|
|
|
|
Miðvikudagur 21. október 2026
|
|
|
|
|
Góðan dag. Það er ekki eitt heldur allt þessa dagana. Ekki aðeins geisa stríð í öllum heimshlutum heldur hafa ófriðarbál kviknað í fjölda borga Evrópu. Herinn er á leið til Mílanó og útgöngubann gildir um kvöld og nætur í París. Albanir lofa metþátttöku í mótmælum um helgina og Portúgalir færa sig upp á skaftið í Lissabon. Íslenskir stúdentar og annar almenningur hér á landi virðist hins vegar una glaður við sitt og sér ekki ástæðu til að mótmæla þótt dýrtíð þjaki ekki síður íslenska borgara en aðra íbúa álfunnar.
|
|
🌨️ Austlæg eða breytileg átt, víða 3-10 m/s. Austan 8-15 á Vestfjörðum seinnipartinn og norðvestan 5-13 austanlands. Rigning eða slydda með köflum á láglendi og snjókoma inn til landsins, en þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi.
|
|
|
|
|
Þúsundir krefjast úttektar
|
|
Yfir fimm þúsund manns hafa skráð nafn sitt undir áskorun til Alþingis og dómsmálaráðherra um óháða úttekt á meðferð kynferðisbrota og kynbundinna ofbeldismála frá rannsókn til meðferðar fyrir dómi. Úttektin taki til sönnunarmats, mats á læknisfræðilegum gögnum og frásögnum þolenda. Einnig verði skoðað mat á samþykki, mörkum þess, afturköllun og ásetningi, tillit til áfallaviðbragða og þjálfun starfsfólks réttarkerfisins. Söfnun undirskrifta við áskorunina var sett af stað á mánudag í kjölfar þess að Landsréttur sýknaði mann þrátt fyrir alvarlega áverka konu sem hafði kært hann fyrir nauðgun. Konan hlaut meðal annars rifbeinsbrot, tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind. Þrír dómarar dæmdu málið og tveir þeirra töldu ósannað að brotið hafi verið á henni, því hún hefði í skilaboðum samþykkt að maðurinn beitti hana hörku í kynlífi.
|
Gímaldið, RÚV
|
|
|
|
|
|
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga segir Seltjarnarnesbæ ekki uppfylla jafnvægisreglu sveitarstjórnarlaga. Halli á rekstri bæjarins nemur rúmum milljarði króna á þremur árum. Helstu áhrifaþættir þess eru viðvarandi verðbólga og hátt vaxtastig. Bæjarstjóri og bæjarfulltrúar hafa lækkað eigin laun um tíu prósent, og nefndum hefur verið fækkað úr ellefu í sex. Þá er til skoðunar að stytta opnunartíma bókasafnsins og sundlaugar bæjarins. Seltjarnarnes er fámennasta sveitarfélag höfuðborgarsvæðisins með rúmlega 4600 íbúa. Hins vegar eru útsvarstekjur bæjarins miðað við íbúafjölda með þeim hæstu á landinu og Seltjarnarnes eitt örfárra sveitarfélaga sem innheimtir ekki leyfilegt hámarksútsvar. Elísabet Ingunn Einarsdóttir, formaður bæjarráðs, útilokar ekki hækkun þess. Hún segir hækkun útsvars leið til auka tekjur en það leysi bæinn ekki undan þörf á að endurskoða reksturinn.
|
RÚV
|
|
|
|
|
Freista þess að finna Lúðvík
|
|
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að senda sigmenn í sprunguna í Grindavík þar sem Lúðvík Pétursson lést fyrir rúmum tveimur árum, eftir áhættumat verkfræðistofunnar COWI. Fyrst þurfi þó að stækka op sprungunnar til að tryggja öryggi á vettvangi. Þegar því er lokið og veður leyfir fara sigmenn niður með rústabjörgunarmyndavél. Það verði líklega gert í nóvember.
|
RÚV
|
|
|
|
|
|
Kaffistofa Samhjálpar er enn í húsnæðishrakningum, ári eftir að aðstöðu hennar í Borgartúni var lokað. Hætt var við opnun við Grensásveg vegna mótmæla íbúa í nágrenninu. Samhjálp metur samanlagt tap af málinu nema um 70 milljónum. Kaffistofan starfar nú til bráðabirgða í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu.
|
RÚV
|
|
|
|
|
|
Þungunarrof hefur verið helsta hitamál pólskra stjórnmála síðustu ár.
|
Þungunarrof aftur í deiglunni
|
Neðri deild pólska þingsins samþykkti í gær tvö frumvörp sem ætlað er að aflétta banni við þungunarrofi sem sett var á af ríkisstjórn harðlínuflokksins Laga og réttlætis. Annað frumvarpið afnemur refsingu fyrir að aðstoða konu við þungunarrof og hitt heimilar þungunarrof þegar fóstur er alvarlega skaddað. Sú heimild féll niður með úrskurði stjórnlagadómstólsins árið 2020. Fyrir úrskurðinn byggðu 98 prósent löglegra þungunarrofa í landinu á henni og úrskurðurinn leiddi til fjölmennustu mótmæla í Póllandi frá falli járntjaldsins árið 1989. Ólíklegt er talið að frumvörpin verði að lögum því forseti landsins, Karol Nawrocki, sem Lög og réttlæti studdu til embættis, er líklegur til að beita neitunarvaldi gegn þeim báðum. Í kosningabaráttunni sagðist hann ekki myndu skrifa undir neina tilslökun á banni við þungunarrofi.
|
AFP, Reuters
|
|
|
|
|
|
Það var Elon Musk eigandi Starlink, sem fyrirskipaði að hægt yrði á aðgangi Úkraínu að hernaðarútgáfu Starlink í síðustu viku. Þetta hefur Wall Street Journal eftir fjölda manns sem þekkja til málsins. Í síðustu viku voru sett hraðatakmörk á tengingar úkraínsks búnaðar við kerfið sem gerði notkun árásardróna og drónabana nánast ómögulega. Að sögn blaðsins olli ákvörðunin skelfingu í Kyiv og taugaveiklun innan Bandaríkjastjórnar. Samkvæmt WSJ ræddu Musk og Donald Trump Bandaríkjaforseti málið í síma áður en ákvörðunin var tekin og aftur skömmu eftir að hún varð opinber. Fjölmiðlar höfðu áður talið fyrirmælin koma innan úr Hvíta húsinu. Hvorki Musk né Trump gangast við því að hafa tekið ákvörðunina. Trump segir hvorugan þeirra bera ábyrgð en Musk segir að annaðhvort forseti Bandaríkjanna eða Bandaríkjaher beri ábyrgðina.
|
Wall Street Journal
|
|
|
|
|
|
Sex mánaða stjórnarkreppu í Rúmeníu lauk í gær þegar þingið samþykkti minnihlutastjórn diplómatans Luca Niculescu. Niculescu er fyrrverandi útvarpsmaður og sendiherra í París. Stjórnarkreppan hófst í apríl þegar Jafnaðarmannaflokkurinn (PSD) gekk úr stjórninni vegna aðhaldsaðgerða og umbóta sem ESB setti að skilyrði fyrir áframhaldandi greiðslum úr sjóðum sambandsins. Stjórnin féll í kjölfarið og matsfyrirtæki lækkuðu lánshæfi Rúmeníu niður í ruslflokk. Ríkið var með mesta fjárlagahalla allra ESB-ríkja í fyrra. Ríkisstjórn Niculescu er skipuð bæði sérfræðingum og stjórnmálamönnum úr flokki Jafnaðarmanna. Þá velur frjálslyndi flokkur landsins frekar að styðja stjórnina en hætta á kosningar af ótta við að öfgahægri flokkurinn AUR nái völdum í landinu. Hin nýja stjórn er Evrópusinnuð en hefur ekki umboð til róttækra umbóta.
|
Financial Times
|
|
|
|
|
Leita út fyrir ESB um stuðning
|
|
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins horfir til Kanada, Bretlands og Japans um aukin framlög í viðleitni til að brúa allt að 70 milljarða evra fjárþörf Úkraínu. Frystar rússneskar eignir eru hluti umræðunnar um fjármögnun stuðningsins en innan ESB er ágreiningur um hvort heimilt sé að nýta þær og hvernig.
|
Politico
|
|
|
|
|
Lýsum upp samfélagið!
Með því að gerast áskrifandi að Gímaldinu leggur þú þitt af mörkum til að bæta fjölmiðlaumhverfið í landinu, hækka planið á umræðunni og minnka ruglið. Við lofum að vanda okkur og skila góðu verki og við biðjum um þitt framlag til að efla okkur og bæta.
|
|
Vertu með okkur – lýsum upp samfélagið!
|
|
|
|
|
Fjölskylduáskrift
|
Þú borgar 3.490,- á mánuði eða 34.900,- á ári og getur skráð allt að 3 netföng svo öll fjölskyldan geti verið með eina áskrift.
|
|
|
|
|
|
|
Einföld áskrift
|
Áskrift fyrir einn að Gímaldinu í heilt ár kostar aðeins 22.200,- eða sömu upphæð og útvarpsgjaldið sem þú borgar í ár
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Frelsi óbreytta þingmannsins: Jón Gnarr og Dagur B. Eggertsson fóru ólíkar leiðir
|
|
Jón Gnarr hefði getað nýtt sér frelsi óbreytts stjórnarþingmanns innan þingflokks Viðreisnar, á svipaðan hátt og Dagur B. Eggertsson hefur gert innan Samfylkingarinnar. Þetta segir Aðalheiður Ámundadóttir, stjórnmálaskýrandi Gímaldsins, um úrsögn Jóns úr þingflokknum í nýjum hlaðvarpsþætti. Fjallað er um brotthvarf Jóns, áhrifin á Viðreisn og einnig rætt um skref sem verið er að stíga í því að minnka áhrif verðtryggingar á fasteignalánamarkaði.
|
|
|
|
|
|
|
|
Guðni Th Jóhannesson: Vald hinna veiku
|
Landhelgisbarátta Íslendinga snerist um lífshagsmuni og saga þorskastríðanna er þjóðarsaga. Hún geymir dýrmætan lærdóm fyrir smáríki í hörðum heimi.
|
Vald hinna veiku segir frá útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur og mótmælum annarra ríkja. Greint er frá æsilegum atburðum á hafi úti, atlögum varðskipa að erlendum togurum og árekstrum við bresk herskip þar sem mannslíf voru í veði. Einnig er sagt frá undirmálum á vettvangi íslenskra stjórnmála, baktjaldamakki og hvers kyns ágreiningi.
|
|
Þótt Íslendingar muni þorskastríðin gjarnan þannig að þjóðin hafi ætíð staðið saman og fagnað fullum sigri var sagan flóknari þegar betur er að gáð. Það verður hún líka þegar hún er sögð með það eitt að leiðarljósi að greina sem best frá því sem gerðist frekar en að freistast til þess að nýta liðna tíð í pólitískum tilgangi.
|
|
|
|
|
|
|
|
Tónleikar Kaleo sem rök í au pair-málinu
|
|
Vistforeldri sem mótmælir frumvarpi dómsmálaráðherra nefnir ferð á tónleika Kaleo sem dæmi um að au pair-kerfið virki vel. Á sama tíma biður Útlendingastofnun lögreglu nokkrum sinnum á ári að kanna aðstæður á heimilum vistráðinna, meðal annars vegna gruns um mansal. Verði frumvarpið að lögum munu au pair frá þrjátíu ríkjum áfram geta komið til Íslands án sérstaks dvalarleyfis.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Gímaldið er áskriftarmiðill sem leggur áherslu á að kafa djúpt í málin. Við birtum fréttaskýringar, greiningar og vönduð hlaðvörp, auk þess að gefa út fréttabréf og halda reglulega viðburði þar sem áskrifendur geta komið saman og tekið þátt í því með okkur að kafa ofan í málin.
Gímald er rými eða salur þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, en það getur líka merkt stórt ílát. Okkur finnst Gímaldið vera gott nafn á miðil sem á að fjalla um margt og jafnframt hafa rými fyrir fjölbreytta sýn á ólík mál.
Gímaldið nýtir gervigreind til aðstoðar við upplýsingaöflun og undirbúning fréttabréfsins en allt efni er skrifað af blaðamönnum okkar og er birt á ábyrgð ritstjóra.
|
|
|
Útgefandi: Gímaldið ehf. Ábyrgðarmaður: Eyrún Magnúsdóttir. Frjáls framlög: kt. 490925-1040, banki 0133-15-012265.
|
|
|
|
|