|
|
|
|
Föstudagur 30. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Gímaldið kom fyrst út 30. október 2025 og hefur því komið út í heilt ár. Við erum stolt af mörgu og stefnum ótrauð áfram og upp. Litli fjölmiðillinn með stóra hjartað væri rétt að læra að ganga ef hann væri manneskja. Við tökum þessa dagana ákveðin skref í átt að því að fjölga áskrifendum og efla milliliðalaus samskipti við þá, eins og til dæmis í gegnum fréttabréf. Fjölmiðlar geta ekki endalaust verið háðir því að láta efnið sitt millilenda á samfélagsmiðlum. Fréttabréf Gímaldsins er leið til að fá vandað efni beint í innhólfið. Endilega látið orðið berast. Fulla ferð áfram!
|
|
|
|
☂️ 🌤️ Sunnan 5-13 m/s og skúraleiðingar vestantil í dag, annars þurrt og bjart með köflum fyrir norðan og austan. Hiti 2 til 8 stig.
|
|
|
|
|
|
Í tilefni ársafmælis Gímaldsins lítur ritstjórnin um öxl í hlaðvarpsþætti. Erla Hlynsdóttir rifjar upp eitt fyrsta stóra mál Gímaldsins, um starfsmann Útlendingastofnunar sem birti trúnaðarupplýsingar um umsækjendur um alþjóðlega vernd á Instagram. Málið var í kjölfarið kært til lögreglu og tilkynnt Persónuvernd. Helga Arnardóttir segir frá umfjöllun um matarverð og verðtryggð lán og ætlar næst að skoða samkeppni í eldsneytissölu. Aðalheiður Ámundadóttir ræðir áhrif öfgaafla í breyttu landslagi stjórnmála og óvæntar viðtökur þáttaraðarinnar Börn og bílastæði. Ritstjórnin ræðir líka hægfréttir og ástar- og haturssamband fjölmiðla við samfélagsmiðla. Hægt er að hlusta á þáttinn á vef Gímaldsins og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
|
|
|
|
|
|
Hrina uppsagna heldur áfram
|
|
Hafnarfjörður sagði upp 23 starfsmönnum í gær, sem jafngildir 21,6 stöðugildum. Við það sparast um 330 milljónir króna árlega að sögn bæjarins. Að sögn bæjarstjóra verður ekki ráðist í uppsagnir hjá Kópavogsbæ en fundað verður um hagræðingu og niðurskurð hjá Seltjarnarnesbæ í dag. Bæjarstjórnarfólk þar hefur ekki gefið upp hvort uppsagnir séu áformaðar. Hátt í tvö hundruð hefur verið sagt upp hjá hinu opinbera undanfarna daga, flestum hjá Reykjavíkurborg en einnig hjá Sorpu, ÁTVR og Sjúkratryggingum. Í dag er síðasti virki dagur mánaðarins. Uppsagnir sem taka eiga gildi fyrir mánaðamót verða því að tilkynnast í dag.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Íslenskt fyrirtæki hafnar beiðni bandarískra stjórnvalda
|
|
Heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna (DHS) fór í gær fram á að íslenska hýsingarfyrirtækið FlokiNET fjarlægði gögn um þúsundir starfsmanna ráðuneytisins eða takmarkaði aðgang að þeim. Í beiðninni, sem FlokiNET birti á samfélagsmiðlum, segir að gögnin skapi hættu á að 40.000 einstaklingar verði fyrir áreitni eða árásum. Beiðnin kom frá fyrirtækinu ZeroFox, í umboði innflytjenda- og tollaeftirlitsins (ICE). Kolja Weber, forstjóri FlokiNET, sagði Reuters að gögnin yrðu ekki fjarlægð. Þar væru upplýsingar um vinnustaði og vinnusíma starfsmanna, ekki heimilisföng eða einkasímar. Gagnsæishópurinn DDoSecrets birti gögnin á miðvikudag, ásamt leitarvænum gagnagrunni frá hakkaranum og blaðamanninum Ryan Ottignon, sem þekktur er undir nafninu maia arson crimew. Hópur sem kallar sig „Friðarráðuneytið“ (Department of Peace) segist hafa aflað gagnanna. Rökstuðningur fyrir birtingu þeirra er að starfsmenn DHS hafi upplýsingar um fólk og því sé ekki nema sanngjarnt að fólk hafi upplýsingar um þá. DHS hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir að nota sjúkratryggingagögn og skattaupplýsingar í þágu innflytjendaeftirlits.
|
Reuters, Guardian
|
|
|
|
|
Samningar kennara í uppnámi
|
|
Formaður Kennarasambandsins segir líklegt að forsendur kjarasamnings kennara séu brostnar. Hann telur ólíklegt að félagsmenn sambandsins, sem eru um 12 þúsund, samþykki breytingar á samningi fyrir laugardag. Þá verði samningar við kennara lausir frá og með næstu áramótum. Ágreiningur er milli KÍ og sveitarfélaga um túlkun ákvæðis um virðismat á kennarastarfinu. Náist ekki sátt í málinu fyrir miðnætti á laugardag hefst atburðarás sem leitt gæti til verkfalls kennara næsta vor.
|
RÚV
|
|
|
|
|
Bið eftir innlögn styttist
|
|
Bið eftir innlögn hefur styst verulega eftir opnun nýrrar bráðamatsdeildar á Landspítala samhliða umfangsmiklum breytingum á bráðaþjónustu spítalans. Heilbrigðisráðuneytið greindi frá þessu í gær. Dvalartími á bráða- og göngudeild G3 hefur einnig styst þrátt fyrir að komum hafi fjölgað og bið eldra fólks eftir hjúkrunarrými að lokinni sjúkrahúsmeðferð hefur styst verulega, en á þriðja hundrað hjúkrunarrýma hafa opnað undanfarna 13 mánuði.
|
Stjórnarráðið
|
|
|
|
|
Hljóðupptökur af aðdraganda birtar
|
|
Hljóðupptökur milli stjórnstöðvar í Madrid og tveggja lestarstjóra, sem spænskir fjölmiðlar hafa birt, sýna að stjórnstöðin gaf grænt ljós á að háhraðalest frá ríkisrekna félaginu Renfe héldi áfram inn á sama spor og lest frá einkafélaginu Iryo var kyrrsett á eftir að bilun kom upp í tölvukerfi. Lestin sem ók inn á sporið var á um 190 kílómetra hraða og skall aftan á þá kyrrstæðu með þeim afleiðingum að minnst 68 létust og hátt í 100 slösuðust. Mótmælendur söfnuðust saman í Madrid í kjölfar slyssins og kröfðust afsagnar forsætisráðherra og samgönguráðherra. Þetta er þriðja alvarlega lestarslysið á Spáni á árinu. Þingkosningar fara fram á Spáni í næsta mánuði.
|
BBC, Politico, Foreign Policy
|
|
|
|
|
Búa sig undir aukakosningar
|
|
Svíþjóð hefur verið án starfhæfrar ríkisstjórnar í 46 daga. Forseti sænska þingsins hyggst leggja fyrir þingið á þriðjudag að Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, verði forsætisráðherra. Þetta verður önnur atkvæðagreiðsla þingsins um forsætisráðherra síðan kosið var. Náist ekki samstaða um hana fær Ulf Kristersson, leiðtogi Hægriflokksins, næsta tækifæri til að reyna stjórnarmyndun. Þegar þingið hefur hafnað tillögu um forsætisráðherra í fjórða sinn ber að kjósa á ný samkvæmt sænsku stjórnarskránni. Kosningastjórn landsins er þegar farin að undirbúa mögulegar aukakosningar.
|
SVT, NRK
|
|
|
|
|
|
Sakamálarannsókn er hafin í Finnlandi á hendur Google vegna ruðnings á 250 þúsund trjám á lóð þar sem fyrirhugað er að reist verði gagnaver. Trén voru felld áður en lögbundnu umhverfismati var lokið. Málið hefur vakið mikla reiði í Finnlandi.
|
SVT, NRK
|
|
|
|
|
Þingmenn beittu blysum og reykbombum
|
|
Þingmenn stjórnarandstöðunnar í albanska þinginu beittu reykbombum og blysum gegn forsætisráðherranum Edi Rama forsætisráðherra í þingsal í gær og sökuðu hann og stjórn hans um að gera lítið úr ofbeldi lögreglu gegn mótmælendum sem krefjast afsagnar hans. „Ríkjandi valdhafar eru glæpamennirnir og það eru þeir sem eiga skilið táragas, gúmmíkúlur, brotnar höfuðkúpur og brotin bein, en ekki unga fólkið,“ sagði leiðtogi Demókrataflokks Albaníu í þinginu. Mótmæli unga fólksins hófust í maí og spruttu upphaflega af vilyrði forsætisráðherrans við uppbyggingu lúxushótela tengdum Jared Kushner, tengdasyni Bandaríkjaforseta. Hreyfingin hefur síðan þróast yfir í mótmæli gegn slæmu efnahagsástandi, lélegu menntakerfi, háum skólagjöldum og spilltum stjórnvöldum í landinu.
|
Al Jazeera, Euronews
|
|
|
|
|
Segir upp til að geta tjáð sig
|
|
Christine Lagarde, forseti Seðlabanka Evrópu, tilkynnti í gær að hún láti af embætti 7. febrúar 2027, átta mánuðum fyrir lok skipunartíma síns. Ástæðuna segir hún löngun til að geta tjáð sig frjálslega um önnur málefni en efnahagsstefnu sambandsins. Vangaveltur hafa risið í kjölfarið um hvort hún hyggist bjóða sig fram í forsetakosningum í Frakklandi eða taka þátt í pólitískri umræðu í heimalandi sínu, sem logar í óeirðum og pólitískum deilum. Hún er einnig orðuð við embætti tengt efnahagsráðstefnunni í Davos. Ráðamenn í Brussel vilja ljúka við að manna stöðu hennar áður en forsetakosningar fara fram í Frakklandi í apríl og vilja heldur að Macron leggi ákvörðuninni lið en Marine Le Pen nái hún kjöri.
|
Just Security, Semafor, Economist, Reuters
|
|
|
|
|
Í stuttu máli:
|
|
Patrick Stewart er látinn, 86 ára að aldri.
|
- Rafmyntum að verðmæti allt að 6,3 milljarða dala var stolið í tölvuinnbroti í rafmyntakauphöllina Binance á dögunum. Upphæðin jafngildir 765 milljörðum íslenskra króna. Helmingur þeirrar upphæðar, um 3 milljarðar dala, var frystur til að koma í veg fyrir frekari þjófnað. Böndin berast að norðurkóreskum tölvuþrjótum.
- Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, gagnrýnir fyrirhugaða hækkun bankaskatts, sem hann segir skammsýna ráðstöfun til að mæta tímabundnum aðstæðum í ríkisfjármálum. Eðlilegt sé að hækkunin falli niður eftir eitt til tvö ár.
- Íslandsbanki birti uppgjör fyrir þriðja fjórðung í gær. Samkvæmt því nam hagnaður 7,3 milljörðum króna á fjórðungnum en tæpum 22 milljörðum fyrstu níu mánuði ársins.
- Lögreglumenn á landsbyggðinni eru mótfallnir fækkun lögregluembætta og kannast ekki við þörf fyrir umræddar breytingar. Þeir segja meintan vilja innan lögreglu til sameiningar byggjast á rangtúlkun.
- Inga Sæland boðar þjóðarátak gegn barnafátækt og vill færa 2 til 3 milljarða króna árlega frá hátekjufólki til tekjulægstu foreldra.
- Rúm 70 prósent Íslendinga nýta gervigreind til að afla sér frétta, samkvæmt könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir RÚV.
-
|
Leo XIV páfi hefur óskað eftir og fengið sendan kjörseðil til þátttöku í bandarísku þingkosningunum sem fara fram á þriðjudag. Þegar hann skilar atkvæðinu verður hann fyrsti páfi sögunnar sem tekur þátt í borgaralegum kosningum.
|
- Fjórtán létust í árás Rússa á lestarstöð í borginni Dnipro í Úkraínu í gær. Árásin var gerð með þotuknúnum dróna og hæfði fjölmennan brautarpall.
- Eistland hyggst reisa 150 byrgi við landamærin að Rússlandi. Um er að ræða hluta af varnarlínu Eystrasaltsríkjanna sem samið var um 2024.
- Þjóðaröryggisráð Moldóvu hefur verið kallað til fundar eftir stórfellda netárás á opinber upplýsingakerfi sem afhjúpaði persónuupplýsingar um 750.000 íbúa landsins. Grunur er um aðkomu erlends ríkis að árásinni.
- Breski leikarinn Patrick Stewart er látinn, 86 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir hlutverk skipsherrans Jean-Luc Picard í Star Trek og prófessorsins Charles Xavier í X-Men-myndunum.
Rúv, Al Jazeera, Moscow Times, RFE/RL, Guardian
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Bréf til áskrifenda Gímaldsins
|
|
Í dag er eitt ár frá því Gímaldið birti sína fyrstu umfjöllun. Við höfum lært mikið, bætt við okkur áskrifendum og þróað okkur áfram í átt að þeim fjölmiðli sem við vitum að við getum orðið. Fréttabréfið okkar kemur nú út alla virka morgna og hefur fengið góðar viðtökur.
|
|
|
|
|
|
|
|
Afmælisþáttur: 100 þættir, eitt ár og hvað svo?
|
|
Gímaldið er eins árs. Í afmælisþætti hlaðvarpsins líta Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir yfir árið, spyrja hver tilgangurinn sé með því að halda úti fjölmiðli og ræða ástar-haturs samband fjölmiðla við samfélagsmiðla.
|
|
|
|
|
|
|
|
Fjöldi stjórnenda sveiflist með heildarfjölda stöðugilda
|
|
Stjórnendastöður hjá Reykjavíkurborg, svokölluð miðlæg starfsemi, eiga framvegis að sveiflast í föstu hlutfalli við heildarfjölda stöðugilda. Alls eru nú 650 stöðugildi skilgreind sem miðlæg stjórnsýsla hjá borginni. Stöðugildum hjá borginni hefur fjölgað um 3,3% á síðustu fimm árum, en borgarbúum hefur á sama tíma fjölgað um 8,4%.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|