrkja bæði samkeppniseftirlit og beitingu samkeppnisreglna. „Virk samkeppni verður ekki tryggð með rannsóknum og íhlutun einum saman. Við þurfum líka að tala fyrir samkeppni, benda á hindranir og tækifæri til úrbóta og stuðla að því að stjórnvöld, fyrirtæki og almenningur þekki þann ávinning sem öflug samkeppni færir samfélaginu,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins.
|
Samkeppniseftirlitið
|
|
|
|
|
|
Hlutfall barna undir lágtekjumörkum lækkaði úr 16,5 prósentum árið 2000 í 12,6 prósent árið 2024. Þetta kemur fram í nýrri úttekt sem kynnt hefur verið í ríkisstjórn. Það jafngildir um 10.500 börnum. Rúmlega 5 prósent barna býr við viðvarandi fátækt, sem er svipað hlutfall og í Noregi, Finnlandi og Danmörku. Munurinn milli hópa er þó verulegur: um 30 prósent barna einstæðra foreldra mælast undir lágtekjumörkum samanborið við 8 prósent barna í tveggja foreldra fjölskyldum. Barnafátækt er mun algengari hjá börnum ómenntaðra foreldra en háskólamenntaðra. Barnabætur einar lækkuðu lágtekjuhlutfallið um 23 prósent árið 2024, og allt að 26 prósent þegar húsnæðisstuðningur er talinn með.
|
Stjórnarráðið
|
|
|
|
|
|
Skiptar skoðanir eru meðal þingmanna í stjórnarandstöðu um Bókun 35. Þingmenn Miðflokksins eru eindregnir andstæðingar málsins og Formaður Framsóknarflokksins hefur einnig lýst andstöðu við málið. Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir hins vegar „meiri brag“ á því að Alþingi afgreiði málið sjálft, fremur en að láta EFTA dómstólinn skera úr um það með dómi. Hún mun samþykkja frumvarpið óbreytt. Flokkur fólksins mun virða stjórnarsáttmálann og hleypa málinu í gegn þrátt fyrir andstöðu við málið á síðasta kjörtímabili. Rætt var við Hildi og Sigurjón Þórðarsson í Flokki fólksins í Silfrinu á RÚV í gærkvöldi.
|
RÚV
|
|
|
|
|
Flugvirkjar boða verkfall
|
|
Félagsmenn Flugvirkjafélags Íslands hafa samþykkt að boða til verkfalls sem hefst á miðnætti 23. september verði ekki samið fyrir þann tíma. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir kröfur flugvirkja langt umfram svigrúm Icelandair og flugfélagið sjálft segist hafa lagt fram sanngjarnt og ábyrgt tilboð.
|
RÚV
|
|
|
|
|
|
Vísbendingar um aukinn áhuga drengja í 10. bekk á reykingum sem greint hefur verið frá í fréttum gefa tilefni til skoðunar en líklega ekki stórra ályktana. Í Íslensku æskulýðsrannsókninni eru grunnskólanemar spurðir hvort þeir hafi reykt sígarettur síðustu 30 daga eða um ævina. Ef svör úr nýjustu könnunninni fyrir 2025 eru skoðuð sérstaklega fyrir drengi í 10.bekk má sjá að í stað þess að 96% svari því neitandi að hafa reykt um ævina svara nú 92% drengja því neitandi. Hlutfall þeirra sem segjast hafa prófað fer úr 4,1% í 7,7%. Ef horft er á árið 2023 þá var þetta sama hlutfall hins vegar 8,8%. Athygli vekur að niðurstöður fyrir 2024 byggja á afar fáum svörum, svo hæpið er að nota það ár til samanburðar við árið 2025. Færri sögðust hafa prófað að reykja árið 2025 en það gerðu árið 2023. Sé horft yfir lengra tímabil má sjá að hlutfall þeirra stráka í 10.bekk sem segist aldrei hafa reykt um ævina var 61% árið 2006, 73% árið 2011 og 83% árið 2015 en hefur verið yfir 90% frá árinu 2022. Séu svör við spurningunni um hvort þeir hafi reykt síðustu 30 daga skoðuð má sjá að í stað þess að 98% drengja í 10. bekk svari því neitandi segjast nú 97% ekki hafa reykt síðustu 30 daga.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Umar Kremlev með vini sínum og velgjörðarmanni, Vladimir Putin.
|
Trump jr. hjónin þáðu veglega gjöf frá Kremlev
|
Brúðkaup Donalds Trump yngri og Bettinu Anderson var að umtalsverðum hluta fjármagnað af rússneskum auðjöfri og bandamanni Vladimírs Pútín Rússlandsforseta. Auðjöfur þessi, Umar Kremlev, hefur þegið heiðursorðu af Pútín og fór nýverið til fundar við ráðamenn Kína á vegum rússneskra stjórnvalda. Samkvæmt rannsókn rannsóknarmiðilsins ProPublica leigði Kremlev heila eyju undir brúðkaupið og borgaði stórfé fyrir flugeldasýningu. Hann var einn fárra Rússa sem viðstaddir voru veisluna sem var annars eingöngu fyrir nánustu vini og fjölskyldu brúðhjónanna.
|
Pro Publica
|
|
|
|
|
|
Orrustuþotur á vegum Atlantshafsbandalagsins skutu niður óþekktan dróna yfir Litáen í nótt. Dróninn var hæfður rétt eftir miðnætti að staðartíma, skömmu eftir að hann flaug inn í lofthelgi landsins frá Belarús á leið í vestur. Gul hættuviðvörun var gefin út og lofthelginni lokað um stund áður en dróninn var skotinn niður í dreifbýli í Kaunas-sýslu. Dróna og önnur hernaðartæki hefur ítrekað borið að landamærum NATO ríkja á undanförnum vikum, síðast um helgina þegar skotið var á úkraínska farþegalest á lestarstöð við landamæri Póllands. Stjórnvöld í Eystrasaltsríkjunum og Póllandi hafa ítrekað varað við því að ögranir Rússa í garð helstu stuðningsríkja Úkraínu fari vaxandi. Rússland gangi sífellt lengra og ögri um leið aðildarríkjum NATO sem hafa veigrað sér við að virkja 5. gr. NATO sáttmálans.
|
Deutsche Welle, DR, Politico
|
|
|
|
|
Vinstriblokkin eykur forskotið
|
|
Endanleg úrslit sænsku þingkosninganna eru enn ekki ljós en vinstriblokk Magdalenu Andersson mælist nú með þriggja sæta forskot. Það gæti fellt ríkisstjórn Ulfs Kristersson og komið í veg fyrir að Svíþjóðardemókratar, flokkur með rætur í nýnasisma, fái sæti í ríkisstjórn í fyrsta sinn. Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi lítils miðjuflokks, situr eftir með oddaaðstöðu og gæti ráðið því hvor blokkin myndar stjórn. Endanleg niðurstaða gæti dregist fram á vikuna og stjórnarmyndun sjálf tekið vikur.
|
Foreign Policy, Politico
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|