
Starfsmaður Útlendingastofnunar braut þagnarskyldu sína þegar hann deildi nöfnum skjólstæðinga stofnunarinnar á samfélagsmiðli. Upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar segir trúnaðarbrot litin mjög alvarlegum augum.

Starfsmaður Útlendingastofnunar deildi nöfnum skjólstæðinga stofnunarinnar á samfélagsmiðli og braut þannig gegn þagnarskyldu sinni. Brot á þagnarskyldu telst alvarlegt brot gegn skyldum starfsfólks stjórnvalda.
Þórhildur Hagalín, upplýsingafulltrúi Útlendingastofnunar, getur ekki tjáð sig um mál einstaka starfsfólks en segir: „Það er alveg skýrt að brot á trúnaði eru litin mjög alvarlegum augum og hafa afleiðingar í samræmi við alvarleika máls.“
Starfsmaðurinn deildi nöfnunum í lokuðum hópi einstaklinga á samfélagsmiðlinum Instagram. Á skjáskotum af færslunum, sem Gímaldið hefur undir höndum, má sjá að viðkomandi starfsmaður deilir þar handskrifuðum verkefnalistum sínum í vinnunni, hjá Útlendingastofnun. Á einum verkefnalistanum stendur til að mynda „Klára [nafn]“ vegna þriggja einstaklinga, skjólstæðinga Útlendingastofnunar. Á öðrum verkefnalista stendur: „Skrifa ákvörðun í máli [nafn]“. Meðal annarra verkefna sem finna má á listunum er til að mynda að undirbúa námskeið, undirbúa framhaldsviðtal og yfirlestur á ákvörðun.
Eitt skjáskotið sýnir viðkomandi taka af sér sjálfsmynd, þar birtast einnig tveir verkefnalistar þar sem búið er að haka við nokkur atriði, við nöfn einstaklinga sem þurfti að „klára“, strika yfir verkefnið að skrifa skipunarbréf, og yfir myndina skrifar viðkomandi „I fear […] may have slayed today“.
Á öðru skjáskoti með mynd af verkefnalista hefur verið hakað við fimm atriði, þar á meðal nöfn þriggja einstaklinga sem viðkomandi þurfti að „klára“, ásamt því að yfir myndina er skrifað: „3 kínverjar búnir komnir með klára synjun! Not all heroes wear capes“ ásamt emoji af einstaklingi í ofurhetjubúningi.
„Jólakaka í mallanum & spurningakeppni gillsarans í eyrunum meðan ég skrifa synjun á vernd“
Enn annað skjáskotið sýnir viðkomandi starfsmann Útlendingastofnunar deila mynd af jólalagalista á Spotify ásamt verkefnalista þar sem búið er að haka við nafn eins einstakling sem þurfti að „klára“, með textanum: „Verðlauna mig með jólalögum fyrir fyrsta [tékkemoji]“. Einnig deildi viðkomandi mynd af sér að borða jólaköku með textanum: „Jólakaka í mallanum & spurningakeppni gillsarans í eyrunum meðan ég skrifa synjun á vernd“ ásamt hjartaemoji.
Gímaldið deilir ekki þessum skjáskotum vegna þeirra viðkvæmu persónuupplýsinga sem á þeim sjást.
Gímaldið hafði samband við Útlendingastofnun vegna málsins, sem hafði ekki áður fengið það á sitt borð. Í skriflegu svari frá Útlendingastofnun segir að stofnunin leggi ríka áherslu á vernd persónuupplýsinga sem stofnunin ber ábyrgð á en vinnsla slíkra upplýsinga er nauðsynlegur þáttur í starfsemi stofnunarinnar.
Gímaldið óskaði eftir svörum við því hvaða verklagsreglum væri unnið eftir þegar kemur að gagnaöryggi og persónuvernd hjá stofnuninni og hver viðbrögð við brotum væru.
„Starfsfólk Útlendingastofnunar er bundið þagnarskyldu samkvæmt lögum. Reglur um meðhöndlun persónugreinanlegra upplýsinga og þagnarskyldu opinberra starfsmanna eru kynntar ítarlega fyrir starfsfólki þegar það hefur störf hjá stofnuninni, sem og þau viðurlög sem geta verið við broti á slíkum reglum. Allt starfsfólk undirritar þar að auki sérstaka yfirlýsingu þar sem það leggur drengskap sinn við því að fara með alla þá vitneskju sem það fær innan stofnunarinnar sem algeran trúnað,“ segir í skriflegu svari frá Útlendingastofnun.
Þar kemur einnig fram að stofnunin hefur sett sér sérstaka persónuverndarstefnu og vinnur auk þess eftir verklagi um meðhöndlun gagna, frágang og gagnaöryggi sem og verklagi um öryggisbresti við meðhöndlun persónuupplýsinga.
Ennfremur segir í svarinu: „Ábendingar um brot starfsfólks á reglum um þagnarskyldu og meðhöndlun og varðveislu persónugreinanlegra upplýsinga eru teknar mjög alvarlega og fela í sér virkjun verklags stofnunarinnar um öryggisbresti við meðhöndlun persónuupplýsinga um leið og slík ábending berst. Í öllum tilfellum er mögulegum brotum í starfi markaður viðeigandi farvegur eftir því sem lög mæla fyrir um. Að öðru leyti getur stofnunin ekki tjáð sig um málefni einstakra starfsmanna.“
Þagnarskylda opinberra starfsmanna, þar á meðal starfsfólks Útlendingastofnunar, byggir á stjórnsýslulögum, útlendingalögum og persónuverndarlögum.
Samkvæmt stjórnsýslulögum er starfsmönnum stjórnvalda óheimilt að greina frá eða miðla upplýsingum sem leynt eiga að fara og þeir fá vitneskju um í starfi sínu. Þetta á meðal annars við um nöfn, persónulegar aðstæður fólks, fjölskylduhagi og stöðu mála sem eru til meðferðar. Skyldan gildir bæði gagnvart almenningi og öðrum sem ekki koma að málinu, og hún helst þó starfsmaður láti af störfum.
Í útlendingalögum er sérstaklega kveðið á um að stjórnvöld megi ekki afla eða veita upplýsingar um umsækjendur um alþjóðlega vernd með þeim hætti að það geti ógnað öryggi þeirra eða aðstandenda þeirra. Þetta þýðir að persónugreinanlegar upplýsingar, þar á meðal nöfn, eru almennt háðar trúnaði og ekki heimilt að gera þær opinberar nema skýr lagaheimild standi til þess. 15. gr. útlendingalaga endurspeglar að mál sem snúa að umsóknum um vernd eru talin sérstaklega viðkvæm og að miðlun persónugreinanlegra upplýsinga, þar á meðal nafna, getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þá einstaklinga sem verða fyrir trúnaðarbroti. Sú vernd sem kveðið er á um í útlendingalögum á rætur í alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum Íslands, til að mynda Mannréttindasáttmála Evrópu og Samnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi.
Þá gilda einnig persónuverndarlög, sem setja ríkar kröfur um að vinnsla persónuupplýsinga sé lögmæt, nauðsynleg og örugg. Stofnuninni, hér Útlendingastofnun, ber að tryggja að aðeins þeir starfsmenn sem þurfa upplýsingar vegna starfa sinna hafi aðgang að þeim. Þá takmarka upplýsingalög afhendingu gagna til almennings þegar þau varða einkamálefni einstaklinga.
Kæri lesandi Gímaldsins
Þessi grein er opin tímabundið, en efni Gímaldsins er almennt aðeins fyrir áskrifendur.
Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.
Vilt þú vera með?
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.