|
|
|
|
Þriðjudagur 27. október 2026
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Góðan dag. Alþjóðapressan hefur klifað á því að kosningarnar í Ísrael í dag séu þær mikilvægustu í sögu landsins. Slíkar fullyrðingar eru illskiljanlegar okkur sem óskum þess eins að morðunum linni. Um það er ekki kosið. Við þekkjum þjóðarmorðingjann Benjamin Netanyahu og fyrir hvað hann stendur. En er hans helsti keppinautur kyndilberi friðar? Gadi Eisenkot hefur mildara yfirbragð en munurinn liggur fremur í aðferðum en viðhorfum. Hann hafnar tveggja ríkja lausninni og útilokar stjórnarsamstarf við arabíska flokka. Hann hefur hins vegar gagnrýnt ofbeldi landnema á Vesturbakkanum vegna þess hve illa það mælist fyrir út á við. Fordæming alþjóðasamfélagsins er farin að bíta. En áhyggjur af eigin ímynd er engin friðarstefna.
|
|
|
|
🌧️💨 Norðaustanátt, víða 10-18, hvassast norðvestantil og einnig austan Öræfa um tíma fyrripartinn. Lengst af hægari um landið suðvestanvert. Talsverð rigning norðan- og austanlands, en úrkomuminna sunnantil og víða þurrt þar seinnipartinn. Hiti 4 til 10 stig, mildast suðaustanlands.
|
|
|
|
|
Stytting lánstíma fellur í grýttan jarðveg
|
|
Áform ríkisstjórnarinnar um að stytta hámarkslánstíma verðtryggðra fasteignalána í 25 ár fá dræmar undirtektir í Samráðsgátt. Alls bárust 16 umsagnir og þótt flestir séu sammála markmiði um að draga úr vægi verðtryggingar fær þessi leið dræmar undirtektir í umsögnum. Samtök atvinnulífsins segja hærri greiðslubyrði þrengja svigrúm heimila til að mæta áföllum og Alþýðusamband Íslands gagnrýnir að greining á áhrifunum sé ekki nógu ítarleg. Hagsmunasamtök Heimilanna sem stofnuð voru um afnám verðtryggingarinnar eru alfarið mótfallin þessari leið og ÖBÍ óttast að fötluðu fólki verði gert enn erfiðara að eignast húsnæði. Már Wolfgang Mixa, dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, bendir á að 25 árin byggi á 2,5 prósenta verðbólgu, marki sem verðbólgan hefur aðeins náð í fimm ár frá aldamótum. Að hans mati lendir byrðin því mest á tekjulægri og skuldsettari heimilum, einmitt þeim sem eiga að njóta ávinningsins. Fjallað var um verðtrygginguna og þessi áform ríkisstjórnarinnar í þætti í hlaðvarpi Gímaldsins fyrir skömmu. Þáttinn má hlusta á hér.
|
Gímaldið, Samráðsgátt, RÚV
|
|
|
|
|
„Hún kæmist ekki langt. Hann hafði yfirburði frá náttúrunnar hendi, var miklu stærri og sterkari. Hún var bara písl, helvítis tíkin,“ hugsaði hann og fann fyrir blóðbragði í munninum. Hann myndi ná henni, fyrr en síðar. Bara að hún færi ekki að öskra.“
|
|
Krossgötur, nýútkomin skáldsaga eftir Margréti Tryggvadóttur, fjallar um nokkra unglinga og óvæntar áskoranir sem neyða þá til að endurskoða framtíðina sem þeir sáu fyrir sér. Hægt er að lesa kafla úr bókinni á vef Gímaldsins, en Bókapressa Gímaldsins birtir brot úr væntanlegum og nýútkomnum bókum í samstarfi við höfunda og útgefendur.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
Ríkið semji um fast miðaverð
|
|
Þóroddur Bjarnason, prófessor og sérfræðingur í byggðaþróun, leggur til að ríkið semji um kaup á flugmiðum fyrir landsbyggðarfólk á föstu verði í stað niðurgreiðslu hlutfalls af miðaverði í gegnum Loftbrú. Þetta kom fram í Silfrinu á RÚV í gær. Þóroddur segir núverandi fyrirkomulag ekki taka nægilegt mið af þörfum landsbyggðarfólks sem þurfi að ferðast með skömmum fyrirvara til borgarinnar. Þá sagði hann umræðuna um Loftbrú hafa beinst um of að fjárhæð niðurgreiðslunnar í stað þess að skoða hvað flugferðir kosti í raun. „Hvernig í ósköpunum stendur á því að það er ekki bara sagt: Við ætlum að kaupa hérna 80.000 miða og þeir eru bara á einhverju föstu meðalverði?“ sagði Þóroddur.
|
RUV
|
|
|
|
|
|
Ferðum Strætó verður fækkað á nokkrum leiðum í desember, þar sem tíðnin þykir umfram þörf. Til tals hefur komið að fækka ferðum á leið 3, milli Granda og Mjóddar, leið 8, milli Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík, og leið 18, milli Grafarvogs og miðborgar. Þá er til skoðunar að draga úr tíðni um jól, páska og sumarfrí á leiðum til fjölmennra skóla. Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, segir útfærsluna enn á skipulagsstigi í samtali við RÚV.
|
RÚV
|
|
|
|
|
Koma loks vistum til Oleshky
|
|
Fjórum tonnum af matvælum var varpað úr lofti yfir rússneska bænum Oleshky í nótt eftir að vopnahlé milli Rússa og Úkraínumanna tók gildi. Rússar hertóku bæinn 2022 og þaðan hafa borist fregnir af skelfilegu ástandi. Um 24.000 manns bjuggu í Oleshky fyrir innrás Rússla. Talið er að um 2.000 manns, þar af um 50 börn, séu enn innlyksa í bænum við aðstæður sem lýst er sem helvíti á jörðu. Matarlaust er í bænum sem er án bæði vatns og rafmagns. Fólk deyr á hverjum degi úr hungri, sjúkdómum og af árásum rússneskra hermanna. Íbúar bæjarins svelta og hafa ekki annað en gras til að seðja sárasta hungrið. Þá eru rússneskir hermenn sakaðir um að hafa skotið fólk á götum úti en allt í kringum bæinn eru árásardrónar og jarðsprengjur og því hefur fólk ekki getað flúið. Ekki hafa borist fregnir af því hvernig eftirliti með vopnahlénu verður háttað eða hve lengi það mun standa. Vistum var síðast komið til bæjarins í maí. Vistir sem áttu að berast í júní komust ekki á leiðarenda því flutningabíllinn ók á jarðsprengju. Þrátt fyrir vopnahlé í Oleshky halda árásir áfram á öðrum vígstöðvum. Einn lést í Kiyv í nótt eftir drónaárás.
|
Al Jazeera, AFP, FT
|
|
|
|
|
|
Ísraelar kjósa til þings í dag. Benjamin Netanyahu forsætisráðherra nýtur stuðnings ysta hægrisins og hinna strangtrúuðustu. Helsti keppinautur hans, Gadi Eisenkot og flokkur hans, styðst við flokka gyðinga sem vilja koma Netanyahu frá völdum. Eitt helsta stefnumál hans er rannsókn á aðdraganda árásar Hamas í febrúar 2023 og öryggismál í Ísrael. Þessi mál hafa yfirskyggt himinháan framfærslukostnað almennings og enginn býður fram lausn á stríðsátökum sem Ísraelsmenn standa í við flesta nágranna sína. Ofan á almennt stefnuleysi frambjóðenda bætast töluverðar líkur á stjórnarkreppu að loknum kosningum. Samkvæmt könnunum fær hvor fylking á bilinu 50 til 55 af 120 þingsætum en til að mynda meirihlutastjórn þarf 61 sæti. Flokkar Araba fá hin sætin en báðar fylkingar hafa útilokað samstarf við þá. Raunhæfar líkur á myndun meirihlutastjórnar eru því litlar. Sú pattstaða hentar Netanyahu best. Takist engum að mynda stjórn situr hann áfram sem forsætisráðherra starfsstjórnar. Þannig hélt hann völdum í gegnum fernar kosningar á árunum 2019 til 2021.
|
The Guardian, The Economist
|
|
|
|
|
Áskorun að mynda stjórn í Serbíu
|
|
Stúdentahreyfingin í Serbíu hefst nú handa við myndun ríkisstjórnar eftir stórsigur á ríkjandi valdhöfum í þingkosningum á sunnudag. Hreyfingin, sem hefur flatan valdastrúktúr og engan tiltekinn foringja, hefur ekki tilkynnt hver verði forsætisráðherra eða hvernig hann og aðrir ráðherrar í ríkisstjórn verði valdir. Þá stendur hreyfingin frammi fyrir svipuðum áskorunum og Péter Magyar eftir sigurinn í Ungverjalandi í vor: Stofnunum og stjórnsýslu sem stýrt er embættismönnum hliðhollum fráfarandi valdhöfum, sem kann að gera valdaskiptin flókin og erfið.
|
The Guardian
|
|
|
|
|
|
Harry Kane hefur ekki unnið marga titla en honum hefur nú hlotnast heiður sem aðeins fáum útvöldum hlotnast á ferlinum.
|
Harry Kane handhafi Gullboltans
|
Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins og framherji Bayern München, hlaut Gullboltann (Ballon d’Or) á verðlaunahátíð í London í gærkvöld. Hann er fimmti Englendingurinn sem hlýtur verðlaunin og sá fyrsti síðan Michael Owen hlotnaðist þessi heiður árið 2001. Kane er markahæsti leikmaður í sögu enska liðsins Tottenham og enska landsliðsins, með 280 mörk fyrir félagið og 91 mark í 125 landsleikjum. Síðasta tímabil var hans besta til þessa: 73 mörk í 65 leikjum fyrir Bayern og England. Aðeins Lionel Messi hefur skorað fleiri mörk á einu tímabili á þessari öld. Lengi var Kane þó helst þekktur fyrir að vinna ekki neitt. Fyrsti titillinn kom ekki fyrr en í fyrravor þegar hann var 31 árs. Hann er einn fárra sem unnið hafa Gullboltann án þess að hafa nokkru sinni unnið Meistaradeild Evrópu eða stórmót með landsliði, en Kane á vonandi enn nóg inni.
|
Gímaldið
|
|
|
|
|
|
Bandaríska gervigreindarfyrirtækið Anthropic, hefur lagt fram skráningarlýsingu hjá bandaríska verðbréfaeftirlitinu og stefnir á skráningu á Nasdaq-markaðinn undir auðkenninu ANT. Samkvæmt breska dagblaðinu The Guardian meta greinendur og fjárfestar fyrirtækið á rúmlega 1.500 milljarða bandaríkjadala, sem myndi gera skráninguna eina þá stærstu í sögu bandarísks hlutabréfamarkaðar. Af lýsingu fyrirtækisins má sjá hvernig reksturinn gengur. Tekjur fyrstu sex mánuði ársins námu 16,3 milljörðum dala, fjórtánfalt meira en á sama tíma í fyrra. Tekjurnar koma að mestu frá fyrirtækjum sem greiða fyrir notkun á vörum fyrirtækisins, einkum Claude. Á sömu mánuðum nam bókfært tap félagsins um 80,7 milljörðum dala. Sjóðir félagsins, rúmlega 130 milljarðar dala, eru hins vegar að mestu fé frá fjárfestum. Að sögn félagsins sjálfs er meginmarkmið skráningarinnar að styrkja fjárhagsstöðuna, auka fjárhagslegt svigrúm og gera núverandi hluthöfum kleift að selja sína hluti. Hverjir hyggjast selja og hve mikið liggur ekki fyrir. Fénu á að verja í almennan rekstur, þar á meðal fjárfestingar í tölvuafli og innviðum og til að ráða og halda í hæft starfsfólk.
|
The Guardian, Anthropic
|
|
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Margrét Tryggvadóttir: Krossgötur
|
Rut og Alma tala aldrei saman þótt þær séu bæði skólasystur og nágrannar; Rut lætur lítið fyrir sér fara og tilheyrir trúaðri fjölskyldu sem lokar sig af en Alma er marksækin og ætlar sér að ná langt í lífinu. Kærasti Ölmu, Hlynur, er efnilegur handboltamaður sem stefnir á atvinnumennsku. Fannar býr í sömu blokk og stelpurnar og þráir athygli og viðurkenningu jafnaldra sinna en viðhorf hans og bakgrunnur gera honum erfitt fyrir.
|
Óvæntar áskoranir neyða krakkana til að endurskoða framtíðina sem þau sáu fyrir sér. Rut langar að yfirgefa trúfélagið. Alma efast um samband sitt við Hlyn þegar hann missir áhugann á náminu. Fannar glímir við fordóma, sína eigin og annarra.
|
|
Krossgötur er grípandi saga um ungar manneskjur á leiðinni út í lífið. Margrét Tryggvadóttir hefur áður sent frá sér fjölmargar bækur og hlotið fyrir þær ýmis verðlaun og viðurkenningar, m.a. Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur fyrir söguna Sterk.
|
|
|
|
|
|
|
|
Það sást á hjartalínuritinu að ég var að skrifa
|
|
Eftir Draumalandið var Andri Snær Magnason gjörsamlega útbrunninn og gat ekki hugsað sér að tala aftur um virkjanir. Síðan hefur bók hans Um tímann og vatnið, og samnefnd heimildarmynd, farið sigurför um heiminn og gert hann að einum áhrifamesta talsmanni náttúruverndar. Hann segir vísindin stærri en tungumálið, að sögur ná betur til fólks en gögn og nú þurfi að vekja nýja kynslóð.
|
|
|
|
|
|
|
|
Frelsi óbreytta þingmannsins: Jón Gnarr og Dagur B. Eggertsson fóru ólíkar leiðir
|
|
Jón Gnarr hefði getað nýtt sér frelsi óbreytts stjórnarþingmanns innan þingflokks Viðreisnar, á svipaðan hátt og Dagur B. Eggertsson hefur gert innan Samfylkingarinnar. Þetta segir Aðalheiður Ámundadóttir, stjórnmálaskýrandi Gímaldsins, um úrsögn Jóns úr þingflokknum í nýjum hlaðvarpsþætti. Fjallað er um brotthvarf Jóns, áhrifin á Viðreisn og einnig rætt um skref sem verið er að stíga í því að minnka áhrif verðtryggingar á fasteignalánamarkaði.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|