|
|
|
|
Fimmtudagur 22. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Þingstörf verða með öðru sniði í dag en venjulega og einkennast af samtali milli þingmanna og ráðherra. Að loknum óundirbúnum fyrirspurnum verða sérstakar umræður um lyfjagjöf á hjúkrunarheimilum og umönnun aldraðra. Á öðrum þingfundi sem boðaður verður síðdegis svara ráðherrar ýmsum fyrirspurnum þingmanna munnlega, meðal annars um notkun ólöglegra peptíða meðal barna og ungmenna. Fyrir þau sem vilja frekar gleyma sér í bókmenntum en stjórnmálum birtir Gímaldið í dag sýnishorn úr Frelsaranum, væntanlegri skáldsögu Steinars Braga.
|
|
|
|
🌨️ Norðvestan 5-13 m/s á Vestfjörðum með dálítilli slyddu eða snjókomu. Annars suðlæg eða breytileg átt 3-10 og skúrir eða slydduél, en úrkomulítið norðantil framan af degi.
|
|
|
|
|
Borgarbúar ánægðir með sorphirðu
|
|
Yfir sextíu prósent borgarbúa voru ánægð með sorphirðu fyrir sitt heimili í lok síðasta árs, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Maskína gerði fyrir Reykjavíkurborg í nóvember 2025, Könnunin var kynnt á fundi Umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni að beiðni áheyrnarfulltrúa Vinstrisins. Ánægjan jókst frá árinu 2023 þegar tæp 40 prósent voru ánægð. Ánægjan var minnst í úthverfum borgarinnar en þar var þó ekki meiri óánægja en annarsstaðar, heldur voru flestir aðeins í meðallagi ánægðir í úthverfum. Meirihlutinn í Reykjavík áformar nú útvistun sorphirðu í Breiðholti í tilraunaskyni til sex ára.
|
Gímaldið, Reykjavíkurborg
|
|
|
|
|
Áhrif á blöndun hvala rannsökuð
|
|
Blendingar steypireyðar og langreyðar eru vel þekktir við Ísland og eiga nær alltaf steypireyði að móður. Nú hafa vísindamenn Hafrannsóknastofnunar og Háskólans í Barcelona kannað hvort tegundirnar keppi um fæðu. Niðurstöðurnar birtust í tímaritinu Marine Mammal Science. Samkvæmt Hafrannsóknastofnun nærast bæði steypireyðar og langreyðar aðallega á ljósátu og fæðuval þeirra skarast verulega. Blendingarnir líkjast frekar steypireyðum í fæðuvali og notkun búsvæða, hugsanlega vegna þess að þeir læra af móður sinni. Úrtakið er þó lítið: fimm langreyðar, tvær steypireyðar og þrír blendingar. Áhyggjurnar snúa að steypireyðinni, sem er í útrýmingarhættu eftir ofveiði fyrri tíma. Rannsakendur benda á að munur á búsvæðum og hegðun geti dregið úr beinni samkeppni, en telja að mikil fæðuskörun geti ýtt undir blöndun tegundanna. Steypireyðarkýr sem gengur með blending eignast ekki steypireyðarkálf á meðan og það gæti hægt á endurreisn stofnsins.
|
Hafrannsóknastofnun
|
|
|
|
|
Steinar Bragi er í Bókapressunni
|
Frelsarinn eftir Steinar Braga er ekki komin í verslanir en forvitnir lesendur Gímaldsins geta lesið fyrsta kaflann hér. Sagan er „framtíðartryllir um guði og vélar“, það er slökkt á heiminum og Súpergreind hefur tekið völdin. Þegar kveikt er á öllu á ný stígur fram dularfull kona í Asíu. Hún er kölluð Frelsarinn af fylgjendum sínum og fremur röð kraftaverka sem gefa nýja von. Steinar Bragi er í fremstu röð íslenskra skáldsagnahöfunda og tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í tvígang.
|
Gímaldið, Fuglinn útgáfa
|
|
|
|
|
|
Tveir mjög alvarlegir veikleikar fundust í gær í PHP, forritunarmálinu sem knýr stóran hluta internetsins. Allt að sjötíu prósent allra vefsíðna í heiminum reiða sig á PHP, og veikleikinn fær einkunnina 9,2 af 10 á alþjóðlegum skala um hættu í tölvukerfum. Fyrirtæki og stofnanir víða um heim brugðu á það ráð að loka aðgangi að vefsvæðum sínum meðan brugðist var við. Vefur Reykjavíkurborgar lá niðri um tíma vegna gallans. Anton Már Egilsson, forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis, sagði mörg íslensk vefsvæði hafa verið berskjölduð og Bjarki Þór Sigvarðsson hjá CERT-IS sagði ástandið mjög alvarlegt. Hættan var ekki yfirstaðin í gærkvöld. Erlendir netöryggissérfræðingar segja veikleikann upphaflega hafa fundist með hjálp gervigreindar.
|
CERT-IS, RÚV, Syndis, Advania
|
|
|
|
|
|
Fjöldi atvinnulausra í september var 15.300 samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar, eða 5,7 prósent. Hlutfall starfandi var 75 prósent og atvinnuþátttaka 79,6 prósent. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 1,1 prósentustig á milli ágúst og september, hlutfall starfandi hækkaði um 1,2 prósentustig og atvinnuþátttaka jókst um 0,4 prósentustig.
|
Hagstofan
|
|
|
|
|
Opinn fundur með Seðlabanka
|
|
Opinn fundur stendur nú yfir í Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þar sem fjallað er um skýrslu fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir árið 2025. Gestir fundarins eru Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Björk Sigurgísladóttir varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits. Fundurinn hófst klukkan níu og er í beinni útsendingu á vef og sjónvarpsrás Alþingis.
|
Alþingi
|
|
|
|
|
|
Steve Witkoff kallaði Vladimir Putin mannvin þegar þeir hittust í gær. Nafnbótina hlaut Putin fyrir að sleppa 74 ára Bandaríkjamanni úr rússnesku fangelsi þar sem hann hafði verið fangi í meira en 4 ár.
|
Segjast vilja semja en halda áfram árásum
|
Rússar segjast tilbúnir að taka aftur upp þríhliða friðarviðræður við Bandaríkin og Úkraínu en ekki fyrr en eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum í nóvember. Þetta sagði Yuri Ushakov, utanríkisráðgjafi Pútíns, eftir fund forsetans með Steve Witkoff, erindreka Bandaríkjastjórnar, í Sankti Pétursborg í gær. Kreml gaf þó ekki eftir í neinu af meginkröfum sínum, um full yfirráð yfir Donetsk-héraði og að Úkraínu verði ekki veitt aðild að NATO. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segist styðja áframhaldandi viðræður og hefur lagt til að víglínurnar verði frystar sem grunnur að vopnahléi. Á meðan halda árásirnar áfram. Að minnsta kosti sjö létust í árásum Rússa víða í Úkraínu í nótt og fimmtán særðust í Kyiv, að sögn Vitalís Klitschko borgarstjóra. Sergei Sobyanin borgarstjóri Moskvu segir yfir 800 drónum hafa verið beint að Moskvu og nágrenni hennar í nótt.
|
Foreign Policy, Semafor, BBC, Reuters
|
|
|
|
|
Ekkert bólar á nýrri stjórn
|
|
Fimm vikum eftir þingkosningar í Svíþjóð bólar ekkert á nýrri ríkisstjórn. Vinstri- og miðjuflokkarnir fjórir fengu 176 þingsæti af 349 og vilja allir Magdalenu Andersson, formann Jafnaðarmanna, sem forsætisráðherra. Lengra nær samstaðan ekki. Miðflokkurinn (Centerpartiet) vill ekki ráðherra úr Vinstriflokknum og Vinstriflokkurinn styður enga vinstristjórn sem hann á ekki sæti í. Þingið hefur þegar fellt tillögu um að Andersson verði forsætisráðherra; aðeins hennar eigin flokkur studdi hana í þeirri atkvæðagreiðslu. Nú hefur forseti þingsins falið Elisabeth Thand Ringqvist, formanni Miðflokksins, að kanna grundvöll miðjustjórnar án bæði Vinstriflokksins og Svíþjóðardemókrata. Hún hefur frest til mánudags til að mynda stjórn. Sjálfur segist þingforsetinn ekki sjá að neinn stjórnarkostur þokist áfram. Falli fjórar tillögur um forsætisráðherra í sænska þinginu þarf að kjósa aftur innan þriggja mánaða. Þrjár eru eftir.
|
Reuters
|
|
|
|
|
|
Evrópska öfgahægrið talar ekki lengur um að yfirgefa Evrópusambandið heldur um að endurmóta það innan frá. Alice Weidel, annar formanna AfD, kynnti á miðvikudag tillögur flokksins um að færa völd frá Brussel til aðildarríkjanna, viku eftir að Marine Le Pen kynnti sambærilega sýn. AfD vill leggja niður kosningar til Evrópuþings og skipa þess í stað fulltrúa þjóðþinga, gera framkvæmdastjórnina að stjórnsýslustofnun og leyfa ríkjum að segja sig frá samstarfi á borð við Schengen. Útganga er hins vegar ekki á dagskrá flokksins, en náist umbæturnar ekki fram á þýska þjóðin sjálf að ákveða framhaldið, samkvæmt stefnu flokksins. Annars staðar á hægri vængnum segir Nicola Procaccini, annar leiðtoga ECR-hópsins á Evrópuþinginu, hópinn geta gert tilkall til einnar af æðstu stöðum sambandsins á næsta kjörtímabili. Hann bendir á að kosningasigrar á Ítalíu og í Póllandi á næsta ári gætu styrkt stöðuna enn frekar.
|
Deutsche Welle, Euronews, Euractiv
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Steinar Bragi: Frelsarinn
|
Í marga mánuði var slökkt á heiminum – engin ljós, engar fréttir, ekkert net. Mannkyn stóð bjargarlaust andspænis nýjum veruleika: Súpergreind hafði tekið völdin.
|
Þegar kveikt er á öllu á ný stígur fram dularfull kona í Asíu. Hún er kölluð Frelsarinn af fylgjendum sínum og fremur röð kraftaverka sem gefa nýja von. Er hún dýrlingur, slátrari eða bara enn einn svikarinn?
|
|
Í skugga hennar tvinnast saman þrjú líf: herlæknir á Tælandi, tæknijöfur með lykilinn að Endalokunum í vasanum og blind stúlka í norskum firði.
|
|
|
|
|
|
|
|
Frelsi óbreytta þingmannsins: Jón Gnarr og Dagur B. Eggertsson fóru ólíkar leiðir
|
|
Jón Gnarr hefði getað nýtt sér frelsi óbreytts stjórnarþingmanns innan þingflokks Viðreisnar, á svipaðan hátt og Dagur B. Eggertsson hefur gert innan Samfylkingarinnar. Þetta segir Aðalheiður Ámundadóttir, stjórnmálaskýrandi Gímaldsins, um úrsögn Jóns úr þingflokknum í nýjum hlaðvarpsþætti. Fjallað er um brotthvarf Jóns, áhrifin á Viðreisn og einnig rætt um skref sem verið er að stíga í því að minnka áhrif verðtryggingar á fasteignalánamarkaði.
|
|
|
|
|
|
|
|
Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku
|
Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi.
|
Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.
|
|
Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|