
Gímaldið ræðir við Dag B. Eggertsson um heimsmálin, vestræna samvinnu, sambandið við Bandaríkin og Evrópu, vígbúnað Norðurlandanna og hvernig Íslendingar eiga að fara að því að verjast mögulegum ófriði.

Ríkisstjórnin þarf að hafa gott samráð við stjórnarandstöðuflokka á Alþingi um stór mál sem fram undan eru í þinginu og varða þjóðaröryggismál Íslendinga. Þetta segir Dagur B Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar. Hann segir átökin um aðild Íslands að NATO fyrir 80 árum enn hvíla á þjóðinni. Þetta sé til marks um að leyndarkúltúr gagnist ekki þótt um viðkvæm þjóðaröryggismál sé að ræða. Dagur hvetur til samráðs á sem flestum sviðum, þar á meðal um tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu.
Dagur er formaður Íslandsnefndar NATO-þingsins og átti sæti í þingmannanefnd þeirri sem lagði grunn að öryggis og varnarstefnu sem er til meðferðar á Alþingi. Áður en Dagur settist á þing var hann um árabil formaður Almannavarnarnefndar. Gímaldið ræðir við Dag um heimsmálin, vestræna samvinnu, sambandið við Bandaríkin og Evrópu, vígbúnað Norðurlandanna og hvernig Íslendingar eiga að fara að því að verjast mögulegum ófriði.
„Norðurlöndin eru að búa sig undir stríð, ekki bara með hernaðaruppbyggingu heldur einnig með öðrum viðbúnaði til dæmis á sjúkrahúsum og með birgðasöfnun,“ segir Dagur. Hann leggur áherslu á að Ísland veiti góða gistiríkisþjónustu fyrir bandalagsríki gætu þurft á Íslandi að halda en lega landsins er mikilvæg hernaðarlega.
„Maður vill ekki mála upp of dökka mynd en þetta er svolítið eins og í almannavörnunum að við verðum að vera samt heiðarleg með það sem getur teiknast upp og axla ábyrgð á að búa okkur undir það. Hluti af því er að fólk átti sig á því að í þessum breytta heimi getum við ekki bara legið á bakinu og vonað það besta,“ segir Dagur.
Dagur víkur bæði að stríðinu í Úkraínu og að skiptum skoðunum um viðbrögð við hótunum Bandaríkjaforseta í garð Grænlands. „Einn þráður í umræðunni hefur verið sá að við eigum að láta sem minnst fyrir okkur fara og ekki taka prinsipp afstöðu og með alþjóðalögum og Grænlendingum en þá í mínum huga erum við farin að tala gegn þjóðarhagsmunum,“ segir Dagur. Það sé skylda okkar að undirbúa okkur bæði með það fyrir augum sem er líklegast, að NATO haldi og varnarsamningurinn haldi en að við þurfum líka að búa okkur það sem er ólíklegt en mjög afdrifaríkt.
Í viðtalinu ræðir Dagur fjölbreytt samstarf Íslands í varnarmálum við Bretland, Belgíu, Kanada, Norðurlöndin, Eistrasaltsríkin og önnur ríki Evrópu. „Þegar heimurinn breytist verðum við að átta okkur á því að þurfum við sterkari bandalög, við þurfum meiri samstöðu með Norðurlöndunum innan NATO en líka innan Evrópusamvinnunnar. „Þess vegna finnst mér rökin fyrir því að bindast Evrópu sterkari böndum vera þjóðaröryggismál.“
Hægt er að hlusta á viðtalið við Dag í spilaranum hér fyrir ofan og í öllum helstu hlaðvarpsveitum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.