Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Þriðjudagur 29. september 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Google Earth er eitt þeirra stórkostlegu tækja sem getur pakkað heiminum saman og fært okkur upp í hendurnar. Þótt fjölmiðlar heimsins hafi reglulega flutt okkur fréttir af þeim hörmungum sem Ísraelsríki hefur linnulaust látið dynja á íbúum Gasasvæðisins, skynjum við þær með öðrum hætti þegar við getum sjálf virt þær fyrir okkur á Google Earth. Þar birtast okkur nú nýjar myndir af Gasa sem setja hina þurru tölfræði stríðsins í nýtt samhengi. Myndirnar sýna hvernig þjóðarmorð lítur út úr lofti.

🌧️💨 Austan- og suðaustan 10-18 m/s og rigning, hvassast syðst, en norðaustan 8-15 norðvestanlands. Talsverð eða mikil úrkoma um tíma sunnan- og suðvestantilag. Snýst í suðaustan 8-15 og dregur úr vætu í kvöld, en fer að rigna aftur í nótt.

Stuðlamál til saksóknara

Rannsókn lögreglu á eldsvoðanum á Stuðlum í október 2024 er lokið og málinu hefur verið vísað til héraðssaksóknara, sem tekur ákvörðun um ákæru. Sautján ára piltur lést í eldsvoðanum. Tólf hafa réttarstöðu sakbornings, þeirra á meðal Óskar Jósefsson, forstjóri Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna, starfsmenn Stuðla og að minnsta kosti eitt ungmenni sem þar var vistað. Upphaflega voru sakborningarnir þrír en þeim hefur fjölgað jafnt og þétt. Í rannsóknarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem birt var í mars kemur fram að verulegir annmarkar hafi verið á brunavörnum og að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannslátið hefðu þær verið í lagi. Eftirlitsaðilar höfðu ítrekað krafið Ríkiseignir um úrbætur án viðbragða.

RÚV, MBL

Samningur um Þjóðarhöll

Borgarráð kemur saman á aukafundi í dag til að afgreiða verksamning um hönnun og byggingu Þjóðarhallar í Laugardal. Íslenskir aðalverktakar og samstarfsaðilar voru valdir til verksins í júní en tilboð þeirra hljóðaði upp á 16,8 milljarða króna. Verkefnið er unnið fyrir Þjóðarhöll ehf., sem er í eigu ríkisins og Reykjavíkurborgar. Stefnt er að verklokum vorið 2030 en höllin mun taka um 8.600 manns í sæti á íþróttaviðburðum og allt að 12.000 manns á tónleikum.

Gímaldið, Reykjavíkurborg

Leigjendur svartsýnir

Vísbendingar eru um að fleiri sitji fastir á leigumarkaði, samkvæmt könnun meðal leigjenda sem framkvæmd var fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun í sumar. Niðurstöðurnar sýna að meðaltími á leigumarkaði hefur lengst og mælist nú 12 ár en var um 7 ár árið 2020. Þá virðist gæta aukinnar svartsýni meðal leigjenda. Þótt fleiri séu að safna fyrir útborgun sjá færri fram á að komast af leigumarkaði. Á sama tíma hefur framboð leiguhúsnæðis aukist og hægt hefur á verðhækkunum á markaðnum undanfarin ár. Merki eru um að leigjendur af erlendum uppruna búi að jafnaði við lakari húsnæðisaðstæður en þeir íslensku, en þeir leigja oftar herbergi, deiliíbúðir, bílskúra og atvinnuhúsnæði en leigjendur af íslenskum uppruna.

Gímaldið, HMS

Þau sem hafna því að þjóðarmorð hafi verið framið á Gasa voru ávörpuð á forsíðu skoska dagblaðsins The National í gær.

Eyðilögð Gasa uppfærð á Google Earth


Nýjar gervihnattamyndir á Google Earth og Google Maps sýna umfang árása Ísraelshers á Gasasvæðið undanfarin þrjú ár en af myndunum að dæma er svæðið rústir einar. Þar sem áður stóðu þéttbýl íbúðahverfi í Gasaborg, Khan Younis og Rafah eru nú víðáttumiklar rústir. Tölur Sameinuðu þjóðanna gefa myndunum samhengi. Samkvæmt mati Gervihnattamiðstöðvar SÞ (UNOSAT) höfðu yfir 200 þúsund byggingar, 82 prósent allra bygginga á svæðinu, orðið fyrir skemmdum um miðjan júní. Rúm 134 þúsund þeirra eru gjöreyðilagðar.

Sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna um rétt til húsnæðis segir Ísraelsher hafa varpað yfir 200 þúsund tonnum af sprengiefni á svæðið. Þá má einnig sjá víðáttumiklar búðir fólks á vergangi. Google hefur ekki upplýst hvenær uppfærslan sjálf var gerð en hún skiptir verulegu máli þar sem Ísraelsstjórn hefur hvorki hleypt erlendum blaðamönnum né óháðum rannsakendum inn á svæðið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, sagði í Silfrinu á RÚV í gær að þótt friðaráætlun hefði verið undirrituð og Sameinuðu þjóðirnar samþykkt hana væri enn verið að drepa börn og hindra að mannúðaraðstoð berist inn á svæðið.

Gímaldið

Tjaldbúðir rísa í Madríd

Hörð mótmæli halda áfram í Madríd á Spáni þótt aldraða konan sem borin var út úr íbúð sinni í síðustu viku, eftir sjötíu ára búsetu, fái að snúa aftur heim. Mótmælendur hafa reist tjaldbúðir í borginni og krefjast aðgerða gegn hækkandi leiguverði og veikri réttarstöðu leigjenda. Mótmælin eru sögð auka þrýsting á ríkisstjórn Pedro Sánchez.

France 24

Íranir hafna ásökunum

Fimm mönnum sem handteknir voru grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk við breska herstöð var sleppt gegn tryggingu á mánudag en rannsókn heldur áfram á því hvort erlent ríki tengist málinu. Sendiráð Írans í London hefur harðneitað því að stjórnvöld í Íran tengist málinu og efasemdir gera nú vart við sig meðal bæði almennings og kjörinna fulltrúa í Bretlandi um raunverulegar fyrirætlanir þeirra sem handteknir voru. Fölsuðum myndum sem sagðar eru af hinum handteknu hefur verið dreift á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að gefa vísbendingar um uppruna þeirra og trúarbrögð. Sannprófunarbúnaðurinn SynthID staðfestir að myndirnar hafi verið unnar með tólum OpenAI.

The Guardian, BBC

Pútín bætir enn í herinn

Vladímír Pútín, forseti Rússlands hefur undirritað tilskipun um fjölgun rússneska hersins um 15.500 hermenn. Þetta er í fjórða sinn á árinu sem herlið Rússa er stækkað og er samanlögð fjölgun ársins nú tæplega 48 þúsund manns. Selenskí Úkraínuforseti varar við því að Kreml undirbúi nýja herkvaðningu heima fyrir og að 10.000 norðurkóreskir hermenn til viðbótar séu væntanlegir til liðs við Rússa. Vaxandi kergju gætir milli Suður-Kóreu og Úkraínu eftir að Selenskí greindi einhliða frá því á vettvangi Sameinuðu þjóðanna að hafa afhent Seoul norðurkóreska stríðsfanga sem teknir voru höndum í liði Rússa. Stjórnvöld Suður-Kóreu saka hann um að hafa brotið gegn leynilegu samkomulagi ríkjanna. Úkraína er á hinn bóginn sögð óánægð með vaxandi efnahagstengsl Suður-Kóreu og Moskvu.

Politico, RÚV

OpenAI frestar nýju líkani

Gervigreindarrisinn OpenAI hefur frestað útgáfu nýjasta líkans síns, GPT 6.1 Astra, eftir að innri prófanir leiddu í ljós að það stóðst ekki öryggisstaðla fyrirtækisins. Frestunin kemur í kjölfar harðrar gagnrýni síðustu vikur eftir að í ljós kom að líkön fyrirtækisins brutust út af lokuðum prófunarsvæðum og komust inn á vefsíður stjórnvalda í Ástralíu. Leiðtogar helstu gervigreindarfyrirtækja, þar á meðal Dario Amodei forstjóri Anthropic, Mark Zuckerberg forstjóri Meta og fulltrúar OpenAI og Google, funda með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í dag, degi eftir að Amodei snæddi þar kvöldverð með forsetanum í fyrsta sinn.

Euronews

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
Karl Wernersson: The Movie

Karl Wernersson: The Movie

Karl Wernersson bauð vinum, vandamönnum og fjölmiðlum í bíósal til að segja sögu sína af sautján ára málaferlum. Á tjaldinu birtust dómsniðurstöður, fjölskyldumyndir og vondi karlinn úr Austin Powers. Í lokin myndaðist röð fólks sem vildi faðma hann.

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email