Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Þriðjudagur 13. október 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Ekki alls fyrir löngu fordæmdu Evrópuríki Talibana fyrir kúgun kvenna en vilja nú semja við þá um móttöku fólks sem leitar árangurslaust skjóls undan þeim í Evrópu. Forseti Úkraínu virðist vera eini leiðtogi álfunnar sem stendur fast á prinsippum og sem veldur aldrei vonbrigðum. Nú virðist her hans hafa slökkt á einni helstu áróðursvél Rússa með drónaárásum.

☁️ Hæg suðlæg eða breytileg átt, en suðvestlæg átt, 3-8 síðdegis. Þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi, en lítilsháttar væta þar seinnipartinn. Skúrir sunnan- og vestanlands. Hiti 6 til 10 stig.

Evrópa semur við Talibana

Í júní hittu yfir 20 evrópskir embættismenn fimm fulltrúa talíbana á hóteli við flugvöllinn í Brussel til að ræða beinar brottvísanir Afgana sem leitað hafa hælis í Evrópu en verið synjað. Fjallað er um fundinn í New York Times og athygli vakin á því að Evrópa hafi iðulega fordæmt Talibana fyrir kúgun kvenna en semji nú við þá um að taka við afgönskum flóttamönnum. Ríkisstjórn Friedrichs Merz kanslara Þýskalands er sögð fremst í flokki og hafa nú þegar samið við talíbana um móttöku fólks sem hefur verið brottvísað. Fulltrúar talíbana hafi í staðinn fengið heimild til að starfa á sendiskrifstofum Afganistan bæði í Berlín og Bonn. Frakkar og fleiri ríki eru sögð íhuga að feta sömu slóð. Rússland er eina ríkið sem viðurkennir stjórn talíbana formlega.

New York Times

Lognið á undan storminum

Þótt veðrið sé sakleysislegt í dag er mjög djúp lægð á leið í átt að landinu með vonskuveðri á morgun. Búist er við snjókomu fyrir norðan síðdegis á morgun og annað kvöld. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Gular viðvaranir eru víða um land og varað við ferðalögum og að lausamunir geti fokið. Appelsínugul viðvörun er á Norðvesturlandi og norðanverðum Vestfjörðum. Þar er spáð stórhríð á morgun og engu ferðaverði. „Breyting frá spám gærdagsins er sú að dýpkunin er meiri en áður var gert ráð fyrir. Síðdegis á miðvikudag má þannig sjá töluna 936 hPa skammt undan Hornafirði,“ skrifar Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í færslu á Facebook. Hann segir svo djúpar lægðir fátíðar hér á landi. „Mjög djúpar lægðir eins og sú sem nú er í pípunum valda langoftast óskunda hér og stundum verulegum vandræðum og eignatjóni.“

Veðurstofa Íslands

Bottarnir þagna

Rússneskir áróðursbottar virðast hafa þagnað á samfélagsmiðlum eftir drónaárásir Úkraínumanna á þrjú gagnaver rússneska tæknirisans Yandex um helgina. Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði á öryggisráðstefnu í Varsjá í gær að eftir árásirnar væri auðveldara að anda á samfélagsmiðlum; minna væri um hatur, sundrungu og botta. Samkvæmt gögnum netöryggisfyrirtækisins Cloudflare dróst sjálfvirk netumferð frá Yandex saman um 94 prósent á sunnudag. Á samfélagsmiðlum hefur því einnig verið haldið fram að dregið hafi úr bottavirkni í umræðu um AfD í Þýskalandi og Reform UK í Bretlandi. Sérfræðingar vara þó við oftúlkun. Tölur Cloudflare ná meðal annars til leitarvélabotta sem skrá efni vefsíðna, ekki falskra reikninga sem dreifa áróðri. Samkvæmt tæknimiðlinum Verge sést ekki sambærilegt hrun í heildarumferð botta frá Rússlandi. Yandex, sem stundum er kallað rússneska Google, hefur staðfest að gagnaverin í Sasovo og Vladímír hafi stöðvast alveg. Hvort áróðursvélin stöðvaðist líka er enn ósannað.

AP, Verge

Undirmönnun dauðans alvara

Undirmönnun hjúkrunarfræðinga nemur um 40 prósentum á sextán bráðalegudeildum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri, miðað við stöðluð mönnunarviðmið. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá heilbrigðisráðuneytinu. Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga segir mönnun hafa bein áhrif á afdrif sjúklinga, en á deildunum sem um ræði dvelji margir af veikustu sjúklingum landsins og því sé lítið svigrúm til að mæta álaginu með öðrum hætti.

Vísir

Listamannalaun verði leiðrétt

Bandalag íslenskra listamanna kallar eftir leiðréttingu listamannalauna í umsögn um frumvarp til fjárlaga. Lögum samkvæmt sæta launin árlegri endurskoðun með hliðsjón af launaþróun. Þau hafa hins vegar dregist verulega aftur úr og eru nú 580.000 krónur á mánuði, greidd sem verktakagreiðsla sem jafngildir um 390.000 króna launum. Þau ættu með réttu að vera 801.000 krónur á komandi ári, að sögn BÍL. Listamenn kvarta undan fleiru í frumvarpinu. Bókasafnssjóður höfunda lækkar um rúman þriðjung. Niðurskurðurinn bitnar mest á barnabókahöfundum og þýðendum, sem fá fæstir listamannalaun. „Fólkið sem vinnur að barnabókum er láglaunastétt,“ skrifa samtök barnabókahöfunda, SÍUNG. Þá lækka framlög til kvikmyndasjóðs og er lækkunin sögð fara þvert gegn samþykktri kvikmyndastefnu stjórnvalda og mikilvægi kvikmyndagerðar fyrir íslenska tungu sem eigi undir högg að sækja gagnvart ensku. Umfjöllun um umsagnir við fjárlögin má finna á vef Gímaldsins.

Gímaldið

Nærri 70 var sagt upp í byggingariðnaði í september.

Mikið um uppsagnir og auðar íbúðir

Nærri sjötíu manns var sagt upp í hópuppsögnum í byggingariðnaði í september, en fjöldinn er 128 það sem af er ári, samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun. Fjöldinn tekur aðeins til hópuppsagna og ljóst að heildarfjöldi uppsagna í greininni er hærri. „Þessar hópuppsagnir sýna okkur það sem við vitum – það er kólnun í gangi,“ segir Jón Bjarni Jónsson, formaður Byggiðnar, félags byggingamanna, í samtali við RÚV. Hátt í 2000 nýjar íbúðir standa auðar, 85 prósentum fleiri en fyrir ári. Margar þeirra hafa staðið tómar í meira en ár.

RÚV

Með eða á móti Netanjahú

Ísraelar ganga að kjörborðinu 27. október og margir tala um mikilvægustu kosningar í sögu landsins. Þjóðin er klofin eftir kunnuglegum línum, með og á móti Benjamín Netanjahú forsætisráðherra, en meira er í húfi en áður. Spurningin sé í rauninni hvers konar land Ísrael eigi að vera.

Fjölflokkastjórnir eru venjan í Ísrael. Flokkur Netanjahú styðst við öfgahægriflokka og flokka strangtrúaðra gyðinga. Stjórnarandstaðan er sundurleit en miðhægrimaðurinn Gadi Eisenkot, fyrrverandi yfirmaður hersins og leiðtogi Yashar-flokksins, er fremstur í hennar flokki. Fylkingarnar eru hnífjafnar í könnunum. Stjórnarandstaðan gæti náð meirihluta með flokkum arabískra Ísraela en margir kjósendur vilja ekki ríkisstjórn sem reiðir sig á þá. Gasa og Vesturbakkinn eru lítið rædd í baráttunni og alþjóðleg gagnrýni nánast engin. Búast má við löngum stjórnarmyndunarviðræðum.

New York Times

ESB klofið um fjárlögin

Tvær fylkingar takast nú á um langtímafjárlög ESB. Sparsömu ríkin, sem greiða mest í sjóðina hafa krafist niðurskurðar upp á hundruð milljarða evra og vilja helst byrja á landbúnaðarsjóðunum. Þetta eru Þýskaland, Holland, Austurríki, Danmörk, Svíþjóð og Finnland. Þau vilja hins vegar verja ný útgjöld til varnarmála og samkeppnishæfni. Í hinni fylkingunni eru ríki sem fá mikið úr byggðasjóðum og landbúnaðarstyrkjum, eins og Spánn, Ítalía og Pólland. Nú hafa Írar, sem fara með formennsku í ráðherraráði ESB, lagt fram málamiðlun þar sem slegið er meira af útgjöldum til varnarmála og samkeppnishæfni en landbúnaður og byggðasjóðir að mestu látnir í friði. Sparsömu ríkin eru æf en samheldnu ríkin segja fátt sem þykir til marks um ánægju með tillöguna. António Costa, forseti leiðtogaráðsins tekur nú við keflinu og stefnir á samkomulag fyrir jól. Leiðtogar ESB funda í Brussel á fimmtudag og föstudag. Öll 27 ríkin og Evrópuþingið þurfa að samþykkja fjárlögin.

Rapporteur

Sjötta hver sígaretta fölsuð

Rannsókn BBC hefur leitt í ljós að líklega er um sjötta hver sígaretta sem reykt er í Bretlandi fölsuð vara. Tóbak er flutt frá Kína í verksmiðjur í Evrópu, oftast Belgíu, þar sem það er vafið í sígarettur og pakkað í vandlega falsaðar umbúðir sem eru merktar helstu tóbaksframleiðendum. Milljarðar af Marlboro, Richmond og Rothman’s sígarettum fara svo á markað á Englandi, þar sem þær eru seldar í sjoppum og lágvörumörkuðum á mun lægra verði en ekta vörurnar. Verð á tóbaki er miklu hærra á Englandi en víðast í Evrópu, eða um £16 (2.600kr) pakkinn, en fölsuðu retturnar fást á aðeins um £6, sem er svipað verð og víða á meginlandinu.

BBC

Í stuttu máli:

  • Gerð var húsleit á heimili bandarísku þingkonunnar Ilhan Omar í gær vegna „sakamálarannsóknar“ að sögn dómsmálaráðuneytis landsins. Omar lýsti leitinni sem atlögu að pólitískum andstæðum stjórnvalda og pólitískrar vopnvæðingar alríkislögreglunnar.
  • Manni um þrítugt var bjargað á Sardiníu eftir að grjóthrun varð í helli sem hann var að skoða. Hann hafði setið fastur á 10 metra dýpi í hellinum í 26 klukkutíma þegar honum var bjargað.
  • Maður lést eftir fall úr rússíbana í Georgíufylki í Bandaríkjunum í gær. Rússíbaninn var stöðvaður á miðri leið og rýmdur eftir að maðurinn þeyttist úr sæti sínu og féll til jarðar.
  • Bandaríski leikarinn RJ Mitte er látinn 34 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir hlutverk Walter White Junior í Breaking Bad.

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku

Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi.

Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.

Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.
Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku
Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu

Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu

Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis.

Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“

Feður í fangelsum lýsa kuldalegum og óbarnvænum aðstæðum til heimsókna. Í meistaraverkefni sínu í afbrotafræði tók Árni Sveinsson viðtöl við fimm feður, sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni, um upplifun þeirra af því að takast á við foreldrahlutverk sitt að nýju. Einn þeirra lýsti því þegar börnin hans komu í heimsókn á Kvíabryggju þar sem dæmdir barnaníðingar lögðust ofan á dótið þeirra. 
Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“
Eiríkur Guðmundsson: Maríuklefinn

Eiríkur Guðmundsson: Maríuklefinn

Bréfritari er staddur í Lissabon og vildi að María væri þar með sér, að horfa yfir tígulsteinsþökin og á skipin sem sigla um ána Tagus. Hann sér henni bregða fyrir á götum borgarinnar, sólin er svo heit, og púrtvínið kallar fram undarlegustu myndir. Í löngu bréfi til Maríu skrifar hann um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangs á framandi slóðum.
 
Eiríkur Guðmundsson lést í ágúst árið 2022, 52 ára gamall. Meðal þess sem hann skildi eftir sig voru nokkur handrit. Það eina sem var fullbúið var bréfaskáldsagan Maríuklefinn, sem kemur fyrst út núna, fjórum árum eftir andlát höfundar.

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email