
– Af hverju er kosið um aðildarviðræður en ekki aðild?
– Ný regnhlífarsamtök létta líf þeirra sem verða fyrir háði og spotti.
– Rússnesk gervimenni gætu blandað sér í umræðuna.
– Hvort klýfur þjóðina; samtalið eða eyðleggingaröfl og óheiðarleiki?

Í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins fara Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir yfir kosningabaráttuna sem nú er að taka á sig mynd vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst.
Rætt er um sérstakt fyrirkomulag atkvæðagreiðslunnar, nýjar hreyfingar með og á móti aðildarviðræðum, gæði umræðunnar og þá hættu að erlend ríki, einkum Rússland, reyni að hafa áhrif á niðurstöðuna með upplýsingaóreiðu.
Í upphafi þáttar er farið yfir ástæður þess að þjóðin er spurð um viðræður við Evrópusambandið í stað þess að bíða með þjóðaratkvæði þar til samningur er í höfn.
Ísland er fyrsta umsóknarríkið sem spyr þjóðina álits áður en viðræðum er framhaldið en ekkert aðildarríki ESB fór þessa leið í aðildarferlinu. Fyrir þessu eru þó pólitískar ástæður. Það er ekki þingmeirihluti fyrir aðild að ESB en meirihluti þingmanna er samþykkur því að spyrja þjóðina hvort ljúka eigi aðildarviðræðum. Þetta er því eina raunhæfa leiðin fyrir Evrópusinnaða flokkaá þingi; Viðreisn og Samfylkinguna.
Evrópusinnaðir flokkar hafa önnur rök fyrir því að fara þessa leið og fá umboð þjóðarinnar til að halda viðræðum áfram. Dragist viðræður inn á næsta kjörtímabil yrði erfiðara fyrir nýja ríkisstjórn að láta málið niður falla hafi þjóðin þegar lýst vilja sínum til að sjá aðildarsamning.
Hreyfingarnar Já til að sjá og Áfram Ísland eru komnar fram, skipulagðar og með fjármagn á bak við sig, en sú síðarnefnda kallar sig „jákvæða nei-sinna“.
Nýjar hreyfingar eru til þess fallnar að auka breidd í umræðunni sem er af hinu góða fyrir báðar fylkingar. Nei-hliðin hafi verið nokkuð einangruð en þar hafa umdeildar persónur verið mest áberandi. Má þar nefna Frosta Sigurjónsson, sem sætir mikilli staðreyndavöktun á samfélagsmiðlum.
Nokkurs pirrings hefur orðið vart meðal þeirra sem eru neikvæðir gagnvart aðildarviðræðum og fólk kvartar undan því að það verði fyrir háðsglósum frá já-hliðinni, skoðanna sinna vegna. Í þættinum er rætt um hvort hin nýja Áfram Ísland hreyfing geti hentað „venjulegu“ fólki á nei-hliðinni sem hafi vantað heimili í baráttunni.
„Ríka fólkið vill ekki vera í sama herbergi og Heimssýn, en hefur þó sömu skoðanir“ (Illugi Jökulsson)
Þá er rætt hvort Halldór Benjamín Þorbergsson sé rétta andlitið fyrir Áfram Ísland, en hreyfingin hafi yfir sér áru fjármagnseigenda sem fari illa saman við hagsmuni vinstrisinnaðra skoðannasystkyna Sólveigar Önnu Jónsdóttur.
Vísað er til orða Illuga Jökulssonar sem orðaði þessa spennu á Facebook: „Ríka fólkið vill ekki vera í sama herbergi og Heimssýn, en hefur þó sömu skoðanir.“
Já, til að sjá sé sömuleiðis fjölbreyttur hópur, og bent er á ákveðið forskot sem Sjá samtökin hafi sem felist í því að fólk með ólík viðhorf til ESB geti sameinast undir hatti hennar þar sem hún berst einkum fyrir auknum upplýsingum.
Í þættinum er því velt upp hvort umræðan sé góð fyrir þjóðina óháð því hver niðurstaðan verði. Þjóðin kunni að koma betur upplýst út úr sumrinu óháð niðurstöðunni, ekki síst sem neytendur, enda hafi sjaldan verið rætt jafn mikið um vexti og matvælaverð.
Finna megi líkindi af þessu í sögunni; frá eftirhrunsárunum og Covid tímanum, þegar landsmenn urðu sérfræðingar í innistæðutryggingum, bankaleynd, sóttvörnum og sýnatökum en nú fræði þjóðin sig meðal annars um neytendamál, varnarmál og Evrópulöggjöf.
Erla Hlynsdóttir, sem sótti árlega ráðstefnu þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu, fer yfir viðvaranir sérfræðinga um að erlend ríki, einkum Rússland, reyni að hafa áhrif á þjóðfélagsumræðuna með gervigreind.
Á ráðstefnunni lýsti forstöðumaður öndvegisseturs NATO í upplýsingamálum í Ríga, nýrri kynslóð aðferða, þar sem gervigreindarpersónur með nafn og mynd taka þátt í samtölum á samfélagsmiðlum og virðast mannlegar. Hann tók dæmi af umræðu í Ríga um lélega götulýsingu, þar sem einn þátttakandi sneri henni skyndilega upp í að fé hefði verið sent til Úkraínu.
Erla bendir á að lítið tungumál verndi Íslendinga ekki lengur þegar gervigreindin er annars vegar. Bæði Rússland og Kína hafi hag af veikari samstöðu í Evrópu og deildarstjóri greiningardeildar ríkislögreglustjóra, Finnbogi Jónasson, hafi bent á að Ísland skipti máli sem hluti af NATO og öryggiskerfinu á Norður-Atlantshafi, milli Grænlands, Íslands og Bretlands. Kostnaðurinn við slíkar herferðir er lágur; NATO-setrið keypti í einni tilraun hundrað þúsund „áhrif“ á samfélagsmiðlum, læk, deilingar og sérsniðin komment, fyrir um 300 evrur eða rúmar 40 þúsund krónur.
Að lokum er í þættinum rætt hvort samtalið sundri þjóðinni en því var haldið töluvert á lofti á Alþingi í vor að þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB myndi ekki gera annað en kljúfa þjóðina. Aðalheiður lýsir því viðhorfi að það séu ekki skoðanaskiptin sjálf heldur eyðileggingaröfl, falsfréttir og óheiðarlegar tilraunir til að grafa undan lýðræðislegri umræðu sem kljúfi þjóðir.
Aðalheiður rifjar upp alræmda rútu útgöngusinna í Bretlandi, þar sem því var haldið fram að Bretar sendu Evrópusambandinu 350 milljónir punda á viku sem betur færi á að varið yrði í heilbrigðiskerfið. Þrátt fyrir að breska hagstofan hafi strax leiðrétt þessa rangfærslu hafi fjárhæðin reynst lífseig en árið 2018 trúðu 42 prósent þeirra sem heyrt höfðu hana að hún væri rétt.
Aðalheiður leggur þó áherslu á mikilvægan mun á aðdraganda Brexit og þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi í haust. Bretar höfðu ekki fyrirmynd til að læra af ólíkt Íslendingum sem njóta þess að geta lært af Brexit, auk þess sem spurningin í ágúst er ekki jafn afdrifarík og sú breska.
Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.