|
|
|
|
Miðvikudagur 28. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Niðurskurður hjá Reykjavíkurborg er í algleymingi og þótt lofað hafi verið í gær að uppsagnir verði ekki fleiri þýðir það ekki að niðurskurði sé lokið. Frumvarp að fjárhagsáætlun fyrir næsta ár verður til umræðu í borgarráði á aukafundi ráðsins á föstudag. Á alþjóðavettvangi draga kosningar dilk á eftir sér. Bolsonaro flúði Brasilíu, arabar fengu metfylgi í Ísrael og Ríkissjónvarp Serbíu viðurkennir hafa brugðist þjóð sinni í áraraðir og hefur beðið hana afsökunar.
|
|
|
|
🌤️🌧️ Vestan 8-15 austanlands fram eftir degi, en annars mun hægari breytileg átt. Styttir smám saman upp fyrir norðan og austan, en skýjað með köflum sunnan heiða. Hiti 2 til 10 stig, mildast á Suðausturlandi. Snýst í vaxandi austanátt suðvestan- og vestanlands í kvöld.
|
|
|
|
|
Hagræðing á bak við luktar dyr
|
|
Borgarfulltrúum i Reykjavík var tilkynnt á mánudagsmorgni um lokaðan fund borgarstjórnar að morgni þriðjudags. Á fundinum var tillaga borgarstjóra um að fækka stöðugildum hjá Reykjavíkurborg um 74 samþykkt með atkvæðum meirihluta og Miðflokksins. Í kjölfarið fengu 50 starfsmenn borgarinnar uppsagnarbréf. Stöðugildum hefur fækkað um 130 í þremur uppsagnarhrinum meirihlutans. Samkvæmt síðasta ársreikningi voru 8.675 stöðugildi hjá borginni og jafngilda uppsagnirnar því um 1,5 prósenta fækkun. Ákveðið var að stöðugildi í miðlægri starfsemi verði ekki fleiri en 7,5 prósent af öllum stöðugildum borgarinnar, en að sögn meirihlutans var hlutfallið 8,4 prósent í júní. Ekki hefur verið tilgreint hvaða störf teljast til miðlægrar starfsemi eða hvernig hlutfallið er fengið út. Minnihlutinn hefur gagnrýnt bæði aðgerðirnar og að fundur borgarstjórnar hafi verið lokaður. „Það er ótrúlegur skræfuháttur,“ bóka borgarfulltrúar Vinstrisins. Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalista, segir: „Meirihlutinn firrir sig pólitískri ábyrgð með þessari framkvæmd.“ Pétur Marteinsson, Samfylkingunni, segir það að fækka um 130 störf óvarlegt miðað við árferði. „Það er ekkert sem öskrar á að það þurfi að fara í svona agressívar aðgerðir,“ sagði hann í Kastljósi.
|
Gímaldið, RÚV
|
|
|
|
|
Áhugi Trump á utanríkismálum gæti aukist
|
|
Sagan kennir að forsetar í Bandaríkjunum sem mæta andstöðu frá þinginu snúa sér í auknum mæli að utanríkismálum. Þetta gæti þýtt að nái Demókratar markmiðum sínum og tryggi sér meirihluta í annarri eða báðum deildum Bandaríkjaþings í kosningunum á þriðjudag, finni heimsbyggðin ekki minna fyrir áhrifum Donalds Trump hér eftir sem hingað til. Fjallað er um stöðu flokkanna á Bandaríkjaþingi, möguleika Demókrata og áhrif mögulegs sigurs þeirra í komandi kosningum, á vef Gímaldsins í dag.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Ísland enn á óskalista Stubb
|
|
Alexander Stubb, forseti Finnlands, sér fyrir sér Evrópusamband með 40 aðildarríkjum árið 2056 og Ísland er í þeim hópi. Þetta kom fram í ræðu hans við setningu Evrópuháskólans (College of Europe) í Brugge á mánudag. Auk Íslands nefndi Stubb Úkraínu, Moldóvu, ríki Vestur-Balkanskaga, Bretland, Noreg og Sviss. Hann nefndi líka mögulega aukaaðild Kanada. Athygli vekur að drjúgur hluti listans eru ríki sem hafa ýmist hafnað aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu, dregið umsókn til baka eða gengið úr sambandinu. Stubb færði rök fyrir því að kreppur hefðu í gegnum tíðina knúið Evrópusamrunann áfram og spáði því að sambandið myndi bæði dýpka og stækka á næstu þremur áratugum.
|
Rapportur
|
|
|
|
|
|
Leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024, bar ekki árangur í umfangsmikilli aðgerð við sprunguna í Grindavík í gær. Fjölmennt lið tók þátt í aðgerðinni; sérfræðingar frá sérsveit ríkislögreglustjóra, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Sigmönnum ehf. og rústabjörgunarhópi Hjálparsveitar skáta í Kópavogi, auk erlendra sérfræðinga. Aðgerðin stóð yfir í sjö og hálfan tíma. Tveir leitarmenn sigu niður í sprunguna og framkvæmdu þar sjónskoðun og leit með rústabjörgunarmyndavélum og ljósum. „Við leitina fundust engar vísbendingar sem varpað gætu ljósi á hvar líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar er að finna,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Fram kemur að frekari aðgerðir sem komið gætu til greina þyki of áhættusamar og ekki verði ráðist í frekari leitaraðgerðir. Formlegri leit að Lúðvík er því lokið.
|
Gímaldið, RÚV
|
|
|
|
|
|
Fréttaþulurinn Goran Eror bað þjóðina afsökunar fyrir hönd starfsmanna ríkissjónvarpsins.
|
Ríkissjónvarp Serbíu baðst afsökunar
|
Ríkissjónvarp Serbíu segist hafa brugðist hlutverki sínu og bað serbnesku þjóðina afsökunar í gær. Í fréttatíma voru sýndar myndir af fagnaðarlátum í Belgrad í kjölfar kosningasigurs á sunnudag. Fréttaþulurinn Goran Eror sagði síðan að myndirnar sýndu aðeins brot af því sem RTV hefði látið hjá líða að sýna áhorfendum kvöldið áður. „Árum saman sinnti almannaútvarpið ekki hlutverki sínu. Sumt var látið ósagt, litið var undan, upplýsingar voru einhliða, fréttaflutningur gagnrýnislaus og réttu spurninganna var ekki spurt, eða þá engra spurninga yfirleitt. Fyrir það skuldum við áhorfendum okkar afsökunarbeiðni,“ sagði fréttaþulurinn þegar hann las upp yfirlýsingu í beinni útsendingu. Hann sagði að sumir starfsmenn hefðu barist fyrir því að blaðamenn og ritstjórar fengju að starfa óáreittir, en „við unnum ekki þá baráttu í tæka tíð en við teljum mikilvægt að halda þeirri baráttu áfram,“ sagði hann.
|
RTV
|
|
|
|
|
Arabar fengu metfylgi í Ísrael
|
|
Arabískir flokkar fengu metstuðning í þingkosningum í Ísrael á sunnudag og kjörsókn á meðal þeirra mældist nálægt 80 prósentum, sem gæti gert þá að oddamönnum í stjórnarmyndun. Heildarkjörsókn var yfir 75 prósent og hefur ekki verið meiri síðan 1988. Samkvæmt útgönguspám skilaði hún þó engri afgerandi niðurstöðu, hægriblokk Benjamíns Netanyahu forsætisráðherra fær líklega 50 þingsæti en bandalag Gadi Eisenkot, helsta mótherja hans, 52 þingsæti. Það þarf 61 sæti til að mynda meirihluta og ljóst að hvorug blokkin nær því marki. Báðar fylkingar hafa útilokað að vinna með flokkum araba en vera kann að Eisenkot neyðist til að reyna þann kost. Búist er við að viðræður um myndun stjórnar verði erfiðar og gætu tekið margar vikur. Á meðan situr Netanyahu við völd.
|
Semafor, Foreign Policy
|
|
|
|
|
|
Bolsonaro heimsótti Hvíta húsið í maí. Stuðningur Donalds Trump hafði ekki tilætluð áhrif í kosningunum á sunnudag.
|
Bolsonaro flúði land eftir ósigurinn
|
Flávio Bolsonaro, sem tapaði forsetakosningunum í Brasilíu á sunnudag, er að sögn flúinn til Bandaríkjanna og hyggst sækja þar um hæli. Hvíta húsið hefur boðið honum vegabréfsáritun. Á mánudag fyrirskipaði Hæstiréttur Brasilíu Bolsonaro að afhenda vegabréf sín innan sólarhrings, en hann sætir rannsókn vegna gruns um spillingu og peningaþvætti. Engin handtökuskipun lá fyrir þegar hann fór úr landi, en lögfræðingar telja að brot gegn fyrirmælum dómsins geti dugað til að gefa hana út. Faðir hans, Jair Bolsonaro fyrrverandi forseti, fór til Flórída eftir ósigurinn 2022 en sneri heim nokkrum mánuðum síðar. Hann hefur síðan verið dæmdur í 27 ára fangelsi fyrir tilraun til valdaráns. Ósigurinn þykir áfall fyrir Trump-stjórnina, sem reynir að treysta tök Bandaríkjanna á Rómönsku-Ameríku með því sem kallað hefur verið „Donroe-kenningin“, í höfuðið á Monroe-kenningunni frá 19. öld.
|
CNN, Foreign Policy
|
|
|
|
|
- Arion banki hefur gert sátt við Seðlabankann vegna brota á reglum um markaðssvik og greiðir 280 milljóna króna sekt.
- Þýskaland, Ítalía, Frakkland, Grikkland og þrjú önnur aðildarríki ESB leggjast gegn því að hugtakið aukaaðild (associate member) verði notað, þótt þau styðji hugmyndina um nánara samband ESB og Kanada. Leiðtogafundur ESB og Kanada hefst í Montreal á morgun.
- Holland tekur ekki þátt í Eurovision 2027 eftir allt saman. Hollenska ríkisútvarpið, NPO, hafði boðað endurkomu í söngvakeppnina eftir sniðgöngu í fyrra í mótmælaskyni við þátttöku Ísrael. Nú vísar NPO til skorts á stuðningi við endurkomuna og er hætt við að vera með.
- Sænskir jafnaðarmenn óttast að Ulf Kristersson, starfandi forsætisráðherra, sitji áfram þrátt fyrir kosningasigur mið- og vinstriflokkanna í kosningunum í síðasta mánuði. Jafnaðarmönnum og Miðflokknum (Centerpartiet) gengur illa að koma sér saman um stjórnarmyndun sem gæti komið í veg fyrir að Magdalena Andersson, formaður Jafnaðarmannaflokksins, taki við embætti forsætisráðherra.
- Losun gróðurhúsalofttegunda náði methæðum í fyrra, samkvæmt nýjum gögnum Sameinuðu þjóðanna. Evrópa hlýnar hraðast allra heimsálfa, en methitar geisuðu í álfunni í sumar og hún er illa undir hitana búin. Aðeins 20 prósent evrópskra heimila hafa loftkælingu, samanborið við 90 prósent bandarískra heimila.
- Þýski bílaframleiðandinn Audi er fallinn í ónáð í heimalandinu eftir að forstjóri fyrirtækisins kom fram með Donald Trump Bandaríkjaforseta á kosningafundi í Georgíu á dögunum.
Rapportur, Politico, MBL, Foreign Policy, NYT
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Þýðing komandi kosninga fyrir völd Donalds Trump
|
|
Bandaríkjaforsetar sem ekki njóta meirihluta þingsins hafa oftar en ekki snúið sér nær alfarið að utanríkismálum. Demókratar vonast til að ná meirihluta í báðum þingdeildum í kosningunum á þriðjudag. Hvaða þýðingu hefði það fyrir forsetatíð Trumps og hverjar eru líkurnar? Gímaldið fer yfir stöðuna á bandaríkjaþingi og valdsvið meirihluta þingsins gagnvart forseta.
|
|
|
|
|
|
|
|
Margrét Tryggvadóttir: Krossgötur
|
Rut og Alma tala aldrei saman þótt þær séu bæði skólasystur og nágrannar; Rut lætur lítið fyrir sér fara og tilheyrir trúaðri fjölskyldu sem lokar sig af en Alma er marksækin og ætlar sér að ná langt í lífinu. Kærasti Ölmu, Hlynur, er efnilegur handboltamaður sem stefnir á atvinnumennsku. Fannar býr í sömu blokk og stelpurnar og þráir athygli og viðurkenningu jafnaldra sinna en viðhorf hans og bakgrunnur gera honum erfitt fyrir.
|
Óvæntar áskoranir neyða krakkana til að endurskoða framtíðina sem þau sáu fyrir sér. Rut langar að yfirgefa trúfélagið. Alma efast um samband sitt við Hlyn þegar hann missir áhugann á náminu. Fannar glímir við fordóma, sína eigin og annarra.
|
|
Krossgötur er grípandi saga um ungar manneskjur á leiðinni út í lífið. Margrét Tryggvadóttir hefur áður sent frá sér fjölmargar bækur og hlotið fyrir þær ýmis verðlaun og viðurkenningar, m.a. Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur fyrir söguna Sterk.
|
|
|
|
|
|
|
|
Það sást á hjartalínuritinu að ég var að skrifa
|
|
Eftir Draumalandið var Andri Snær Magnason gjörsamlega útbrunninn og gat ekki hugsað sér að tala aftur um virkjanir. Síðan hefur bók hans Um tímann og vatnið, og samnefnd heimildarmynd, farið sigurför um heiminn og gert hann að einum áhrifamesta talsmanni náttúruverndar. Hann segir vísindin stærri en tungumálið, að sögur ná betur til fólks en gögn og nú þurfi að vekja nýja kynslóð.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|
|