Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Miðvikudagur 14. október 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Veðrið á hug okkar flestra í dag. Appelsínugular viðvaranir gilda víða og ekkert ferðaveður er í landinu. Verkalýðshreyfingin hefur þó um annað að hugsa en ársþing ASÍ verður sett í dag. Seðlabanki Íslands þarf ef til vill að hugsa ráð sitt en ummæli úr þeirri átt valda æ oftar hneykslan þeirra sem kjörin hafa verið til að stýra landinu.

⚠️ 🌧️ 💨 Gengur í austan og norðaustan hvassviðri, storm eða rok með talsverðri eða mikilli rigningu í dag, en slydda eða snjókoma til fjalla fyrir norðan og vestan. Hiti 3 til 10 stig, mildast syðst. Dregur úr vindi og úrkomu sunnan- og austanlands síðdegis, en snýst þá í norðan 18-25 um landið norðvestanvert með talsverðri snjókomu eða slyddu. Kólnandi veður seint í dag.

Brjálað veður í dag

Mikið hvassviðri og norðanstórhríð geisar á landinu í dag og í kvöld. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Suðurlandi og stendur yfir til klukkan tíu. Klukkan ellefu tekur appelsínugul viðvörun gildi á Snæfellsnesi og á Breiðafirði, þar næst á Vestfjörðum klukkan fimm síðdegis og á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan níu í kvöld. Gular viðvaranir verða einnig í gildi víða um land. Í tilkynningu frá Vegagerðinni er bent á að vindhviður geti farið upp í 40 metra á sekúndu. Vegum verður lokað víða og er fólki ráðlagt að fresta ferðum og fylgjast vel með veðurspám og upplýsingum um færð á vegum.

Veðurstofa Íslands

Hneyksluð á ummælum frá Seðlabanka

Ummæli varaseðlabankastjóra í þættinum Spursmálum rýra traust ASÍ til Seðlabankans, segir Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ. Í þættinum sagði Þórarinn G. Pétursson að þótt fyrirséð hefði verið að hægt yrði að draga mikið úr verðbólgu á árinu, hefði bankinn getað búið til „nógu mikinn slaka í þjóðarbúinu þannig að atvinnuleysi verði orðið það mikið að það verði ekki áhugi fyrir að segja upp þessum samningum.“ Finnbjörn segir óábyrgt af varaseðlabankastjóra að lýsa því yfir að bankinn búi til atvinnuleysi til að þvinga verkalýðshreyfinguna til ákvarðana sem honum líki. Ummælin rýri traust ASÍ til bankans og sambandið þurfi að endurskoða stefnu sína gagnvart honum. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, gagnrýndi ummælin einnig í Kastljósi á RÚV í gær.

RÚV

Ársþing ASÍ hefst í skugga deilna

Ársþing Alþýðusambands Íslands hefst í dag og stendur til föstudags. Nýr forseti verður kjörinn á þinginu en djúpstæður ágreiningur innan hreyfingarinnar gæti stolið senunni. Deilt er bæði um áherslur og forystu en undanfarna daga hafa hvassar skeytasendingar farið opinberlega milli formanna tveggja stærstu verkalýðsfélaga landsins. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur hvatt alla verkalýðshreyfinguna til samstöðu.

Gímaldið, MBL, Vísir

Verðtryggð lán 25 ára að hámarki

Verðtryggð fasteignalán til neytenda verða að hámarki aðeins til 25 ára en ekki 40 ára, verði fyrirætlanir fjármálaráðherra að veruleika. Áform um lagasetningu í þessa veru eru til kynningar í samráðsgátt. Þar segir að lánveitendum verði þó heimilt að veita tiltekinn hundraðshluta lána umfram hámarkið; hversu hár hann verður kemur ekki fram. Til að loka hjáleiðum á einnig að setja þak á annan kostnað sem bætist við höfuðstólinn ár hvert. Sambærileg frumvörp voru lögð fram á Alþingi 2016 og 2020, en því síðara var vísað til ríkisstjórnarinnar í júní 2021. Gert er ráð fyrir að lög með þessu efni taki gildi 1. janúar 2027.

Samráðsgátt

Viðbragðsaðilar í Kyiv bregðast við árás Rússa á borginna á mánudag.

Engar viðvaranir til Úkraínu

Úkraínsk stjórnvöld segjast engar viðvaranir hafa fengið frá bandamönnum í aðdraganda árása Rússa á Kyiv síðustu tvo daga. Rússar hafa haldið áfram árásum sínum á orkuinnviði þrátt fyrir einhliða yfirlýsingar Bandaríkjaforseta um árásahlé, ólíkt Úkraínu sem kveðst hafa látið rússneskar olíuhreinsistöðvar í friði síðan. Tólf öldungadeildarþingmenn skora nú á Trump að falla frá dísilsamningi sínum við Pútín, sem þeir segja hjálpa Moskvu að halda stríðinu áfram. Burnham forsætisráðherra Bretlands tekur á móti Selenskí í Downingstræti í dag. Hann hefur falið ráðherrum sínum að undirbúa frekari þvinganir og hernaðaraðstoð.

Guardian

Rússar skiptu sér af Brexit segir MI5

Rússar reyndu að hafa áhrif á Brexit-atkvæðagreiðsluna 2016 en ekkert bendir til þess að það hafi haft úrslitaáhrif á niðurstöðuna. Þetta sagði Ken McCallum, yfirmaður bresku leyniþjónustunnar MI5, í árlegri yfirferð sinni um ógnir við öryggi Bretlands á þriðjudag. Rússnesku ríkismiðlarnir RT og Sputnik hafi birt hlutdrægar fréttir gegn innflytjendum og ESB og falsreikningar, einkum á Twitter, reynt að hafa áhrif á kjósendur. Hvorug aðferðin hafi þó verið háþróuð eða borið árangur. McCallum tók þar undir með Andy Burnham forsætisráðherra, sem vakti máls á þessu um helgina og sagðist hafa fengið skýrt svar um að Rússar hefðu skipt sér af kosningabaráttunni. Daginn eftir dró Burnham í land þegar Íhaldsflokkurinn spurði hvort hann teldi niðurstöðuna ólögmæta. McCallum varaði jafnframt við því að áframhaldandi þref um málið gæti fært Kremlverjum óþarfan áróðurssigur. Gímaldið biðst velvirðingar á sínum hlut.

Gímaldið

Starfið mikilvægara en launin

Innihaldsrík vinna, sveigjanleiki og starfsöryggi skipta vísindafólk meira máli en laun. Þetta sýnir könnun Nature meðal um 3.900 vísindamanna frá 133 löndum. Fastráðið, vel launað og hærra sett vísindafólk er ánægðara en annað. Ánægðast er vísindafólk í Kanada, af löndum með yfir 100 svarendur, en óánægðast í Kína, þótt það telji framtíðarhorfur sínar líklegast betri en hjá fyrri kynslóðum.

Nature

Í stuttu máli:

  • Pólska lögreglan hefur handtekið annan mann fyrir að hvetja opinberlega til þess að forsætisráðherra landsins verði tekinn af lífi.
  • Leo páfi hefur greinst með lungnakrabbamein.
  • Úkraínska knattspyrnuliðið Shakhtar Donetsk mun spila heimaleiki sína í Meistaradeild Evrópu á velli Chelsea, Stanford Bridge í London. Framkvæmdastjóri félagsins segir liðið spila fyrir alla Úkraínu.
  • Hernaður Sáda og Húta heldur áfram að harðna. Flugskeytabrot særðu fjóra í Ríad og umsátur þeirra um borgina Taiz veldur fæðuskorti meðal íbúa.
  • Anthropic varar við því að líkön fyrirtækisins muni innan fárra mánaða hafa getu til að fjölga sér sjálf og smeygja sér inn í nettengd heimilistæki, Fyrirtækið kallar eftir auknum öryggisráðstöfunum til að bregðast við þróuninni.

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku

Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi.

Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.

Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.
Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku
Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu

Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu

Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis.

Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“

Feður í fangelsum lýsa kuldalegum og óbarnvænum aðstæðum til heimsókna. Í meistaraverkefni sínu í afbrotafræði tók Árni Sveinsson viðtöl við fimm feður, sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni, um upplifun þeirra af því að takast á við foreldrahlutverk sitt að nýju. Einn þeirra lýsti því þegar börnin hans komu í heimsókn á Kvíabryggju þar sem dæmdir barnaníðingar lögðust ofan á dótið þeirra. 
Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“
Eiríkur Guðmundsson: Maríuklefinn

Eiríkur Guðmundsson: Maríuklefinn

Bréfritari er staddur í Lissabon og vildi að María væri þar með sér, að horfa yfir tígulsteinsþökin og á skipin sem sigla um ána Tagus. Hann sér henni bregða fyrir á götum borgarinnar, sólin er svo heit, og púrtvínið kallar fram undarlegustu myndir. Í löngu bréfi til Maríu skrifar hann um allt sem sækir á hugann, leiftur úr bókmenntum og mannkynssögunni og það sem verður á vegi ferðalangs á framandi slóðum.
 
Eiríkur Guðmundsson lést í ágúst árið 2022, 52 ára gamall. Meðal þess sem hann skildi eftir sig voru nokkur handrit. Það eina sem var fullbúið var bréfaskáldsagan Maríuklefinn, sem kemur fyrst út núna, fjórum árum eftir andlát höfundar.

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email