|
|
|
|
Föstudagur 11. september 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Árlegt karp um ágæti og vankanta fjárlaga er hafið og heldur umræðan áfram í dag. Stjórnarandstaðan telur hin hallalausu fjárlög of dýru verði keypt en stjórnin heldur sig við það að ríkið skuli ekki reka á yfirdrætti. Fréttir RÚV í gær af sérkennilegu símtali Donalds Trump til Bjarna Benediktssonar vöktu margar spurningar. Sú augljósasta er auðvitað þessi: Af hverju sagði enginn okkur frá þessu símtali fyrr? Fréttabréf dagsins berst nú glóðvolgt á hverjum morgni og við minnum líka á hlaðvarpsrásina Gímaldið sem er aðgengileg á helstu hlaðvarpsveitum og upplagt að fylgja. Í nýjum þætti er rætt við lagaprófessor um bókun 35 og mikilvægi EES-samningsins fyrir íslenskt þjóðfélag.
|
|
|
|
☁️🌧️💨Suðvestan 5-13 og skúrir, en þurrt að kalla á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 6 til 13 stig, mildast á Norðausturlandi. Snýst smám saman í vestan og norðvestan 8-15 með rigningu fyrir norðan seinnipartinn og slyddu til fjalla, fyrst á Vestfjörðum. Kólnar í veðri. Hvassari um tíma í nótt.
|
|
|
|
|
Aðalsteinn fær áheyrn í Strassborg
|
|
Mannréttindadómstóll Evrópu mun taka kæru blaðamannsins Aðalsteins Kjartanssonar til efnismeðferðar. Málið á rætur að rekja til umfjöllunar Stundarinnar um skæruliðadeild Samherja en samkvæmt kæru Aðalsteins brugðust innlendir dómstólar skyldu sinni til að vernda mannorð hans fyrir ítrekuðum ásökunum þekkts bloggara um að hann og aðrir blaðamenn hefðu byrlað skipstjóra ólyfjan og stolið gögnum úr síma hans. Dómstóllinn í Strassborg kallar nú eftir greinargerð um málið frá íslenska ríkinu og óskar svara við tilteknum spurningum um málið auk gagna um umfang sakamálarannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra þar sem Aðalsteinn hafði réttarstöðu sakbornings í hátt á þriðja ár. Fjallað er um málið á vef Gímaldsins í dag.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Þingstörfin eru komin á fullt á Alþingi og fyrsta umræða um fjárlög fór friðsamlega af stað í gær. Fjöldi nýrra þingmála var einnig lagður fram. Frá stjórnarandstöðu eru meðal annars komin mál um eyðingu minks í íslenskri náttúru, einkavæðingu heilbrigðiseftirlits og ýmis mál um íslenska fánann eins og tíðkast á hverju þingi. Þá leggur Njáll Trausti Friðbertsson fram óvenjulega tillögu um að Ísland eigi frumkvæði að viðamiklu samstarfi ríkja við Norður-Atlantshaf á sviði verslunar, menningar og vísinda: eins konar afbrigði af ESB en þó án alls valdaframsals. Í þessu nána bandalagi yrðu, auk Íslands, vinaþjóðirnar Bandaríkin, Kanada, Grænland, Noregur, Bretland, Færeyjar og mögulega fleiri. Samkvæmt tillögunni yrði utanríkisráðherra falið að eiga frumkvæði að þessu víðtæka samstarfi.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Atvinnulóðum skilað í Reykjavík
|
|
Þremur atvinnulóðum sem borgin hafði úthlutað til fyrirtækja hefur verið skilað á síðustu vikum. Tvö erindi frá umhverfis- og skipulagssviði voru lögð fram á fundi borgarráðs í gær þar sem ráðið var beðið að samþykkja að afturkalla lóðavilyrði á Hólmsheiði. Áður hafði fyrirtæki óskað eftir að skila lóð sem úthlutað hafði verið á Esjumelum. Fulltrúar Samfylkingarinnar létu bóka vegna þessa að fyrirtækjum hafi fjölgað í borginni á síðustu sextán árum og störfum einnig, sem hafi sýnt trú á framtíð Reykjavíkur. „Þegar þrjú fyrirtæki skila atvinnulóðum á stuttum tíma þarf að skoða það í stærra samhengi. Neikvæð umræða um borgina, ásamt óvissu um lykilinnviði á borð við Borgarlínuna og hægagang í stórum úthlutunarverkefnum íbúðarlóða, getur haft alvarleg keðjuverkandi áhrif á fjárfestingavilja. Fyrirtæki og fjárfestar halda að sér höndum ef þau skynja óvissu í brúnni í miðjum efnahagsstormi.“
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Reuters ræðir hvalveiðibann
|
|
Reuters segir frá því í dag að íslenska ríkisstjórnin muni leggja til varanlegt bann við hvalveiðum með frumvarpi sem leggja eigi fram í febrúar. Þetta komi fram á vef stjórnarráðsins seinnipartinn á miðvikudag. Verði frumvarpið að lögum, segir í frétt Reuters, verða Noregur og Japan einu ríki heims sem enn stunda hvalveiðar í atvinnuskyni. Líklega er þarna vísað til þingmálaskrár stjórnarinnar sem birt var á miðvikudagskvöld. Í henni er reyndar ekki svona skýrt kveðið að orði en þó sagt að lög um hvalveiðar verði endurskoðuð og áhrif varanlegs banns, meðal annars á eignarétt og atvinnufrelsi.
|
Reuters, Stjórnarráðið
|
|
|
|
|
Ræddi innlimun Íslands við Bjarna
|
|
Donald Trump Bandaríkjaforseti stakk upp á því í símtali við Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, að Ísland yrði innlimað í Bandaríkin og gert að 51. ríki landsins, samkvæmt minnisblaði sem starfsmaður forsætisráðuneytisins ritaði í lok nóvember 2024, fjórum dögum fyrir þingkosningar. Vísaði Trump til vina og vandamanna sem rætt hefðu sín á milli um innlimun Íslands og þegar Bjarni reyndi að eyða því tali bað Trump hann að hugsa málið vandlega eftir að hann hefði unnið kosningarnar. Minnisblaðið var rætt í utanríkismálanefnd nýverið og er nú sett í samhengi við kort sem Trump birti af Íslandi sveipuðu bandaríska fánanum og orð sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í upphafi árs um að hann yrði ríkisstjóri á Íslandi þegar það yrði 52. ríki Bandaríkjanna.
|
RÚV
|
|
|
|
|
Klofin þjóð 25 árum eftir 9/11
|
Bandaríkjamenn minnast þess í dag að tuttugu og fimm ár eru liðin frá hryðjuverkaárásunum á tvíburaturnana í New York þann 11. september 2001. Um þrjú þúsund manns týndu lífi í árásunum. Meðal áherslna í umfjöllun fjölmiðla vestanhafs á þessum tímamótum er hversu klofin bandaríska þjóðin er í bæði minningum sínum um áfallið og í afstöðu til eftirmála árásanna. Um 48 prósent Bandaríkjamanna telja að stríðin í Írak og Afganistan og aukið eftirlit innanlands í kjölfar árásanna hafi verið þess virði en afar umfangsmikið eftirlitskerfi með innlendum og erlendum borgurum sem tekið var upp eftir árásirnar er að mestu enn við lýði.
|
Just Security, The Economist, Semafor
|
|
|
|
|
Hútar ná lykilhöfn í Jemen
|
|
Hútar í Jemen náðu hafnarborginni Mokha á sitt vald í gær og komust þar með skrefi nær því að ráða yfir Bab el-Mandeb-sundinu sem tengir Rauðahaf við Adenflóa. Sundið hefur orðið sífellt mikilvægara fyrir olíuflutninga eftir að siglingar um Hormuz-sund lokuðust. Sérfræðingar segja fall borgarinnar geta veitt Hútum, og þar með Íran, varanlegt tak á einni helstu siglingaleið heims.
|
Foreign Policy, Semafor
|
|
|
|
|
ESB hækkar vexti öðru sinni
|
|
Seðlabanki Evrópu hækkaði stýrivexti um fjórðung prósentustigs í gær, upp í 2,5 prósent, í annað sinn frá því að stríðið milli Íran og Bandaríkjanna hófst í febrúar. Christine Lagarde bankastjóri sagði átökin fyrir botni Miðjarðarhafs áfram valda verðbólguþrýstingi sem gæti haldist yfir tveggja prósenta markmiði bankans fram til 2028. Ákvörðunin kom ekki á óvart enda hafði olíuverð rokið upp samhliða hertri sókn Húta í Jemen og markaðir búast við að seðlabankar Englands, Japan og Bandaríkjanna hækki einnig vexti á fundum sínum í næstu viku.
|
Foreign Policy, Semafor
|
|
|
|
|
Öfgaflokkar þrífist á dvínandi hagvexti
|
|
Sendiherrar aðildarríkja ESB áttu í gær hádegisfund með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, og hvöttu hana til að beina stefnuræðu sinni í næstu viku að nauðsyn þess að snúa við dvínandi hagvexti sambandsins og taka fastar á innflytjendamálum. Óánægja með efnahagsmál er sögð ýta undir fylgisaukningu öfgahægriflokka um álfuna. Tékkland og Pólland vilja slaka á loftslagsreglum til að létta undir með iðnaði, en Svíþjóð og Eystrasaltsríkin vara við að það grafi undan fyrirtækjum sem þegar hafa fjárfest í grænum umskiptum.
|
Politico
|
|
|
|
|
Vaxandi ótti um gervigreind
|
|
Fjöldi þekktra sérfræðinga í gervigreind varaði í vikunni við mikilli ógn af tækninni. Lýsa þeir ýmist raunverulegri hættu á hamfarakenndu og óafturkræfu stjórnleysi tækninnar í náinni framtíð og að tíu prósent líkur á útrýmingu mannkyns séu „ekki fjarstæðukennt mat“. Yfirlýsingarnar koma í kjölfar þess að fyrrverandi starfsmaður Anthropic sakaði fyrirtækið og helstu keppinauta þess um að „veðja lífi okkar allra“ í kappi um sjálfbæra ofurgreind.
|
Semafor, Forbes, BBC
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|