Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Miðvikudagur 30. september 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Alvarleg stjórnarkreppa virðist vera að teiknast upp í Svíþjóð eftir að formaður Jafnaðarmannaflokksins gafst upp á stjórnarmyndun til vinstri. Fráfarandi forsætisráðherra, Ulf Kristersson, virðist lítt spenntur að taka við keflinu og bendir á formenn annarra flokka. Forseti sænska þingsins hittir formenn í dag til að veita umboð til stjórnarmyndunar. Svo kann að fara að kjósa verði aftur náist ekki að mynda stjórn. Hér á Íslandi geta Evrópuflokkarnir glaðst yfir vaxandi fylgi á kostnað sigurvegara þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

🌧️💨 Austlæg átt, 10-18 m/s, en 18-23 um tíma syðst framan af morgni. Rigning víða um land, talsverð eða mikil úrkoma suðaustanlands. Hægari og rofar víða til seinnipartinn, en hvessir aftur og bætir í úrkomu í kvöld.

Verðbólga eykst enn

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39 prósent milli mánaða í september og mælist verðbólga nú 5,9 prósent á ársgrundvelli. Þetta er fjórði mánuðurinn í röð sem hún hækkar. Hækkunin þrengir svigrúm Seðlabankans til að lækka stýrivexti en peningastefnunefnd bankans kemur saman eftir viku. Hækkunin boðar heldur ekki gott fyrir frið á vinnumarkaði en stéttarfélögin hafa frest til næsta fimmtudags til að segja kjarasamningum upp eftir að forsendur þeirra brustu í síðasta mánuði.

Gímaldið, Hagstofa Íslands, RÚV

Evrópuflokkar bæta við sig

Evrópuflokkarnir tveir, Samfylkingin og Viðreisn, bæta við sig fylgi samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup en flokkarnir sem höfðu sig mest í frammi gegn viðræðum við ESB tapa fylgi. Engar meiriháttar sviptingar eru þó á milli kannana. Mest hreyfing er á fylgi Sjálfstæðisflokksins sem tapar tveimur prósentustigum milli kannana. Flokkur fólksins heldur áfram að tapa fylgi og er kominn undir fimm prósenta þröskuldinn en Framsókn réttir aðeins úr kútnum og mælist með tæp sex prósent. Aðrir flokkar næðu ekki manni á þing.

  • Samfylkingin 30,8% – 23 þingmenn
  • Sjálfstæðisflokkurinn 24,7% – 18 þingmenn
  • Miðflokkurinn 15,0% – 11 þingmenn
  • Viðreisn 10,6% – 7 þingmenn
  • Framsóknarflokkur 5,9% – 4 þingmenn
  • Flokkur fólksins 4,0%
  • Vinstri græn 3,7%
  • Píratar 2,7%
  • Sósíalistar 2,4%

RÚV

Ómenntuðum fækkar

Ísland ver 5,2 prósentum af vergri landsframleiðslu til menntamála en meðaltal OECD-ríkjanna er 4 prósent. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar, Education at a Glance 2026, sem birt var í gær. Kennaraskortur er viðvarandi vandamál á Íslandi líkt og í flestum OECD-ríkjum. Hér höfðu 19 prósent fólks á aldrinum 25 til 34 ára enga menntun umfram skyldunám en þetta hlutfall hefur lækkað verulega frá árinu 2005 þegar það stóð í 27 prósentum. Ísland er þó enn yfir meðaltali OECD ríkja sem er 12 prósent. Aðeins 5 prósent ungmenna 18 til 24 ára voru hvorki í námi, starfi né starfsþjálfun árið 2025, sem er mjög lágt hlutfall í samanburði við 13 prósent innan OECD. Um 12 prósent íslenskra námsmanna stunda nám erlendis, tvöfalt meðaltal OECD. Þriðjungur þeirra fer til Danmerkur.

Stjórnarráðið

Landspítali hjálpar Vogi

Landspítali mun tímabundið taka að sér læknisþjónustu á Vogi en harðar deilur milli starfsfólks og stjórnar SÁÁ hafa leitt til uppsagna og skertrar þjónustu. Enginn var lagður inn til meðferðar á spítalanum í síðustu viku. Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala segir læknisþjónustu á vegum félagasamtaka barn síns tíma, en uppsagnir og veikindaleyfi starfsfólks valda því að langt um færri fá meðferð við fíknisjúkdómum en þörf er á.

RÚV

Ná „siðferðilega bindandi“ samkomulagi

Forstjórar helstu fyrirtækja Bandaríkjanna á sviði gervigreindar undirrituðu í gær samkomulag um aukið eftirlit með tækninni. Donald Trump forseti Bandaríkjanna ritaði einnig undir skjalið og sagði fréttamönnum að það væri aðeins „siðferðilega bindandi“. Sjálft samkomulagið hefur ekki verið birt og óljóst er hvernig því verður framfylgt. Sama dag undirritaði Trump tilskipun um að endurnefna gervigreind sem „ofurgreind“ í opinberum gögnum stjórnvalda.

Politico

Úkraína nálgast aðild

Svartfjallaland, Úkraína, Moldóva og Albanía eru fremst í röð umsóknarríkja um aðild að Evrópusambandinu. Unnið er að tillögum um vegvísa síðasta spöl þeirra til aðildar. Önnur ríki fá ekki vegvísi að svo stöddu: hvorki Norður-Makedónía, Bosnía og Hersegóvína né Kosovo. Ekki heldur Georgía, Tyrkland og Serbía, en umsóknarferli þeirra síðastnefndu hefur stöðvast vegna bakslags í lýðræði og réttaröryggi.

Politico

Svört skýrsla um hafið

Heimshöfin tóku við meiri varmaorku en nokkru sinni á síðasta ári, eða um fertugfaldri þeirri orku sem mannkynið notaði allt árið. Þetta kemur fram í tíundu útgáfu skýrslu Copernicus um ástand hafsins. Samkvæmt skýrslunni hefur sjávarborð hækkað um 3,8 millimetra á ári frá 1999, en um 4,2 millimetra á ári frá 2012. Hafið er 17 prósentum súrara en fyrir 40 árum. Það hefur tekið til sín um þriðjung þess koltvísýrings sem mannkynið hefur losað og um 90 prósent umframhitans sem gróðurhúsalofttegundir hafa fangað. Frá janúar 2023 til september 2025 urðu 84 prósent kóralrifja heims fyrir skemmdum af hitaálagi og í fjórum keisaramörgæsabyggðum á Suðurskautinu komst enginn ungi á legg árið 2022.

The Guardian

Fallöxi vofir yfir City

Breska knattspyrnuliðið Manchester City hefur verið sakfellt fyrir fjölmörg alvarleg brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Þetta kemur fram í harðorðri yfirlýsingu frá deildinni en samkvæmt henni mun félagið hafa brotið reglurnar kerfisbundið í heilan áratug. Meðal alvarlegustu brota félagsins eru málamyndasamningar við styrktaraðla sem ætlað var að fela mikinn fjárstraum inn í félagið frá eiganda þess, Abu Dhabi United Group. Samkvæmt niðurstöðunni hagnaðist félagið um 900 milljónir punda, eða rúmlega 144 milljarða króna, með hinum ólöglegu gjörningum. Niðurstöðu um viðurlög er enn beðið en búist er við háum sektum og svo miklum stigafrádrætti að liðið muni falla úr úrvalsdeildinni í vor. Félagið hyggst áfrýja niðurstöðunni.

Premier League, The Guardian

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.


Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.


Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email