
Ýmsum aðferðum verður beitt við val á lista í Reykjavík. Gott gengi í könnunum gæti dregið úr Guðlaugi Þór. Heiða talin líkleg til forystu áfram þrátt fyrir skiptar skoðanir. Vinsælasti borgarfulltrúinn er heimilislaus í stjórnmálum og vonast enn eftir samstarfi vinstri flokka.

Undirbúningur fyrir val á lista fyrir kosningar til sveitarstjórna er nú í fullum gangi hjá flokkunum. Það hefur gustað um marga oddvita í Reykjavíkurborg á kjörtímabilinu og þótt flestir þeirra vilji gefa kost á sér aftur er allur gangur á því hvort flokksfélagar þeirra vilji veita þeim brautargengi.
Samkvæmt samantekt Gímaldsins má ætla að farnar verði fjölbreyttar leiðir við val á lista; leiðtogakjör, prófkjör, uppstilling og röðun í flokksráðum. Þessar leiðir og fleiri eru til umræðu í flokkunum.
Boðað verður til almenns félagafundar flokksfólks Samfylkingarinnar í Reykjavík þann 17. nóvember, þar sem bera á upp tillögu fulltrúaráðs um prófkjör í efstu 6 sæti á lista flokksins í borginni. Samkvæmt tillögunni á prófkjörið að fara fram 24. janúar. Uppstillinganefnd raði í önnur sæti.
Viðmælendur Gímaldsins telja flestir að töluverðrar uppstokkunar sé þörf á lista flokksins í borginni og að fólk vilji breytingar.
Heiða Björg Hilmisdóttir Borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík hefur ekki verið óumdeildur leiðtogi flokksins í borginni. Dagur B. Eggertsson, þáverandi borgarstjóri fékk umboð til að leiða flokkinn í borginni fyrir síðustu kosningar og þótt Heiða hafi tekið við keflinu þegar hann fór á þing, má segja að hún muni í fyrsta sinn sækjast eftir slíku umboði í væntanlegu prófkjöri flokksins.
Þeim sem Gímaldið ræddi við í flokknum ber saman um að Heiða hefði ekki endilega hugnast forystu flokksins best og hefði meirihlutasamstarf undir stjórn Framsóknarflokksins ekki sprungið í febrúar síðastliðnum, hefði ekki verið ólíklegt að leit að nýju leiðtogaefni hefði verið gerð út. Breyttar aðstæður kalli hins vegar á kalt hagsmunamat. Forsætisráðherra og mikilvægir málaflokkar ríkisstjórnarinnar eigi mikið undir því að halda völdum í borginni.

Þegar stefndi í að Samfylkingin missti völdin í borginni eftir að Framsókn sleit meirihlutasamstarfinu, hafi Kristrún Frostadóttir stigið inn í og bakkað Heiðu upp við myndun nýs meirihluta til vinstri. Hún hafi dregið Ingu Sæland að borðinu sem varð til þess að viðræðum um myndun nýs meirihluta með Sjálfstæðisflokki og flokki fólksins var slitið.
Stuðningsmenn Heiðu telja stöðu hennar sterka í ljósi verka meirihlutans, vaxandi fylgis, og þess að henni hafi tekist að byggja brýr milli þeirra ólíku flokka sem starfa með Samfylkingunni í meirihlutanum, þrátt fyrir að upplausnarástand ríki í flestum samstarfsflokkunum.
Alger upplausn virðist ríkja hjá Sósíalistum sem vilja losna við vinsælasta stjórnmálamann borgarinnar úr röðum sínum áður en þeir stilla upp nýjum lista. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalista er talin hafa staðið sig best allra borgarfulltrúa á kjörtímabilinu samkvæmt könnun Maskínu sem birt var í ágúst.
„Mig langar að halda áfram en ég sé ekki möguleika á að fara fram með Sósíalistum eins og staðan er núna,“ segir Sanna. Hún segist finna stuðning meðal margra Sósíalista, bæði flokksfólks og annarra sem hafa yfirgefið flokkinn vegna sundrungar sem þar ríki.

Hins vegar sé útlitið um frið í flokknum ekki gott og hún sjái ekki fyrir sér raunhæfar leiðir til að Sósíalistar sem fylgi henni geti starfað í flokknum.
„Eins og staðan er og miðað við allt sem á undan er gengið, tel ég litlar líkur á að fara fram undir merkjum Sósíalista og alveg útilokað meðan þau sem stýra flokknum núna ráða þar ríkjum.“
Aðspurð um mögulegt samstarf við aðra flokka segist Sanna trúa að enn megi ræða það nánar.
„Mér fyndist mjög eðlilegt að fólk sem er vinstra megin í lífinu setjist niður saman og ræði hvernig við getum staðið vörð um félagshyggjuna í borginni og haldið áfram því góða starfi sem við erum á kafi í fyrir borgarbúa. Okkur hefur gengið mjög vel að vinna saman hingað til og það er nóg að gera.“
„Mér fyndist mjög eðlilegt að fólk sem er vinstra megin í lífinu setjist niður saman og ræði hvernig við getum staðið vörð um félagshyggjuna í borginni“
Gímaldinu barst til eyrna að Sönnu hafi borist áskorun um að fara fram með Samfylkingunni sem óháð. Aðspurð segist Sanna ekki kannast við það: “Ég hef reyndar ekki komist í að skoða öll skilaboðin sem mér hafa borist á undanförnum dögum.”
Hún sjái hins vegar ekki fyrir sér að ganga í Samfylkinguna eða bjóða beinlínis fram í öðrum flokkum. Samstarf á vinstri vængnum komi hins vegar vel til greina.
Vörður, fulltrúaráð flokksins í Reykjavík tekur ákvörðun um aðferðir val á lista í næstu viku. Fyrir liggur tillaga stjórnar ráðsins um leiðtogakjör fyrir efsta sætið og raðað verði í önnur efstu sjö sætin á sérstökum fundi flokksráðs en um 1000 manns eiga sæti í ráðinu.
Verði tillagan samþykkt, mun allt flokksfólk í Reykjavík geta kosið í kjöri um oddvita listans, en um næstu sæti þar á eftir myndi aðeins það fólk sem á sæti í fulltrúaráðinu kjósa.

Alls óvíst er hins vegar að þessi leið verði farin enda þarf aukinn meirihluta fulltrúaráðsins til að samþykkja frávik frá hinni hefðbundnu aðferð Sjálfstæðisfólks; prófkjöri.
Hildur Björnsdóttir er oddviti borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins og gefur áfram kost á sér. Enginn hefur enn sem komið er lýst opinberlega áhuga á að etja kappi við hana í leiðtogakjöri. Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður flokksins hefur þó verið sterklega orðaður við oddvitaframboð.
Það vinnur helst gegn Hildi, að mati Sjálfstæðismanna, að hafa ekki tekist að koma flokknum til valda í Reykjavík. Hún gefur nú kost á sér fyrir flokkinn í þriðja sinn en sat fyrst í borgarstjórn á síðasta kjörtímabili þegar Eyþór Arnalds var oddviti flokksins. Flokkurinn hefur hins vegar komist á flug í könnunum að undanförnu og mælist nú stærstur flokka í borgarstjórn með 32 prósenta fylgi.
Það er ekki síst gott gengi í könnunum sem dregur úr spám um framboð Guðlaugs en hann hefur enn ekkert gefið upp, hvorki af eða á.

Líkt og á landsfundi flokksins fyrr á árinu gæti komið til þess að gamalkunnar stríðandi fylkingar innan flokksins takist á á ný í aðdraganda leiðtogakjörsins um borgina.
Heimildir Gímaldsins herma að ákveði Guðlaugur að gefa kost á sér sé viðbúið að flokksfólk sem kaus Áslaugu Örnu Sigurjónsdóttur í formannskjöri á landsfundi muni fylkja sér að baki Hildi.
Nýr leiðtogi Viðreisnar verður valinn eftir áramót en Þórdís Lóa Þórhallsdóttir ætlar að láta gott heita í borginni. Viðreisn hefur þegar ákveðið að nýr oddviti flokksins í borginni verði valinn í leiðtogakjöri snemma á næsta ári en stillt verður upp á lista flokksins að öðru leyti.
Prófkjör var í flokknum í fyrra og því er um tilbreytingu að ræða.
Ýmis nöfn eru þegar farin að heyrast. Meðal þeirra sem liggja undir felldi eru Björg Magnúsdóttir, fjölmiðlakona og fyrrverandi aðstoðarmaður borgarstjóra og Aðalsteinn Leifsson aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Þá hafa einnig verið nefnd Róbert Ragnarsson, stjórnsýslufræðingur sérfræðingur um sameiningu sveitarfélaga og Gylfi Þorsteinsson, teymisstjóri hjá Rauða krossinum.
Kjördæmisþing verður hjá Framsókn í Reykjavík eftir helgi þar sem ræða á hvernig valið verður á lista flokksins. Samkvæmt lögum flokksins eru nokkrar leiðir færar í því en þeir sem Gímaldið hefur rætt við telja líklegast að stillt verði á lista eða kosið á tvöföldu kjördæmisþingi.

Einar Þorsteinsson oddviti flokksins hefur þegar lýst vilja sínum til að leiða flokkinn áfram í borginni. Hann er ekki óumdeildur í flokknum en viðmælendum Gímaldsins ber saman um að hann hafi í raun misst umboð sitt frá flokknum þegar hann gekk til samstarfs við Samfylkinguna í upphafi síðasta kjörtímabils. Í kosningabaráttu flokksins hafi verið lögð mikil áhersla á breytingar í borginni og samstarf við Samfylkinguna hafi ekki endurspeglað það kosningaloforð. Einar hafi svo slitið samstarfinu í von um að endurheimta umboð sitt en ekki gætt nægilega að sér í viðræðum um myndun nýs meirihluta til hægri.
Hins vegar er talið líklegast að Framsókn gefi Einari annað tækifæri til að leiða flokkinn, þrátt fyrir skrykkjótta byrjun í stjórnmálum og mjög dræmt fylgi.
Miðflokkurinn náði ekki manni inn í síðustu kosningum en þar er uppstillingarnefnd að störfum sem stefnir að því að kynna efstu nöfn á lista fyrir áramót.
Í öðrum flokkum er undirbúningur fyrir kosningarnar nokkuð á reiki. Píratar ætla að kjósa sér formann áður en þeir fara að hugsa um sveitarstjórnarmál, þar hafa félagsmenn iðulega valið á lista með rafrænni kosningu.
Vinstri græn hafa heldur ekki gefið út hvernig staðið verður að vali á lista en á þeim bæ hefur ýmist verið forval eða uppstilling. Töluverðs titrings hefur gætt í herbúðum Vinstri grænna að undanförnu og ný stjórn flokksins í Reykjavík meðal annars ályktað gegn tillögum meirihlutans í leikskólamálum. Líf Magneudóttir borgarfulltrúi flokksins á aðild að meirihlutanum og stjórn flokksins því í raun að álykta gegn eigin fulltrúa. Líf hefur gefið út að hún vilji áfram gefa kost á sér til að leiða flokkinn í borginni en óljóst er í ljósi stöðunnar hvort hún nýtur stuðnings flokksmanna.
Helga Þórðardóttir í Flokki fólksins hyggst ekki gefa kost á sér aftur. Ekki liggur fyrir hvernig flokkurinn hyggst velja á lista en það hefur hingað til verið gert með uppstillingu.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.