Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Þriðjudagur 8. september 2026

Aðalheiður Ámundadóttir
Góðan dag. Þing kemur saman í dag eftir viðburðaríkt sumar. Þjóðaratkvæði, vaxandi verðbólga, brostnar forsendur kjarasamninga og þrálátur órói á alþjóðavettvangi. Stjórnin mætir til þings með fögur fyrirheit um hallalaus fjárlög en stjórnarandstaðan mætir vígreif eftir sigurinn í ágúst. Þótt fjárlögin muni eiga sviðið fyrstu daga þingsins má áfram búast við hörðum deilum um Evrópumál þegar líða tekur á haustið.

🌤️Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt í dag og léttskýjað, en suðvestan 8-15 m/s norðvestanlands seinnipartinn. Þykknar upp vestantil í kvöld. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast norðan heiða.


Átakavetur í vændum

Stjórnarandstaðan hyggst láta kné fylgja kviði þegar þing kemur saman og boðar tillögu um afturköllun umsóknar um aðild að ESB. Það kann að koma sér illa fyrir ríkisstjórnina, enda hefur Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, ítrekað lagt slíka tillögu fram á þingi með stuðningi þingflokks síns. Viðreisn vill hins vegar ekki heyra á slíkt minnst og forsætisráðherra hefur gefið til kynna að taka verði tillit til þeirra 47 prósenta sem sögðu já í ágúst. Ríkisstjórnin kynnir helstu áherslumál vetrarins á fundi með blaðamönnum núna klukkan níu. Stjórnin hefur heitið því að standa vörð um EES-samninginn og réttindin sem hann tryggir og mun í því skyni leggja áherslu á að koma Bókun 35 gegnum þingið. Það mál mætir mikilli andstöðu í flokkum stjórnarandstöðunnar.

Deilt um hallalaus fjárlög

Afkoma ríkissjóðs verður jákvæð um fimm milljarða króna nái nýkynnt fjárlagafrumvarp fram að ganga. Skuldir ríkissjóðs aukast samt um 196 milljarða. Fjármögnunin byggir á 75 prósenta hækkun bankaskatts, hækkuðu kílómetragjaldi, nýju innviðagjaldi á ferðamannastaði og hærri virðisauka af ferðaþjónustu. Mjög skiptar skoðanir eru um hvort frumvarpið letji eða hvetji til verðbólgu og krónutöluhækkanir eru sérstaklega gagnrýndar. Frumvarpið er gagnrýnt bæði frá vinstri og hægri. Skattahækkanir á fyrirtæki komi sér illa í aðdraganda kjaraviðræðna og gjaldskrárhækkanir og niðurskurður komi verst niður á þeim sem síst skyldi. Ferðaþjónustan er brjáluð og listamenn ekki síður. Fyrsta umræða um fjárlög hefst á fimmtudag.

Stjórnarráðið, RÚV, Vísir

Fyrstu dagar haustþings

  • Ríkisstjórn kynnir þingmálaskrá á fundi með blaðamönnum í dag kl. 9.00
  • Alþingi sett í dag kl. 13.30.
  • Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana á miðvikudag kl. 19.40.
  • Fyrsta umræða um fjárlög hefst á fimmtudag kl. 11.00.

Niðurstöður PISA kynntar

Töluverð spenna ríkir um niðurstöðu PISA-könnunar OECD, sem mælir færni fimmtán ára nemenda í stærðfræði, lestri og raungreinum á þriggja ára fresti. Evrópulönd hafa komið heldur illa út úr könnuninni á undanförnum árum og Ísland er þar engin undantekning. Evrópusambandið er með nýjan menntapakka í smíðum sem ætlað er að sporna gegn hnignandi árangri. Í álfunni stóðu eistnesk og írsk börn sig best árið 2022, en Búlgaría, Rúmenía, Kýpur og Grikkland verst. Ísland var á svipuðu róli og þau síðarnefndu. Ný skýrsla um niðurstöður íslenska prófsins verður kynnt í Háskóla Íslands klukkan 14 í dag.

Politico, Háskóli Íslands

Ísland á radar Trumps

Ísland er sveipað bandaríska fánanum á mynd sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti á mánudag á Truth Social í gær. Á myndinni þekur fáninn Bandaríkin, Mið-Ameríku, Kanada, Grænland og Ísland. Þótt ekki verði fullyrt um tilefnið var eftir því tekið að myndin birtist í kjölfar fregna af auknum fjárveitingum ESB til Grænlands. Birtingin vakti hörð viðbrögð hér innanlands. Utanríkisráðherra kallaði sendiherra Bandaríkjanna, á sinn fund og sagði færsluna „með öllu óviðeigandi,“ Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, kallaði eftir fundi í Þjóðaröryggisráði og þingmennirnir Sigmar Guðmundsson og Dagur B. Eggertsson sögðu málið grafalvarlegt og kölluðu eftir afsökunarbeiðni frá forsetanum. Aðrir eru þó á öndverðri skoðun. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, gerir lítið úr vægi kortsins og leggur til að meiri rækt verði lögð í samband Íslands og Bandaríkjanna.

RÚV, Mbl, DV

VW breytir bílum í byssur

Bílaframleiðandinn Volkswagen hefur gert bráðabirgðasamning um að selja verksmiðju sína í Osnabrück í Neðra-Saxlandi til fylkisstjórnarinnar og ísraelska fjárfestingarfélagsins Aurelius Capital. Stefnt er að því að um mitt næsta ár muni verksmiðjan, sem framleitt hefur bíla um áratugaskeið, hefja framleiðslu á hergögnum fyrir fyrirtækið Rafael Advanced Defence Systems, en það er fyrirtækið á bak við Iron Dome-eldflaugavarnarkerfið.

France 24

AfD mótmælt í Berlín

Sex af hverjum tíu Þjóðverjum kveðast uggandi yfir uppgangi Alternative für Deutschland í landinu, samkvæmt nýrri könnun, degi eftir að flokkurinn vann sögulegan sigur í Saxlandi-Anhalt. Þúsundir mótmæltu við Brandenborgarhlið í Berlín í gær. AfD vantar þrjú sæti upp á hreinan meirihluta í fylkisþinginu og leita nú fyrir sér um samstarf við aðra flokka. Fyrir kosningarnar mynduðu aðrir flokkar svokallaðan eldvegg og hétu því að vinna ekki með AfD eftir kosningar. Það kemur í ljós á næstu dögum hve sterkur sá veggur reynist vera.

Politico, Reuters

Árásum á Kyiv framhaldið

Rússland hóf árásir á Kyiv að nýju í gærkvöldi, eftir þriggja daga hlé sem stóð yfir meðan erindrekar Bandaríkjaforseta funduðu með ráðamönnum í Moskvu og Kyiv. Selenski Úkraínuforseti segir Rússa hafa sýnt samningsvilja en búast megi við átökum fram á veturinn.

France 24, RÚV

Trump miðar á Bombardier

Gagntollar Kanada á bandarískar vörur tóku gildi á miðnætti. Umfang þeirra er talið vera milli 20 og 30 milljarðar bandaríkjadala. Engar viðræður hafa verið boðaðar í því skyni að leysa tollastríð ríkjanna. Hvíta húsið heitir frekari aðgerðum gegn Kanada og í gær hótaði Donald Trump að banna kanadíska flugvélaframleiðandanum Bombardier að selja vélar í Bandaríkjunum nema fyrirtækið hefji framleiðslu þar í landi.

France 24, Euronews

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín

Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.

Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
Sæunn Kjartansdóttir: Margbrotna systir mín
Þinghúsið í Washington, Capitol, undir skýjuðum himni

Hlaðvarp: Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps

Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.

Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
Kristín Ómarsdóttir: Móðurást: Lausnargjaldið

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.

Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.

Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email