|
|
|
|
Miðvikudagur 7. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Þrjú ár eru liðin frá hryðjuverkaárás Hamas sem varð um 1200 manns að bana, flestum ísraelskum borgurum. Í kjölfarið fylgdi ólýsanlegur hryllingur. Um 75 þúsund palestínskir borgarar hafa verið drepnir og heimili þeirra og samfélag lögð í rúst. Helstu sérfræðingum heims ber saman um hugtakið sem best lýsir aðgerðum Ísraelshers: Þjóðarmorð. Ísrael hefur að auki takmarkað aðgang hjálpargagna að svæðinu og komið í veg fyrir að rannsakendur og blaðamenn geti gefið okkur skýrari mynd af afleiðingum þessa hildarleiks. Þúsundir palestínskra borgara eru enn grafin undir þeirri rúst sem Gasa svæðið er. Mótmælafundir til stuðnings Palestínu eru fyrirhugaðir í borgum og bæjum um allan heim í dag og næstu daga.
|
|
|
|
🌨️ Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða dálitlar skúrir eða slydduél, en lengst af þurrt og bjart austanlands. Hiti 2 til 9 stig að deginum.
|
|
|
|
|
|
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að stýrivextir haldist óbreyttir í 8 prósentum, líkt og greiningardeildir bankana höfðu spáð. Þetta var tilkynnt á vef Seðlabankans í morgun. Samkvæmt nýjustu spám greiningardeildanna er talið að vaxtahækkunarferlinu sé lokið og vaxtalækkanir hefjist á vordögum 2027.
|
Seðlabanki Íslands, Landsbankinn, Íslandsbanki
|
|
|
|
|
Hluti samninga framlengdur
|
|
Samkomulag hefur náðst milli Starfsgreinasambandsins, Eflingar, Samiðnar og Byggiðnar við Samtök atvinnulífsins um áframhaldandi gildi kjarasamninga í eitt ár. Ekki hefur náðst samkomulag á öðrum vígstöðvum en fundir VR og fagfélagana með SA stóðu fram á kvöld í gær. Félögin hafa frest til klukkan fjögur á morgun til að ákveða hvort kjarasamningum verði sagt upp.
|
RÚV
|
|
|
|
|
Vilja ályktun um afturköllun umsóknar
|
Formenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins og formaður þingflokks Framsóknarflokksins hafa lagt fram tillögu til þingályktunar um að ríkisstjórninni verði falið að tilkynna Evrópusambandinu að Ísland sé ekki umsóknarríki um aðild að ESB. Að því loknu skuli ríkisstjórnin afla skriflegrar staðfestingar frá ESB um stöðu Íslands gagnvart sambandinu. Í tillögunni kemur fram að Inga Sæland hafi lagt sambærilega tillögu fram sex sinnum á síðustu tveimur kjörtímabilum. Utanríkisráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um Bókun 35 og lauk fyrstu umræðu um málið í þinginu stuttu fyrir miðnætti. Málinu hefur nú verið vísað til meðferðar hjá utanríkismálanefnd.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Um miðjan ágúst hafði Héraðsdómur Norðurlands eystra aðeins birt 17 af 50 uppkveðnum dómum í einka- og sakamálum yfirstandandi árs. Þessi framkvæmd er andstæð reglum um birtingu dóma og þýðir að í 33 málum höfðu aðeins þeir sem voru viðstaddir uppsögu dóms í dómsal á Akureyri upplýsingar um málalyktir en ekki aðrir borgarar landsins. RÚV fjallar um málið en eftir að fréttastofa leitaði til Dómstólasýslunnar var brugðist við og 29 dómar birtir á vef réttarins. Skýringin er sögð álag og mannekla hjá dómstólnum.
|
RÚV
|
|
|
|
|
|
Messi skoraði sitt síðasta mark fyrir Argentínu úr vítaspyrnu.
|
Messi kvaddi argentínsku þjóðina
|
Lionel Messi hefur leikið sinn síðasta leik í bláröndóttu treyjunni númer 10. Argentínska þjóðin hyllti hann á þjóðarleikvangi Argentínu í Buenos Aires í gær eftir 3-0 sigur heimamanna gegn Benín. Messi hefur aldrei verið maður orðsins heldur látið verkin á vellinum tala. En undir kveðjuræðu hans í gærkvöldi grétu allir liðsfélagar hans með 85 þúsund áhorfendum. Landsliðsferill Messi var enginn dans á rósum og það var ekki fyrr en undir lok ferilsins sem hjólin fóru að snúast með honum og Argentínu sem urðu Ameríkumeistarar árið 2021 og svo heimsmeistarar árið 2022, eftir einn besta úrslitaleik í sögu mótsins. Líkt og heimsbyggðin öll, þökkum við fyrir samfylgdina síðustu tvo áratugi. Gracias, Leo!
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Handtekinn fyrir landráð og njósnir
|
|
August Hanning, sem stýrði þýsku leyniþjónustunni BND frá 1998 til 2005, var handtekinn í gær grunaður um njósnir og landráð. Fyrrum starfsmaður eins eftirmanna hans var einnig handtekinn, grunaður um að hafa útvegað Hanning um tvö þúsund trúnaðarskjöl eftir starfslok hans, sem Hanning er sagður hafa deilt með erlendum leyniþjónustumönnum tveggja erlendra ríkja, en heimildir herma að hvorugt þeirra sé Rússland. Hanning er fyrsti fyrrum yfirmaður BND sem sakaður er um njósnir, en stofnunin hefur áður verið hrjáð af njósnamálum í gegnum tíðina.
|
Deutsche Welle, Foreign Policy, BBC
|
|
|
|
|
Víða mótmælt fyrir Palestínu
|
|
Mótmælafundir til stuðnings Palestínu eru skipulagðir um allan heim í dag, 7. október, þegar þrjú ár eru liðin frá hryðjuverkaárás Hamas á Ísrael. Ísraelsstjórn fylgist vel með viðburðum af þessum toga og hefur skráð 262 viðburði til stuðnings Palestínu í 37 löndum dagana 1. til 14. október. Um 75 þeirra verða í dag, flestir í Bandaríkjunum, á Spáni og í Ástralíu. Í London hefur lögreglan beðið námsmenn að fresta göngu sem á að hefjast við King's College á hádegi í dag en skipuleggjendur ætla ekki að verða við því. Á laugardag er búist við allt að tíu þúsund manns í aðra göngu í borginni. Stjórnvöld í Frakklandi hafa bannað fyrirhuguð mótmæli í París til stuðnings Palestínu en þar í landi logar allt nú þegar í mótmælum vegna ófremdarástands í menntamálum.
|
The Times of Israel, Guardian
|
|
|
|
|
Fær Nóbel fyrir draugaeindir
|
|
Francis Halzen, belgísk-bandarískur eðlisfræðingur, hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði fyrir að finna leið til að greina svokallaðar draugaeindir, daufar fiseindir utan úr geimnum, með ískjarna á Suðurskautslandinu. Uppgötvunin varð grunnur að IceCube-stjörnustöðinni, þar sem meira en 400 vísindamenn rannsaka nú meðal annars risasvarthol.
|
Semafor
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristrún: Samfylkingin hafði fjarlægst hinn venjulega Íslending
|
|
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, ræðir endurreisn Samfylkingarinnar, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvar hún stendur sjálf í pólitík. Kristrún hefur lengi verið með stöðu jafnaðarmannaflokka á heilanum og telur almenna velferð hafa gleymst í umræðu um réttindi stakra hópa. Hún segir Flokk fólksins oft misskilinn og samstarfið við Ingu Sæland fylli hana auðmýkt á hverjum degi.
|
|
|
|
|
|
|
|
„Ef enginn hækkar hjá sér verð á vöru eða þjónustu þá hættir vísitalan að hækka“
|
|
Vísitala neysluverðs, sem er eins konar hitamælir á verðbólguna í landinu, hefur hækkað síðustu ár og samhliða því hækka verðtryggð lán landsmanna. Lánþegar verðtryggðra lána taka á sig skell með höfuðstólshækkunum um leið og eldsneyti, flugfargjöld, opinber gjöld eða annað sem reiknað er inn í vísitöluna hækkar. Til þess að verðtryggðu lánin lækki þurfa margir liðir sem reiknaðir eru í vísitöluna að lækka verulega.
|
|
|
|
|
|
|
|
Svörtu listarnir í Brussel og skuggastríðið gegn Rússum
|
|
Segja má að Evrópa sé komin í nokkurs konar skuggastríð við Rússa. Ógnir á borð við áróður, kosningaafskipti, net- og drónaárásir hafa gert vart við sig í meiri mæli en áður. Yfir 3000 Rússar eru á svörtum listum Evrópusambandsins og fá ekki að stunda viðskipti, eiga eignir eða ferðast til Evrópulanda.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|