|
|
|
|
Mánudagur 2. nóvember 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Fjarðarkaup í Hafnarfirði verður senn hluti af keðju verslana undir stjórn félaga sem Jón Ásgeir Jóhannesson stýrir. Þetta eru ákveðin tíðindi því Fjarðarkaup hefur verið eitt þekktasta fjölskyldufyrirtæki landsins, eina stóra matvöruverslunin sem enn var sjálfstætt rekin en ekki hluti af samstæðu. Þrír risar bítast nú um bestu bitana á neytendamarkaði, en Drangar, Hagar og Festi eiga orðið stóran hluta af þeim fyrirtækjum sem sjá íslenskum neytendum fyrir mat, eldsneyti og ýmsum öðrum nauðþurftum.
|
|
|
|
💨 🌨️Sunnan 8-15 m/s, en hvassara í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu. Súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en annars þurrt. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Austurlandi.
|
|
|
|
|
Björtustu vonir demókrata
|
|
Talið er afar líklegt að demókratar í Bandaríkjunum vinni fulltrúadeildina í þingkosningum á morgun. Mest spenna ríkir um kosningar til öldungadeildarinnar en demókratar leggja nú allt sitt traust á nokkra frambjóðendur í fylkjum sem hingað til hafa verið talin örugg fyrir repúblikana. Fjallað er um baráttuna í þessum fylkjum og líkurnar á því að demókratar tryggi sér meirihluta í báðum þingdeildum á vef Gímaldsins.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Mörgu er enn ósvarað um uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, að mati Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, borgarfulltrúa Vinstrisins. Sanna var í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudag og sagði ljóst að uppsagnir hefðu áhrif á þjónustu við borgarbúa, en að meirihlutinn hefði enn ekki greint frá því hvaða verkefni yrðu lögð niður og hvaða verkefni yrðu með öðru sniði. Þá nefndi hún að einhverjum starfsmönnum hefði verið greint frá því við uppsögn að mögulega yrði störfum þeirra útvistað. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, hélt því fram í þættinum að Sanna væri einfaldlega á móti hagræðingu, það væri hennar pólitíska afstaða og ekki þyrfti að búast við hugmyndum frá henni í þá veruna. Meirihlutinn hefði vandað sig við uppsagnirnar og haft að leiðarljósi að vernda framlínuþjónustuna og að segja ekki upp fólki sem þjónustar borgarbúa með beinum hætti.
|
Gímaldið, Vísir
|
|
|
|
|
Kvika eykst við Svartsengi
|
|
Kvikumagn undir Svartsengi er orðið nærri tvöfalt meira en fyrir síðustu eldgos á Reykjanesskaga. Eftirlit með jarðhræringum við Grindavík hefur verið aukið vegna fólksfjölda í bænum. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir mælingar sýna þróun sem staðið hafi í um ár og telur líklegt að næsta gos verði stærra og hafi skemmri fyrirvara en áður, sérstaklega haldi veður áfram að vera rysjótt.
|
Vísir, MBL
|
|
|
|
|
|
Skriðuvöktunarkerfi á Svínafellsheiði, sem komið var upp árið 2018, hefur í fyrsta sinn greint skýrar hreyfingar í hlíðinni ofan við Svínafellsjökul. Veðurstofa Íslands segir aflögunina hæga og óvíst um frekari þróun, en eftirlit hefur verið aukið. Stór skriða féll úr hlíðinni á jökulinn árið 2021.
|
Veðurstofa Íslands
|
|
|
|
|
Færri fá mat frá borginni
|
|
Færri Reykvíkingar nýttu sér matarþjónustu borgarinnar í haust en á sama tíma í fyrra, eftir að verð máltíða var hækkað um allt að 72 prósent í september. Velferðarsvið borgarinnar rekur þjónustuna, bæði í mötuneytum og með heimsendingu til fólks sem getur ekki eldað sjálft, til dæmis vegna aldurs eða fötlunar.
|
RÚV
|
|
|
|
|
|
Níu manns fórust þegar einkaþota af gerðinni Learjet 60 hrapaði í íbúðahverfi í Palm Beach-sýslu í Flórída í gær, rétt hjá fjölfarinni umferðargötu og aðeins um 11 km frá Mar-a-Lago, eftirlætisstað forseta Bandaríkjanna. Þotan var á leið frá Austin í Texas til Bahamaeyja. Flugmennirnir höfðu tilkynnt um ókyrrð, ísingu og úrkomu og beðið um að fá að hækka flugið. Samkvæmt bandarísku flugmálastjórninni féll þotan svo um átta kílómetra á rúmri mínútu. Mikil sprenging varð þegar vélin skall á jörðinni. Ekki hefur verið greint frá því hverjir voru um borð og orsök slyssins liggur ekki fyrir.
|
AP, NBC
|
|
|
|
|
|
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lýst stuðningi við Donald Tusk forsætisráðherra Póllands í kjölfar átaka hans við forseta landsins, Karol Nawrocki, um endurreisn stjórnlagadómstóls landsins. Forseta dómsins var vikið úr embætti í lok síðustu viku en hann er meðal þeirra sem skipaður var í dóminn í ólögmætum breytingum á skipun hans í valdatíð hægri flokksins Laga og réttlætis á síðasta kjörtímabili. Síðan hafa dómarar við réttinn og forsetinn komið í veg fyrir að lögmætri skipan verði komið á við dómstóla landsins. Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, lýsti á sunnudag áhyggjum af aðgerðum ríkisstjórnar Tusk en Radosław Sikorski, utanríkisráðherra Póllands, sakaði hana um afskipti af innanlandsmálum.
|
Guardian, Rapporteur
|
|
|
|
|
- Alþingi kemur saman í dag eftir vikuhlé vegna þings Norðurlandaráðs. Sérstök umræða um loftslagsmál verður klukkan 14.
- Hækkun skólagjalda fyrir nemendur utan EES kemur sér illa fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem vill læra íslensku, að sögn Brynju Þorgeirsdóttur, dósents og formanns námsbrautar HÍ um íslensku sem annað mál. Hún segir hækkunina stangast á við málstefnu ríkisins.
- Matvöruverslanakeðjan Samkaup hefur fest kaup á Fjarðarkaupum. Viðskiptin eru háð því að Samkeppniseftirlitið samþykki þau. Samkaup er í eigu Dranga, stærsti eigandi Dranga er fjárfestingarfélagið Skel. Stjórnarformaður beggja félaga er Jón Ásgeir Jóhannesson.
- Spenna hefur aukist verulega milli Bandaríkjanna og Íran eftir því sem nær dregur þingkosningum í Bandaríkjunum. Donald Trump hefur ítrekað gefið í skyn að árásir verði hertar á ný eftir kosningar.
- Viðvörunarkerfi fyrir almenna borgara bæði í Úkraínu og Rússlandi hafa orðið fyrir netárásum undanfarna daga. Ekki er talið víst að árásirnar stafi frá ríkjunum sjálfum á hvert annað.
- Fréttastofan Reuters fullyrti um helgina að hafa séð skilaboð frá Rússum þar sem hótað er árásum á stjórnstöðvar NATO. Framkvæmdastjórinn Mark Rutte hafnar þessu og segir enga yfirvofandi ógn steðja að landsvæði bandalagsins. Fyrr í haust hótuðu Rússar því að beita kjarnavopnum reyndi NATO að einangra Kalíníngrad.
- Rússneski fjölmiðillinn Novaya Gazeta hefur hætt starfsemi. Ástæðan er sögð fjöldi morða á blaðamönnum undanfarið ár og þrýstingur frá rússneskum stjórnvöldum en miðillinn var kominn á lista stjórnvalda yfir óvini ríkisins. Um er að ræða virtasta miðil Rússlands á sviði rannsóknarblaðamennsku.
- Iliana Yotova, sitjandi forseti Búlgaríu, sigraði í síðari umferð forsetakosninganna í gær með um 57 prósent atkvæða gegn 40 prósentum Andreys Gyurov. Yotova er bandamaður Rumens Radev forsætisráðherra landsins. Hún er sögð hliðholl Moskvu og andvíg hernaðaraðstoð við Úkraínu.
- Binance, stærsta rafmyntakauphöll heims, hefur opnað aftur fyrir úttektir eftir að tölvuþrjótar stálu þaðan 6,3 milljörðum dollara í síðustu viku. Binance hefur lofað viðskiptavinum að tjónið verði bætt. Það hafi þegar verið gert í 90 prósent tilvika.
MBL, Aþingi, Politico, Al Jazeera, New York Times, Guardian
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Björtustu vonir Demókrata
|
|
Talið er víst að demókratar í Bandaríkjunum vinni fulltrúadeildina í þingkosningum á þriðjudag, en til að vinna öldungadeildina líka þarf flokkurinn að leggja allt sitt traust á nokkra frambjóðendur í fylkjum djúpt inn í MAGA landi.
|
|
|
|
|
|
|
|
Bréf til áskrifenda Gímaldsins
|
|
Í dag er eitt ár frá því Gímaldið birti sína fyrstu umfjöllun. Við höfum lært mikið, bætt við okkur áskrifendum og þróað okkur áfram í átt að þeim fjölmiðli sem við vitum að við getum orðið. Fréttabréfið okkar kemur nú út alla virka morgna og hefur fengið góðar viðtökur.
|
|
|
|
|
|
|
|
Afmælisþáttur: 100 þættir, eitt ár og hvað svo?
|
|
Gímaldið er eins árs. Í afmælisþætti hlaðvarpsins líta Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir yfir árið, spyrja hver tilgangurinn sé með því að halda úti fjölmiðli og ræða ástar-haturs samband fjölmiðla við samfélagsmiðla.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|