|
|
|
|
Fimmtudagur 17. september 2026
|
|
|
|
|
Góðan dag. Borgarráð ræðir afturköllun lóðaúthlutana til trúfélaga. Kjördæmi á landsbyggðinni tapa þingsætum og jöfnunarsætum verður fjölgað samkvæmt tillögum starfshóps. Blóðmerahald er í tvísýnu vegna nýs álits EFTA dómstólsins. ESB hefur aldrei verið sterkara en staða þess á sama tíma ótryggari en nokkru sinni. Kosið verður til þings í Rússlandi um helgina. Donald Trump er æfur yfir vaxtahækkun bandaríska seðlabankans. Ný bók um Díönu prinsessu er vandræðaleg fyrir breska kónginn.
|
|
🌤️🌨️ Fremur hæg breytileg átt, en norðvestan 8-13 m/s fram yfir hádegi austast. Bjartviðri, en súld með köflum norðan- og austanlands í fyrstu og skúrir á Suðausturlandi. Hiti 5 til 13 stig, svalast norðaustantil.
|
|
|
|
|
Utanríkismálanefnd ræðir hvalveiðar
|
|
Ráðherrar svara óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag en geta að því loknu horfið til annarra starfa þar sem þingmannamál fylla dagskrá þingfundar í dag. Hildur Sverrisdóttir mælir fyrir frumvarpi um að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mælir fyrir tillögu um leit að olíu og gasi á landgrunni Íslands. Fleiri þingmenn mæla fyrir fjölbreyttum málum. Nefndir þingsins eru teknar til starfa. Á fundi utanríkismálanefndar í dag verður fjallað um hvalveiðar en ekkert þingmál er þó fram komið um efnið.
|
Alþingi
|
|
|
|
|
|
Borgarráð fjallar í dag um tillögu um afturköllun lóðaúthlutana til Félags múslíma á Íslandi og rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar. Þetta kemur fram á dagskrá fundar borgarráðs sem hefst klukkan 9. Byggingaáform Múslima við Suðurlandsbraut 76 hafa lengi verið til umræðu en félaginu var fyrst úthlutuð lóðin árið 2013. Rússneska rétttrúnaðarkirkjan fékk úthlutun lóðar árið 2008 en hefur heldur ekki hafið framkvæmdir. Bræðraborgarstíg 2 og Bakkastíg 8 árið 2008. Þar hefur heldur ekkert verið byggt. Samkvæmt almennum úthlutunarskilmálum hafa lóðahafar þrjú ár til að hefja framkvæmdir á úthlutuðum lóðum.
|
Reykjavíkurborg, mbl
|
|
|
|
|
Vilja fjölga jöfnunarsætum
|
|
Fækka á kjördæmissætum í sex í hverju kjördæmi, hafa 27 jöfnunarsæti, úthluta þingsætum hlutfallslega eftir fjölda á kjörskrá og breyta úthlutun jöfnunarsæta svo hún verði nær hreinni hlutfallskosningu. Þetta eru tillögur starfshóps dómsmálaráðherra um breytingar á kosningalögum en hópnum var falið að leita leiða til að jafna vægi atkvæða milli kjördæma. Hópinn skipuðu Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, Sigrún Helga Lund, prófessor í tölfræði, og Þorkell Helgason stærðfræðingur. Breytingarnar hefðu mest afgerandi áhrif í Norðausturkjördæmi þar sem þingmönnum myndi fækka úr tíu í sjö.
|
Stjórnarráðið
|
|
|
|
|
|
Blóðtaka úr fylfullum hryssum fellur undir Evróputilskipun um vernd dýra í vísindaskyni og telst til tilrauna á dýrum. Þetta kemur fram í ráðgefandi áliti EFTA dómstólsins til Héraðsdóms Suðurlands. Þessi niðurstaða eykur líkur á að frekari leyfi til blóðmerahalds verði ekki veitt hér á landi en fyrirtækjum hefur verið neitað um leyfi til blóðmerahalds á Evrópska efnahagssvæðinu á grundvelli tilskipunarinnar. Óskað var eftir áliti EFTA dómstólsins vegna málaferla Ísteka og íslenska ríkisins en Isteka stefndi ríkinu eftir að Matvælastofnun synjaði fyrirtækinu um leyfi til blóðmerahalds í vor, á þeirri forsendu að starfsemin uppfyllti ekki skilyrði fyrrnefndrar reglugerðar. Í málflutningi sínum til EFTA líkti Ísteka starfseminni við ostagerð en dómstóllinn hafnaði því og benti á að blóðtaka úr fylfullum hryssum tíðkist hvergi annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu.
|
Vísir
|
|
|
|
|
|
Staða Evrópusambandsins hefur aldrei verið sterkari og er á sama tíma ótryggari en nokkru sinni. Á þessum þversagnakenndu nótum hóf Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, árlega stefnuræðu sína um stöðu sambandsins í Evrópuþinginu í gær. Fyrirheit um aukaaðild Kanada að ESB vakti mesta athygli en haldinn verður leiðtogafundur um hana í október. Forseti Bandaríkjanna tók fréttum af nánara sambandi ESB og Kanada sem persónulegri árás og hótar refsitollum. Fjallað er um yfirlýsingar von der Leyen um notkun gervigreindar á vef Gímaldsins í dag en hún sagði ESB ekki þurfa að þróa sín eigin líkön heldur ætti það að nýta tæknina sem aðrir hafa þróað til að skapa verðmæti.
|
Meðal efnis í ræðu von der Leyen:
|
- Aukaaðild Kanada að ESB
- Viðskiptasamningar ESB við önnur ríki orðnir yfir áttatíu
- Ný tenging Suður-Kákasus og Mið-Asíu við innri markað ESB
- Flaggskipsverkefni um norðurslóðir
- Nýtt öryggisráð Evrópu í samstarfi við Evrópuríki utan sambandsins
- „Byltingakenndar hugmyndir“ um notkun gervigreindar í iðnaði
- Einföldun regluverks og aðgangur að áhættulánsfé
- Takmarkaður aðgangur barna að samfélagsmiðlum
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Bandaríski seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig á miðvikudag, í 3,75 – 4 prósent, í fyrsta sinn í þrjú ár og þvert á ítrekaðar kröfur Trumps forseta um vaxtalækkun. Peningastefnunefnd Seðlabanka Bandaríkjanna var einróma í niðurstöðu sinni og einstaka nefndarmenn gera ráð fyrir að meirihluti hennar muni styðja aðra vaxtahækkun fyrir árslok. Forseti landsins er ekki ánægður með nefndina og krefst þess að hún lækki vextina niður í eitt prósent. Stutt er í þingkosningar í Bandaríkjunum og staða efnahagsmála er talin geta haft veruleg áhrif á úrslit þeirra. Hækkun vaxta kemur sér því ekki vel fyrir Repúblikana sem fara með meirihluta í báðum deildum þingsins.
|
Semafor, The Economist
|
|
|
|
|
„Við verðum nógu fljót að gleyma henni“
|
Charles Spencer, jarl og bróður Díönu prinsessu af Wales, hefur skrifað endurminningabók sem kemur út á Englandi í næstu viku. Daily Mail birtir kafla úr bókinni en þar kemur fram að Karl konungur (þá prins) hafi í bræði látið þau orð falla örfáum dögum eftir dauða prinsessunnar að hún verði “fljót að gleymast”. “We’ll forget her soon enough” á hann að hafa sagt. Bók Spencers vakti óvenju hörð viðbrögð konungsfjölskyldunnar, sem kveðst hafa fyrir reglu að tjá sig ekki um bækur, en að konungurinn „sé meðvitaður um að sorg bróðurins geti slævt dómgreindina og skekkt minningar, jafnvel mörgum árum eftir slíkan missi.”
|
Daily Mail, BBC
|
|
Díana prinsessa lést í bílslysi í París árið 1997, 36 ára að aldri.
|
|
|
|
|
|
Rússar kjósa nýtt þing um helgina, í fyrsta sinn frá því allsherjarstríðið í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Sameinað Rússland, flokkur Vladímírs Pútín forseta, er talið nær öruggt um að halda meirihluta sínum af 450 sætum Dúmunnar. Samkvæmt könnun VTsIOM í lok ágúst mældist fylgi flokksins 37 prósent, en næst kom Kommúnistaflokkurinn með 11,6 prósent. Hæstiréttur landsins hefur bannað framboð frjálslynda flokksins Yabloko, eina flokksins sem er andvígur stríðinu. Eftirlitssamtökin Golos hættu starfsemi 2025 eftir þrýsting stjórnvalda og ÖSE gagnrýnir að ekkert alþjóðlegt eftirlit sé leyft á kjörstöðum. Kosið verður einnig á Krímskaga og í hernumdum héruðum Úkraínu.
|
Reuters
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
Karl Wernersson: The Movie
|
|
Karl Wernersson bauð vinum, vandamönnum og fjölmiðlum í bíósal til að segja sögu sína af sautján ára málaferlum. Á tjaldinu birtust dómsniðurstöður, fjölskyldumyndir og vondi karlinn úr Austin Powers. Í lokin myndaðist röð fólks sem vildi faðma hann.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|