|
|
|
|
Mánudagur 26. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Óformlegir fundir stjórnar Landsvirkjunar eru ekki eitthvað sem fjármálaráðherra getur látið eins og séu ekkert mál. Stjórnarhættir eins stærsta fyrirtækis landsins þurfa að vera hafnir yfir allan vafa. Hvað kallaði á það að stjórn hittist óformlega yfir hádegisverði án forstjóra? Hvað var rætt á þeim fundum? Landsvirkjun er einhver mikilvægasta sameign þjóðarinnar og það kemur okkur öllum við hvað varð til þess að forstjórinn hætti. Nú þarf nákvæmari upplýsingar en áður hafa komið fram, ekki litla búta hér og þar heldur heildstæða mynd af þeim atburðum sem urðu til þess að forstjórinn fór frá.
|
|
|
|
🌨️ Breytileg átt 3-8 og rigning eða slydda um norðanvert landið en dregur smám saman úr úrkomu. Skýjað að mestu sunnantil en þurrt að kalla. Hiti 0 til 7 stig. Norðaustan 5-10 í kvöld, dálítil rigning eða súld fyrir austan og norðvestan, en annars þurrt.
|
|
|
|
|
Andri Snær, umhverfið og gallabuxnasniðin
|
|
Andri Snær Magnason hefur ekki alltaf ætlað sér að vera kyndilberi náttúruverndar. Eftir að hafa skrifað Draumalandið var hann gjörsamlega útbrunninn og gat ekki hugsað sér að tala aftur um virkjanir. Síðan hefur bók hans Um tímann og vatnið, og samnefnd heimildarmynd, farið sigurför um heiminn og gert hann að einum áhrifamesta talsmanni náttúruverndar. Hann segir vísindin stærri en tungumálið, að sögur ná betur til fólks en gögn og nú þurfi að vekja nýja kynslóð. Andri er í viðtali við Gímaldið sem birt er á hlaðvarpsveitum. Þar ræðir hann meðal annars um umhverfisáhrif tískunnar og hversu mikil orka fer í það þegar vinsælar vörur, eins og tiltekin gallabuxnasnið, detta úr tísku. Þá segir hann frá því þegar skrif hans um vernd náttúrunnar sáust á hjartalínuriti. Andri Snær er með nýja bók í smíðum sem kemur út á næsta ári og hann kallar Lotukerfi tungumálsins.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Fjölfötluðum dreng vísað úr landi
|
|
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa Leidy Díaz, konu frá Venesúela, úr landi ásamt börnum hennar tveimur og á fjölskyldan auk þess að sæta endurkomubanni. Sonur Diaz, Elian, er fjögurra ára, fjölfatlaður með klofinn hrygg og vatnshöfuð og notar hjólastól. Lögmaður fjölskyldunnar hefur sagt að hann hafi á löngum starfsferli engan skjólstæðing haft með jafn alvarlega fötlun og að úrskurður Útlendingastofnunar hafi ekkert tillit tekið til þess þrátt fyrir að Ísland hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Leidy Díaz hefur nú stefnt íslenska ríkinu og krafist frestunar á brottvísuninni.
|
RÚV
|
|
|
|
|
|
„Með ekkert yfir sér fann hann hve IKEA-myrkrið andaði köldu og stóð aftur upp, fann drappað Nätnäva pólýesterteppi á stólarmi í gagnstæðu horni, lagðist síðan aftur og breiddi það yfir sig. Voru þau fyrst Íslendinga til að eyða nótt á þessu „heimili mannkyns“ eins og verslunin kallaði sig? Hann sá fyrir sér smáfregn á netmiðli undir fyrirsögninni: Eyddu nótt í IKEA.“ Í 9. kafla nýútkominnar skáldsögu Hallgríms Helgasonar, Enginn deyr í IKEA, er hrollvekjandi lýsing á aðstæðum feðgina sem lokast hafa inni í versluninni. Það er að slá í miðnætti og faðirinn verður var við bæði mannaferðir og torkennileg hljóð. Hægt er að lesa kaflann í heild á vef Gímaldsins en Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að auknu fjármagni verði veitt til Loftbrúar eftir hörð mótmæli af landsbyggðinni við boðaðar breytingar á afsláttarkerfinu. Fyrir helgi kynnti ríkisstjórnin nýtt fyrirkomulag sem felur í sér að afslátturinn verði bundinn við fasta krónutölu í stað prósentutölu af fargjaldi. Samkvæmt tilkynningunni var áætlað að veittur yrði 7000 króna afsláttur fyrir hvern fluglegg en íbúar á landsbyggðinni eiga rétt á afslætti af sex flugleggjum á ári. Eftir mikil mótmæli um helgina tilkynnti innviðaráðherra í gær að til skoðunar sé að hækka afsláttinn um 2000 krónur á hvern legg. Um er að ræða auka fjárveitingu til verkefnisins upp á 200 milljónir króna. Helsta gagnrýnin á breytingarnar hefur verið að krónutöluafslátturinn endurspegli ekki verðþróun, en í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir einnig að breyting úr prósentu- í krónutöluafslátt dragi úr hvata til að flugfargjöld hækki samhliða hækkandi niðurgreiðslu frá ríkinu.
|
Stjórnarráðið, RÚV
|
|
|
|
|
|
Frá því Hörður Arnarson fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar sagði starfi sínu lausu þann 1. október sl. hefur meira og meira komið í ljós um ástæður brotthvarfsins. Sjálfur veitti hann engin viðtöl í fyrstu, en Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður sagði sama dag: „Það er ekki frá miklu að segja. Eðlilega er fólk ekki alltaf sammála um allt. Hörður ákvað að taka þetta skref örlítið fyrr en ella.“ Nokkrum dögum síðar sagði hún stjórnina ekki hafa fundað án Harðar nema þegar hans eigin mál voru rædd. Í viðtali í Kastljósi nefndi hörður að stjórnarhættir hefðu verið það sem varð til þess að hann hætti. Á Sprengisandi á sunnudag gekk hann lengra og sagði stjórn hafa fundað án þess að hann væri boðaður. Brynja svaraði samdægurs að um væri að ræða óformlega fundi, hádegisverði „til þess að ræða fundarsköp og samstarf innan stjórnar“. Jón Björn Hákonarson, fyrrverandi stjórnarformaður, segir slíka hittinga ekki hefð hjá stjórninni og forstjórann hafa undantekningarlaust verið boðaðan á fundi hennar. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði á Bylgjunni í morgun að ekkert óeðlilegt hefði átt sér stað. Engir formlegir fundir hefðu farið fram án forstjóra.
|
Gímaldið, RÚV, Mbl, Vísir
|
|
|
|
|
Stúdentar sigruðu í Serbíu
|
|
Stúdentahreyfingin „Student List, Students Win“ vann hreinan meirihluta þingsæta í þingkosningum í Serbíu um helgina, 138 sæti á móti um 104 sætum flokks Aleksandar Vučic fyrrverandi forseta. Kjörsókn var næstum 70 prósent, sú hæsta frá upplausn Júgóslavíu 1992. Stúdentahreyfingin er sprottin upp úr hreyfingu sem mótmælt hefur ríkjandi stjórn í tvö ár en rekur upphaf sitt til slyss við lestarstöð Novi Sad þar sem 16 manns létust. Hreyfingin hefur nú fellt ríkisstjórn sem ríkt hefur síðustu 14 ár. Úrslitin eru talin geta opnað nýjan kafla í samskiptum Serbíu við Brussel en umsókn landsins um aðild að ESB hefur verið í frosti árum saman vegna lýðræðisbakslags í landinu og tengsla við Moskvu.
|
Al Jazeera, Rapporteur, Radio Free Europe, Deutsche Welle
|
|
|
|
|
|
Luiz Inácio Lula da Silva vann nokkuð óvæntan sigur í seinni umferð forsetakosninga í Brasilíu í gær, nokkrum vikum eftir að hafa tapað fyrri umferðinni fyrir Flávio Bolsonaro, syni fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro. Lula hefur nú sitt fjórða kjörtímabil en Bolsonaro neitar að viðurkenna úrslitin og krefst þess að kosningarnar verði ógiltar. Annars vegar vegna lengri opnunartíma kjörstaða en Hæstiréttur úrskurðaði í gær að kjörstaðir skyldu vera opnir tveimur tímum lengur, meðal annars vegna truflana í almenningssamgöngum á fjölda svæða. Hins vegar vegna meints forskots sem Lula hafði verið veitt á samfélagsmiðlum. Donald Trump studdi Bolsonaro en frambjóðandinn hafði meðal annars heitið því að náða föður sinn, sem situr í fangelsi fyrir tilraun til valdaráns.
|
The Guardian, Al Jazeera
|
|
|
|
|
Selenskí boðar friðarfund
|
|
Fulltrúar Úkraínu og Rússlands munu funda í Abú Dabí í snemma í nóvember til að ræða möguleika á formlegum friðarviðræðum. Fulltrúi Bandaríkjastjórnar mun taka þátt í fundinum. Þetta tilkynnti Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu um helgina og hefur talsmaður Kremlar staðfest að fundurinn verði haldinn. Ríkin tvö skiptust á alls 540 stríðsföngum á föstudag sem flestir höfðu verið í haldi síðan árið 2022.
|
Reuters
|
|
|
|
|
|
Forsetakosningar í Búlgaríu fara óvænt í seinni umferð eftir að Iliana Yotova, sitjandi forseti, og hennar helsti keppinautur Andrey Gyurov, urðu hnífjöfn í fyrri umferðinni í gær. Seinni umferðin fer fram um næstu helgi. Öryggismál hafa orðið áberandi í kosningabaráttunni eftir drónaárásir á kaupskip í efnahagslögsögu Búlgaríu í Svartahafi fyrr í þessum mánuði. Yotovu hefur verið lýst sem vinveittri Rússum og hún er studd af forsætisráðherra landsins. Kjörsókn í fyrri umferðinni var ein sú lægsta í sögunni.
|
Rapporteur, Al Jazeera
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Hallgrímur Helgason: Enginn deyr í IKEA
|
Á gráleitum miðvikudegi í mars fara feðgin saman í IKEA. Ferðin tekur óvæntan snúning þegar þau lokast inni í versluninni yfir nótt.
|
|
Að loknum rómuðum þríleik sínum um síldarævintýrið snýr Hallgrímur Helgason aftur í nútímann í nýstárlegri sögu um hversdag okkar allra – sem verður aldrei samur.
|
|
|
|
|
|
|
|
Það sást á hjartalínuritinu að ég var að skrifa
|
|
Eftir Draumalandið var Andri Snær Magnason gjörsamlega útbrunninn og gat ekki hugsað sér að tala aftur um virkjanir. Síðan hefur bók hans Um tímann og vatnið, og samnefnd heimildarmynd, farið sigurför um heiminn og gert hann að einum áhrifamesta talsmanni náttúruverndar. Hann segir vísindin stærri en tungumálið, að sögur ná betur til fólks en gögn og nú þurfi að vekja nýja kynslóð.
|
|
|
|
|
|
|
|
Steinar Bragi: Frelsarinn
|
Í marga mánuði var slökkt á heiminum – engin ljós, engar fréttir, ekkert net. Mannkyn stóð bjargarlaust andspænis nýjum veruleika: Súpergreind hafði tekið völdin.
|
Þegar kveikt er á öllu á ný stígur fram dularfull kona í Asíu. Hún er kölluð Frelsarinn af fylgjendum sínum og fremur röð kraftaverka sem gefa nýja von. Er hún dýrlingur, slátrari eða bara enn einn svikarinn?
|
|
Í skugga hennar tvinnast saman þrjú líf: herlæknir á Tælandi, tæknijöfur með lykilinn að Endalokunum í vasanum og blind stúlka í norskum firði.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|