|
|
|
|
Gímaldið heilsar 28. ágúst 2026
|
|
|
|
|
Margt minnir á Brexit í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. Útgöngusinnar í Bretlandi notuðu tilfinningaþrungin slagorð sem vísuðu í það að þjóðin ætti að segja söguna sjálf. Sömu stef sjást nú í baráttunni hér á landi.
|
Nýtt hlaðvarp, það síðasta fyrir atkvæðagreiðslu, er lent á hlaðvarpsveitum. Í því ræða Aðalheiður Ámundadóttir, Helga Arnardóttir og Eyrún Magnúsdóttir um kosningabaráttuna, kappræðurnar á RÚV og Brexit-augnablikið sem utanríkisráðherra fékk bágt fyrir að vara við snemmsumars.
|
Við höldum galvösk áfram á Gímaldinu að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu með nýtt efni. Þangað til hvetjum við alla til að mæta á kjörstað. Við treystum öðrum fjölmiðlum til að sjá um kosningavökur.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Karl Wernersson bauð vinum, vandamönnum og fjölmiðlum í bíósal til að segja sögu sína af sautján ára málaferlum. Á tjaldinu birtust dómsniðurstöður, fjölskyldumyndir og vondi karlinn úr Austin Powers. Í lokin myndaðist röð fólks sem vildi faðma hann.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Frá námsárum til forsetakjörs fór höfundur víða og vann með áhrifamönnum í ýmsum álfum. Hér segir af ungum manni sem heldur út í heim, berst á öldufaldi breytinga og myndar bandalög við leiðtoga þar sem barist er fyrir afvopnun, friði og farsæld fátækra ríkja. Samfelldur þráður liggur frá námsárum í Bretlandi til baráttunnar um Bessastaði.
|
Vegferð um veröldina segir frá starfi innan alþjóðlegu þingmannasamtakanna Parliamentarians for World Order, sem síðar nefndust Parliamentarians for Global Actions. Samtökin voru skipuð þingmönnum frá ýmsum löndum sem innblásnir af friðarhreyfingum tímans freistuðu þess að að virkja þjóðarleiðtoga til að rjúfa vítahring sívaxandi vígbúnaðar.
|
|
|
|
|
Vertu með!
Engir smelludólgar, engar upphrópanir. Bara vönduð umfjöllun og viðmælendur með þekkingu og innsýn.
|
Vertu með! Áskriftir halda okkur í loftinu. Ef þú ert ekki enn með áskrift þá bendum við á að þa er einfalt að gerast áskrifandi.
|
|
Þinn stuðningur gerir okkur kleift að verja tíma í vandaða og sjálfstæða umfjöllun.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|