Um leikja­fræð­ina á þingi og hvern­ig for­seti held­ur söns­um þeg­ar allt verð­ur vit­laust

Lestími: 10 mínútur

Hvaða herr­um þjón­ar for­seti Al­þing­is og hver fer með dag­skrár­vald þings­ins í raun og veru? Þess­um spurn­ing­um og mörg­um öðr­um svar­ar Birg­ir Ár­manns­son, fyrr­ver­andi þing­for­seti í við­tali um leikja­fræð­ina á Al­þing­i.

Birg­ir Ár­manns­son sat á Al­þingi fyr­ir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í rúma tvo ára­tugi áð­ur en hann lét gott heita eft­ir síð­asta kjör­tíma­bil. Birg­ir gegndi stöðu þing­flokks­for­manns og var for­seti Al­þing­is síð­asta kjör­tíma­bil sitt.

Gímald­ið leit­ar svara hjá Birgi við spurn­ing­um um hvaða herr­um þing­for­seti þjóni í raun og veru, hver fari með dag­skrár­vald­ið á þingi og hvern­ig því er beitt. Við ræð­um dag­skrár­liði eins og fund­ar­stjórn for­seta, hvern­ig for­seti geti hald­ið söns­um þeg­ar allt verð­ur vit­laust, hvort hann kom­ist á kló­sett­ið þeg­ar greidd eru at­kvæði um fjár­lög og margt fleira.

Kom­inn úr eins árs þagn­ar­bind­indi

Þótt Birg­ir sé sátt­ur við að hafa hætt á þingi og hafi í fyrstu ver­ið óskap­lega feg­inn, við­ur­kenn­ir hann að stund­um sakni hann síns gamla vinnu­stað­ar.

„Svona af og til kem­ur upp hjá manni ein­hver gam­all póli­tíkus sem er að trufla mann,“ seg­ir Birgir, en þeg­ar hann hætti á þingi í nóv­em­ber 2024 ákvað hann að setja sjálf­an sig í eins árs póli­tískt þagn­ar­bind­ind­i.

„Það er lið­ið núna og að und­an­förnu er ég bú­in að vera að skrifa grein­ar um Evr­ópu­mál­in og á kannski eft­ir að skrifa fleiri,“ seg­ir hann. Það sé ákveð­inn lúx­us að geta lát­ið í sér heyra um þau mál sem hann hef­ur lengi fylgst með og haft áhuga á, en lát­ið hið dag­lega þras á þingi fram hjá sér fara.

Í við­tal­inu ræð­ir Birg­ir með­al ann­ars um stöðu þing­for­set­ans, hversu langt hlut­leys­iskrafa til hans geng­ur og hvern­ig slík­um kröf­um er hátt­að hjá öðr­um þjóð­þing­um.

Á Ís­landi má þing­for­seti áfram sitja í sín­um þing­flokki og taka þátt í starfi síns flokks. Hann tek­ur þátt í at­kvæða­greiðsl­um á Al­þingi og get­ur líka tek­ið þátt í um­ræð­u­m. Birg­ir seg­ist nokkrum sinn­um hafa tek­ið þátt í um­ræð­um fyrsta ár­ið á for­seta­stóli. Hann hafi svo ákveð­ið að hætta því.

„Ég hugs­aði með mér, ef það kem­ur eitt­hvað risa­stórt mál þar sem ég hef mjög heit­ar skoð­an­ir þá vil ég eiga þetta inni en ég ætla ekki að vera að standa í þrasi hér við þing­menn, úr öðr­um flokk­um, sem ég þarf síð­an að eiga gott sam­starf við,“ seg­ir Birg­ir.

Þjónn meiri­hluta­ þings frem­ur en rík­is­stjórn­ar

Birg­ir seg­ir ein­föld­un að halda því fram að for­seti Al­þing­is sé þjónn rík­is­stjórn­ar­inn­ar. „Þing­for­set­inn auð­vit­að hef­ur það hlut­verk að láta þing­störf­in ganga sæmi­lega fyr­ir sig og það er auð­vit­að hluti af því starfi að tryggja, eft­ir því sem kost­ur er, að meiri­hluta­vilj­inn í þing­inu nái fram að ganga.“ Oft­ast hafi rík­is­stjórn­ar­flokk­arn­ir meiri­hluta og því ákveðn­ar lög­lík­ur fyr­ir því að mál sem rík­is­stjórn ber fram hafi stuðn­ing í þing­in­u. Þetta skýri for­gang stjórn­ar­frum­varpa fram yf­ir þing­manna­mál.

„Menn þurfa alltaf að minna sig á að við bú­um í þing­ræð­is­ríki þar sem rík­is­stjórn styðst við meiri­hluta í þing­inu en ekki öf­ugt. Þannig að það er hlut­verk þing­manna úr öll­um flokk­um að veita rík­is­stjórn­inni að­hald og þing­ið tek­ur ekki við fyr­ir­mæl­um frá rík­is­stjórn­inn­i.“

Mál­þófs­menn hvíld­inni fegn­ir

Birg­ir seg­ist hafa lært af reynsl­unni að auk­in upp­lýs­inga­gjöf minnki lík­ur á því að allt fari í hund og kött í þing­in­u. „Bæði þeg­ar ég var þing­for­seti og líka sem þing­flokks­for­mað­ur, var reynsl­an nú sú að því meiri upp­lýs­ing­ar sem mað­ur gat og vildi gefa þing­flokks­for­mönn­um, þeim mun betra; þeim mun minni lík­ur voru á því að það kvikn­aði í hús­in­u, ef svo má segja.“

Um und­ir­bún­ing fyr­ir mál­þóf seg­ir Birg­ir að ef for­seti hafi til­finn­ingu fyr­ir því að mál fari í mál­þóf geti hann þurft að sætta sig við að það yf­ir­taki allt. Hafi mál­þóf ver­ið fyr­ir­sjá­an­legt um til­tek­ið mál sé best að sætta sig við það og bregð­ast við því til dæm­is með því að taka mál­ið fyr­ir á ró­leg­um tíma í þing­in­u, eins og í nóv­em­ber frek­ar en í des­em­ber.

„Mál­þófs­menn verða oft mjög fegn­ir þeg­ar þeir fá svona tæki­færi vegna þess að þá geta þeir hvílt sig á mál­þóf­inu á með­an.“

„Ef mál er þess eðl­is að rík­is­stjórn er mjög ein­dreg­in í því að koma því áfram og stjórn­ar­and­stað­an ann­að hvort öll eða hluta er mjög ein­beitt í því að koma í veg fyr­ir að það nái fram að ganga þá, verða menn bara að reikna með að það taki ein­hvern tíma og þá kemst ekk­ert mik­ið ann­að að á með­an,“ seg­ir Birg­ir.

Birg­ir seg­ir þó oft reynt að ná sam­komu­lag­i, þeg­ar mál­þóf dregst á lang­inn, fyr­ir einn dag í senn, til dæm­is um að eitt til tvö af­greiðslu­mál sem þurfi hraða af­greiðslu, séu sett á dag­skrána á und­an mál­þófs­mál­inu Dæmi um slík mál hafi ver­ið mál tengd eldsum­brot­um á Reykja­nesi eða Covid mál.

„Þá töl­uðu menn um það fyr­ir­fram að þau fengju ein­hvern ákveð­inn tíma og svo færu menn bara í mál­þóf­ið aft­ur,“ seg­ir Birg­ir og bæt­ir við:

„Mál­þófs­menn verða oft mjög fegn­ir þeg­ar þeir fá svona tæki­færi vegna þess að þá geta þeir hvílt sig á mál­þóf­inu á með­an. Þannig að það get­ur að vissu leyti ver­ið beggja hag­ur að gera svona samn­inga fyr­ir í dag og dag í ein­u.“

Kjarn­orku­á­kvæð­ið

Birg­ir bend­ir á að mál­þófsvopn­ið sé oft­ast eina vopn­ið sem stjórn­ar­and­stað­an hafi í þing­inu því meiri­hlut­inn hafi yf­ir­burð­ar­stöðu í þing­in­u.

oft er það þannig það er part­ur af þing­inu já það er auð­vit­að part­ur af leikja­fræð­inni og það sem þeir sem eru í stjórn­ar­and­stöðu á hverj­um tíma að benda á er það að mál­þóf eða hót­un um mál­þóf er í mörg­um til­vik­um eina vopn­ið sem stjórn­ar­and­stað­an hef­ur meiri hlut­inn hef­ur yf­ir­burða­stöð­u, bæði í nefnd­um og í at­kvæða­greiðsl­u­m. En minni­hlut­inn hafi mál­frels­ið að vopn­i. Á móti því er þó til þetta kjarn­orku­vopn sem er í 71. gr. þing­skapa, heim­ild for­seta til að stöðva um­ræð­ur.

Birg­ir sat á þingi í rúma tvo ára­tugi og á for­seta­stóli síð­asta kjör­tíma­bil sitt. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Að­spurð­ur við­ur­kenn­ir Birg­ir að hafa oft hugs­að til þessa ákvæð­is. „Frá því að ég sett­ist á þing 2003, hafa með reglu­legu milli­bili kom­ið upp mál­þóf eða mál­þófs­að­stæð­ur sem hafa gert það að verk­um að stjórn­ar­flokk­ar, þing­flokk­ar eða að minnsta kosti ein­staka þing­menn meiri­hlut­an­um hafa íhug­að mjög al­var­lega að beita þessu.“ Svo hafi aðr­ar leið­ir fund­ist eða menn kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að klók­ara væri að sleppa því en að nota það.

„Það er bara þannig að regl­an er fyr­ir hendi í þing­sköp­um og það dreg­ur eng­inn í efa að það er hægt að beita henn­i. Það eru tveir mögu­leik­ar, ann­að hvort kem­ur for­seti með þessa til­lögu eða níu þing­menn geta kom­ið með þá til­lögu að um­ræð­an verði stöðv­uð og þá er það bara meiri­hluti at­kvæða í þing­sal sem ræð­ur hvort til­lag­an er sam­þykkt eða ekki,“ seg­ir Birg­ir og bæt­ir við:

„Ég myndi nán­ast þora að full­yrða að um­ræð­ur bak við tjöld­in um að beita þessu ákvæði hafa kom­ið upp á hverj­um ein­asta vetri.“ Ókost­ur­inn sé að beit­ing þess geti haft áhrif á öll sam­skipt­in í þing­in­u. Svo þurfi fólk líka að átta sig á að taf­lið geti snú­ist við og þeir sem beittu regl­unni orð­ið fyr­ir því síð­ar að regl­unni verði beitt gegn þeim sjálf­um. „Þannig að þetta er svona spurn­ing um leikja­fræði og mat á póli­tísk­um að­stæð­u­m,“ seg­ir Birg­ir.

Í við­tal­inu er far­ið vítt og breitt um leikja­fræði þing­starf­anna og per­sónu­lega reynslu Birg­is af for­seta­stóli. Hægt er að hlusta á við­talið í spil­ar­an­um hér að of­an og í öll­um helstu hlað­varpsveit­u­m.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 9. júní, 2026, 12:17

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link