Ungt fólk tengir ensku við skemmtun en íslensku við leiðréttingar
Ritstjórn
7. nóvember 2025 – 12:00
Lestími: 8 mínútur
Yngri kynslóðum er orðið tamara að hugsa á ensku en íslensku og viðhorf til ensku er jákvæðara en til íslenskunnar. Hið ástkæra ylhýra er tengt við leiðréttingar, reglur og skyldur en enskan við afþreyingu og skemmtun. Ef við missum tungumálið þá missum við tengsl við okkar innra líf.
Bókaútgefandi, uppgjafaprófessor, lektor í bókmenntum og þýðandi voru fengin til að ræða um íslenska tungu við Gímaldið. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa áhyggjur af tungumálinu og vilja að gripið sé til aðgerða til að bjarga íslenskunni frá hnignun. Í viðtölum sem birt hafa verið síðustu daga hafa þau lýst birtingarmyndum þessa ófremdarástands og rætt leiðir sem færar eru til að þjóðin komist á rétta braut.
Ungu fólki tamara að hugsa á ensku
Páll Valsson bókaútgefandi bendir á að orðaforði fólks á íslensku sé orðinn „afar fátæklegur, enda fylgir það hratt minnkandi lestri“. Orðum sínum til stuðnings rifjar hann upp að á kóræfingu kvöldið áður hafi orðið hjóm komið fyrir og ung stúlka um þrítugt spurt: „Hjóm, hvað þýðir það?“ Hún hafði aldrei heyrt orðið. „Þetta er vandamálið. Orðaforðinn dregst ótrúlega hratt saman en fólki er alveg sama. Það er alveg hrikalegt. Maður getur gert grín að þessu en svo hættir þetta að vera fyndið.
Páll Valsson útgefandi. Mynd/Bára Huld Beck
Við verðum að horfast í augu við veruleikann og hann er sá að íslenskan á alls staðar undir högg að sækja. Sama hvar þú drepur niður fæti
Ungu fólki er mörgu orðið tamara að hugsa á ensku en íslensku. Það segir manni að íslenskan er auðvitað í stórhættu. Við verðum að horfast í augu við veruleikann og hann er sá að íslenskan á alls staðar undir högg að sækja. Sama hvar þú drepur niður fæti,“ segir Páll í viðtalinu.
Hann nefnir einnig hættuna sem þessu fylgi, að það að fólk upplifi að tungumálið sé að hverfa geti ýtt undir óánægju fólks sem aftur opni dyr fyrir lýðskrumara.
„Þarna er fólk líka í hættu á að verða fórnarlömb popúlisma. Þetta er ein skýringin á uppgangi hans – eða lýðhyggju. Maður mætir eldra fólki og það veltir fyrir sér: Bíddu, ég hef búið í þessu landi í 70 ár og ég vil ekki þurfa að tala ensku til þess að geta keypt mér brauð.“
Er það rasismi?
„Að sjálfsögðu ekki. Við eigum að líta svo á að við þurfum að hjálpa fólki að læra íslensku. Langflestir sem hér setjast að vilja læra málið. Ég hef hitt fjölda fólks sem hefur gert Ísland að heimili sínu og er alltaf að reyna að læra íslensku. Nemendur mínir frá Svíþjóð komu hingað sem skiptinemar til að efla sig í íslensku, en þau kvörtuðu yfir því að Íslendingar fóru alltaf að tala ensku við þau. Þau sögðu: Ég reyni að tala íslensku en það er strax skipt yfir í ensku,“ segir hann.
Eftir 100 ár gæti fólk átt erfitt með að skilja nútímaíslensku
Brynja Þorgeirsdóttir, lektor í íslenskum bókmenntum við Háskóla íslands, hefur rannsakað tilfinningar í fornsögum og segir hættu á að við missum ákveðnar tengingar við það að vald okkar á tungumálinu minnkar.
„Tungumálið mótar alla hugsun okkar, það mótar orðin, myndmálið og blæbrigðin sem þarf til að lýsa innri reynslu á nákvæman og merkingarbæran hátt – án þess mætti segja að við séum í hættu á að missa öll tengsl við okkar innra líf.“
Brynja Þorgeirsdóttir lektor í bókmenntum. Mynd/Bára Huld Beck
Ef ensk áhrif halda áfram að aukast og íslenskan veikist enn meira í daglegu máli og menningu gæti málþróunin orðið svo hröð að fólk eftir hundrað ár ætti erfitt með að skilja nútímaíslensku
Enskan breiðir út vængi sína í dag og smýgur inn í ólíklegustu skúmaskot. Aðspurð hvort fólk eftir hundrað ár geti átt erfitt með að skilja það sem við skrifum á íslensku í dag svarar Brynja:
„Ég hef satt að segja miklar áhyggjur af áhrifum enskunnar á íslenskuna; ef ensk áhrif halda áfram að aukast og íslenskan veikist enn meira í daglegu máli og menningu gæti málþróunin orðið svo hröð að fólk eftir hundrað ár ætti erfitt með að skilja nútímaíslensku.
Þó finnst mér annað enn meira aðkallandi, og það er við sjáum sóma okkar í að bjóða upp á nægilegt framboð á íslenskukennslu fyrir þau sem hafa annað móðurmál en kjósa að flytja hingað til lands.“
Íslendingavandamál að innflytjendur tali ekki málið
Unga fólkið tengir ensku við skemmtun en íslensku við leiðréttingar
Eiríkur Rögnvaldsson titlar sig uppgjafaprófessor, en fáir hafa skrifað meira um íslenska tungu og stöðu hennar en einmitt hann.
Hann beinir talinu að tveimur rannsóknum sem sýna að þegar nemendur í efstu deild grunnskóla eða í byrjun framhaldsskóla eru spurð: Hvað dettur þér í hug þegar ég nefni íslensku? – þá segja þau: Skylda, leiðréttingar og reglur – og fleira slíkt.
Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emeritus. Mynd/Bára Huld Beck
Íslenska er „dull“ – einhverjar reglur, leiðréttingar og skylda. En enskan, það er fjör!
„En ef þau eru spurð: Hvað dettur þér í hug þegar ég nefni ensku? – þá svara þau: Ferðalög, skemmtun og afþreying – eitthvað í þeim dúr.“
Hann tekur fram að þarna sé verið að spyrja um viðhorf til námsgreinanna íslensku og ensku. „En miklar líkur eru á að það færist yfir á viðhorf til tungumálsins íslensku. Íslenska er „dull“ – einhverjar reglur, leiðréttingar og skylda. En enskan, það er fjör! Þetta hlýtur að hafa áhrif á ómeðvituð viðhorf til íslenskunnar.“
Og því næst: „Við aftur á móti viðurkennum ekki að fólk tali íslensku nema að það tali hana nokkurn veginn lýtalaust. Það spillir svo mikið fyrir. Fyrir ári kom út skýrsla fá OECD um innflytjendur á Íslandi. Þar var gert mikið úr því að hlutfall þeirra innflytjenda sem tala þokkalega mál landsins þar sem þeir eru væri lægst á Íslandi. Lægst af öllum OECD-löndum. Það var eitthvað innan við 20 prósent.“
Annars staðar á Norðurlöndum er hlutfallið á milli 45 og 60% samkvæmt skýrslunni. „Snorri Másson talaði um það sem „augljóst og alvarlegt útlendingavandamál“ að innflytjendur á Íslandi standi sig svo illa í að tileinka sér tungumál landsins. En það má halda því fram að þetta sé fremur Íslendingavandamál: Það eru Íslendingar sem standa sig svo illa í að kenna innflytjendum málið. Þar fyrir utan held ég að þessar tölur séu ekki alveg sambærilegar vegna þess að þetta var byggt á sjálfsmati. Innflytjendur voru spurðir: Telur þú þig vera sæmilega færan í tungumáli landsins? Og innflytjendur á Íslandi – sem mæta sífellt neikvæðni og sífellt sagt við þá að þeir tali ekki almennilega íslensku og þeir leiðréttir – þeir segja auðvitað ekki já við svona spurningu.“
Þýðandinn Jean-Christophe veit af reynslu að það tekur tíma að læra íslensku. „Oft er fólk að vinna til dæmis á kaffihúsum og hefur hvorki tíma né peninga til að læra íslensku eftir tíu tíma vakt.“ Sjálfur var hann nemandi við Háskóla Íslands: „ … og það var alltaf minn tilgangur að ná að læra íslensku. En ég var sjálfur mjög feiminn að tala.
Jean-Christophe þýðandi. Mynd/Aðsend
Mér fannst að Íslendingar væru ekki vanir að heyra útlenskan hreim
Þegar ég reyndi að tala íslensku var mér stundum svarað á ensku eða átti erfitt með að tjá mig. Það getur líka verið pínu niðurdrepandi. Svo ég myndi ekki dæma fólk fyrir að læra ekki íslensku eða þora ekki að tala hana, sérstaklega í þessum svolítið stressandi störfum þar sem maður þarf að hugsa um margt annað.“
„Ég talaði íslensku eiginlega bara í háskólanum og kannski í búðum, en skipti sjálfur frekar hratt yfir í ensku því ég var mjög meðvitaður um mína bjöguðu íslensku. Mér fannst að Íslendingar væru ekki vanir að heyra útlenskan hreim. Ég var alltaf að passa mig að bera allt mjög vel fram. Mér fannst hræðilegt að vera með hreim,“ segir hann í viðtali.
Hann telur að ekki eigi að skikka Íslendinga til að tala ensku heldur frekar leggja áherslu á íslenskuna.
„Íslendingar tala eða skilja víst flestir ensku en það ætti aldrei að vera skylda fyrir þá. Heldur ekki á ferðamannastöðum. Íslendingar ferðast líka í sínu eigin landi! En eins og ég sagði, sem ferðamaður er gaman að upplifa tungumál sem maður þekkir ekki. Ég hef reyndar talað við nokkra Frakka sem fannst pínu dapurlegt hvað enskan virtist hafa tekið yfir sumum stöðum á Íslandi.“
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.