Rósa Björk sögð lík­leg til for­ystu í Vinstri græn­um

Lestími: 9 mínútur

Nýr for­mað­ur verð­ur kos­inn í VG eft­ir þrjár vik­ur. Nokk­ur nöfn eru far­in að heyr­ast. Flokks­fólk velt­ir fyr­ir sér hvort Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir sé upp­gjör­ið sem flokk­ur­inn þarf eft­ir rík­is­stjórn Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur.

Rósa Björk Brynj­­ólfs­dótt­­ir er nafn­ið sem flest­­ir við­mæl­enda Gímalds­ins segj­­ast hafa heyrt þeg­­ar spurt er um næsta for­­mann Vinstri grænna.

Lands­fund­ur Vinstri grænna fer fram á Sel­fossi helg­ina 7. og 8. mars næst­kom­and­i. Svan­dís Svav­ars­dótt­ir til­kynnti skömmu fyr­ir ára­mót að hún gæfi ekki kost á sér áfram. Guð­mund­ur Ingi Guð­brands­son til­kynnti fyrr í dag að hann hygð­ist ekki gefa kost á sér til for­ystu í flokkn­um áfram en hann er vara­for­mað­ur flokks­ins. Hann seg­ist þó í til­kynn­ingu sinni ekki úti­loka fram­boð í næstu þing­kosn­ing­um.

Eng­inn hef­ur op­in­ber­lega til­kynnt um fram­boð en auk Rósu Bjark­ar herma heim­ild­ir Gímalds­ins að skor­að hafi ver­ið á Orra Pál Jó­hanns­son, fyrr­ver­andi þing­flokks­for­mann flokks­ins til fram­boðs. Nafn Finns Ricart Andra­son­ar hef­ur einnig ver­ið nefn­t. Hann gef­ur kost á sér í 1. sæti í for­vali flokks­ins fyr­ir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arn­ar, en það sæti myndi færa hon­um 2. sæti á eft­ir Sönnu Magda­lenu Mörtu­dótt­ur á lista Vors til vinstri.

Hann hef­ur ver­ið í for­svari fyr­ir Unga um­hverf­is­sinna, er tal­inn metn­að­ar­gjarn og ófeim­inn við að koma fram op­in­ber­lega. Hann þyk­ir hins veg­ar í yngsta lag­i, á 24. ald­ursári, og er tal­inn þurfa að sanna sig í stjórn­mál­um áð­ur en hon­um verði treyst fyr­ir for­mennsku flokks­ins.

Nafn Höllu Gunn­ars­dótt­ur, for­manns VR, hef­ur líka ver­ið nefnt en lík­legt þyk­ir að hún muni bíða alla­vega eina um­ferð, og sjá hvort og hvern­ig end­ur­reisn flokks­ins heppn­ast.

Rósa Björk er hins veg­ar sú sem um­ræð­an hef­ur helst hverfst um, og hún tal­in áhuga­verð­ur kost­ur, ekki síst vegna upp­reisn­ar henn­ar gegn stjórn­ar­sam­starfi flokks­ins við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Rósa Björk settist fyrst á þing sem vara­þing­mað­ur ár­ið 2013, en hún var þá starfs­mað­ur þing­flokks VG. Hún var kjör­in al­þing­is­mað­ur fyr­ir Vinstri græn ár­ið 2016 og var í stjórn­ar­and­stöðu á stuttu kjör­tíma­bil­i. Kos­ið var aft­ur 2017 og að þeim kosn­ing­um lokn­um mynd­aði VG stjórn með Sjálf­stæð­is­flokkn­um og Fram­sókn­ar­flokkn­um.

Upp­reisn gegn for­yst­unni vinni með Rósu

Mik­il óá­nægja var með mynd­un rík­is­stjórn­ar­inn­ar, ekki að­eins með­al flokks­fé­laga held­ur einnig með­al ein­stakra þing­manna flokks­ins. Rósa Björk og Andr­és Ingi Jóns­son studdu ekki stjórn­ar­sátt­mála nýrr­ar stjórn­ar þeg­ar hann var bor­inn upp í þing­flokkn­um. Rósa Björk greiddi stund­um at­kvæði gegn stjórn­ar­frum­vörp­um, sat hjá eða studdi breyt­ing­ar­til­lög­ur stjórn­ar­and­stöð­unn­ar. Þá lýsti hún op­in­ber­lega efa­semd­um um sam­starf­ið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og taldi það ekki sam­rým­ast grunn­gild­um VG í vel­ferð­ar­mál­u­m, um­hverf­is­mál­um og mál­efn­um flótta­fólks.

Rósa Björk gekk úr þing­flokkn­um í sept­em­ber 2020 og varð óháð­ur þing­mað­ur þar til hún gekk til liðs við Sam­fylk­ing­una í des­em­ber sama ár. Andr­és Ingi sagði sig líka úr flokkn­um og gekk til liðs við Pírata.

Í kosn­ing­un­um 2021 skip­aði Rósa skip­aði 2. sæti á öðr­um lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Reykja­vík, á eft­ir Kristrúnu Frosta­dótt­ur. Þeg­ar talið hafði ver­ið upp úr kjör­köss­um leit um tíma út fyr­ir að Rósa Björk hefði náð kjöri sem jöfn­un­ar­þing­mað­ur, en eft­ir ör­laga­ríka end­ur­taln­ingu í Borg­ar­nesi end­aði hún ut­an þings.

Þeg­ar þau tíð­indi gerð­ust hins veg­ar haust­ið 2024 að það slitn­aði upp úr stjórn­ar­sam­starfi Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar og boð­að var til kosn­inga. Flutti þá Rósa aft­ur í VG. Hún skýrði vista­skipt­in þannig að nú hefði Sam­fylk­ing­in fjar­lægst sín eig­in gildi og sjálf gæti hún snú­ið til baka í VG fyrst að stjórn­ar­sam­starf­inu væri lok­ið.

Fram­an­greind óholl­usta Rósu Bjark­ar við flokk sinn og ekki síst upp­reisn gegn óvin­sælu stjórn­ar­sam­starf­i, gæti nú átt þátt í að fleyta henni til æðstu met­orða í flokkn­um.

„Rósa Björk væri því ákveð­ið upp­gjör“

Hún er tal­in áhuga­verð­ur kost­ur að mati flokks­fólks vegna þess að hún er rót­gró­inn flokks­fé­lagi sem tók slag­inn inni í hring­iðunni fyr­ir ákveð­in gildi og reyndi að halda flokkn­um á þeirri braut sem henni fannst rétt. Marg­ir fé­lag­ar í flokkn­um hafi ver­ið sam­mála henni á þeim tíma. Svo hafi hún stað­ið með sjálfri sér og yf­ir­gef­ið flokk­inn. „Rósa Björk væri því ákveð­ið upp­gjör,“ seg­ir einn við­mæl­enda um mögu­legt fram­boð henn­ar. Þrátt fyrir að hafa lengi verið áberandi í flokksstarfinu og uppfylli hún í rauninni kröfu um endurnýjun, vegna fortíðar sinnar.

Hins veg­ar er ekki við öðru að bú­ast en fólk sem yf­ir­gef­ur flokk­inn sinn með þess­um hætt­i, eign­ist marga óvin­i. Rósu Björk hafi þó tek­ist að greiða úr því gagn­vart mörg­um þeirra sem ósátt­ir vor­u, segja við­mæl­end­ur Gímalds­ins. Rósa Björk starf­aði til að mynda tíma­bund­ið í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu hjá Katrínu Jak­obs­dótt­ur, vegna und­ir­bún­ings leið­toga­fund­ar Evr­ópu­ráðs­ins ár­ið 2023 og svo skip­aði hún 2. sæti á þeim lista flokks­ins í Reykja­vík sem Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, for­mað­ur flokks­ins fór fyr­ir.

Mórallinn á uppleið eftir erfitt ár

Þau sem Gímald­ið ræddi við segja stemn­ing­una inn­an flokks­ins held­ur vera að fær­ast upp á við á und­an­förn­um vik­um. Stemn­ing­in hafi ver­ið mjög döp­ur fram eft­ir síð­asta ári. Áfall­ið sem for­ystu­fólk flokks­ins hafi orð­ið fyr­ir í kosn­ing­un­um hafi smit­að mjög út frá sér. Það sé eðli­lega sjokk að vera ráð­herra í rík­is­stjórn einn dag­inn og detta út af þingi þann næsta. Allt í einu hætti sím­inn að hringja, eng­inn kalli eft­ir þeirra sjón­ar­mið­um og allt sem þau segi sé rakk­að nið­ur. Þessu áfalli hafi fylgt doði hjá for­ystu­fólk­inu og hann hafi vald­ið óróa og óþreyju með­al flokks­fólks.

Á flokks­ráðs­fundi í Borg­ar­nesi í haust hafi sum­ir fé­lags­menn geng­ið svo langt að leggja til að flokk­ur­inn bæð­ist af­sök­un­ar á alls­kon­ar hlut­um sem gerð­ir voru í rík­is­stjórn­inni og það hafi ekki ver­ið til að bæta móral­inn.

Þá þrengi fjár­mál­in að flokks­starf­inu en flokk­ur­inn fékk svo laka kosn­ingu í síð­ustu al­þing­is­kosn­ing­um að hann datt út af fjár­lög­um og þarf að reiða sig á fé­lags­gjöld og frjáls fram­lög.

Nú er hins veg­ar anna­sam­ur tími hjá VG bæði við und­ir­bún­ing sveit­ar­stjórna­kosn­inga og lands­fund­ar. Tíma­setn­ing lands­fund­ar­ins sé mjög góð, segja við­mæl­end­ur. Næg­ur tími hafi lið­ið til að fólk hafi að mestu jafn­að af áfalli síð­ustu al­þing­is­kosn­inga, ljóst sé að mik­ið tóma­rúm hafi mynd­ast á vinstri væng ís­lenskra stjórn­mála og kall­að sé eft­ir eft­ir rödd­um um­burð­ar­lynd­is, um­hverf­is­vernd­ar og mann­rétt­inda í um­ræð­una. Þá þurfi flokk­ur­inn að gíra sig upp fyr­ir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Lands­fund­ur og for­ystu­skipti sé akkúrat það sem flokk­ur­inn þurfi nún­a.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 16. febrúar, 2026, 18:53

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link