Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Föstudagur 18. september 2026

Eyrún Magnúsdóttir
Góðan dag. Kapphlaupið um Tækniskólann vekur upp hugleiðingar um ástand skólahúsnæðis hér á landi. Skólinn starfar á fimm stöðum og fleiri skólar eru í svipuðum málum. Listaháskólinn starfar á fjórum stöðum og ungmennin í MR þurfa flest að taka hluta af sínu námi í skrifstofuhúsnæði fyrir ofan 10-11 í Austurstræti. Og þá erum við ekki einu sinni byrjuð að ræða alla rakaskemmdu grunn- og leikskólana og gámabyggingarnar. Skóli er meira en hús gæti einhver sagt. En skólarnir þurfa samt betri hús, nemendur eiga skilið góða aðstöðu. Í fréttabréfi dagsins er horft út í heim og sjónum beint að pólitík og kjaramálum.

☁️🌧️ Austlæg eða breytileg átt, 3-8. Skýjað að mestu og stöku skúrir á víð og dreif, en dálítil rigning sunnantil seinnipartinn. Þokuloft með norður- og austurströndinni. Hiti 7 til 13 stig, svalast í þokuloftinu.

Reynt til þrautar á hádegi

Fulltrúar flugvirkja og Icelandair hittast á fundi með ríkissáttasemjara í hádeginu í dag. Tilefnið er að gera úrslitatilraun til að afstýra verkfalli sem flugvirkjar hafa boðað og tekur að óbreyttu gildi aðfararnótt 23. september. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari hitti samningsaðila bæði í gær og fyrradag og ákvað í kjölfarið að boða fundinn. Hann getur lagt fram miðlunartillögu sem frestar verkfalli meðan greidd eru atkvæði um hana. Deilan stendur einkum um launalið samningsins. Samtök ferðaþjónustunnar vara við verulegu tjóni sem verkfall myndi valda ferðaþjónustunni en forstjóri Icelandair ítrekar að flug félagsins sé enn á áætlun.

RÚV

Pólitíkin nær og fjær

Nýr hlaðvarpsþáttur frá Gímaldinu er kominn í loftið. Þáttinn má finna neðar í þessu bréfi og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Meðal efnis er:
  • Starfsandinn í þinginu og óveðurskýið sem lætur bíða eftir sér.
  • Sterk taug milli valkyrja.
  • Þingmál ríkisstjórnarinnar: skipulagsmál, tóbaksvarnir, öryggislög, auknar heimildir lögreglu, hvalveiðar og heilbrigðisþjónusta framtíðarinnar.
  • Þingmenn leggja til að Ísland eigi frumkvæði að viðskiptabandalagi með Bandaríkjum, Grænlandi og Kanada.
  • Nýtt samband ESB og Kanada.
  • Af hverju stefnuræða Ursulu von der Leyen á Evrópuþinginu skiptir máli fyrir Íslendinga.

Ný bráðaeining opnar

Ný bráðaeining Landspítalans verður tekin í notkun í lok mánaðar. Hún hýsir tuttugu rými í gámaeiningum við bráðamóttökuna í Fossvogi og kostaði 600 milljónir króna. Deildin mun auka öryggi sjúklinga og stytta tímann frá því að sjúklingur kemur veikur inn á bráðamóttöku og þar til hann fær greiningu og meðferð, segir Alma Möller heilbrigðisráðherra. Framlög til spítalans samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi vekja blendnar tilfinningar hjá forstjóra spítalans vegna aðhaldsaðgerða ríkisstjórnarinnar. „Ég óttast að þessi ráðstöfun muni hefta nauðsynlega framþróun innan Landspítala og þannig óhjákvæmilega leiða til stöðnunar,“ segir Runólfur Pálsson forstjóri í Spítalapúlsinum, fréttabréfi Landspítalans.

Stjórnarráðið, Spítalapúlsinn.

Vinstrið sigraði í Svíþjóð

Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar sagði af sér embætti í gær eftir að ljóst varð að hægriblokk hans beið ósigur í þingkosningunum um síðustu helgi. Hægriblokkin hlaut 173 þingsæti en vinstriblokkin undir forystu Jafnaðarmanna, fékk þriggja sæta meirihluta eða 176. Um það bil 50 þúsund atkvæði skildu blokkirnar tvær að. Greinendur rekja ósigurinn ekki síst til bandalags Kristersson við hina öfgahægrisinnuðu Svíþjóðardemókrata. Magdalena Andersson leiðtogi Jafnaðarmanna hefur boðið hinum þremur vinstriflokkunum til stjórnarmyndunarviðræðna, en flokkarnir eru langt því frá sammála um allt og erfitt gæti reynst að ná saman um skattamál og orkumál og viðræður gætu dregist á langinn.

Dagens Nyheter, Gímaldið

Kjörstaðir opna í Rússlandi

Kjörstaðir hafa verið opnaðir í austanverðu Rússlandi en 450 fulltrúar verða kjörnir til Dúmunnar, rússneska þingsins, um helgina. Helmingur þingmanna er valinn með listum og helmingur í einmenningskjördæmum. Flokkur forsetans er talinn öruggur um yfirburðasigur. Allir flokkar sem bjóða fram styðja stjórnvöld í stríðinu gegn Úkraínu. Eini flokkurinn sem lýst hefur andstöðu við stríðið, Yabloko, fékk ekki að bjóða fram lista en einstaka frambjóðendur hans mega þó bjóða sig fram. Ekkert óháð alþjóðlegt kosningaeftirlit verður haft með kosningunum.

BBC

Hitnar undir Merz kanslara

Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, býr sig undir enn eitt kosningaáfallið á sunnudag þegar kosið verður til þings í Mecklenburg-Vorpommern. Nái Kristilegir demókratar ekki þingsæti í kosningunum kann Merz að neyðast til að segja af sér að mati flokksfélaga hans, en Kristilegir demókratar eru klofnir í afstöðu til formannsins. Þrýstingurinn á Merz hefur magnast eftir því sem stuðningur við öfgahreyfinguna AfD eykst í landinu en á sama tíma hefur stuðningur við Merz hrunið í könnunum.

Foreign Policy, Politico

Grunur um stríðsglæpi í Íran

Rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur rökstuddan grun um að bandaríski herinn hafi framið stríðsglæpi þegar árásir voru gerðar á skóla og íþróttahús í Íran í febrúar. Árásirnar urðu 177 að bana, þar af voru 120 skólabörn í Minab. Að mati nefndarinnar var skólinn sjálfur skotmark en varð ekki óvart fyrir sprengju sem beint var annað, enda hafi verið skotið tvívegis á hann. Íþróttahúsið hafi verið auðþekkjanlegt sem slíkt og ekkert benti til að það hefði einhverja hernaðarlega þýðingu.

BBC, Foreign Policy.

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
Karl Wernersson: The Movie

Karl Wernersson: The Movie

Karl Wernersson bauð vinum, vandamönnum og fjölmiðlum í bíósal til að segja sögu sína af sautján ára málaferlum. Á tjaldinu birtust dómsniðurstöður, fjölskyldumyndir og vondi karlinn úr Austin Powers. Í lokin myndaðist röð fólks sem vildi faðma hann.

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email