Viljum við að íslenska verði tungumál þessarar þjóðar?

Lestími: 27 mínútur

„Við erum að tapa í þessu stríði,“ segir Páll Valsson þar sem hann ræðir stöðu íslenskunnar í ansi ítarlegu viðtali, hluta af röð viðtala um tungumálið. Sem útgefandi hefur hann lesið óteljandi handrit í einhverja áratugi og þannig orðið vitni að breytingum í málnotkun.

„Lykillinn að allri okkar fortíð og sögu er tungumálið. Ef við glötum því þá slitnar þráður sem ekki verður hnýttur aftur. Það tjón er óafturkræft. En það er misskilningur að slíkt tjón sé einkamál okkar Íslendinga. Glatist íslenskan sem þjóðtunga hverfur um leið merkilegt framlag þessarar þjóðar til bókmennta og menningar heimsins. Og hvað er þá orðið okkar starf?“ 

Svo spyr Páll Valsson, útgáfustjóri Bjarts og áður útgáfustjóri Máls og menningar. Hann er jafnframt íslenskufræðingur sem kennt hefur íslensku í yfir 40 ár, bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Þá er hann sjálfur rithöfundur sem hlaut um árið Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir ævisögu Jónasar Hallgrímssonar. 

Páll ríður á vaðið í röð viðtala við íslenskufræðinga, fólk sem vinnur með tungumálið og kennara. Viðtölin birtast jafn og þétt á næstu dögum. Sem útgefandi hefur Páll lesið óteljandi handrit í einhverja áratugi og þannig orðið vitni að breytingum í málnotkun. Frá bæjardyrum hans blasa við breytingar á ýmsum sviðum í þessum efnum.

Mynd/Bára Huld Beck

Málfari í fjölmiðlum hefur farið aftur

Páll hefur lengi búið að þeirri innsýn sem fylgir því að lesa yfir handrit hjá bókaforlögum. Á árunum 2005 til 2006 byrjaði hann að veita því eftirtekt að það var orðinn einhver grundvallarbreyting í tungumálinu. „Áður höfðu auðvitað verið ýmsir agnúar, en á þessum tímapunkti var eins og kerfisbreyting væri að verða í setningaskipan og slíku,” rifjar hann upp. „Smám saman styrktist sú tilfinning hjá mér að grunnskipan tungumálsins væri að riðlast. Síðan þá hefur þetta bara orðið miklu, miklu verra. Enskan er að ná ráðandi stöðu í íslenskri setningagerð og íslensku máli. Ég er ekki viss um að menn átti sig alveg á þessu, hvað þetta er alvarlegt. Á endanum grefur þetta undan málinu.”

Hann minnist þess að hér áður fyrr hefðu menn haft áhyggjur af einhverjum slettum og prentvillum – einhverju sem litlu skipti í raun. Frekar en þágufallssýkin. „Fyrir 30 árum hafði fólk áhyggjur af því að viðtengingarhátturinn væri í hættu. Nú er hann algjörlega að hverfa. Og með honum hverfur svo mikið, ýmsar hljóðbreytingar og skemmtileg blæbrigði í tungumálinu. Málið verður miklu fátæklegra. Þetta eru allskonar þættir sem spila saman. Með tímanum veldur þetta því að við förum að hugsa á ensku. Það sér maður hvað eftir annað í fjölmiðlum. Málfari í fjölmiðlum hefur farið gífurlega aftur og það gildir um alla. Enskan hefur tekið yfir. Það slær mann að ungt fólk í viðtölum grípur til enskunnar fyrst, hún virðist orðin þeim tamari.”

Fólk er að „söffera”

Hann nefnir dæmi: „Ungur fótboltamaður var í viðtali eftir leik um daginn og sagði: Þetta var erfiður hálfleikur – við vissum að við myndum söffera. Söffera! Hann var að tala um þjást.“ Páll segir að enskan sé orðin alltumlykjandi í hugsun og öllu orðfæri. Stundum þegar verið sé að þýða fréttir eða til dæmis viðtöl við þjálfara og leikmenn í íþróttafréttum séu þau oft óskiljanleg. „Maður verður að fara í upprunamálið til að fá einhvern botn í fréttina. Því ef þú kannt ekki íslensku, þá geturðu ekki þýtt úr ensku svo vit verði í. Úr verður bara óskapnaður. Íslenskan er alltaf undirstaðan. Ég held að flestir hafi ekki möguleika á að kunna nema eitt tungumál til hlítar. Það er þá móðurmálið sem maður er alinn upp við, þekkir blæbrigði þess og getur lært hin málin út frá því.“ 

Orðaforðinn dregst ótrúlega hratt saman

Hann bendir á að orðaforði fólks  á íslensku sé orðinn „afar fátæklegur, enda fylgir það hratt minnkandi lestri“. Orðum sínum til stuðnings rifjar hann upp að á kóræfingu kvöldið áður hafiorðið hjóm komið fyrir og ung stúlka um þrítugt spurt: „Hjóm, hvað þýðir það?“ Hún hafði aldrei heyrt orðið. „Þetta er vandamálið. Orðaforðinn dregst ótrúlega hratt saman en fólki er alveg sama. Það er alveg hrikalegt. Maður getur gert grín að þessu en svo hættir þetta að vera fyndið. Ungu fólki er mörgu orðið tamara að hugsa á ensku en íslensku. Það segir manni að íslenskan er auðvitað í stórhættu. Við verðum að horfast í augu við veruleikann og hann er sá að íslenskan á alls staðar undir högg að sækja. Sama hvar þú drepur niður fæti.“

Mynd/Bára Huld Beck

Hvergi töluð eftir 100 ár

Árið 2006 varð þó nokkur úlfaþytur eftir að Páll þótti boða váleg tíðindi á ráðstefnu um íslenskuna. Sem fyrirlesara var mat hans þá að íslenska yrði hvergi töluð eftir 100 ár – ef fram færi sem horfði. Ráðstefnan um stöðu málsins var fjölsótt og svo virðist sem farið hafi um einhverja þegar Páll sagði þann vanda tungunnar – sem til að mynda Fjölnismenn hefðu staðið fyrir á sínum tíma – væri dvergvaxinn í samanburði við: „ … þá hættu sem nú steðjar að tungunni.“

Í umræðu sem þá skapaðist hafði hann jafnframt orð á því að of mikilli orku hefði verið eytt í smáatriði á borð við það að leiðrétta þágufallssýki og amast við slettum á sama tíma og stökkbreyting væri að verða í þróun tungumálsins. Hann benti á að sjálfar undirstöður tungumálsins væru að bresta. Að beygingarkerfið væri í uppnámi rétt eins og setningafræðilegur grundvöllur. 

Þetta var fyrir 19 árum. 

Strax þá varaði hann við því að tilfinning fólks fyrir uppbyggingu eðlilegra og einfaldra setninga væri á hröðu undanhaldi. Hann sagði kynslóðabilið í tungutaki vera meira nú – lesist þá – en nokkru sinni. Þannig væru til að mynda unglingar að einangrast í eigin málheimi. Með því móti flytjast hvorki orðaforði né orðfæri lengur á milli kynslóða. Nokkuð sem hann taldi þá – og telur enn – „vera stóralvarlegt vilji fólk halda íslenskunni lifandi.“

„Við erum að tapa í þessu stríði“

Í dag telur hann að þessari grundvallarspurningu, hvort við viljum að íslenskan verði áfram tungumál þjóðarinnar, sé ennþá ósvarað. „Þetta er stórmál,“ segir Páll, „en menn eru auðvitað alltaf með hálfkæring.“ Hann lítur svo á að tíminn til stefnu sé naumur. „Við erum að tapa í þessu stríði.“

Þegar hann minnist ræðunnar á ráðstefnunni árið 2006 segir hann orð sín þá ekki hafa verið sérstaklega frumleg. „En þetta vakti athygli,“ segir hann og rifjar upp forsíðu Morgunblaðsins þar sem stóð við þetta tækifæri að útgáfustjóri stærsta forlags landsins (Eddu-útgáfu) hafi sagt að ef ekkert verði að gert þá muni íslenskan ekki vera til eftir 100 ár. 

Á sínum tíma hélt Páll sig vera að gefa upp boltann. Að til dæmis akademían myndi grípa  hann og fleyta áfram en þess í stað: „ … fékk ég bara á baukinn. Það fara allir í vörn. Ef þú segir að íslenska sé ekki kennd nógu vel eða mikið í skólum, þá fara kennarar í vörn. Spyrja: Ert þú að segja að við kunnum ekki að kenna? Menn fara alltaf í skotgrafir. Rökræðan glatast og það gengur ekki,“ útskýrir hann og leggur áherslu á nauðsyn þess að tala um þetta af yfirvegun og raunsæi.  „Stjórnmálamenn, kennarar, akademían, við öll. Við þurfum að geta rætt vandamálið án þess að persónugera það. Öll tungumál ör- og smáþjóða eru í útrýmingarhættu, eins og dýrategundir, og hverfa eitt af öðru. Af hverju ætti annað að gilda um okkur?“

Hann minnir á að dag hvern deyi einhver tungumál. „Íslenskan lifir út af þessum menningarlegu rótum. Þess vegna er hún sterk. En hins vegar lifir hún ekki allt af. Og sú hætta sem hingað til hefur steðjað að henni er bara hjóm miðað við þá hættu sem hún stendur andspænis í dag. Það er af allt annarri stærðargráðu.“

 En hvað gerðist? – eða er að gerast? 

Þýðir ekki lengur að bjóða upp á þykkar bækur

Páll nefnir fyrst tæknibyltinguna: „ … netið og allt þetta.“ Síðan segir hann að ofan á innreið enskunnar bætist að fólk lesi svo „miklu, miklu minna en áður.“ Lestur fari niður bratta brekku: „ … þeim fjölgar mjög hratt sem lesa aldrei bók. Sumir lesa eina eða tvær bækur á ári, píndir til þess í skólum. Fólk á bara í vandræðum með að klára 200 síðna bók. Það þýðir ekkert að bjóða upp á 500 til 600 síðna bækur, höfundar eins og Halldór Laxness, fólk á bara erfitt með þetta. Þá bætist við einbeitingarskortur sem er þjóðfélagslegt vandamál. Þetta gerist líka erlendis, ólæsi er vaxandi í heiminum. Enginn skal segja mér annað en að það sé fylgni í ólæsi hér heima og í heiminum. Þeir sem eru ólæsir lesa sér ekki til gagns né gleði. Hlusta þá frekar á popúlista.“

Hann nefnir Lilju Alfreðsdóttur sem dæmi um stjórnmálamann sem sýndi að það væri hægt að gera eitthvað, til dæmis með því að efla ritlaun, bókasafnsjóð og með því að hefja endurgreiðslu hluta framleiðslukostnaðar til bókaútgefenda. „Annars væri bókaútgáfa bara svipur hjá sjón. Án endurgreiðslunnar væru ýmsar bókaútgáfur í miklum vandræðum. Hún kom þegar bóksalan byrjaði að hrynja en hún hefur minnkað um tugi prósenta á fáeinum árum.“

Getum ekki gefið út bækur fyrir ólæsan markað

Á Páli má skilja að kiljumarkaðurinn, sem hér var líflegur fyrir nokkrum árum, væri nánast hruninn. Nú væri til dæmis rætt um skort á ungmennabókum: „Þær eru oft þykkar, eins og Hungurleikarnir, og þýðingarkostnaður mikill, en þá er spurt: Af hverju gefið þið þetta ekki út á Íslandi?  Semsé, læsi er hrunið, en af hverju gefið þið ekki út fleiri bækur? Það gengur ekki upp, því miður. Við getum ekki gefið út fleiri bækur fyrir ólæsan markað,“ svarar hann ósýnilegum spyrjendum.

„Þetta dæmi gengur ekki upp – nema komi til eitthvað sérstakt átak. Nú virðist hins vegar farið í þveröfuga átt, td. bókasafnssjóður skorinn niður, einmitt þegar þarf að gefa heldur betur í. Börn og ungmenni sem lesa ekki eru að fara svo mikils á mis. Það er svo mikilvægt að kynna þeim þennan undraheim bókanna. Ímyndunaraflið og þá hugarveröld sem bækur efla og skerpa. Bækur stuðla líka að valdeflingu og sköpun. Maður ímyndar sér að bóklestur skapi betri og öflugri samfélagsþegna og stuðli þar með að betra samfélagi. Ekki veitir af. En 70 prósent stelpna og 60 prósent stráka í öðrum bekk í grunnskóla eru læs. Þýðir það að um þriðjungur drengja í öðrum bekk séu ólæsir?“ 

Hann spyr sig – og það rímar við niðurstöðu Lesmáls 2025, prófs sem sýnir fram á að tæp 68 prósent skólabarna í 2. bekk í Reykjavík búa yfir því sem kallað er aldurssvarandi hæfni í lestri. Færni stúlkna mældist 73 prósent en færni drengja 63 prósent. Prófið metur lesskilning, lestur og réttritun hjá börnum í 2. bekk. Þá náði fjórðungur þeirra sem tóku þátt árangri á blinu 31 til 60 prósent en um sjö prósent barnanna náðu 0 til 20 prósenta árangri. Í fyrra mældust 65 prósent barnanna með aldurssvarandi hæfni svo það hlutfall hefur aðeins hækkað. 

Mynd/Bára Huld Beck

Þeim fjölgar sem geta ekki tjáð sig

Um leið og versnandi lesskilningur ungmenna hefur verið í umræðunni og fólk les sífellt færri bækur er enska hins vegar að verða mörgum töm. Við því segir Páll: „Fólk heldur að það sé mjög gott í ensku en það er oft mikill misskilningur, þótt fólk kunni einhver orð og geti bjargað sér eru flestir með mjög lítinn orðaforða. Móðurmálið er oftast eina málið sem þú kannt almennilega. En þetta endar með því að fólk verður bæði lélegt í ensku og íslensku; kann ekki að tjá sig nema með mjög frumstæðum hætti. Þeim fjölgar sem geta ekki tjáð sig að neinu ráði. Fólk verður þá bæði illa læst og illa talandi. Það er vandamál. Og verður líka lýðræðislegt vandamál. Hvernig á þetta fólk að mynda sér skoðanir til dæmis í kringum kosningar? Þegar þú kannt ekkert mál sæmilega ertu í vondri stöðu í þjóðfélaginu. Það fólk er í meiri hættu að verða fórnarlömb popúlismans. Vaxandi ólæsi er ein skýringin á uppgangi popúlisma. Ég er alveg sannfærður um það.“ 

Þá ítrekar hann mikilvægi lesskilnings sem undirstöðu fyirr gagnrýna og skapandi hugsun. Bækur skipti miklu máli svo fólk læri að þekkja sjálft sig og tilfinningar sínar. En líka til þess að það læri um heiminn, lífið, tilveruna – og svo þroski fólk mál sitt í gegnum lestur. „Málvitundin er svo mikilvæg. Sérstaklega á þessu mótunarskeiði. Það skiptir svo miklu máli að ungmenni nái tökum á tungumálinu, læri að tjá sig, öðlist orðaforða. Að þau nái í einhver orð sem lýsa því hvernig þeim líður.“

Átak gegn lestrarkrísunni

Páll er ekki eini útgefandinn sem hefur áhyggjur á tímum umbreytinga. Hann beinir talinu að ákalli tíu sænskra bókaútgefenda fyrir stuttu – sem birtist í Dagens Nyheter undir yfirskriftinni: Vi kräver en nollvision mot läskrisen. Orðið nollvision er sambærilegt við Vision Zero á ensku sem merkir veg varðan fyrir slysum og óhöppum. Á íslensku gæti fyrirsögnin því verið á þessa leið: Við krefjumst ábyrgrar leiðar gegn lestrarkrísunni. 

„Það sem þessir útgáfustjórar segja er: Setjið lestur inn í stundaskrá grunnskóla. Hafið lestrartíma: Nú setjast allir niður og lesa! Lestrarskylda,” vitnar hann í þá og segir vera athyglisvert út af því að foreldrar lesi ekki lengur fyrir börnin sín. „Það er rosalegur munur á börnum. Þeir krakkar hafa forskot sem foreldrarnir hafa lesið fyrir. Og flest börn elska að láta lesa fyrir sig. Ef það er lesið fyrir börn ung verður máltakan fyrr, þau byrja fyrr að lesa og gengur betur í skóla.” 

Hann les nú upp úr ákallinu sem hefst á orðunum: „Nú koma út fleiri bækur en nokkru sinni áður – en sífellt færri megna að lesa þær.” Nokkuð sem rímar við Ísland þar sem nú orðið eru um það bil 600 titlar í bókatíðindum hvers árs en þó aðeins þrjú ár síðan mældist að um 47% drengja hér á landi geta ekki lesið sér til gagns við útskrift úr grunnskóla. Í ákalli Svíanna má finna fleiri tillögur að ráðum við lestrarkrísu, á borð við það að styrkja bókasöfn og bjóða rithöfundum í kennslustofur.

Íslendingar skipta yfir í ensku

Ekki er ólíklegt að ýmsir upplifi vanmátt við það að enskan hafi tekið yfir ýmis svið, og sé orðin svona fyrirferðarmikil í umhverfinu. Mörgum Íslendingum, sérstaklega þeim eldri, er ekki tamt að tala ensku í daglegu lífi, það fólk gæti því fundið sig utangarðs í samfélaginu. Heldur þú að slíkur vanmáttur geti eflt öfga þjóðernishyggju, jafnvel kynnt undir rasisma? 

„Þarna er fólk líka í hættu á að verða fórnarlömb popúlisma. Þetta er ein skýringin á uppgangi hans – eða lýðhyggju. Maður mætir eldra fólki og það veltir fyrir sér: Bíddu, ég hef búið í þessu landi í 70 ár og ég vil ekki þurfa að tala ensku til þess að geta keypt mér brauð.“

Er það rasismi? 

„Að sjálfsögðu ekki. Við eigum að líta svo á að við þurfum að hjálpa fólki að læra íslensku. Langflestir sem hér setjast að vilja læra málið. Ég hef hitt fjölda fólks sem hefur gert Ísland að heimili sínu og er alltaf að reyna að læra íslensku. Nemendur mínir frá Svíþjóð komu hingað sem skiptinemar til að efla sig í íslensku, en þau kvörtuðu yfir því að Íslendingar fóru alltaf að tala ensku við þau. Þau sögðu: Ég reyni að tala íslensku en það er strax skipt yfir í ensku,“ segir hann. 

Munur á ættjarðarást og þjóðernishyggju

Páll hugsar eitthvað með sér, segir síðan að á fáeinum árum hafi enska orðið ríkjandi í umhverfinu. „Það er eðlilegt að það valdi fólki hugarangri.  En svo erum við náttúrlega alltaf að kljást við okkar smáþjóðarkomplex. Enskan þykir svomiklu fínni, íslenskan er lummó, og þar fram eftir götum. Við þurfum að hrista það af okkur og vera stolt, reyna að sýna þann dug að geta viðhaldið þessu tungumáli. Þetta er ekki síst viðhorfsvandamál.“ 

Páll nefnir ákveðna klemmu: „ … Svo eru menn sem tala sig upp í ástríðu fyrir land, þjóð og tungu. Og þá æpa aðrir: Bíddu, bíddu þessi er þjóðernissinni! Fólk hefur uppi allskonar tal um þetta og ruglar saman hugtökum. Það er munur á ættjarðarást og þjóðernishyggju. Ættjarðarást er bara það að þykja vænt um land sitt, þjóð og tunguog er fallegt. Þú ert hins vegar þjóðernissinni þegar þú segir: Mitt tungumál er miklu merkilegra en þitt og mín saga er merkilegri en þín. Það er ofstæki sem við viljum ekki. En íslenskan er okkar mál sem erum alin upp við og við verðum að hugsa um það því það gerir það enginn annar. Ég lít á það sem skyldu okkar sem erum fædd á þessu landi. Okkur er falið tvennt: að passa upp á náttúru landsins og tungumál, og við verðum að reyna að standa okkur í því“

Af hverju beita stjórnmálamenn sér þá ekki meira fyrir því? Af hverju er staðan þessi? 

„Það er gömul saga og ný. Fólk telur sér trú um að heimurinn sé betri heldur en hann er. Menn vilja ekki horfast í augu við veruleikann. Af því að veruleikinn getur verið óþægilegur. Svo ríkti lengi þetta viðhorf: Íslenskan hefur lifað svo margt af – og hún mun lifa þetta af líka. En sú hugsun varð ofan á við allt aðrar aðstæður. Við lifum í gjörbreyttum heimi. En lýðskrumarar fatta þetta. Hugsa: Hey, þarna er færi og finna sér þá sökudólga sem henta þeim. Á meðan sofa bæði akademían og almenningur á verðinum. Stjórnvöld verða að setja miklu meiri kraft í þetta en sumt stjórnmálafólk er hrætt við að fá á sig stimpilinn þjóðernissinni. Aftur á móti er einmitt þessi þróun ein skýringin á uppgangi hægri öfgaflokka. Þjóðernisflokkar stíla inn á svona vanmátt. Og það er ein skýringin á því að láglaunafólk um alla Evrópu snýr sér að þeim.“

Enginn bjargar okkur

Miðað við önnur mál hefur íslenskan breyst „ótrúlega lítið” í tímans rás – að sögn Páls. „Það er sérstaða hennar. Við getum lesið handritin sem voru skrifuð hér á 13. öld. Tungumálið hefur varðveist svo óbrjálað, ólíkt til dæmis hinum norðurlandamálunum. Þess vegna er það tiltölulega hreint af slettum og gagnsætt. Fyrir vikið er nýrðasmíði á íslensku auðveld. Þú getur búið til orð sem endurspeglar merkingu þess. Eins og til dæmis sjónauki, orð sem spratt úr penna Jónasar Hallgrímssonar. Þú sérð á orðunum fyrir hvað þau standa. Það gefur íslenskunni stórkostlegt tækifæri sem við höfum nýtt. Við getum haldið því áfram ef við höfum til þess dug og nennu. Vilji er allt sem þarf. Við þurfum að svara spurningunni: Viljum við að íslenska verði áfram tungumál þessarar þjóðar?“

Hann hagræðir hattinum á höfði sér, segir síðan: „Ef svarið er já, þá þurfum við heldur betur að taka okkur taki. Þetta er undir okkur komið, engum öðrum. Enginn annar í heiminum bjargar okkur.“

Endurreisn

„Við þurfum endurreisn,“ verður honum að orði. Og því næst: „Þegar enskan byrjar að flæða inn í íslenskuna þá er hún auðvitað allt öðruvísi í laginu. Ég ætla ekki að gera lítið úr ensku en hún er öðruvísi í sniðinu, svolítið einfaldari. Í íslensku hverfur þá fyrst sterk beyging sagnorða, og svo viðtengingahátturinn sem mér sýnist nánast horfinn úr helstu fjölmiðlum. Með tímanum fer þá allt bragð úr tungumálinu, það er ef við sinnum því ekki. Því þarf að snúa við blaðinu og hefja endurreisn tungmálsins. Það gerðu Fjölnismenn á sínum tíma gagnvart dönsku. Og við erum aftur komin í þessa stöðu.“

 Þá segir hann: „Eins og ég nefndi áður er ungu fólki orðið tamara að tjá sig á ensku, þau segja það sjálf. Ef þau þurfa að tjá það sem þeim býr í brjósti grípa þau til enskunnar. Þar liggur tilfinningin. Einhvern veginn ná þau ekki utan um íslensku. En íslenskan er það sem gerir okkur að þjóð. Það eina sem er merkilegt við Íslendinga er landið og þetta tungumál sem hefur varðveist hér, á þessari furðulegu eyju, og er það tungumál sem er líkast því sem áður var talað á Norðurlöndunum. Norræn tunga. Það er íslenskan.“ 

Og á þetta mál voru skrifaðar merkilegar bókmenntir, ein skýringin á því að það hefur varðveist svona vel: „Af einhverjum ástæðum voru hér skrifaðar mjög merkilegar bækur á miðöldum. Í Evrópu var verið að skrifa á latínu allskonar kristilegan litteratúr sem er ekki eins merkilegur. Við vorum að skrifa alvöru bókmenntir. Alveg furðulegt! En ef við töpum tungumálinu, þá töpum við tengslum við allt þetta. Fólk þarf að átta sig á því. Þá er öll okkar saga í uppnámi. Öll réttlæting okkar fyrir sjálfstæði og því að vera þjóð. Þær þjóðir sem glata tungumáli sínu tapa vitund sinni. Þjóðarvitundinni. Og hægt að benda á ótal dæmi um það í veraldarsögunni. Þess vegna held ég að fólk veigri sér við að horfast í augu við að íslenskan geti horfið.“

Aumingjar að láta þetta gerast á okkar vakt

Þegar Páll er spurður hversu mikinn þátt íslenskan átti í því að við öðluðumst sjálfstæði segir hann að hún hafi átt allan þátt í því. „Þegar byrjað var að berjast fyrir sjálfstæði þjóðarinnar á 19. öld lögðu Fjölnismenn og Jón Sigurðsson áherslu á að skírskota til tungumálsins og menningarinnar. Það sem réttlætti að líta bæri á Íslendinga sem sjálfstæða þjóð var að við tölum eigið tungumál, og skráðum á það okkar eigin sögu. Það sýndiað þjóðarvitund Íslendinga væri svo sérstök, að við verðskulduðum sjálfstæði. Meginrökin voru menningarleg. Danir beygðu sig loks fyrir þessum menningarrökum og skiluðu meira að segja handritunum. Ég kannast ekki við önnur dæmi um að nýlenduherrar hafi skilað nýlendu sinni menningarverðmætum. Það var merkilegur gjörningur og í því fólst viðurkenning. Það er tungumálið, það er menningin, það er sagan. Og ef tungumálið hverfur þá erum við auðvitað algjörir aumingjar, ef við látum það gerast á okkar vakt.“

Mynd/Bára Huld Beck

Skuldum veröldinni að glata ekki tungumálinu

Páll segir fólk þurfa að átta sig á stóra samhenginu. Því án sérstöðu tungumálsins séum við aðeins eyja í ballarhafi sem skipti engu máli til eða frá. „Verstöð. Eða flugstöð!“ andvarpar hann og biðst svo forláts á því að æsa sig. En þetta sé alvarlegt mál. „Þegar tungumálið er á brunaútsölu.“ 

Næst beinist talið að því hvernig tungumálið er samofið menningu okkar og sögu: „Ég skal ekki fullyrða að við séum eina þjóðin í heiminum en að minnsta kosti ein af örfáum sem eiga alla sína sögu skráða, allt frá því að fyrsti svokallaði landsnámsmaðurinn steig hér fæti. Þá er allt skráð. Af einhverjum ástæðum höfum við verið ritóð þjóð og það strax. Það er samofið vitund okkar. Það er meginástæða þess að norræn tunga varðveitist hér,“ leggur hann áherslu á. 

Once we had a language

Hann minnist þess að fyrir hrun hafi einhverjir bankakónar talið íslenskuna vera hindrun og hemil og því ályktað að best væri að taka upp ensku. „Ég myndi snúa þessu algjörlega við. Tungumálið er okkar styrkur og fyrir því er borin virðing. Án þess verður strax holur hljómur. Once we had a language.“

Já, veruleikinn er svona – verður honum að orði. „Um leið er ómeðvitaður skortur á meðvitund hjá stjórnvöldum, hinu opinbera, um þennan veruleika. Samt erum við að tala um hlut sem hefur gríðarleg samfélagsleg áhrif. Við erum í raun og veru að dæma tugi þúsunda íbúa þessa lands til þess að vera annars flokks þegnar. Viljum við það?“

Lýðræðisleg hætta

Í sömu andrá ratar talið að samfélagsbreytingum sem fylgja þessari þróun og of lítið hefur verið rætt um. Fræðingurinn í íslensku hefur skýra sýn á þær: „Við höfum svo oft skreytt okkur með því að vera stéttlaust þjóðfélag, svona nokkurn veginn. Hér ríkti lengi meiri jöfnuður meðal þegnanna en víðast hvar. Auðvitað hefur það breyst en augljóslega er lýðræðisleg hætta fyrir hendi. Hætta sem þessi þróun getur af sér. Af því að sá sem ekki talar tungumál þess lands sem hann býr í er aldrei með í umræðunni. Ef þú ert ekki með í umræðunni áttu erfitt með að mynda þér skoðanir á málum og það endar með því að fólk hugsar: Bíddu, af hverju ætti ég að kjósa? Þetta kemur mér ekki við, ég er ekki hluti af þessu.“

Samfélög myndast innan samfélagsins

Hann segir minnkandi kjörsókn vera alls staðar í heiminum. „Kosningaþátttakan segir okkur þetta. Sífellt stærri hluti skilar bara auðu eða mætir ekki á kjörstað. En hefur það fólk fengið verkfæri til lýðræðislegrar þátttöku? Það að geta tjáð sig og skilið? Notað málið? Ef ekki, þá er það ekki með í þjóðfélaginu,“ bendir hann á. 

 „Af þessu stafar sýnileg hætta, það segir sig sjálft. Við erum um 400.000, þar af eru um 50 – 60.000 manns sem koma frá öðrum löndum, innflytjendur. Meirihluti þeirra talar ekki íslensku. Og getur þá hvorki tekið þátt í umræðunni né tilheyrt samfélaginu fyllilega. Þannig verða til samfélög innan samfélagsins, þar sem er töluð enska eða mörg önnur mál. Þessu fylgir hætta og þarna getum við horft til Svíþjóðar sem víti til varnaðar því þar urðu til svona þjóðarbrot. Í sumum úthverfum Stokkhólms eru heil hverfi þar sem eru töluð önnur mál en sænska. Þar gild önnur lögmál og það veldur því að úr verða árekstrar. Það myndast gettó og þar verða glæpir. Fólk safnar sér saman og hugsar að fyrst það sé ekki velkomið í landinu þá bara búi það til sín eigin lög. Samfélög þar sem þeirra reglur gilda. Við slíkar aðstæður geta glæpamenn náð yfirhöndinni með ofbeldi og hótunum.“

Þurfum að taka ákvörðun

Nú er flæði innflytjenda inn í landið veruleiki nútímans, sama hvað stjórnmálafólk segir. Meðvitaður um það segir Páll: „Ef við viljum búa í opnu samfélagi og viljum að fólk flytji hingað til lands þurfum við að valdefla það. Við þurfum að spyrja okkur hvernig við ætlum að bregðast við breytingum og taka ákvörðun um hvort við ætlum að viðhalda íslenskunni. Því hún bjargar sér ekki sjálf.“

Hann kveðst hafa þá kenningu að ef fólk ákveði á annað borð að setjast að á Íslandi þá vilji megnið af því læra tungumálið: „ … og eitthvað um sögu lands og þjóðar í gegnum málið. Við eigum að hjálpa fólki til þess. Það er svo augljós ávinningur. Þannig valdeflum við fólk og búum til betra samfélag.” 

Varnarbarátta

Næst minnist hann á að við það eitt að stíga inn í Leifsstöð fái fólk þau skilaboð að enska sé aðal málið, nokkuð sem fylgi líka túrismanum – þætti sem jafnframt á margvíslegan þátt í sviðsmynd enskunnar í dag. „Enska er út um allt, á skiltum og á ýmsum merkingum. Auðvitað er allt í lagi að enskan sé til staðar en íslenskan á að vera þarna líka. Helst í forgrunni og í öndvegi. Þú ert kominn til Íslands.” Hann segir mikilvægt að styðja við starfsfólk í þjónustu svo það geti lært grunnatriði í íslensku. Mikilvægt sé að sýna íslenskunni virðingu. 

„En það er engin stefna í þessu. Við erum að tapa þessum slag. Í stað þess að ákveða að við ætlum að viðhalda tungumálinu sem hér hefur verið talað frá upphafi byggðar. Standa vörð um það,” segir hann en tekur fram að til þess að það heppnist þurfi að stórauka kennslu í íslensku sem öðru máli – þar sem nýlega var skorið niður: „Óskiljanleg ákvörðun sem hlýtur að vera endurskoðuð.” 

En hann telur ekki síður nauðsynlegt að stórauka allan stuðning við prentað mál, útgáfu bóka og efla lestur af öllum krafti. „Það gengur ekki lengur að upp undir 40% af einhverjum árgangi sé ólæs. Og ég efast ekkert um að þetta sé rétt því að það les enginn neitt,” fullyrðir hann, vanur maður á gólfinu, í skóm útgefanda. Sem spyr: „Hvað verður um þjóðfélagið ef enginn les neitt? Smám saman fjarar undan öllu. Það verður ekki samfélag sem ég held að okkur langi til að búa í. Næstu áratugir verða gríðarleg varnarbarátta.”

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 13. desember, 2025, 10:24

Auður Jónsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link