|
|
|
|
Þriðjudagur 6. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Eitt af helstu áherslumálum ríkisstjórnarinnar á þessu haustþingi er á dagskrá þingfundar í dag. Bókun 35. Spennandi verður að fylgjast með hvernig stjórnarandstæðan bregst við. Það ríkir spenna á fleiri vígstöðvum. Seðlabankinn birtir vaxtaákvörðun á morgun og frestur til að segja kjarasamningum upp rennur út á fimmtudag.
|
|
|
|
🌤️❄️ Suðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s í dag. Víða bjart, en stöku skúrir suðaustantil og einnig við vesturströndina í kvöld. Hiti 2 til 8 stig yfir daginn, en allvíða líkur á næturfrosti. Suðvestlægari á morgun og dálitlar skúrir eða slydduél, en þurrt og bjart á austanverðu landinu fram eftir degi. Hlýnar heldur.
|
|
|
|
|
|
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, mælir fyrir frumvarpi um Bókun 35 á þingfundi í dag. Þingfundur hefst með störfum þingsins klukkan 13.30. Að þeim loknum, um tvöleytið, mælir utanríkisráðherra fyrir málinu. Þingfundur getur staðið til miðnættis í kvöld. Bókun 35 fjallar um forgangsrétt löggjafar sem innleiðir EES reglur, stangist önnur gildandi íslensk löggjöf á við hana. Í síðasta mánuði höfðaði ESA samningsbrotamál fyrir EFTA dómstólnum gegn Íslandi vegna þess að bókunin hefur ekki verið innleidd. Þetta er í þriðja sinn sem mælt er fyrir málinu á þingi en frumvarpið var fyrst lagt fram af Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur, þáverandi utanríkisráðherra, í tíð síðustu ríkisstjórnar.
|
Málið er umdeilt í stjórnarandstöðunni. Formenn Miðflokksins og Framsóknarflokksins hafa lýst því viðhorfi að réttast sé að klára málið fyrir EFTA dómstólnum og fá niðurstöðu þar áður en Alþingi afgreiðir frumvarpið. Skiptar skoðanir eru í Sjálfstæðisflokknum og ekki liggur fyrir hvort ein lína verður tekin í þingflokknum um málið.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Spáð kólnun og óbreyttum stýrivöxtum
|
|
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnir vaxtaákvörðun í fyrramálið. Greiningardeildir Landsbankans og Íslandsbanka telja að stýrivextir haldist óbreyttir í 8 prósentum eftir hækkanir á þremur síðustu fundum nefndarinnar. Verðbólga hefur verið yfir 5 prósentum allt árið, langt yfir 2,5 prósenta markmiði Seðlabankans. Hækkunin í september skýrist einkum af eldsneytisverði en á móti vegur að hagkerfið er að kólna. Raunverð íbúða hefur lækkað tíu mánuði í röð, skráð atvinnuleysi mældist 3,9 prósent í ágúst og greiðslukortavelta heimila dróst saman um 1,2 prósent, sem er mesti samdráttur frá lokum árs 2023. Landsbankinn telur vaxtahækkunarferlinu lokið og Íslandsbanki telur að vaxtalækkanir hefjist á vordögum 2027.
|
Gímaldið, Landsbankinn, Íslandsbanki
|
|
|
|
|
Fá umboð til að segja upp samningum
|
|
Stjórn VR, samninganefnd Landssambands íslenskra verslunarmanna og fagfélögin fengu í gær umboð til að segja upp kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, komi Samtök atvinnulífsins ekki til móts við kröfur þeirra fyrir klukkan 16 á fimmtudag. Forsendur gildandi samninga brustu í ágúst þegar verðbólga mældist 5,6 prósent, vel yfir 4,7 prósenta viðmiði samninganna. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir viðbragðsleysi hafa einkennt framgöngu SA en Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, segir háa vexti og verðbólgu valda atvinnulífinu vonbrigðum ekki síður en launafólki.
|
RÚV
|
|
|
|
|
|
Helmingur stúlkna í 10. bekk upplifir að minnsta kosti tvö einkenni depurðar, kvíða eða svefnvanda, vikulega og sjálfsskaði mælist áfram hjá um 15 prósentum árgangsins. Þetta sýnir Íslenska æskulýðsrannsóknin sem nemendur í 4. til 10. bekk svöruðu síðastliðið vor. Einmanaleiki hefur aukist meðal stúlkna í 8. til 10. bekk, fór úr 14,7 prósentum í 17,1 prósent frá 2024. Á móti kemur að 62 prósent barna segja líf sitt gott, en hlutfallið var 57 prósent árið 2023. Neysla áfengis, sígarettna og nikótínpúða hefur heilt yfir dregist saman hjá 10. bekkingum frá árinu 2022 en einelti meðal 4. og 5. bekkinga jókst úr 18 í 22 prósent.
|
Stjórnarráðið
|
|
|
|
|
|
Þessi órangútan api frá Borneó virðist vel haldinn og hvergi banginn þó tegund hans sé í útrýmingarhættu. Myndina tók Subi Sridharan en hún er meðal ljósmynda sem tilnefndar eru til árlegra verðlauna Nikon fyrir skopmyndir úr dýralífinu (Comedy Wildlife Awards).
|
Nikon Comedy Wildlife
|
|
|
|
|
Vilja kjósa þegar Trump er farinn
|
|
Parti Québécois, flokkur aðskilnaðarsinna, sigraði í fylkiskosningum í Quebec í gær og hyggst efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðskilnað frá Kanada. Hún verði þó ekki haldin fyrr en Donald Trump lætur af embætti Bandaríkjaforseta. Flokkurinn náði ekki hreinum meirihluta, sem er huggun fyrir Mark Carney forsætisráðherra Kanada og aðra sambandssinna. Eftir hálfan mánuð greiða íbúar olíufylkisins Alberta atkvæði um aðskilnað frá Kanada.
|
Euronews, Al Jazeera
|
|
|
|
|
|
Um fimm þúsund unglingar hafa verið handteknir í fjöldamótmælum framhaldsskólanema sem hófust í Frakklandi 17. september síðastliðinn. Yfir 500 framhaldsskólum var lokað í gær vegna mótmælanna. Menntamálaráðherra landsins segir 24 skóla hafa verið brennda eða skemmda í síðustu viku og 78 starfsmenn hafi slasast í mótmælunum. Fimmtán ára mótmælandi missti hönd af völdum táragasbyssu lögreglu í gær. Nú heyrist gagnrýni á fjárlagafrumvarp stjórnarinnar meðal mótmælenda og stærstu verkalýðsfélög landsins hafa bæst í hóp nemenda á götum úti.
|
Politico, Foreign Policy
|
|
|
|
|
Fá Nóbel fyrir að stýr heilafrumum með ljósi
|
|
Bandaríski geð- og taugasjúkdómalæknirinn Karl Deisseroth og þýskir samstarfsmenn hans, Peter Hegemann og Georg Nagel, fá Nóbelsverðlaun í læknisfræði í ár fyrir rannsóknir sínar á sviði ljósgenatækni. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi á Karólínska sjúkrahúsinu í gær. Verðlaunin hljóta fræðimennirnir fyrir nýja aðferð til að stýra heilafrumum með ljósi. Tæknin hefur verið notuð til að rannsaka áráttu- og þráhyggjuröskun og geðklofa og er talin ryðja brautina fyrir nýjar meðferðir við sjúkdómum í heila.
|
Economist, Semafor, RÚV
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|