
– Nýr meirihluti í Reykjavík er byrjaður að hagræða, en hvað kemur í staðinn þegar upplýsingafulltrúum borgarinnar er sagt upp?
– Baráttan fyrir atkvæðagreiðslu haustsins gæti orðið eins og Brexit á röngunni.
– Helga Arnardóttir gengur til liðs við Gímaldið og byrjar á umfjöllun um matvöruverð.
– Ný skýrsla um Græna gímaldið er komin út.

Í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins fara Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir yfir fréttir vikunnar. Til umfjöllunar eru meðal annars fyrstu hagræðingaraðgerðir nýs meirihluta í Reykjavík og tíu ára afmæli Brexit og hvað íslensku já- og nei-hreyfingarnar geta lært af aðdraganda atkvæðagreiðslunnar í Bretlandi fyrir 10 árum.
Þátturinn hefst í Ráðhúsinu, þar sem nýr borgarstjóri, Hildur Björnsdóttir, er tekin til við þá „tiltekt“ sem lofað var í aðdraganda kosninga. Búið er að segja átján manns upp störfum og tvær skrifstofur af fimm lagðar niður. Af þeim átján sem misstu vinnuna voru fjórtán konur. Auk þess að leggja mannréttindaskrifstofuna niður var nánast öllum sagt upp á skrifstofu og viðburða, þar sem nánast öllum var sagt upp, þar á meðal sex upplýsingafulltrúum og einum samskiptastjóra.
Í þættinum er velt upp spurningum um hvað taki við í upplýsingamálum borgarinnar, hvort upplýsingamiðlun til borgarbúa verði útvistað til auglýsingastofa og hvort búast megi við “labba og tala” myndböndum á samfélagsmiðlum.
Frá Ráðhúsinu liggur leiðin í Downingstræti 10. Keir Starmer er sjötti forsætisráðherra sem sagt hefur af sér frá þjóðaratkvæðagreiðslu þeirra Breta um Brexit. Í þættinum er farið yfir áherslur með og á móti hreyfinga Breta í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar og hvort í þeim leynist lærdómar fyrir stríðandi fylkingar á Íslandi.
Í Bretlandi börðust andstæðingar ESB fyrir breytingum en aðildarsinnar vörðu óbreytt ástand með hræðsluáróðri. Á Íslandi snýst þetta við, þar sem Evrópusinnar boða breytingar en andstæðingar aðildar þurfa að verja óbreytt ástand.
Þá benda greiningar í Bretlandi til þess Bretar hafi ekki eingöngu beitt hörðu hagsmunamati í kjörklefanum, heldur hafi þeir líka leyft tilfinningum að ráða. Í þættinum er rætt um hvort aðildarsinnar á Íslandi þurfi að taka þetta taka til sín og gangast betur við því að vera Evrópusinnar.
Þátturinn kynnir einnig nýja liðskonu Gímaldsins, Helgu Arnardóttur, reynda fjölmiðlakonu sem starfað hefur lengi við fréttir og dagskrárgerð.
Helga reið á vaðið í vikunni með þátt um eitt helsta hagsmunamál íslenskra heimila: matvöruverð, sem er svo hátt í evrópskum samanburði að hin háu íslensku laun duga ekki til að skýra muninn.
Helga leitar svara hjá stéttarfélögum, Neytendasamtökunum og Samkeppniseftirlitinu, en forstjóri þess gagnrýnir að samkeppni á matvörumarkaði snúist of lítið um verð og meira um útlit verslana og fjölda afgreiðslukassa.
Að lokum er vikið að stjórnsýsluúttekt á skipulagsferli Græna gímaldsins, sem birt var í síðustu viku. Bent er á tengsl úttektarinnar við nýlegar uppsagnir á skrifstofu borgarstjóra. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn, undir forystu Hildar Björnsdóttur, lagði til úttektina í janúar 2025 var hún harðorð í garð þáverandi borgarstjóra, Einars Þorsteinssonar, og sagði í viðtali á Bylgjunni: „Ég lít svo á að þetta klúður hafi átt sér stað á skrifstofu borgarstjóra.“
Nú beinist tiltekt Hildar einmitt að þeirri skrifstofu. Athygli vekur að hvorki minnihluti né meirihluti kjósa að ræða skýrsluna, enda situr Hildur nú í meirihluta með bæði Einari og Björgu, fyrrverandi aðstoðarmanni borgarstjóra. Enginn virðist lengur hafa hag af því að halda málinu á lofti.
Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að ofan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.