|
|
|
|
Miðvikudagur 23. september 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Hverju á að svara þegar voldugasti maður heims hefur hótað gereyðingu heillar þjóðar úr ræðustól Sameinuðu þjóðanna? Í dag flytur Masoud Pezeshkian, forseti Írans, ávarp á allsherjarþinginu. Það má vissulega margt segja um stjórnarhætti klerkastjórnar Írans, en Pezeshkian þarf að ganga ansi langt í New York í dag vilji hann jafna skorið gagnvart Donald Trump Bandaríkjaforseta sem í gær hreykti sér af stríðsglæpum og mannréttindabrotum, og hvatti þjóðir heims til að fylgja sínu fordæmi.
|
|
|
|
🌨️ ⛅️ Suðvestan 5-13 m/s og skúrir í dag, en lengst af þurrt og bjart á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 7 til 13 stig, mildast fyrir austan.
|
|
|
|
|
Verkfall flugvirkja hafið
|
|
Verkfall Flugvirkjafélags Íslands hófst á miðnætti eftir árangurslausar viðræður við Icelandair í gær. Engin lausn er í sjónmáli að sögn ríkissáttasemjara. Icelandair aflýsti þegar öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík, 26 millilandaflugferðum og fimm ferðum innanlands. Um er að ræða ferðir um 5.500 farþega. Ákvarðanir um önnur flug eru teknar jafnóðum, með fjögurra til sex klukkustunda fyrirvara. Ríkisstjórnin er ekki farin að íhuga lagasetningu en aðeins ríkir almannahagsmunir geta réttlætt slíka lagasetningu.
|
RÚV, MBL, Vísir
|
|
|
|
|
|
Á vefnum metill.is má sjá hvaða áhrif nýjar tillögur um jafnara vægi atkvæða í þingkosningum hefðu mögulega haft, ef þær hefðu verið í gildi í fyrri kosningum. Sex sitjandi jöfnunarþingmenn hefðu ekki náð kjöri heldur hefðu jöfnunarsæti þeirra lent í öðrum kjördæmum. Til dæmis hefði Þórarinn Ingi Pétursson ekki náð kjöri fyrir Framsóknarflokkinn, heldur Willum Þór Þórsson. Þótt tillögurnar hefðu ekki breytt þingstyrk flokkanna í síðustu kosningum eru dæmi um slíkt í fyrri kosningum. Oftast hefði Framsóknarflokkurinn tapað á því. Árið 2021 hefði Sjálfstæðisflokkur fengið mann frá Framsókn og Brynjar Níelsson náð kjöri en árið 2017 hefði Samfylkingin fengið mann inn á kostnað Framsóknarflokksins.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Frumvarp utanríkisráðherra um Bókun 35 hefur verið lagt fram á Alþingi. Málið er í forgangi hjá ríkisstjórninni vegna mikilvægis þess fyrir EES-samninginn en það er umdeilt á Alþingi. Málið verður þó ekki tekið á dagskrá fyrr en í næsta mánuði. Enginn þingfundur er á Alþingi í dag vegna lengri nefndafunda og síðasti þingfundur vikunnar er á morgun. Hlé verður á þingstörfum í næstu viku vegna kjördæmadaga.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Nýtt áhættumat Veðurstofunnar og Almannavarna gefur grænt ljós á að íbúar Grindavíkur geti flutt aftur heim til frambúðar og skólahald haldið áfram, að uppfylltum skilyrðum um vöktun, viðvörunarkerfi og rýmingaráætlanir. Þetta er stefnubreyting frá því í apríl, þegar stjórnvöld töldu forsendur ekki fyrir hendi. Niðurstöðurnar voru kynntar á opnum fundi í Grindavík í gærkvöldi. Runólfur Þórhallsson hjá Almannavörnum sagði atburðina við Svartsengi fordæmalausa og Grindvíkinga vera að læra að lifa með náttúruvánni. Pétur Markan bæjarstjóri í Grindavík segir þetta „mikil tímamót“ og nú geti stjórnvöld hafið undirbúning að því að íbúum bjóðist að kaupa aftur íbúðarhúsnæði sitt.
|
RÚV, MBL, Vísir
|
|
|
|
|
|
Donald Trump handsalar samninginn við Jens-Frederik Nielsen.
|
Grænlendingar sömdu best
|
Grænland er fullgildur aðili að nýjum öryggissamningi um landið sem undirritaður var í gær af forseta Bandaríkjanna, forsætisráðherra Danmerkur og formanni landstjórnar Grænlands. Í samningnum er heimild til uppbyggingar tveggja nýrra herstöðva auk frekari uppbyggingar á þeirri einu sem nú er í notkun. Vinna við uppbyggingu á varnarsvæðum skal fara til grænlenskra verktaka eins og kostur er. Samkvæmt samningnum verður engu landi sem ekki er í NATO heimilt að byggja upp hernaðarmannvirki á Grænlandi. Þetta þýðir að samningurinn getur aðeins gilt séu Bandaríkin í NATO. Samningurinn þarfnast samþykkis bæði í grænlenska og danska þinginu.
|
DR
|
|
|
|
|
|
Aðildarríki ESB náðu í gær samkomulagi um að framlengja refsiaðgerðir gegn rúmlega þrjú þúsund einstaklingum og fyrirtækjum tengdum Rússlandi. Samkomulag náðist eftir að samþykkt var að kröfu Frakklands að tveir auðjöfrar, Alisher Usmanov og Mikhail Fridman, skyldu teknir af listanum og eignum þeirra sleppt úr frysti. Lettland beitti um tíma neitunarvaldi sínu en dró það til baka eftir að Frakkar lofuðu að hefja viðræður um aukið kjarnorkuvarnarsamstarf við Letta og fjölga þar frönskum orrustuþotum. Úkraínski utanríkisráðherrann Andrii Sybiha var ekki sáttur við þessa lendingu og kallaði hana bæði „skammarlega og óverjandi“. Hún veitti Rússum refsileysi og væri til þess fallin að sundra Evrópu.
|
Euractiv, Politico
|
|
|
|
|
Forseti Írans svarar í dag
|
|
|
|
|
|
Annaðhvort nást samningar um „endurreisn Írans“ eða landinu verður tortímt, hótaði Donald Trump Bandaríkjaforseti í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Hann spáði samkomulagi milli ríkjanna eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember en hvatti ríki heims til að sameinast um að leggja landið efnahagslega í rúst. Sendinefndir bæði Írans og Kúbu gengu út undir ræðunni en háttsettir erindrekar beggja ríkja áttu þriggja klukkustunda fund að lokinni ræðunni. Fulltrúar Íran settu það skilyrði fyrir opnun Hormússunds að hafnbanni verði samstundis aflétt, frystum eignum skilað og árásum hætt á öllum vígstöðvum. Forseti Írans ávarpar allsherjarþingið fljótlega eftir hádegi í dag að íslenskum tíma.
|
Foreign Policy, Semafor, Al Jazeera
|
|
Úkraína er reiðubúin að hætta árásum á rússneska orkuinnviði geri Rússar slíkt hið sama, segir Volodimír Selenskíj, forseti Úkraínu, í von um að stríðinu ljúki fyrir veturinn. Hann átti 40 mínútna fund með forseta Bandaríkjanna New York í gær og segir fundinn hafa verið jákvæðan. Selenskíj flytur ávarp sitt á allsherjarþingi SÞ síðdegis í dag.
|
Reuters, Foreign Policy
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|