Share this emailCopy the public link or share it on your favorite channel.

Föstudagur 16. október 2026

Eyrún Magnúsdóttir
☕️ Góðan dag. Október er mánuður forvarna og undanfarið hafa verið ýmsir fundir og málþing þar sem rætt er um forvarnir, einkum í þágu barna og ungmenna. Áskoranir eru margar, bæði í raunheimum og netheimum. Fylgst er með ólíkum áhrifaþáttum í lífi barna og ungmenna til að leggja mat á stöðuna. Einn þeirra þátta er einmanaleiki, en samkvæmt tölum Landlæknis sækir hann nú á yngra fólk í auknum mæli. Áður hefur einmanaleiki frekar verið tengdur eldra fólki. Það er brýnt að skoða umhverfi ungs fólks út frá þessum gögnum og grípa til viðeigandi aðgerða. Samvera er lýðheilsumál.

🌨️🌤️ Suðvestan 8-13 m/s í dag og lítilsháttar skúrir, en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti víða 4 til 10 stig.

Ný forysta kjörin í dag

Ný forysta ASÍ verður kjörin á þingi sambandsins í dag. Tveir eru í kjöri til forseta: Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðlafræðingur sem hefur starfað á skrifstofu ASÍ, og Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU. Þá verða kosnir varaforsetar en þær Halla Gunnarsdóttir, formaður VR og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gefa báðar kost á sér í embætti fyrsta varaforseta. Tillaga um að fækka varaforsetum úr þremur í einn var felld í leynilegri atkvæðagreiðslu í gær. Fleiri voru hlynntir tillögunni en andvígir henni, en tvo þriðju atkvæða þarf til að samþykkja slíka tillögu. Eftir atkvæðagreiðsluna í gær sagði Sólveig Anna ljóst að hún myndi tapa fyrir Höllu í kosningu um varaforseta. Efling væri með aðild sína að ASÍ til skoðunar. Þá hefur Halla lýst því yfir að sigri Arnaldur forsetakjörið muni hún draga framboð sitt til varaforseta til baka, þar sem Arnaldur er félagsmaður í VR.

RÚV, Vísir

Jón yfirgefur þingflokkinn

Jón Gnarr sagði skilið við þingflokk Viðreisnar í gær. Hann segist þó enn vera flokksmaður í Viðreisn og muni styðja ríkisstjórnina þótt hann verði utan þingflokks. Hann var harðorður í garð forystu flokksins í viðtali í Kastljósi á RÚV í gær, sakaði hana um stefnuleysi og sagði ákvarðanir teknar af þröngum hópi án samráðs við aðra flokksmenn. Hann lýsti líðan sinni innan þingflokksins eins og „eiginkonu alkóhólista“, sem vonar í hvert sinn að næsti dagur verði öðruvísi. Þá sagði hann forystuleysið langvarandi bæði í þingflokknum og flokknum sjálfum og lýsti óheilbrigðum aðstæðum sem birtust í ákvarðanafælni og klíkumyndun. Þingflokkur Viðreisnar var án formanns allan fyrsta mánuð þessa haustþings, þar til Pawel Bartoszek tók við formennsku fyrir nokkrum dögum. Áður var Sigmar Guðmundsson formaður þingflokksins en hann hefur verið í veikindaleyfi síðan þing var sett í september.

RÚV, Gímaldið

Góð afkoma Haga

Hagar hækkuðu afkomuspá sína fyrir árið um 800 milljónir króna og vísa til betri afkomu í matvöruverslun en áður var gert ráð fyrir. Vörusala samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi nam 54,7 milljörðum króna og jókst um 5,5% frá fyrra ári. Hagnaður á fyrstu sex mánuðum uppgjörstímabilsins nam 4,2 milljörðum króna en var um 3,7 milljarðar á sama tímabili í fyrra.

Kauphöllin, Viðskiptablaðið

Bólusetning fyrir RS varanleg

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að tryggja varanlega fjármögnun á fyrirbyggjandi ónæmisaðgerð gegn RS-veiru fyrir börn yngri en sex mánaða. Í fyrravetur þáðu nærri 90 prósent foreldra mótefnið fyrir börn sín og í kjölfarið fækkaði staðfestum sýkingum og sjúkrahúsinnlögnum verulega.

Stjórnarráðið

Ný landamæri opnuð

Kína og Norður-Kórea opnuðu í gær nýja brú og landamærastöð yfir Yalu-fljótið, fyrstu nýju landamæratenginguna milli ríkjanna í áraraðir. Opnunin er talin merki um að Kína vilji styrkja efnahagstengsl við Norður-Kóreu á sama tíma og Pjongjang færist sífellt nær Moskvu.

Foreign Policy

„Rússland er Voldemort“

Innrásin í Úkraínu hefur ekki aðeins rúið Rússland trausti út á við; hún hefur líka breytt sjálfsmynd rússneskra karlmanna og viðhorfum þeirra til heimalandsins. Í rannsókn á rússneskri karlmennsku ræddi félagsfræðingurinn Marina Yusupova-Ryder við 40 rússneska karlmenn í tveimur lotum. Fyrst ræddi hún við 40 Rússa árin 2013 og 2014. Flestir höfðu þá jákvæða mynd af Rússlandi. Þegar hún ræddi aftur við 27 þeirra á árunum 2022 og 2023 lýstu aðeins tveir þeirra landinu á ótvírætt jákvæðan hátt. Aðrir lýstu Rússlandi sem hrottum, útlagaríki á borð við Norður-Kóreu og einn líkti landinu við Voldemort. Flestir sem búa utan heimalandsins lýstu skömm yfir uppruna sínum en gáfu mismunandi mynd af eigin viðbrögðum. Sumir hættu að tala um uppruna sinn en aðrir vonuðust eftir sigri Rússa til að endurheimta virðinguna. Flestir voru sammála um að upplifa þörf til að útskýra uppruna sinn, verja hann eða reyna að fjarlægja sig frá honum.

The Conversation

Hætt við streymi frá aftöku

Donald Trump Bandaríkjaforseti, lýsti því yfir í gær að aftöku Nidal Hasan, geðlæknisins sem banaði þrettán manns á Fort Hood-herstöðinni árið 2009, verði ekki streymt eins og Pete Hegseth tilkynnti fyrr í mánuðinum. Uppátækið hefur verið fordæmt alþjóðlega og alls staðar mælst illa fyrir.

New York Times

Mótmælt í Albaníu

Mótmæli gegn ríkisstjórn Edis Rama í Albaníu héldu áfram í gær. Lögregla handtók 65 mótmælendur og 71 lögreglumaður slasaðist í átökum við mótmælendur. Rama hefur neitað að segja af sér og segir mótmælin skipulögð af erlendum öflum sem vilji grafa undan stjórn hans.

Foreign Policy

Þrjú börn drepin í skotárás

Þrjú börn, 5, 8 og 11 ára og kennari eru látin eftir skotárás í grunnskóla í Oregon-ríki í Bandaríkjunum í gær. Annað 7 ára gamalt barn og kennari liggja þungt haldin á spítala. Árásarmaðurinn er sagður 16 ára gamall piltur. Hann var skotinn til bana á vettvangi af óbreyttum borgara.

BBC

Lýsum upp samfélagið!

Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.

Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!

Fjölskylduáskrift

Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.

Einföld áskrift

Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
NÝJAST Í GÍMALDINU

Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku

Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi.

Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.

Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.
Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku
Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu

Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu

Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis.

Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“

Feður í fangelsum lýsa kuldalegum og óbarnvænum aðstæðum til heimsókna. Í meistaraverkefni sínu í afbrotafræði tók Árni Sveinsson viðtöl við fimm feður, sem voru við það að ljúka afplánun eða höfðu nýlokið henni, um upplifun þeirra af því að takast á við foreldrahlutverk sitt að nýju. Einn þeirra lýsti því þegar börnin hans komu í heimsókn á Kvíabryggju þar sem dæmdir barnaníðingar lögðust ofan á dótið þeirra. 
Úr fangelsi í föðurhlutverkið: „Það vita allir hver pabbinn er og hvar hann hefur verið“

Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.

Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.

Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.

Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.

facebook instagram custom spotify email